Perfectly Bee Cardigan#perfectlybeecardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Sky og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, v-hálsmáli, i-cord og býkúpumynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-4 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Prjónið kant að framan þannig (= 7-7-7-7-9-9-9 lykkjur): Prjónið 5-5-5-5-7-7-7 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. RANGA: Prjónið kant að framan þannig (= 7-7-7-7-9-9-9 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5-5-5-5-7-7-7 lykkjur í garðaprjóni. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: RÉTTA: Prjónið kant að framan þannig (= 7-7-7-7-9-9-9 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5-5-5-5-7-7-7 lykkjur í garðaprjóni. RANGA: Prjónið kant að framan þannig (= 7-7-7-7-9-9-9 lykkjur): Prjónið 5-5-5-5-7-7-7 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram bæði frá réttu og frá röngu. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. Samtímis sem lykkjur eru auknar út fyrir laskalínu, prjónið nýjar lykkjur inn í mynstrið eins og útskýrt er í mynsturteikningu, þ.e.a.s. lykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga upp með 3 eða 6 lykkjum í mynstri. Lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri, prjónast í sléttprjóni. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur eins og útskýrt er í MYNSTUR. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur eins og útskýrt er í MYNSTUR. V-HÁLSMÁL: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð (= ranga) er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er hér að neðan: Á EFTIR HÆGRI KANTI AÐ FRAMAN (= uppslátturinn snýr til hægri): Færið uppsláttinn af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn aftur yfir á vinstri prjóninn með því að stinga vinstri prjóninum að aftan inn í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn - þannig að engin göt myndist. Prjónið nýju lykkjurnar eins og útskýrt er í MYNSTUR. Á UNDAN VINSTRI KANTI AÐ FRAMAN (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn - þannig að engin göt myndist. Prjónið nýju lykkjurnar eins og útskýrt er í MYNSTUR. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5-5-5-5-6-6-6 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1-1-1-1-2-2-2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar prjónaður hefur verið 1 cm á eftir síðustu útaukningu fyrir v-hálsmáli. Síðan er fellt af fyrir næstu 3 hnappagötum með ca 8-8-8½-8-8½-9-9 cm á milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli býkúpumynsturs og stroffs á fram- og bakstykki. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður. Fyrst eru prjónaðir 2 kantar að framan, síðan eru lykkjur fitjaðar upp fyrir berustykki á milli kanta að framan. Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantar að framan frá hvoru framstykki eru saumaðir saman, saumur = miðja að aftan, síðan eru kantar að framan saumaðir við berustykki aftan í hnakka. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 7-7-7-7-9-9-9 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Sky og 1 þræði DROPS Kid-Silk (2 þræðir). Prjónið HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – sjá útskýringu að ofan Prjónið þar til kantur að framan mælist 13-13-13-15-15-16-16 cm, endið eftir 1 umferð slétt frá röngu. Geymið stykkið. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Fitjið upp 7-7-7-7-9-9-9 lykkjur á hringprjóna 5 með 1 þræði DROPS Sky og 1 þræði DROPS Kid-Silk (2 þræðir). Prjónið VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið þar til kantur að framan mælist 13-13-13-15-15-16-16 cm, endið eftir 1 umferð slétt frá röngu. Ekki klippa þráðinn, næsta umferð er prjónuð með þessum þræði frá réttu eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Nú á að fitja upp lykkjur fyrir berustykki á milli kanta að framan. Notið hringprjón 5 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: Prjónið vinstri kant að framan eins og áður, fitjið upp 60-60-60-66-66-72-72 nýjar lykkjur í umferð, prjónið lykkjur frá hægri kanti að framan eins og áður (frá réttu) = 74-74-74-80-84-90-90 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 7-7-7-7-9-9-9 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður. Setjið 1 merki að innanverðu við kant að framan í annarri hlið á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 8-8-8-8-10-10-10 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 30-30-30-36-36-42-42 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það eru 8-8-8-8-10-10-10 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægra framstykki. Prjónið nú MYNSTUR fram og til baka með kanti að framan eins og áður, það á að auka út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar og aukið út fyrir V-HÁLSMÁL að innanverðu við kanta að framan í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan um hvernig á að auka út og útskýringu á mynstri. Munið að fylgja prjónfestunni. Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, aukið út 1 lykkju fyrir v-hálsmáli, prjónið A.1, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjuna, prjónið A.2 og A.4 (= ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjuna, prjónið A.2, prjónið A.3 alls 3-3-3-4-4-5-5 sinnum, prjónið A.4 (= bakstykki), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjuna, prjónið A.2 og A.4 (= ermi), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjuna, prjónið A.5, aukið út 1 lykkju fyrir v-hálsmáli, prjónið kant að framan eins og áður (= 8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu og 2 lykkjur fleiri fyrir v-hálsmál). Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið mynstur og kant að framan eins og áður (munið að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Mynstrið hefur nú verið sett upp og aukið hefur verið út 1 sinni fyrir laskalínu og 1 sinni fyrir v-hálsmál. Haldið áfram að auka út fyrir laskalínu og v-hálsmáli eins og útskýrt er hér að neðan – lesið báða kaflana áður en haldið er áfram. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið út hvoru megin við laskalykkjurnar alls 19-19-19-19-25-22-16 sinnum (meðtalin útaukning í umferð 1). Haldið síðan áfram að auka út þannig: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykkjum og bakstykki, en á ermum er nú aðeins aukið út í 4. hverri umferð (= til skiptis 4 og 8 lykkjur fleiri), endurtakið þessa útaukningu alls 12-12-18-18-12-18-30 sinnum á framstykkjum og bakstykki og 6-6-9-9-6-9-15 sinnum á ermum. Alls hefur verið aukið út 31-31-37-37-37-40-46 sinnum fyrir laskalínu á framstykkjum/bakstykki og 25-25-28-28-31-31-31 sinnum á ermum. V-HÁLSMÁL: Aukið út fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið á stykki innan við kanta að framan á sama hátt og útskýrt er í umferð 1 (= 1 lykkja fleiri í hvorri hlið). Aukið út fyrir v-hálsmáli í annarri hverri umferð alls 3 sinnum og síðan í 4. hverri umferð 12-12-12-15-15-18-18 sinnum. Aukið hefur verið út alls 15-15-15-18-18-21-21 sinnum fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið. Eftir alla útaukningu fyrir laskalínu og v-hálsmáli eru 328-328-364-376-392-416-440 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 23-23-27-27-27-30-34 cm frá merki að framan. Ef stykkið mælist minna en þetta, haldið áfram að prjóna að réttu máli án þess að auka út – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan - jafnframt í síðustu umferð frá réttu, fækkið um 4 lykkjur með því að prjóna lykkjurnar með merki þannig: 2. og 4. merki: Prjónið lykkjuna með merki snúna slétt saman með næstu lykkju. 1. og 3. merki: Byrjið 1 lykkju á undan lykkjunni með merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman = 324-324-360-372-388-412-436 lykkjur. Nú er berstykkið skipt í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 54-54-60-63-65-71-77 lykkjurnar eins og áður (= hægra framstykki), setjið næstu 62-62-68-68-74-74-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-16-4-10-16-16-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið næstu 92-92-104-110-110-122-134 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 62-62-68-68-74-74-74 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-16-4-10-16-16-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið undir ermi), prjónið síðustu 54-54-60-63-65-71-77 lykkjur eins og áður (= vinstra framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 208-232-232-256-272-296-332 lykkjur. Prjónið mynstur þannig: 7-7-7-7-9-9-9 kantlykkjur að framan eins og áður, 1 lykkja sléttprjón, prjónið A.3 þar til 8-8-8-8-10-10-10 lykkjur eru eftir í umferð, (passið upp á að mynstrið haldi rétt áfram yfir lykkjurnar frá berustykkinu), prjónið 1 lykkju sléttprjón, 7-7-7-7-9-9-9 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið svona þar til stykkið mælist ca 44-46-48-50-51-53-55 cm frá merki við miðju að framan – endið eftir umferð sem samsvarar 4. eða 10. umferð í A.3. Í næstu umferð frá réttu, byrjið stroff JAFNFRAMT sem fækkað er um 1 lykkju, prjónið þannig: Skipið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið fyrstu 2 lykkjurnar snúnar slétt saman (= 1 lykkja færri), prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 7-7-7-7-9-9-9 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur eða fellið af með ítalskri affellingu. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 62-62-68-68-74-74-74 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-16-4-10-16-16-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 66-78-72-78-90-90-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 4-16-4-10-16-16-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón A.3 hringinn yfir allar lykkjur (passið uppá að mynstrið haldi rétt áfram yfir lykkjur frá berustykki). JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð alls 2-3-2-2-4-2-4 sinnum, fækkið síðan um 2 lykkjur í hverjum 3-2-3-2-1-1-0 cm alls 2-4-2-3-5-3-0 sinnum = 58-64-64-68-72-80-88 lykkjur – lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað, prjónast í sléttprjóni. Prjónið síðan þar til ermin mælist ca 12-13-10-10-10-6-4 cm frá skiptingunni – endið eftir umferð sem samsvarar 4. eða 10. umferð í A.3. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið / 1 lykkja slétt) í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur eða fellið af með ítalskri affellingu. Ermin mælist ca 15-16-13-13-14-10-8 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið kanta að framan saman frá hvoru framstykki – saumur = miðja að aftan, saumið síðan kantana við lykkjur aftan í hnakka. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #perfectlybeecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 52 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-4
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.