DROPS Super Sale · 30% AFSLÁTTUR á 5 tegundum af ullargarni
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Autumn & Winter 26/27

Warm Biscuit Overall

Prjónaður galli fyrir börn úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í með laskalínu, i-cord, vafningi og v-hálsmáli. Stærð 0 – 4 ára.

Velja stærð:


DROPS Baby 53-24

#warmbiscuitoverall

DROPS Design: Mynstur li-011-by
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
Hæð á barni í cm:
48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 - 92 - 98/104 cm
Samsvarar ca aldri á barni:
0/1 mánaða - 1/3 mánaða - 6/9 mánaða - 12/18 mánaða - 2 ára - 3/4 ára

GARN:
DROPS LIMA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
200-200-200-250-250-300 gr litur 0206, Hveiti

TÖLUR:
DROPS TALA NR 513: 2 stykki í allar stærðir.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni með prjóna nr 4 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 770.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

0
0

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
Í BYRJUN UMFERÐAR:
Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 5 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 3 lykkjur í garðaprjóni.
Í LOK UMFERÐAR:
Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 5 lykkjur): Prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu.

LASKALÍNA:
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan:
Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri):
Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat.
Á EFTIR LASKALYKKJUR (= uppslátturinn snýr til hægri):
Færið uppsláttinn frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga vinstri prjóni inn aftan í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan:
Á EFTIR KANTLYKKJUM AÐ FRAMAN + 1 lykkja sléttprjón (= uppslátturinn snýr til hægri):
Færið uppsláttinn af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat.
Á UNDAN KANTLYKKJUM AÐ FRAMAN og 1 lykkja sléttprjón (= uppslátturinn snýr til vinstri):
Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir 2 hnappagötum í sömu umferð í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð).
Fellið af frá réttu þegar eftir eru 18-20-20-22-22-22-24 lykkjur í umferð þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið þar til 5 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppslættina slétt = 2 hnappagöt.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um vafning):
Fækkið lykkjum á undan 5 kantlykkjum að framan þannig:
Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur saman, prjónið kant að framan eins og áður.
Fækkið lykkjum á eftir 5 kantlykkjum að framan þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur að framan, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu lykkju, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um fyrir miðju undir ermum og innan á skálmum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum.
Fyrst er prjónaður kantur aftan í hnakka, lykkjur fyrir berustykki eru síðan prjónaðar upp í þennan kant. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu og útaukningu og úrtöku fyrir vafning.
Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna þar til vafningurinn hefur verið prjónaður til loka, á meðan ermarnar bíða. Stykkið er sett saman og prjónað er áfram í hring. Stykkið skiptist fyrir skálmar og hvor skálm er prjónuð í hring. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD:
Fitjið upp 6 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Lima.
RÉTTA:
Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.
RANGA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni.

Endurtakið þessar 2 umferðir þar til kantur að framan mælist 9-9-10-10-10-11 cm.
Klippið þráðinn. Setjið lykkjurnar á þráð og prjónið vinstri kant að framan eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja lykkju frá uppfitjunarkanti á hægri kanti að framan = 6 lykkjur.
RÉTTA:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni.
RANGA:
Prjónið 4 lykkjur garðaprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt.

Endurtakið þessar 2 umferðir þar til kantur að framan mælist 9-9-10-10-10-11 cm.
Kantur að framan mælist alls 18-18-20-20-20-22 cm.

Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 2 lykkjur í garðaprjóni, lyftið næstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið síðustu lykkju frá kanti að framan slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið upp 40-42-48-48-50-52 nýjar lykkjur meðfram hliðum á hægri og vinstri kanti að framan, prjónið upp innan við 1 lykkju í garðaprjóni og passið uppá að það séu prjónaðar upp jafnmargar lykkjur frá hvorum kanti að framan, setjið til baka 6 lykkjur frá hægri kanti að framan yfir á vinstri prjón, prjónið fyrstu 2 lykkjur slétt saman og prjónið síðustu 4 lykkjur eins og áður = 50-52-58-58-60-62 lykkjur.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD í hvorri hlið – lesið leiðbeiningar að ofan. Setjið 1 merki innan við 5 kantlykkjur að framan í annarri hliðinni, það er notað til að mæla frá.

BERUSTYKKI:
Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar.

Teljið 6 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju,
teljið 8-8-10-10-10-10 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju,
teljið 18-20-22-22-24-26 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju,
teljið 8-8-10-10-10-10 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Nú eru 6 lykkjur eftir í umferð fyrir hægra framstykki.

Prjónið sléttprjón og kanta að framan í hvorri hlið og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – sjá útskýringu að ofan. Það á einnig að auka út lykkjur og fækka lykkjum fyrir vafninginn. Þegar útaukningu fyrir laskalínu er lokið, skiptið stykkinu í fram- og bakstykki og ermar. Þetta er gert áður en öll útaukning fyrir vafninginn er lokið, svo lesið næstu 3 hluta áður en þið prjónið áfram.

LASKALÍNA:
Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið út hvoru megin við laskalykkjurnar þar til aukið hefur verið út alls 11-13-14-14-15-16 sinnum (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð).
Útaukningu fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 1-0-0-2-2-2 sinnum til viðbótar. Aukið hefur verið út alls 12-13-14-16-17-18 sinnum á bakstykki/framstykkjum og 11-13-14-14-15-16 sinnum á ermum.
Þegar öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka, skiptist stykkið eins og útskýrt er undir SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR. Munið að fylgja prjónfestunni!

VAFNINGUR:
Aukið út 1 lykkju innan við 5 kantlykkjur að framan + 1 lykkja sléttprjón í hvorri hlið.
Fyrsta útaukningin er gerð í 2. skiptið sem aukið er út fyrir laskalínu, síðan heldur útaukningin áfram í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 18-21-24-25-26-29 sinnum í hvorri hlið fyrir miðju að framan – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-11-12-12-13-14 cm frá merki í hálsmáli, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið eins og áður fram til og með fyrstu laskalykkjunni (= framstykki), setjið næstu 30-34-38-38-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi, prjónið 44-48-52-56-60-64 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 30-34-38-38-40-42 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-8 lykkjur undir ermi og prjónið síðustu lykkjur eins og áður (= framstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og haldið áfram með útaukningu fyrir vafninginn.
Þegar öll útaukning við miðju að framan hefur verið gerð til loka, hefur stykkinu verið skipt upp fyrir fram- og bakstykki og ermar og það eru 40-44-48-52-54-58 lykkjur á hvoru framstykki og 50-54-58-64-68-72 lykkjur á bakstykki = 130-142-154-168-176-188 lykkjur. Nú eru prjónaðar 2 auka umferðir einungis í kanti að framan (þetta er gert til að kanturinn að framan teygist ekki þegar byrjað er að fækka lykkjum). Prjónið þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan eins og áður, snúið, herðið á þræði og prjónið til baka yfir kant að framan frá röngu. Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur, í þessari umferð er fellt af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Snúið og prjónið einungi yfir fyrstu 5 lykkjurnar, snúið og prjónið til baka yfir þessar lykkjur. Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur frá röngu.
Í næstu umferð frá réttu byrjar úrtaka, lykkjum er fækkað innan við kantlykkjur að framan í hvorri hlið – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Lykkjum er fækkað í annarri hverri umferð alls 12-14-16-17-17-19 sinnum. Þegar öll úrtaka fyrir vafninginn hefur verið gerð til loka, eru 106-114-122-134-142-150 lykkjur í umferð. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 28-34-36-39-41-43 cm frá merki fyrir miðju að framan. Kanturinn að framan hefur nú verið prjónaður til loka.
Nú er stykkið sett saman og prjóna á áfram í hring – prjónið frá réttu eins og útskýrt er að neðan.
Prjónið kant að framan og sléttprjón eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= hægri kantur að framan), leggið hægri kant að framan ofan á 6 lykkjurnar frá vinstri kanti að framan og prjónið lykkjurnar saman 2 og 2 (prjónið 1 lykkju frá hægri kanti að framan slétt saman með 1 lykkju frá vinstri kanti að framan) = 100-108-116-128-136-144 lykkjur.
Prjónið síðan stykkið í hring – setjið 1 merki mitt í 6 lykkjurnar frá kanti að framan – þetta er núna byrjun umferðar.
Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 31-37-39-42-45-48 cm frá merki fyrir miðju að framan (prjónaðir eru 3-3-3-3-4-4 cm hringinn yfir allar lykkjur). Nú skiptist stykkið fyrir skálmar og hvor skálm er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Klippið þráðinn.

SKIPTING FYRIR SKÁLMAR:
Stykkið skiptist upp fyrir skálmar án þess að lykkjurnar séu prjónaðar: Byrjið 3 lykkjum á undan merki í byrjun umferðar, setjið fyrstu 6 lykkjurnar (= miðja að framan) á lykkjuhaldara, setjið næstu 44-48-52-58-62-66 lykkjur á þráð (= vinstri skálm), setjið næstu 6 lykkjur á lykkjuhaldara (= miðja að aftan), það eru 44-48-52-58-62-66 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægri skálm.
Hvor skálm er prjónuð áfram hvor fyrir sig.

SKÁLMAR:
= 44-48-52-58-62-66 lykkjur. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= að innanverðu á skálm) og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð, fækkið um 2 lykkjur að innanverðu á skálminni – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls 3 sinnum = 38-42-46-52-56-60 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón hringinn þar til skálmin mælist 8-11-17-24-28-32 cm frá skiptingunni.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Skálmin mælist ca 11-14-20-28-32-36 cm frá skiptingunni.

ERMAR:
Setjið 30-34-38-38-40-42 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á sokkaprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 36-40-44-46-48-50 lykkjur.
Setjið 1 merki fyrir miðju í 6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkið.
Prjónið sléttprjón hringinn - JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtökuna þegar stykkið mælist 3 cm = 32-36-40-42-44-46 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist ca 8-11-15-19-22-25 cm frá skiptingunni.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 4 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 36-40-44-46-48-50 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm, fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 11-14-18-23-26-29 cm frá skiptingunni.

FRÁGANGUR:
Saumið saman 6 lykkjurnar frá lykkjuhaldaranum fyrir miðju að framan við 6 lykkjurnar frá lykkjuhaldaranum fyrir miðju að aftan – saumið með lykkjuspori, þannig að saumurinn verði ekki of þykkur.
Saumið tölur í vinstra framstykki, þannig að þær passi við hnappagötin.

Mynstur

Diagram for DROPS Baby 53-24

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér. Lærðu að prjóna

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #warmbiscuitoverall eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 53-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Kathrin skrifaði:

Hallo, ich habe nach den Abnahmen am Überwurf erst 30cm nach dem Markierer. Ich sollte bei der Größe (6/9 Monate) dann noch 6cm mit Blenden gerade weiter stricken, dann die Blenden zusammenstricken und noch mal 3cm in Runden stricken. Der noch offene und gerade herunter gestrickte Teil erscheint mir mit 6cm sehr lang und optisch nicht besonders schön. So sieht es auch nicht auf dem Bild aus. Die Maschenprobe stimmt. Ist es wirklich so gedacht? Danke und viele Grüße

26.10.2026 - 20:14

DROPS Design svaraði:

Liebe Kathrin, man wird nur 3 cm (in die 4 ersten Größe) in Runden stricken, bevor man für beide Beine die Arbeit aufteilt. Viel Spaß beim Stricken!

27.10.2026 - 09:32

country flag Sammi skrifaði:

When picking up stitches on the six cast on stitches of the right band, am I picking up the stitches from the right side or the wrong side (putting the needle from back to front, or front to back)? I’m having a hard time envisioning how this part will look. Thank you so much for the help.

24.10.2026 - 23:39

DROPS Design svaraði:

Dear Sammi, the stitches are picked up from the right side; you can see in this video how to pick up stitches in a garter stitch edge. Happy knitting!

25.10.2026 - 23:01

country flag LECLERC skrifaði:

Malheureusement les explications données apparaissent incompréhensibles. C’est bien dommage car le modèle est intéressant. Problème de traduction en français peut- être ? En l’état je ne peux que renoncer à le faire. Bien cordialement.

23.10.2026 - 14:59

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Leclerc, peut-être pouvez-vous nous indiquer la partie précise qui vous pose problème, notez que la construction de ce modèle est probablement différente de ce que vous connaissez déjà, mais en suivant toutes les étapes vous devriez y arriver. Votre magasin saura également vous assister même par mail ou téléphone si besoin. Bon tricot!

23.10.2026 - 16:21

country flag Monique LECLERC skrifaði:

Bonjour Agathe, Je me pose des questions proches des vôtres, concernant le début de cette salopette et notamment de la bordure de 2 x 10 cm. Avez-vous pu résoudre le problème ? Si oui ce serait très gentil de m'expliquer à quoi doit ressembler la pièce . Merci beaucoup. Monique.

20.10.2026 - 16:15

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Leclerc, vous tricotez d'abord la 1ère bordure sur 10 cm, puis vous relevez les mailles de la 2ème bordure dans les mailles du montage de la 1ère et tricotez 10 cm = votre bordure mesure 20 cm au total, vous allez maintenant relever les mailles de l'empiècement le long du côté droit (vu sur l'endroit) de ces bordures ainsi: tricotez les mailles de la bordure du devant gauche, relevez les mailles le long des 20 cm des bordures et tricotez les mailles de la bordure du devant droit = vous avez maintenant toutes les mailles sur l'aiguille, tricotez le rang suivant sur l'envers et placez bien vos marqueurs comme indiqué (sans tricoter). Vous augmenterez ensuite pour le raglan et pour l'encolure comme indiqué sous l'empiècement. N'hésitez pas à nous indiquer à quel niveau vous bloquez que l'on puisse vous aider. Bonne continuation!

21.10.2026 - 09:46

country flag Monique skrifaði:

Bonjour, J'ai fait la bande de 20 cm de l'encolure pour démarrer la salopette, d'abord droite puis gauche et je les ai réunies. Mais il n'y a pas moyen de voir à quoi ça doit ressembler ...J'obtiens 5mailles puis 48 m relevées, puis 5m. Mais du coup la bordure I-Cord est 10cm d'un côté de la bande puis 10 cm de l'autre côté. Est-ce correct ? Je ne comprends pas très bien pourquoi pour la suite... Merci de m'aider !

16.10.2026 - 18:07

DROPS Design svaraði:

Bonjour Monique, lorsque vous avez relevé les mailles de l'empiècement le long des 20 cm des deux bordures, vous placez les marqueurs comme indiqué au début de l'empiècement et tricotez simplement l'empiècement en augmentant pour le raglan comme indiqué pour la taille choisie. La bordure I-cord est toujours de 5 m de chaque côté (devant gauche et devant droit), vous allez augmenter pour l'encolure V en même temps que pour le raglan. Bon tricot!

19.10.2026 - 10:10

country flag Agathe skrifaði:

Pourquoi je ne tricote pas directement 20cm de bande d'encolure, plutôt que 10 cm puis relever les mailles et encore 10cm. A quoi doit ressembler la bande ? Est-ce que les 2x10cm sont différents ?

14.10.2026 - 01:35

DROPS Design svaraði:

Bonjour Agathe, vous tricotez la bordure du devant droit et du devant gauche séparément, à partir du milieu dos (raison pour laquelle on relève les mailles de la bordure gauche), lorsque les 2 x 10 cm sont terminés vous avez votre bordure d'encolure et vous allez relever les mailles le long de ces 20 cm pour l'empiècement, et vous tricotez l'empiècement en commençant et en terminant par ces mailles de bordure. Bon tricot!

14.10.2026 - 07:36

country flag Britta skrifaði:

Ist es richtig, dass ich die Maschen für den Überwurf gleichzeitig nach der zweiten Raglan Masche zunehme?

15.09.2026 - 10:36

DROPS Design svaraði:

Liebe Britta, die 1. Zunahmen für Vorderteile wird beginnen, wenn man zum 2. Mal für Raglan zunimmt, dh bei der 2. Hinreihe der Passe. Viel Spaß beim Stricken!

16.09.2026 - 06:59

country flag Hson skrifaði:

Fast man har 500 tecken att skriva så har jag hållt mig inom det så får jag bara besked att meddelande är för långt!! Jag har skrivit hur ni bör rätta knapphålet... ni har missat att skriva fem maskor kvar på Varvet! Och att man behöver en tredje sticka när man stickar ihop framstyckena!!

14.09.2026 - 15:43

DROPS Design svaraði:

Hej igen, tak for information om knaphullet, opskriften er nu opdateret online :)

16.09.2026 - 11:42

country flag Hson skrifaði:

Ni kan ta bort mina tidigare frågor om ni vill🙂, har stickat och ser nu hur det ska vara Men beskrivningen av Knapphål är fel, det bör ni ändra i texten tror jag.🌻

12.09.2026 - 14:00

DROPS Design svaraði:

Hei Hson. Så bra du fant det ut selv. Håper du da fikk strikke i helgen. Takk for tilbakemeldingen om Knappehull, men fint om du kan gi en beskrivelse på hva du mener er galt :) mvh DROPS Design

14.09.2026 - 14:35

country flag Hson skrifaði:

Hur stickas omslaget, ökningen vid Omlott? Får inte den fina maskan som ni har på fotot..... (Ser nästan ut som en lyft maska)

11.09.2026 - 14:58

DROPS Design svaraði:

Hei Hson. Husk å lese ÖKNINGSTIPS og hvordan det strikkes efter FRAMKANTSMASKORNA och före FRAMKANTSMASKORNA. Se gjerne våre hjelpevideo, som f.eks "Hur man stickar en i-cord kant, fram och tillbaka" mvh DROPS Design

14.09.2026 - 11:32