Hson skrifaði:
Tack för så fint mönster!!! Men ska ökningarna göras på Varje Rätvarv när det står vartannat varv, eftersom det stickas fram o tillbaka?
11.09.2026 - 14:28DROPS Design svaraði:
Hei Hson. Alle økninger gjøres fra retten = vartannat varv. mvh DROPS Design
14.09.2026 - 11:27
Warm Biscuit Overall#warmbiscuitoverall |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður galli fyrir börn úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í með laskalínu, i-cord, vafningi og v-hálsmáli. Stærð 0 – 4 ára.
DROPS Baby 53-24 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 5 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 3 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 5 lykkjur): Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJUR (= uppslátturinn snýr til hægri): Færið uppsláttinn frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga vinstri prjóni inn aftan í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á EFTIR KANTLYKKJUM AÐ FRAMAN + 1 lykkja sléttprjón (= uppslátturinn snýr til hægri): Færið uppsláttinn af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á UNDAN KANTLYKKJUM AÐ FRAMAN og 1 lykkja sléttprjón (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir 2 hnappagötum í sömu umferð í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar eftir eru 18-20-20-22-22-22-24 lykkjur í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppslættina slétt = 2 hnappagöt. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um vafning): Fækkið lykkjum á undan 5 kantlykkjum að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur saman, prjónið kant að framan eins og áður. Fækkið lykkjum á eftir 5 kantlykkjum að framan þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um fyrir miðju undir ermum og innan á skálmum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Fyrst er prjónaður kantur aftan í hnakka, lykkjur fyrir berustykki eru síðan prjónaðar upp í þennan kant. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu og útaukningu og úrtöku fyrir vafning. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna þar til vafningurinn hefur verið prjónaður til loka, á meðan ermarnar bíða. Stykkið er sett saman og prjónað er áfram í hring. Stykkið skiptist fyrir skálmar og hvor skálm er prjónuð í hring. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Fitjið upp 6 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Lima. RÉTTA: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni. Endurtakið þessar 2 umferðir þar til kantur að framan mælist 9-9-10-10-10-11 cm. Klippið þráðinn. Setjið lykkjurnar á þráð og prjónið vinstri kant að framan eins og útskýrt er að neðan. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp 1 lykkju í hverja lykkju frá uppfitjunarkanti á hægri kanti að framan = 6 lykkjur. RÉTTA: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni. RANGA: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Endurtakið þessar 2 umferðir þar til kantur að framan mælist 9-9-10-10-10-11 cm. Kantur að framan mælist alls 18-18-20-20-20-22 cm. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið síðustu lykkju frá kanti að framan slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið upp 40-42-48-48-50-52 nýjar lykkjur meðfram hliðum á hægri og vinstri kanti að framan, prjónið upp innan við 1 lykkju í garðaprjóni og passið uppá að það séu prjónaðar upp jafnmargar lykkjur frá hvorum kanti að framan, setjið til baka 6 lykkjur frá hægri kanti að framan yfir á vinstri prjón, prjónið fyrstu 2 lykkjur slétt saman og prjónið síðustu 4 lykkjur eins og áður = 50-52-58-58-60-62 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD í hvorri hlið – lesið leiðbeiningar að ofan. Setjið 1 merki innan við 5 kantlykkjur að framan í annarri hliðinni, það er notað til að mæla frá. BERUSTYKKI: Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 6 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 8-8-10-10-10-10 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 18-20-22-22-24-26 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 8-8-10-10-10-10 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Nú eru 6 lykkjur eftir í umferð fyrir hægra framstykki. Prjónið sléttprjón og kanta að framan í hvorri hlið og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – sjá útskýringu að ofan. Það á einnig að auka út lykkjur og fækka lykkjum fyrir vafninginn. Þegar útaukningu fyrir laskalínu er lokið, skiptið stykkinu í fram- og bakstykki og ermar. Þetta er gert áður en öll útaukning fyrir vafninginn er lokið, svo lesið næstu 3 hluta áður en þið prjónið áfram. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið út hvoru megin við laskalykkjurnar þar til aukið hefur verið út alls 11-13-14-14-15-16 sinnum (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Útaukningu fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 1-0-0-2-2-2 sinnum til viðbótar. Aukið hefur verið út alls 12-13-14-16-17-18 sinnum á bakstykki/framstykkjum og 11-13-14-14-15-16 sinnum á ermum. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka, skiptist stykkið eins og útskýrt er undir SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR. Munið að fylgja prjónfestunni! VAFNINGUR: Aukið út 1 lykkju innan við 5 kantlykkjur að framan + 1 lykkja sléttprjón í hvorri hlið. Fyrsta útaukningin er gerð í 2. skiptið sem aukið er út fyrir laskalínu, síðan heldur útaukningin áfram í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 18-21-24-25-26-29 sinnum í hvorri hlið fyrir miðju að framan – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-11-12-12-13-14 cm frá merki í hálsmáli, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið eins og áður fram til og með fyrstu laskalykkjunni (= framstykki), setjið næstu 30-34-38-38-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi, prjónið 44-48-52-56-60-64 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 30-34-38-38-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi og prjónið síðustu lykkjur eins og áður (= framstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og haldið áfram með útaukningu fyrir vafninginn. Þegar öll útaukning við miðju að framan hefur verið gerð til loka, hefur stykkinu verið skipt upp fyrir fram- og bakstykki og ermar og það eru 40-44-48-52-54-58 lykkjur á hvoru framstykki og 50-54-58-64-68-72 lykkjur á bakstykki = 130-142-154-168-176-188 lykkjur. Nú eru prjónaðar 2 auka umferðir einungis í kanti að framan (þetta er gert til að kanturinn að framan teygist ekki þegar byrjað er að fækka lykkjum). Prjónið þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka yfir kant að framan frá röngu. Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur, í þessari umferð er fellt af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Snúið og prjónið einungi yfir fyrstu 5 lykkjurnar, snúið og prjónið til baka yfir þessar lykkjur. Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur frá röngu. Í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka, lykkjum er fækkað innan við kantlykkjur að framan í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Lykkjum er fækkað í annarri hverri umferð alls 12-14-16-17-17-19 sinnum. Þegar öll úrtaka fyrir vafninginn hefur verið gerð til loka, eru 106-114-122-134-142-150 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28-34-36-39-41-43 cm frá merki fyrir miðju að framan. Kanturinn að framan hefur nú verið prjónaður til loka. Nú er stykkið sett saman og prjóna á áfram í hring – prjónið frá réttu eins og útskýrt er að neðan. Prjónið kant að framan og sléttprjón eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= hægri kantur að framan), leggið hægri kant að framan ofan á 6 lykkjurnar frá vinstri kanti að framan og prjónið lykkjurnar saman 2 og 2 (prjónið 1 lykkju frá hægri kanti að framan slétt saman með 1 lykkju frá vinstri kanti að framan) = 100-108-116-128-136-144 lykkjur. Prjónið síðan stykkið í hring – setjið 1 merki mitt í 6 lykkjurnar frá kanti að framan – þetta er núna byrjun umferðar. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 31-37-39-42-45-48 cm frá merki fyrir miðju að framan (prjónaðir eru 3-3-3-3-4-4 cm hringinn yfir allar lykkjur). Nú skiptist stykkið fyrir skálmar og hvor skálm er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Klippið þráðinn. SKIPTING FYRIR SKÁLMAR: Stykkið skiptist upp fyrir skálmar án þess að lykkjurnar séu prjónaðar: Byrjið 3 lykkjum á undan merki í byrjun umferðar, setjið fyrstu 6 lykkjurnar (= miðja að framan) á lykkjuhaldara, setjið næstu 44-48-52-58-62-66 lykkjur á þráð (= vinstri skálm), setjið næstu 6 lykkjur á lykkjuhaldara (= miðja að aftan), það eru 44-48-52-58-62-66 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægri skálm. Hvor skálm er prjónuð áfram hvor fyrir sig. SKÁLMAR: = 44-48-52-58-62-66 lykkjur. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= að innanverðu á skálm) og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð, fækkið um 2 lykkjur að innanverðu á skálminni – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls 3 sinnum = 38-42-46-52-56-60 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn þar til skálmin mælist 8-11-17-24-28-32 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Skálmin mælist ca 11-14-20-28-32-36 cm frá skiptingunni. ERMAR: Setjið 30-34-38-38-40-42 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á sokkaprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 36-40-44-46-48-50 lykkjur. Setjið 1 merki fyrir miðju í 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkið. Prjónið sléttprjón hringinn - JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtökuna þegar stykkið mælist 3 cm = 32-36-40-42-44-46 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist ca 8-11-15-19-22-25 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 36-40-44-46-48-50 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm, fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 11-14-18-23-26-29 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið saman 6 lykkjurnar frá lykkjuhaldaranum fyrir miðju að framan við 6 lykkjurnar frá lykkjuhaldaranum fyrir miðju að aftan – saumið með lykkjuspori, þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölur í vinstra framstykki, þannig að þær passi við hnappagötin. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #warmbiscuitoverall eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 53-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.