Claudine Sweater#claudinesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og kraga. Stærð XS – XXXL.
DROPS 273-8 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA – þegar prjónað er fram og til baka: Öll útaukning er gerð frá réttu: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LASKALÍNA – þegar prjónað er í hring: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka á vinstri prjón með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. KANTLYKKJUR I-CORD HÆGRA FRAMSTYKKI: RÉTTA: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, 1 lykkja brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 2 lykkju slétt, prjónið út umferðina. KANTLYKKJUR I-CORD VINSTRA FRAMSTYKKI: RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið út umferðina. RANGA: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn og næstu lykkju brugðið saman, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar prjónaður hefur verið ca 1 cm eftir að lykkjur fyrir kanti í hálsmáli hafa verið fitjaðar upp. Fellið síðan af fyrir næstu 2 hnappagötum með ca 4-4-4½-4½-5-5-5 cm á milli hnappagata. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. PICOT: Fellið af frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju slétt. * Aukið út fyrir picot: Stingið inn hægri prjóni á milli 1. og 2. lykkju á vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjóninn, dragið uppsláttinn fram á milli 1. og 2. lykkju og setjið uppsláttinn á vinstri prjón = 1 ný lykkja. Endurtakið þetta alls 3 sinnum = 3 nýjar lykkjur. Fellið síðan af þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið aftari lykkjunni á hægri prjóni yfir fremri lykkjuna (= 1 lykkja færri), endurtakið úrtöku þar til fækkað hefur verið um 5 lykkjur = 1 picot. * Endurtakið affellinguna frá *-* þar til allar lykkjur hafa verið felldar af. Festið þráðinn. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Fyrst er hálsmálið prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður og fitjaðar eru upp nýjar lykkjur í hvorri hlið til að forma hálsmálið. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar opið/klaufin í hálsmáli hefur verið prjónuð til loka, eru kantarnir að framan lagðir saman yfir hvorn annan og prjónaðir saman, síðan er stykkið prjónað í hring. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við, í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar eru látnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hálsmáli og kraginn er prjónaður fram og til baka. HÁLSMÁL: Fitjið upp 62-64-66-68-70-72-74 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Nú eru sett 4 merki í stykkið jafnframt því sem næsta umferð er prjónuð, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan hvernig auka á út. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 20-22-24-26-28-30-32 lykkjur slétt (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 71-73-75-77-79-81-85 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA), fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 72-74-76-78-80-82-84 lykkjur. UMFERÐ 3 (= frétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 81-83-85-87-89-91-93 lykkjur. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 82-84-86-88-90-92-94 lykkjur. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 3 sinnum til viðbótar. Aukið hefur verið út 5 sinnum fyrir laskalínu, fitjaðar hafa verið upp 5 nýjar lykkjur í hvorri hlið = 112-114-116-118-120-122-124 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að ofan, fitjið upp 7-8-9-10-11-12-13 nýjar lykkjur í lok umferðar = 127-130-133-136-139-142-145 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 KANTLYKKJUR MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið brugðið út umferðina, fitjið upp 7-8-9-10-11-12-13 nýjar lykkjur í lok umferðar = 134-138-142-146-150-154-158 lykkjur. Það eru nú 32-34-36-38-40-42-44 lykkjur á bakstykki, 30 lykkjur á hvorri ermi, 19-20-21-22-23-24-25 lykkjur á hvoru framstykki og 4 laskalykkjur. Prjónið og aukið út fyrir laskalínu þannig – ATH – hoppið yfir þennan kafla í stærð XS: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 0-4-6-7-5-3-1 sinnum (= 0-8-12-14-10-6-2 umferðir prjónaðar) = 134-170-190-202-190-178-166 lykkjur. Nú heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu, en áður en útaukningu líkur, á að prjóna stykkið saman fyrir miðju að framan og prjónað er síðan í hring – lestu því næstu 2 kafla áður en þú prjónar áfram. LASKALÍNA – ALLAR STÆRÐIR: Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki – lykkjur eru ekki auknar út yfir ermar (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 11-10-10-10-12-14-16 sinnum (= 44-40-40-40-48-56-64 umferðir prjónaðar = 11-10-10-10-12-14-16 sinnum útaukning á ermum og 22-20-20-20-24-28-32 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki) = 260-284-304-316-328-340-352 lykkjur í umferð (þetta er lykkjufjöldinn eftir að aukið hefur verið út til loka fyrir laskalínu og kantar að framan hafa verið prjónaðir saman). PRJÓNAÐ SAMAN: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 19-19-20-20-21-21-22 cm frá uppfitjunarkanti að aftan eiga kantar að framan (= 3 lykkjur i-cord + 3 lykkjur sléttprjón) að prjónast saman. Það er gert þannig: Prjónið frá réttu þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, leggið fyrstu 6 lykkjurnar frá vinstra framstykki undir síðustu 6 lykkjur frá hægra framstykki og prjónið 1 og 1 lykkju slétt saman, hægri kantur að framan liggur nú yfir vinstri kanti að framan. Prjónið síðan stykkið í hring og útaukningu fyrir laskalínu heldur áfram. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu er lokið, aukið hefur verið út alls 28-30-32-34-36-37-39 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 17-20-22-24-24-23-23 sinnum á ermum. Prjónið sléttprjón án þess að auka út þar til stykkið mælist 25-27-29-31-33-33-35 cm, frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið eins og áður fram og til og með fyrstu laskalykkju, setjið næstu 52-58-62-64-64-64-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-8-10-14-18 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 78-84-90-94-100-106-112 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 52-58-62-64-64-64-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-4-6-8-10-14-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 78-84-90-94-100-106-112 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 164-176-192-204-220-240-260 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 46-48-50-52-53-55-57 cm frá miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið þannig: UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 í 3-3-3-3-4-4-4 cm og fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 49-51-53-55-57-59-61 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan og 54-56-58-60-62-64-66 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 52-58-62-64-64-64-64 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-4-6-8-10-14-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 56-62-68-72-74-78-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 4-4-6-8-10-14-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur með 4-4-3½-3½-3½-3-2½ cm millibili alls 2-4-7-8-8-9-10 sinnum = 52-54-54-56-58-60-62 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-38-37-35-33-32-32 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið þannig: UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-*. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 í 3-3-3-3-4-4-4 cm, endið eftir umferð 2 og fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. TVÖFALDUR UPPÁBROTSKANTUR: Prjónið upp ca 87-91-95-99-103-107-111 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 3,5. Fyrst prjónaður tvöfaldur uppábrotskantur þannig: Prjónið 3 umferðir sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu), prjónið 1 umferð brugðið frá réttu, prjónið 3 umferðir sléttprjón og fellið af frá réttu. Brjótið kant í hálsmáli tvöfaldan að röngu og saumið niður. Klippið þráðinn. KRAGI: Byrjið frá réttu og prjónið upp 1 lykkju í hverja brugðna lykkju frá tvöfalda uppábrotskantinum = 87-91-95-99-103-107-111 lykkjur. Klippið þráðinn, byrjið frá réttu og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 1 kantlykkja í garðaprjóni. UMFERÐ 1 (= ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 2 cm er aukið út um 2 lykkjur í hvorri hlið – þetta er gert frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, 1 lykkja brugðið, í næstu lykkju er aukið út þannig: Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, en ekki sleppa lykkjunni af prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman einu sinni til viðbótar (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, í næstu lykkjur er aukið út þannig: Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, en ekki sleppa lykkjunni af prjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna saman einu sinni til við bótar (= 2 lykkjur fleiri), prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í næstu umferð eru lykkjurnar prjónaðar inn í klukkuprjónsmynstur. Aukið svona út í öðrum hverjum cm alls 4 sinnum. Þegar kraginn mælist 11-11-11-11-12-12-12 cm, fellið af með PICOT – lesið leiðbeiningar að ofan. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #claudinesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.