Í þessu DROPS myndbandi sýnum við hvernig hægt er að prjóna kantlista með tvöföldu sléttprjóni eftir hálsmál, þannig að það sé sléttprjón á réttu og röngu hliðinni. Kantlistinn endar með umferð þar sem allar lykkjur eru prjónaðar brugðið saman tvær og tvær. Það er prjónað ofan frá og niður og í hring á hringprjón. Aðferðin er sú sama hvort sem prjónað er ofan frá og niður eða neðan frá og upp.
ÁÐUR EN MYNDBANDIÐ BYRJAR:
Við höfum fitjað upp og prjónað 5 cm stroffprjón.
MYNDBANDIÐ SÝNIR:
1. UMFERÐ (= rétta):
Fjöldi lykkja á að tvöfaldast. * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
2. UMFERÐ:
* Prjónið uppsláttinn brugðið, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, þegar lykkjunni er lyft upp er hægri prjóni stungið inn í lykkjuna eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn sem prjónað er með aftan við stykkið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
3. UMFERÐ:
* Lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, þegar lykkjunni er lyft er hægri prjóni stungið inn í lykkjuna eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn sem prjónað er með framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
4. UMFERÐ:
* Prjónið 1 lykkju brugðið, lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, þegar lykkjunni er lyft er hægri prjóni stungið inn í lykkjuna eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn sem prjónað er með aftan við stykkið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
5. UMFERÐ:
Lykkjufjöldinn er helmingaður. * Prjónið 2 lykkjur brugðið saman *, prjónið frá *-* umferðina hringinn.
Eftir 5. UMFERÐ:
Nú er kantlistinn tilbúinn, en ef þú vilt að kantlistinn sé aðeins lengri má endurtaka umferð 3 og 4 einu sinni í viðbót áður en endað er með umferð 5.
Mynstur þar sem þessi aðferð er notuð
Skrifaðu athugasemdir eða spurningar fyrir þetta myndband
Netfangið þitt verður ekki birt. Það verður að merkja við svæði merktri með *.