Agnes skrifaði:
Pour les points fantaisie A2, les jetés se font-ils sur les rangs endroit ou envers ? J’ai compris qu’ils se faisaient sur l’envers mais les mailles tricotées ensemble douvent-elles se faire à l’endroit sur l’envers ?
18.04.2026 - 01:08DROPS Design svaraði:
Bonjour Agnès, le 1er rang de A.2 se tricote sur l'endroit, ainsi tous les jetés au milieu de A.2 se feront sur l'endroit, sur l'envers, tricotez ces mailles à l'envers (elles doivent former des trous). Bon tricot!
20.04.2026 - 09:02
Barbara skrifaði:
Buongiorno mi riferisco agli aumenti presenti nello schema. Grazie
06.04.2026 - 12:14DROPS Design svaraði:
Buomgiorno Barbara, gli aumenti presenti nel diagramma sono dei gettati, come indicato nella legenda. Buon lavoro!
08.04.2026 - 16:33
Barbara skrifaði:
Mi riferisco al modello meringue bliss cardigan. Grazie
05.04.2026 - 10:47DROPS Design svaraði:
Buongiorno Barbara,gli aumenti presenti nel diagramma sono dei gettati, come indicato nella legenda. Buon lavoro!
08.04.2026 - 16:34
Barbara skrifaði:
Mi riferisco al modello meringue bliss cardigan. Grazie
05.04.2026 - 10:45DROPS Design svaraði:
Buongiorno Barbara,gli aumenti presenti nel diagramma sono dei gettati, come indicato nella legenda. Buon lavoro!
08.04.2026 - 16:34
Barbara skrifaði:
Buongiorno, è la prima volta che realizzo un modello con sprone rotondo, e vorrei lavorare questo modello, in questo caso come si eseguono gli aumenti, c è un video correlato? Grazie
04.04.2026 - 07:47DROPS Design svaraði:
Buonasera Barbara, a quale parte del modello sta facendo riferimento? Buon lavoro!
04.04.2026 - 18:03
CAROLINE skrifaði:
Bonjour Je souhaite tricoter ce modèle en kid silk 2 fils ou air +air +kid sik.es ce que cela vous paraît possible . Qu elle quantité pour une taille L d avance merci
08.02.2026 - 17:14DROPS Design svaraði:
Pour le tricoter avec 2 fils Kid-Silk, vous pouvez doubler la quantité Kid-Silk indiquée, par ex au lieu de 100 g / 4 pelotes en XS il en faudra 200 g/ 8 pelotes approximativement. Bon tricot!
09.02.2026 - 08:59
CAROLINE skrifaði:
Bonjour Je souhaite tricoter ce modèle en kid silk 2 fils ou air +air +kid sik.es ce que cela vous paraît possible . Qu elle quantité pour une taille L d avance merci
08.02.2026 - 17:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Caroline, votre magasin saura vous assister (même par mail ou téléphone) dans le choix des couleurs assorties Kid-Silk et Nord si besoin; pour le tricoter en Air, découvrez ici comment calculer la quantité nécessaire. Mais il faudra alors choisir juste Air, pas Air + Kid-Silk. Bon tricot!
09.02.2026 - 08:58
CAROLINE skrifaði:
Bonjour Je souhaite faire ce modèle en kid silk ou en air le kid silk Qu en pensez vous pouvez vous me donner la .quantité de l'ai e pour une taille L Es ce que cela vous paraît faisable Je ne trouve pas de couleur avec la nord Merci
08.02.2026 - 17:12
Meringue Bliss Cardigan#meringueblisscardigan |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nord og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki, gatamynstri og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-6 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-7-7-7-7 næstu hnappagötum með ca 7-7½-8-7-7-7-7½ cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir hringlaga berustykki. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 111-111-111-111-121-121-121 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Nord og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan stroff þannig: 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, stroff (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Prjónið stroff í 3-3-3-3-4-4-4 cm, endið með umferð frá réttu. Setjið 1 merki að innanverðu við kant að framan í aðra hliðina á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig – lesið MYNSTUR í útskýringu að ofan: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 1 lykkju brugðið, * A.1, A.2, prjónið frá *-* 9-9-9-9-10-10-10 sinnum, A.1, endið með 1 lykkju brugðið og kant að framan eins og áður. Í fyrstu umferð er einnig lykkjum fækkað fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Munið að fylgja prjónfestunni! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina eru 273-309-327-345-361-381-401 lykkjur í umferð. Það eru 23-27-29-31-29-31-33 lykkjur í hverri mynstureiningu af A.2. Á EINUNGIS VIÐ UM STÆRÐ XS og XL: Í stærð XS og XL prjónið 2-1 mynstureiningar af A.3 á hæðina (= án útaukningar) yfir A.2, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar eins og áður. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið síðan sléttprjón og kanta að framan eins og áður – jafnframt í fyrstu umferð er lykkjufjöldinn jafnaður út til 273-297-321-345-361-381-401 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og kanta að framan þar til stykkið mælist 19-20-21-23-24-25-26 cm, mælt frá merki við miðju að framan. Munið að fylgja prjónfestunni! SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 46-50-52-56-59-64-68 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 52-56-64-68-70-70-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 77-85-89-97-103-113-121 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 52-56-64-68-70-70-72 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 46-50-52-56-59-64-68 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 181-197-209-225-241-265-285 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 43-45-47-49-49-51-53 cm frá merki við miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 18-18-22-22-26-26-30 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 199-215-231-247-267-291-315 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 47-49-51-53-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 52-56-64-68-70-70-72 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 58-62-72-76-80-82-86 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2 sinnum í annarri hverri umferð, fækkið síðan um 2 lykkjur í hverjum 3½ cm alls 2-3-7-8-9-9-10 sinnum = 50-52-54-56-58-60-62 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 43-43-43-42-40-40-40 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 6 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-58-60-62-64-66-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 47-47-47-46-45-45-45 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að faman. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #meringueblisscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 50 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.