Elodie Lace Cardigan#elodielacecardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með ¾ löngum ermum úr DROPS Muskat eða DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, öldumynstri á ermum og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-16 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA : Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 6 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki og prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 6 lykkjur): Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykki, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 7-7½-8-8½-7-7½-7½ cm á milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þegar lykkjum er aukið út jafnt yfir í skiptingunni yfir í stroff, er mikilvægt að auka út þar sem lykkjurnar eru síðar prjónaðar brugðið, sléttprjóns lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fitjið upp lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið fram og til baka á hringprjóna með útaukningu fyrir laskalínu - jafnframt eru lykkjur fitjaðar upp í hvorri hlið í umferð að tilgreindum fjölda lykkja og hálsmál hefur verið formað til loka. Berustykkið er síðan prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. HÁLSMÁL: Fitjið upp 82-84-86-90-92-100-102 lykkjur á hringprjón 4,5 með DROPS Muskat eða DROPS Belle. Setjið 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, setjið merkin í lykkju, þessar lykkjur kallast laskalykkjur og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 1 lykkju (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 23-23-23-25-25-29-29 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 30-32-34-34-36-36-38 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 23-23-23-25-25-29-29 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Nú er 1 lykkja eftir á prjóninum fyrir hægra framstykki. UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Prjónið fram og til baka - JAFNFRAMT eru fitjað upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli og aukið út fyrir LASKALÍNA - sjá útskýringu að ofan á hvernig auka á út. Þegar lykkjurnar eru prjónaðar, prjónið þær samkvæmt eftirfarandi mynstri: Prjónið sléttprjón á framstykkjum og bakstykki og prjónið sléttprjón og MYNSTUR - sjá útskýringu að ofan, á ermum, þ.e.a.s. A.1 er prjónað yfir miðjulykkjurnar á ermum mitt á milli 1. og 2. merkis og mitt á milli 3. og 4. merkis. Munið að fylgja prjónfestunni. PRJÓNIÐ OG AUKIÐ ÚT ÞANNIG: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 84-86-88-92-94-102-104 lykkjur. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 1. merki, prjónið 4 lykkjur slétt, A.1, 4 lykkjur slétt yfir ermi, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2. merki, prjónið slétt fram að 3. merki (= bakstykki), aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 3. merki, prjónið 4 lykkjur slétt, A.1, 4 lykkjur slétt yfir ermi, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4. merki, prjónið 1 lykkju slétt (= 8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 94-96-98-102-104-112-114 lykkjur. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið brugðið (munið að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar 96-98-100-104-106-114-116 lykkjur. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið slétt og haldið áfram með A.1 yfir miðju 15-15-15-17-17-21-21 lykkjurnar á hvorri ermi – JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkin (= 8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 2 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 106-108-110-114-116-124-126 lykkjur. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 109-111-113-117-119-127-129 lykkjur. UMFERÐ 6 (= rétta): Prjónið slétt og A.1 eins og áður, aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkin (= 8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 3 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 120-122-124-128-130-138-140 lykkjur. UMFERÐ 7 (= ranga): Prjónið brugðið, fitjið síðan upp 13-14-15-15-16-16-17 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 133-136-139-143-146-154-157 lykkjur. UMFERÐ 8 (= rétta): Prjónið fyrstu 6 lykkjurnar eins og KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – sjá útskýringu að ofan, prjónið slétt og A.1 eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkin (= 8 lykkjur fleiri), fitjið síðan upp 13-14-15-15-16-16-17 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 154-158-162-166-170-178-182 lykkjur. UMFERÐ 9 (= ranga): Prjónið brugðið, en síðustu 6 lykkjurnar í hvorri hlið eru prjónaðar eins og KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD - munið eftir útskýringunni að ofan. Á EFTIR UMFERÐ 9: Hálsmálið hefur nú verið prjónað til loka og aukið hefur verið út 4 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 merkin. Setjið 1 merki innan við síðustu 6 lykkjurnar við miðju að framan. Stykkið verður síðar mælt frá þessu merki. Prjónið síðan berustykkið eins og útskýrt er að neðan. Nú byrja affelling fyrir HNAPPAGAT- sjá útskýringu að ofan. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón og A.1 yfir ermar eins og áður með 6 kantlykkjum að framan með i-cord í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT er haldið áfram að auka út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð 0-7-4-9-14-16-13 sinnum til viðbótar (aukið út fyrir laskalínu alls 4-11-8-13-18-20-17 sinnum) = 154-214-194-238-282-306-286 lykkjur. Haldið áfram að auka út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykkjum og bakstykki, en á ermum er nú aðeins aukið út í 4. hverri umferð (= 4 og 8 lykkjur auknar út til skiptis), endurtakið þessa útaukningu alls 22-16-22-20-16-16-22 sinnum á framstykkjum og bakstykki og 11-8-11-10-8-8-11 sinnum á ermum. Nú hefur verið aukið út alls 26-27-30-33-34-36-39 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 15-19-19-23-26-28-28 sinnum á ermum (meðtaldar útaukningar sem voru prjónaðar samtímis með hálsmáli). Eftir síðustu útaukningu eru 286-310-326-358-378-402-418 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 20-21-23-25-26-28-30 cm frá merki við miðju að framan. Nú skiptist berustykkið í fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. samtímis sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 48-52-55-59-62-67-71 kantlykkjur að framan og sléttprjón eins og áður (= framstykki), setjið næstu 53-57-59-67-71-73-73 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-14-14-18-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 84-92-98-106-112-122-130 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 53-57-59-67-71-73-73 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-14-14-18-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 48-52-55-59-62-67-71 lykkjur í sléttprjóni og kantlykkjur að framan eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 204-220-236-252-272-296-320 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður þar til stykkið mælist 36-38-40-42-43-44-46 cm frá merki við miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 37-41-43-47-51-57-61 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 - lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 241-261-279-299-323-353-381 lykkjur. Prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og prjónið kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur eða notið ítalska affellingu. Peysan mælist 40-42-44-46-48-49-51 cm frá merki við miðju að framan og ca 48-50-52-54-56-58-60 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 53-57-59-67-71-73-73 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 12-12-14-14-18-20-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 65-69-73-81-89-93-97 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 12-12-14-14-18-20-24 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón og mynstur hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur 2-2-2-2-3-3-3 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur 2-4-4-6-7-7-7 sinnum með 3-3-3-2-1½-1½-1½ cm millibilil = 57-57-61-65-69-73-77 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 20-20-19-19-17-16-15 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT og aukið er út um 9-9-11-11-11-13-13 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (passið uppá að auknar séu út fjöldi lykkja með sléttri tölu yfir A.1) = 66-66-72-76-80-86-90 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur eða með ítalskri affellingu. Ermin mælist ca 24-24-23-23-22-21-20 cm frá skiptingunni. HÁLSMÁL: Notið hringprjón 2,5. Byrjið frá réttu við miðju að aftan og prjónið upp 127-131-135-141-147-153-157 lykkjur í kringum hálsmál (passið uppá að prjónuð sé upp 1 lykkja í hverja kantlykkjur að framan þannig að kantur að framan haldi fallega áfram upp úr á sama hátt). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður og stillið lykkjufjöldann ef þörf krefur – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2 + 1. Næsta umferð er prjónuð frá réttu: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Prjónið þar til kantur að framan mælist 3-3-3½-3½-4-4-4 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur eða fellið af með ítalskri affellingu. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #elodielacecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 55 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.