Sandra skrifaði:
Heb de hals opgezet en verdeeld voor de pas. Nu eindig ik zoals in het patroon staat met 23 steken. Ga ik dan de volgende naald breien zoals in het patroon staat, brei ik 7 steken voorbies en 15 steken patroon A1 kom ik op 22 steken uit. Ik houd dus nog een steek over en dat is niet de raglsnsteek.
09.10.2026 - 15:41
Riverside Braids Cardigan#riversidebraidscardigan |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og áferðamynstri. Stærð XS – XXXL.
DROPS 273-15 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.7. Finndu þína stærð og byrjaðu í tilgreinda ör. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Færið uppsláttinn frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga vinstri prjóni inn aftan í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju með því að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja og prjóna þessa lykkju snúna svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7-7½-7½-7-7-7½-7½ cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli mynsturs og stroffs. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á lykkju með merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (merkið situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Kaðlar eru einungis prjónaðir á framstykkjum. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 111-111-119-119-123-127-127 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Fiesta. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan með i-cord – lesið KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD að ofan – prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið), þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og endið með 7 kantlykkjum að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff og kanta að framan þar til kantur í hálsmáli mælist 3½-3½-3½-4-4-4-4 cm. Setjið 1 merki innan við kant að framan í annarri hlið á stykki, stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að lykkjurnar séu prjónaðar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 23-23-25-25-25-27-27 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 31-31-35-35-39-39-39 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju. Það eru 23-23-25-25-25-27-27 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merki (= hægra framstykki). Nú er prjónað MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan, JAFNFRAMT sem aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan. Útaukning fyrir laskalínu er sýnd í mynsturteikningu. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu: FRAMSTYKKI: Prjónið kant að framan eins og áður (= 7 kantlykkjur að framan), prjónið A.1 yfir næstu 15-15-13-13-13-15-15 lykkjur JAFNFRAMT sem aukið er út um 3-3-5-5-5-3-3 lykkjur jafnt yfir þessar (til viðbótar við uppsláttinn í gatakaðli) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið A.2 (byrjið við tilgreinda ör), prjónið næstu lykkju slétt (= laskalykkja). ERMI: Prjónið A.3, prjónið A.4 alls 3 sinnum, prjónið A.5. BAKSTYKKI: Prjónið laskalykkju slétt, prjónið A.3, prjónið A.4 alls 7-7-8-8-8-9-9 sinnum, prjónið A.5, prjónið laskalykkju slétt. ERMI: Prjónið A.3, prjónið A.4 alls 3 sinnum, prjónið A.5. FRAMSTYKKI: Prjónið laskalykkjuna slétt, prjónið A.6 (byrjið við tilgreinda ör), prjónið A.7 yfir næstu 15-15-13-13-13-15-15 lykkjur JAFNFRAMT sem aukið er út um 3-3-5-5-5-3-3 lykkjur jafnt yfir þessar (til viðbótar við uppsláttinn í gatakaðli), endið með kant að framan eins og áður (= 7 kantlykkjur að framan) – munið eftir HNAPPAGAT. Lesið báða næstu kafla áður en prjónað er áfram til að fá yfirsýn yfir mynstrið og laskaútaukninguna og haldið áfram með mynstrið fram og til baka – munið að prjóna uppsláttinn í laskaútaukningunni eins og útskýrt er að ofan. MYNSTUR: Þegar A.3 og A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram með mynstrið á ermum og bakstykki eins og áður, með nýjum útaukningum prjónað í perluprjóni (= A.4), nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar A.2 og A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram með mynstrið á framstykkjum, með nýjum útaukningum prjónað í perluprjóni (= A.4), þ.e. síðustu 4-6-12-14-16-20-24 útaukningar í A.4 eru prjónaðar í þessu mynstri. Munið að fylgja prjónfestunni. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (eins og útskýrt er í mynsturteikningu) í annarri hverri umferð alls 12-14-20-22-20-20-16 sinnum (= 24-28-40-44-40-40-32 umferðir prjónaðar). Aukið síðan út fyrir laskalínu á framstykkjum og bakstykki í annarri hverri umferð, en á ermum er einungis aukið út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annað hvert skipti er hoppað yfir útaukningu á ermum og er einungis aukið út fyrir laskalínu á framstykjum/bakstykki). Aukið út á framstykkjum/bakstykki í annarri hverri umferð 20-20-16-16-20-24-32 sinnum og á ermum í 4. hverri umferð 10-10-8-8-10-12-16 sinnum (= 40-40-32-32-40-48-64 umferðir prjónaðar). Þ.e.a.s. aukið hefur verið út alls 32-34-36-38-40-44-48 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 22-24-28-30-30-32-32 sinnum á ermum. Eftir alla útaukningu eru 59-63-71-75-75-79-79 lykkjur á hvorri ermi, 95-99-107-111-119-127-135 lykkjur á bakstykki, 62-64-70-72-74-78-82 lykkjur á hvoru framstykki ásamt kanti að framan (gatakaðlar eru taldir sem 3 lykkjur óháð umferð) og 4 laskalykkjur = 341-357-393-409-421-445-461 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 23-24-26-27-29-31-34 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar við laskalínuna þannig: Prjónið 62-64-70-72-74-78-82 lykkjur eins og áður (= framstykki – gatakaðlar eru taldir hér sem 3 lykkjur óháð umferð), setjið næstu 61-65-73-77-77-81-81 lykkjur á þráð fyrir ermi (ásamt laskalykkjum), fitjið upp 9-13-13-17-17-21-25 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 95-99-107-111-119-127-135 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 61-65-73-77-77-81-81 lykkjur á þráð fyrir ermi (ásamt laskalykkjum), fitjið upp 9-13-13-17-17-21-25 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 62-64-70-72-74-78-82 lykkjur eins og áður (= framstykki – gatakaðlar eru taldir sem 3 lykkjur óháð umferð). Fram- og bakstykki og ermar er prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 237-253-273-289-301-325-349 lykkjur. Prjónið mynstur og kanta að framan eins og áður – nýjar lykkjur undir hvorri ermi eiga að ganga jafnt upp í perluprjón (= A.4). Prjónið þar til stykkið mælist 43-45-47-49-50-52-54 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 22-24-28-32-36-40-44 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 259-277-301-321-337-365-393 lykkjur, prjónið þannig. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 5-5-5-5-6-6-6 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 48-50-52-54-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 61-65-73-77-77-81-81 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 9-13-13-17-17-21-25 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 70-78-86-94-94-102-106 lykkjur. Setjið 1 merki mitt í 9-13-13-17-17-21-25 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar í þessari lykkju og þessi lykkja er alltaf prjónuð í sléttprjóni. Prjónið mynstur hringinn eins og áður, stillið af að mynstur A.4 haldi áfram eins og áður frá berustykki yfir á ermi – mynstrið kemur ekki alltaf til með að ganga jafnt upp undir ermi – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðu undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-3-4-5-5-6-7 sinnum, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 10-7-5-3½-3½-2½-2 cm 2-4-6-8-7-9-9 sinnum = 62-64-66-68-70-72-74 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist ca 37-37-35-35-32-31-28 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 12-12-14-14-14-14-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 74-76-80-82-84-86-88 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-5-6-6-6 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-42-40-40-38-37-34 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #riversidebraidscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.