Persephone Cardigan#persephonecardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 267-6 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 6 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið 1 lykkju slétt bæði framan í og aftan í uppsláttinn (= 2 lykkjur), þannig að það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 7-7-7-7-8-8-8 næstu hnappagötum með ca 6½-7-7½-7½-7-7-7½cm á milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 99-101-107-107-109-115-117 lykkjur á hringprjón 3,5 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið þannig: Frá röngu: Prjónið 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 7 kantlykkjur að framan. Frá réttu: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 7 kantlykkjur að framan. Frá réttu: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 7 kantlykkjur að framan. Prjónið síðan þannig: Frá réttu: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 7 kantlykkjur að framan. Frá röngu: Prjónið 7 katnlykkjur að framan, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið 7 kantlykkjur að framan. Prjónið þessar 2 umferðir 1 sinni til viðbótar = 4 umferðir stroff. Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan í annarri hlið á stykki (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4,5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og þessar lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 23-23-25-25-25-27-27 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 9 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 31-33-35-35-37-39-41 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 9 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það eru 23-23-25-25-25-27-27 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægra framstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með kantlykkjum að framan eins og áður jafnframt er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu hvernig auka á út og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri) – fellið af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 16-19-22-22-24-23-22 sinnum (= 32-38-44-44-48-46-44 umferðir prjónaðar) = 227-253-283-283-301-299-293 lykkjur. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og bakstykki, aukið út á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 5-5-4-6-6-9-11 sinnum (= 20-20-16-24-24-36-44 umferðir prjónaðar = 5-5-4-6-6-9-11 sinnum útaukning á ermum og 10-10-8-12-12-18-22 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki) = 287-313-331-355-373-407-425 lykkjur í umferð. Aukið hefur verið út alls 26-29-30-34-36-41-44 sinnum á framstykkjum / bakstykki og 21-24-26-28-30-32-33 sinnum á ermum. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 22-24-25-29-30-34-37 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 50-53-56-60-62-69-72 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 51-57-61-65-69-73-75 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 85-93-97-105-111-123-131 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 51-57-61-65-69-73-75 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 50-53-56-60-62-69-72 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 197-211-225-241-255-281-299 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 48-50-52-54-55-57-59 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-20-22-22-26-26-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (lykkjur eru ekki auknar út yfir kant að framan) = 215-231-247-263-281-307-331 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af aðeins laust. Peysan mælist 51-53-55-57-59-61-63 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 51-57-61-65-69-73-75 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 57-63-69-73-79-83-87 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-8-10-10-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 0-1-3-4-7-8-9 sinnum með 0-3-3-3-2-2-2 cm millibili = 53-57-59-61-61-63-65 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-38-37-34-32-29-26 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 7-7-7-7-9-9-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 60-64-66-68-70-72-74 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 42-41-40-37-36-33-30 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #persephonecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 43 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 267-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.