Linda skrifaði:
Kysyin aiemmin, kummin päin reunasilmukka neulotaan nurjalla puolella. Kiitos vastauksesta. Päädyin kysymyksen jälkeen kokeilemaan neuloa sen molemmin päin ja mielestäni sitä ei kuulu neuloa nurin, sillä silloin lopputuloksena ei ole siisti i-crod-reuna.
28.10.2026 - 19:10
Linda skrifaði:
Hei, Kaipaisin taas neuvoa: Nappilistan i-cord-reunuksen ohjeistus on hieman hämmentävä. Kerroksen alussa käsketään nostaa 1 neulomatta, neuloa 1 o ja 5 ainaoikeaa ja tehdä samalla tavalla nurjalla puolella. Onko tuo 1 o siis tarkoitus neuloa oikein sekä oikealla että nurjalla puolella vai oikein oikealla ja nurin nurjalla?
27.10.2026 - 13:28DROPS Design svaraði:
Hei, tämä silmukka neulotaan nurin nurjalla puolella.
28.10.2026 - 14:03
Linda skrifaði:
Hei, Löytyisikö jostain tieto, paljonko positiivista väljyyttä neuletakissa on tarkoitus olla?
26.10.2026 - 19:52
Marianne Irmelid skrifaði:
Kan jag beställa Kariama color 52, dyelot 56605.
20.10.2026 - 19:51DROPS Design svaraði:
Hei Marianne, Hvis du klikker på "Hitta en butik!" på toppen av sida, får du en liste over butikker på nett, og fysiske butikker som selger våre garn. Vennlig hilsen Drops Team.
21.10.2026 - 06:06
Nicole skrifaði:
Hallo ich möchte diese Jacke mit Drops Baby Merino stricken was muss ich dabei beachten Vielen Dank
01.10.2026 - 11:05DROPS Design svaraði:
Liebe Nicole, Baby Merino gehört der Garngruppe A so ist hier keine Alternative, aber Merino Extra Fine können Sie anstatt stricken - hier finden Sie Garnalternative für Karisma oder Saga und hier finden Sie Jacken, die Sie mit Baby Merino stricken können. Viel Spaß beim Stricken!
01.10.2026 - 17:18
Winter Hush Cardigan#winterhushcardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma eða DROPS Saga. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, köðlum og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 271-14 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-6-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7-7½-8-8-7-7-7½ cm á milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptingunni yfir í stroff, þá verður útaukningin jafnari ef aukið er út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðið, sléttprjónuðu lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 119-119-121-127-135-137-141 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Karisma eða DROPS Saga. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-3½-3½-4-4 cm – endið eftir umferð frá réttu. Prjónið síðan kantlista í hálsmáli í hvorri hlið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Fjöldi lykkja á að tvöfaldast (á ekki yfir kanta að framan): Prjónið kant að framan eins og áður, * prjónið 1 lykkju brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður = 224-224-228-240-256-260-268 lykkjur. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, * lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón án þess að prjóna hann, þegar uppslættinum er lyft yfir er hægri prjóni stungið inn í uppsláttinn eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn sem prjónað er með fyrir framan stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður, * lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, þegar lykkjunni er lyft yfir er hægri prjóni stungið inn í lykkjuna eins og prjóna eigi brugðið og með þráðinn sem prjónað er með fyrir framan stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, * lyftið næstu lykkju yfir á hægri prjón án þess að prjóna hana, þegar lykkjunni er lyft yfir er hægri prjóni stungið inn í lykkjuna eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn sem prjónað er með fyrir framan stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður. UMFERÐ 5 (= ranga): Lykkjufjöldinn á að helmingast (á ekki við um kanta): Prjónið kant að framan eins og áður, * prjónið 2 lykkjur slétt saman *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður = 119-119-121-127-135-137-141 lykkjur. Eftir kantlista í hálsmáli er sett 1 merki innan við kant að framan í annarri hlið á stykki (= miðja að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 8 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í hvoru megin við 4 lykkjur, þessar 4 lykkjur eru auknar út til 6 lykkjur í fyrstu umferð. Þessar 6 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar í MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan. Teljið 19-19-19-21-21-21-21 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 4 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 21-21-21-21-25-25-27 lykkjur (= ermi), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 4 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, teljið 23-23-25-27-27-29-29 lykkjur (= bakstykki), setjið 5. merki á undan næstu lykkju, teljið 4 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 6. merki á undan næstu lykkju, teljið 21-21-21-21-25-25-27 lykkjur (= ermi), setjið 7. merki á undan næstu lykkju, teljið 4 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 8. merki á undan næstu lykkju. Það eru 19-19-19-21-21-21-21 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægra framstykki. Prjónið síðan sléttprjón með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður og mynstri yfir laskalykkjurnar. Jafnframt er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringuna að ofan um hvernig á að auka út og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, 12-12-12-14-14-14-14 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 á milli 1. og 2. merkis, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 21-21-21-21-25-25-27 lykkjur slétt (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 á milli 3. og 4. merkis, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 23-23-25-27-27-29-29 lykkjur slétt (= bakstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 á milli 5. og 6. merkis, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 21-21-21-21-25-25-27 lykkjur slétt (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 á milli 7. og 8. merkis, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 12-12-12-14-14-14-14 lykkjur slétt og prjónið kant að framan eins og áður – munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan = 135-135-137-143-151-153-157 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. A.1 hefur nú verið prjónað til loka. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður, en nú er prjónað A.2 á milli 1. og 2. merkis og á milli 3. og 4. merkis og A.3 á milli 5. og 6. merkis og á milli 7. og 8. merkis. Að auki er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn eins og áður. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 8-12-17-23-22-22-18 sinnum (= 18-26-36-48-46-46-38 umferðir prjónaðar á eftir lista í hálsmáli) = 199-231-273-327-327-329-301 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður (uppslátturinn er prjónaður eins og áður). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og á bakstykki, þ.e.a.s. á UNDAN 1. og 5. merki og á EFTIR 4. og 8. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður (uppslátturinn er prjónaður eins og áður). Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 10-9-7-5-7-8-12 sinnum (= 40-36-28-20-28-32-48 umferðir prjónaðar = 10-9-7-5-7-8-12 sinnum útaukning á ermum og 20-18-14-10-14-16-24 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki). Öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka, stykkið mælist ca 21-22-23-24-26-28-31 cm frá merki fyrir miðju að framan, aukið hefur verið út alls 19-22-25-29-30-31-31 sinnum á ermum og 29-31-32-34-37-39-43 sinnum á framstykkjum/bakstykki = 319-339-357-387-411-425-445 lykkjur í umferð. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykkin/bakstykkið, þ.e.a.s. JAFNFRAMT því sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 55-58-60-65-69-72-76 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 57-61-65-71-75-75-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-22-26 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 95-101-107-115-123-131-139 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 57-61-65-71-75-75-77 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-22-26 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið 55-58-60-65-69-72-76 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 225-241-255-277-297-319-343 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 43-45-47-49-49-51-53 cm frá merki fyrir miðju að framan. ATH: Lykkjurnar sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermum eru prjónaðar í sléttprjóni. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 42-48-50-58-60-70-72 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 267-289-305-335-357-389-415 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – notið e.t.v. ítalska affellingu. Peysan mælist 47-49-51-53-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 57-61-65-71-75-75-77 lykkjur af þræði frá ermi í annarri hliðinni á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-18-22-26 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 67-73-79-87-93-97-103 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-12-14-16-18-22-26 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón í hring – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-2-2-2-3-3-3 sinnum, síðan er fækkað um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm 0-2-4-7-8-9-11 sinnum = 63-65-67-69-71-73-75 lykkjur í umferð. Prjónið þar til ermin mælist 38-38-38-37-35-34-32 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 17-17-17-19-19-19-21 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 80-82-84-88-90-92-96 lykkjur. Þegar stroffið mælist 6-6-6-6-7-7-7 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – notið e.t.v. ítalska affellingu. Ermin mælist ca 44-44-44-43-42-41-39 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterhushcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 271-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.