Winter Hush Sweater#winterhushsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma eða DROPS Saga. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 271-13 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptingunni yfir í stroff, þá verður útaukningin jafnari ef aukið er út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðið, sléttprjónuðu lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjón frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-104-108-112-120-124-128 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Karisma eða DROPS Saga. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff hringinn (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-3½-3½-4-4 cm. Prjónið síðan kantlista í hálsmáli þannig: UMFERÐ 1: Fjöldi lykkja á að tvöfaldast í þessari umferð: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 208-208-216-224-240-248-256 lykkjur. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn brugðið, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, þegar lykkjunni er lyft er hægri prjóni stungið inn í lykkjuna eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn sem prjónað er með aftan við stykkið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 3: * Lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, þegar lykkjunni er lyft er hægri prjóni stungið inn í lykkjuna eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn sem prjónað er með framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 4: * Prjónið 1 lykkju brugðið, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, þegar lykkjunni er lyft er hægri prjóni stungið inn í lykkjuna eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn sem prjónað er með aftan við stykkið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 5: Lykkjufjöldinn á að helmingast: * 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn = 104-104-108-112-120-124-128 lykkjur. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Eftir kantlista í hálsmáli er sett 1 merki eftir fyrstu 35-35-36-37-40-41-43 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 8 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í hvoru megin við 4 lykkjur, þessar 4 lykkjur eru auknar út til 6 lykkjur í fyrstu umferð. Þessar 6 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar í MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan. Setjið 1. merki á undan 1. lykkju í byrjun umferðar, teljið 4 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 21-21-21-21-25-25-27 lykkjur (= ermi), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 4 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, teljið 23-23-25-27-27-29-29 lykkjur (= framstykki), setjið 5. merki á undan næstu lykkju, teljið 4 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 6. merki á undan næstu lykkju, teljið 21-21-21-21-25-25-27 lykkjur (= ermi), setjið 7. merki á undan næstu lykkju, teljið 4 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 8. merki á undan næstu lykkju. Það eru eftir 23-23-25-27-27-29-29 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið síðan sléttprjón með mynstri yfir laskalykkjurnar - jafnframt er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringuna að ofan um hvernig á að auka út og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið A.1 á milli 1. og 2. merkis, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 21-21-21-21-25-25-27 lykkjur slétt (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 á milli 3. og 4. merkis, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 23-23-25-27-27-29-29 lykkjur slétt (= framstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 á milli 5. og 6. merkis, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 21-21-21-21-25-25-27 lykkjur slétt (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 á milli 7. og 8. merkis, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 23-23-25-27-27-29-29 lykkjur slétt (= bakstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu = 120-120-124-128-136-140-144 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. A.1 hefur nú verið prjónað til loka. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður, en nú er prjónað A.2 á milli 1. og 2. merkis og á milli 3. og 4. merkis og A.3 á milli 5. og 6. merkis og á milli 7. og 8. merkis. Að auki er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn eins og áður. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 8-12-17-23-22-22-18 sinnum (= 18-26-36-48-46-46-38 umferðir prjónaðar á eftir kantlista í hálsmáli) = 184-216-260-312-312-316-288 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður (uppslátturinn er prjónaður eins og áður). UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á EFTIR 4. og 8. merki og á UNDAN 5. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður (uppslátturinn er prjónaður eins og áður). Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 10-9-7-5-7-8-12 sinnum (= 40-36-28-20-28-32-48 umferðir prjónaðar = 10-9-7-5-7-8-12 sinnum útaukning á ermum og 20-18-14-10-14-16-24 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki). Öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka, stykkið mælist ca 21-22-23-24-26-28-31 cm frá merki fyrir miðju að framan, aukið hefur verið út alls 19-22-25-29-30-31-31 sinnum á ermum og 29-31-32-34-37-39-43 sinnum á framstykki/bakstykki = 304-324-344-372-396-412-432 lykkjur í umferð. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT því sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 7-8-9-10-11-12-12 lykkjur eins og áður (= þessar lykkjur tilheyra bakstykki), setjið næstu 57-61-65-71-75-75-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-22-26 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 95-101-107-115-123-131-139 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 57-61-65-71-75-75-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-22-26 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 88-93-98-105-112-119-127 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 210-226-242-262-282-306-330 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 10-12-14-16-18-22-26 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 43-45-47-49-49-51-53 cm frá merki fyrir miðju að framan - ATH: Lykkjurnar sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermum eru prjónaðar í sléttprjóni. Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið stroff í hring (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 42-48-52-54-60-68-76 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING – það verður að auka út 1 lykkju í A.2 og A.3 til að stroffið komi til með að passa fallega yfir mynstrið. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – notið e.t.v. ítalska affellingu. Peysan mælist 47-49-51-53-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 57-61-65-71-75-75-77 lykkjur af þræði frá ermi í annarri hliðinni á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-18-22-26 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 67-73-79-87-93-97-103 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-12-14-16-18-22-26 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón í hring – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-2-2-2-3-3-3 sinnum, síðan er fækkað um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm 0-2-4-7-8-9-11 sinnum = 63-65-67-69-71-73-75 lykkjur í umferð. Prjónið þar til ermin mælist 38-38-38-37-35-34-32 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 17-17-17-19-19-19-21 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 80-82-84-88-90-92-96 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-6-7-7-7 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – notið e.t.v. ítalska affellingu. Ermin mælist ca 44-44-44-43-42-41-39 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterhushsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 271-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.