Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig á að fella af í stroffprjóni með evrópskri aðferð. Þessari aðferð er oft lýst sem "fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur" hvort sem um er að ræða 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið eða 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið eða aðrar útgáfur af stroffprjóni. Affellingin verður teygjanleg.
ÁÐUR EN MYNDBANDIÐ BYRJAR:
Við höfum þegar prjónað nokkra cm með 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið og fellt af nokkrar lykkjur í stroffprjóni.
Fellið af í stroffprjóni - eða fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur - þýðir að til að lykkjan sé felld af, þá á lykkjan að vera prjónuð eins og hún var prjónuð í umferðinni fyrir neðan.
MYNDBANDIÐ SÝNIR:
Sléttprjónaðar lykkjur eru prjónaðar slétt og brugðnar lykkjur eru prjónaðar brugðið á sama tíma og fellt er af með því að steypa næst síðustu lykkju sem var prjónuð yfir síðustu lykkjuna sem var prjónuð (á hægri prjóni).
Mynstur þar sem þessi aðferð er notuð
Skrifaðu athugasemdir eða spurningar fyrir þetta myndband
Netfangið þitt verður ekki birt. Það verður að merkja við svæði merktri með *.