Twilight Veil Jacket#twilightveiljacket |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð síð / oversize peysa úr 1 þræði DROPS Fiesta og 1 þræði DROPS Melody. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, v-hálsmáli, i-cord, vösum og belti. Stærð S - XXXL.
DROPS 272-17 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. VINSTRI KANTLISTI MEÐ I-CORD: RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 9-9-9-10-10-10 lykkjur í garðaprjóni. RANGA: Prjónið 9-9-9-10-10-10 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. HÆGRI KANTLISTI MEÐ I-CORD: RÉTTA: Prjónið 9-9-9-10-10-10 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkjur slétt og 9-9-9-10-10-10 lykkjur í garðaprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar stuttar umferðir eru prjónaðar, þá kemur oft lítið gat þegar stykkinu er snúið – það er hægt að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Setjið þráðinn yfir á hægri prjón og herðið á þræðinum vel að aftan (með þessu þá myndast tvær lykkjur á prjóni). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkin eru prjónuð. Á framstykkjum er fyrst prjónaður kantlisti að framan sem sauma á meðfram hnakka í frágangi, síðan eru framstykkin prjónuð með því að taka upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki. Prjónið niður á við að handvegi JAFNFRAMT því sem lykkjum er aukið út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Við handveg eru framstykkin og bakstykkið sett á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. Það eru prjónuð of fyrir vasa, síðan eru vasarnir prjónaðir. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpuna og síðan er ermin prjónuð niður á við í hring. Kantlinn frá hvoru framstykki er saumaður saman, saumur = mitt að aftan, saumið kantlistann við lykkjur í kringum hálsmál. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 20-20-22-22-24-24 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði DROPS Fiesta og 1 þræði DROPS Melody (= 2 þræðir). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 9-10-10-11-11-11 sinnum (= 18-20-20-22-22-22 prjónaðar umferðir), á eftir síðustu útaukningu eru = 56-60-62-66-68-68 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hlið. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan í sléttprjóni – Munið að fylgja prjónfestunni – þar til stykkið mælist 11-12-10-10-9-8 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handvegi. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-5-5-7-8 sinnum (= 6-6-10-10-14-16 umferðir prjónaðar) = 62-66-72-76-82-84 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 15-16-17-17-18-19 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er prjónaður vinstri kantlisti og vinstra framstykki meðfram vinstri öxl frá bakstykki – lesið útskýringu að neðan. VINSTRI KANTLISTI: Fitjið upp 11-11-11-12-12-12 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið VINSTRI KANTLISTI MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til kantlisti mælist 8-8-9-9-10-10 cm, endið með umferð frá röngu, prjónið síðan áfram eins og útskýrt er að neðan á vinstra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt á borð með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði/hjálparprjóni snúi að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu 11-11-11-12-12-12 lykkjur frá kantlista, prjónið síðan upp 1 lykkju í hverri prjónaðri umferð innan við ystu lykkju (prjónaðar eru upp 18-20-20-22-22-22 lykkjur frá bakstykki) = 29-31-31-34-34-34 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 11-11-11-12-12-12 lykkjur eru eftir, prjónið 11-11-11-12-12-12 lykkjur frá kantlista eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 11-11-11-12-12-12 lykkjur frá kantlista eins og áður, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 11-11-11-12-12-12 lykkjur eru eftir, prjónið 11-11-11-12-12-12 lykkjur í kantlista eins og áður. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 þar til stykkið mælist 6-6-7-7-7-7 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að fækka lykkjum í sjálfum kantlistanum, auka út fyrir v-hálsmáli, jafnóðum og einnig er aukið út í hlið við handveg. Útaukning í hlið byrjar áður en útaukning fyrir V-hálsmáli er lokið, lestu því alla 3 næstu kafla áður en prjónað er áfram, til að fá yfirlit yfir þegar útaukningin fyrir handveg byrjar. ÚRTAKA Í KANTLISTA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu 2 lykkjur í kantlista eins og áður, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið afgang af kantlista eins og áður, aukið út fyrir v-hálsmáli eins og útskýrt er að neðan og prjónið afgang af framstykki eins og áður (= 1 lykkja færri). Endurtakið þessa umferð með 7-7-7-6-6-6 cm millibili alls 4-4-4-5-5-5 sinnum, þ.e.a.s. kantlistinn nær frá 11-11-11-12-12-12 lykkjum yfir í 7 lykkjur í öllum stærðum. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kantlista eins og áður, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið að kantlista, prjónið kantlista eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-5-5-6-6 sinnum (= 8-8-10-10-12-12 umferðir prjónaðar). Síðan er aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kantlista eins og áður, aukið út 1 lykkju til vinstri – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kantlista, prjónið kantlista eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kantlista eins og áður, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kantlista, prjónið kantlista eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 4 alls 4-4-4-4-4-4 sinnum (= 20-20-20-20-20-20 umferðir prjónaðar). Aukið síðan út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kantlista eins og áður, aukið út 1 lykkju til vinstri – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kantlista, prjónið kantlista eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið kantlista eins og áður, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kantlista, prjónið kantlista eins og áður. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið kantlista eins og áður, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kantlista, prjónið kantlista eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 6 alls 2-2-2-2-2-2 sinnum (= 12-12-12-12-12-12 umferðir prjónaðar). Nú hefur verið aukið út alls 10-10-11-11-12-12 sinnum fyrir v-hálsmáli. Síðan er haldið áfram í sléttprjóni með kantlista eins og áður (ATH: Síðasta útaukning fyrir v-hálsmáli er gerð eftir að framstykkin og bakstykkið hefur verið sett saman eins og útskýrt er aðeins neðar). ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 23-24-22-24-23-22 cm (frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp), aukið út í hlið við handveg þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kantlista eins og áður, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið fram að kantlista, prjónið kantlista eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-5-5-7-8 sinnum (= 6-6-10-10-14-16 umferðir prjónaðar). Prjónið síðan þar til stykkið mælist 27-28-29-31-32-33 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp efst á framstykki, endið með umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er prjónaður hægri kantlisti og hægra framstykki meðfram hægri öxl á bakstykki – lesið útskýringu að neðan. HÆGRI KANTLISTI: Fitjið upp 11-11-11-12-12-12 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið HÆGRI KANTLISTI MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til kantlisti mælist 8-8-9-9-10-10 cm, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn og setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, prjóna á síðan yfir kantlista að framan þegar lykkjur eru prjónaðar upp fyrir hægra framstykki. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (prjónaðar eru upp 18-20-20-22-22-22 lykkjur frá bakstykki), prjónið síðan 11-11-11-12-12-12 lykkjur frá kantlista inn í umferðina = 29-31-31-34-34-34 lykkjur í umferð. Öll mál á lengdina eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 11-11-11-12-12-12 lykkjur frá kantlista eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til 11-11-11-12-12-12 lykkjur eru eftir, prjónið11-11-11-12-12-12 lykkjur frá kantlista eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 6-6-7-7-7-7 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að fækka lykkjum í sjálfum kantlistanum, aukið er út fyrir v-hálsmáli, jafnóðum og aukið er út í hliðum við handveg, lestu því alla næstu 3 kafla áður en prjónað er áfram til að fá yfirlit til að fá yfirlit yfir þegar útaukningin fyrir handveg byrjar. ÚRTAKA Í KANTLISTA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir við miðju að framan, prjónið 2 umferðir snúnar slétt saman, prjónið síðustu 2 lykkjur eins og áður (= 1 lykkja færri). Endurtakið þessa umferð með 7-7-7-6-6-6 cm millibili alls 4-4-4-5-5-5 sinnum, þ.e.a.s. kantlistinn nær frá 11-11-11-12-12-12 lykkjum yfir í 7 lykkjur í öllum stærðum. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt fram að kantlista, aukið út 1 lykkju til hægri – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið kantlista eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kantlista eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-5-5-6-6 sinnum (= 8-8-10-10-12-12 umferðir prjónaðar). Aukið síðan út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt fram að kantlista, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið kantlista eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kantlista eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt fram að kantlista, prjónið kantlista eins og áður. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið kantlista eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 4-4-4-4-4-4 sinnum (= 20-20-20-20-20-20 umferðir prjónaðar). Aukið síðan út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt fram að kantlista, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið kantlista eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kantlista eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt fram að kantlista, prjónið kantlista eins og áður. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið kantlista eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið slétt fram að kantlista, prjónið kantlista eins og áður. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið kantlista eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 til 6 alls 2-2-2-2-2-2 sinnum (= 12-12-12-12-12-12 umferðir prjónaðar). Nú hefur verið aukið út alls 10-10-11-11-12-12 sinnum fyrir v-hálsmáli. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og með kantlista (ATH: Síðustu útaukningar eru gerðar eftir að framstykkin og bakstykki hefur verið sett saman eins og útskýrt er að neðan): ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 23-24-22-24-23-22 cm, aukið út í hlið við handveg þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið slétt fram að kantlista, prjónið kantlista eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kantlista eins og áður, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-5-5-7-8 sinnum (= 6-6-10-10-14-16 umferðir prjónaðar). Prjónið síðan þar til stykkið mælist 27-28-29-31-32-33 cm, mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp efst á framstykki, endið með umferð frá réttu. Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt e að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu – byrjið með lykkjur yfir hægra framstykki og prjónið umferðina þannig: Prjónið lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 lykkjur í lok umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 62-66-72-76-82-84 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið lykkjur frá vinstra framstykki. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið fram og til baka frá miðju að framan yfir allar lykkjur í sléttprjóni og kantlista eins og áður og aukið út fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið eins og áður. Þegar útaukningu fyrir v-hálsmáli er lokið, eru 150-158-170-182-194-202 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist 14-15-16-16-17-18 cm frá handvegi. Nú á að gera op fyrir vasa. VASAOP: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, er gert op fyrir vasa þannig: Prjónið kantlista eins og áður, prjónið 6-8-8-10-10-12 lykkjur sléttprjón, setjið næstu 22-22-24-24-26-26 lykkjur á þráð fyrir vasa, fitjið upp 22-22-24-24-26-26 nýjar lykkjur í umferð, prjónið sléttprjón þar til 35-37-39-41-43-45 lykkjur eru eftir í umferð, setjið næstu 22-22-24-24-26-26 lykkjur á þráð fyrir vasa, fitjið upp 22-22-24-24-26-26 nýjar lykkjur í umferð, prjónið 6-8-8-10-10-12 lykkjur sléttprjón og kantlista eins og áður = 150-158-170-182-194-202 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón og kantlista eins og áður, en 22-22-24-24-26-26 lykkjur sem fitjaðar voru upp yfir hvoru vasaopi, prjónið í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan. Þegar prjónaðar hafa verið alls 6 umferðir í garðaprjóni á hæðina yfir vasa, prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur (kantlisti að framan er prjónaður eins og áður). Prjónið þar til stykkið mælist 38-39-40-39-40-41 cm frá handveg. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 23-25-28-31-34-36 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir kantlista) = 173-183-198-213-228-238 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið kantlista eins og áður, prjónið stroff (= 4 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 11 lykkjur eru eftir, prjónið 4 lykkjur slétt og kantlista eins og áður. Þegar stroffið mælist 8-8-8-9-9-9 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Framstykkið mælist 73-75-77-79-81-83 cm mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, framstykkið er ca 3 cm lengra en loka mál þar sem kanturinn sem lykkjur voru prjónaðar upp er ekki fyrir miðju ofan á öxl, heldur aðeins niður á bakstykkið, peysan mælist 70-72-74-76-78-80 cm. VASAR: Setjið 22-22-24-24-26-26 lykkjur af þræði á hringprjón 8 og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) í 24-24-24-23-23-23 cm, eða þar til vasinn nær niður að þeim stað þar sem stroffið byrjar á fram- og bakstykki – endið eftir umferð frá röngu. Fellið af. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = miðja ofan á öxl (ATH! Miðja ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki heldur nokkra cm niður á framstykki). Notið hringprjón 8 og prjónið upp lykkjur aðeins fast (notið e.t.v. fínni prjón). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 48-50-54-58-62-66 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki. ERMAKÚPA: Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu, þetta er gert til að ermin passi betur og fái betra form, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3-3-4-4-5-5 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3-3-4-4-5-5 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2-2-3-3-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2-2-3-3-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Prjónið UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 14-14-14-16-16-20 sinnum (= 7-7-7-8-8-10 sinnum í hvorri hlið og prjónið síðustu umferð frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ VAR VIÐ: Síðasta skipti í umferð 4 er endurtekin, endið umferð með því að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (mitt undir ermi). Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, það á að nota merkiþráðinn þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT því sem lykkjum er fækkað undir ermi þannig, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1 cm, mælt frá miðju undir ermi er fækkað um 2 lykkjur 3-3-5-5-7-7 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 3-3-3-2-2-1½ cm alls 5-6-5-7-6-7 sinnum = 32-32-34-34-36-38 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-42-42-40-40-41 cm frá öxl. Skiptið yfir á sokkaprjón 4 og prjónið stroff (= 4 lykkjur slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT því sem aukið er út um 8-8-6-11-9-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 40-40-40-45-45-50 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 48-48-48-47-47-48 cm frá miðju ofan á öxl. FRÁGANGUR: Kantlistar að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman – saumur = miðja að aftan, saumið síðan listann við lykkjur aftan í hnakka. Saumið vasa niður í hvora hlið með lausu spori. BELTI: Notið sokkaprjóna 8 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræði), fitjið upp 4 lykkjur og prjónið 1 umferð slétt. Prjónið snúruprjón með 4 lykkjum þannig: * Færið allar lykkjur yfir á hægri hlið á prjóni án þess að snúa stykkinu, herðið á þræði og prjónið aftur slétt yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-* þar til beltið mælist ca 160-170-185-200-215-230-255 cm. Beltið er hnýtt um mittið. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #twilightveiljacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.