Sandra skrifaði:
What video can I watch to show me how to knit the upper back of the vest?
06.03.2026 - 14:21DROPS Design svaraði:
Dear Sandra, you can watch this video where we work diagonal shoulders too, but just be sure to follow your pattern and the number of sts for your size at the same time. Happy knitting!
06.03.2026 - 16:53
Louise skrifaði:
Is this knitted with a single strand or double (2 balls together? Thanks
05.03.2026 - 13:56DROPS Design svaraði:
Dear Louise, this pattern is worked with just 1 strand Brushed Alpaca Silk (not double). Happy knitting!
05.03.2026 - 17:15
Doris Enderlein skrifaði:
In meiner Frage war ein Fehler. Ich habe nur 4 Knäuel gekauft, nicht 5. Tippfehler! Sorry
20.02.2026 - 22:54
Doris Enderlein skrifaði:
Ich stricke den Pullunder in Größe XS und habe dafür 5 Knäuel gekauft. Ich bin gerade an der Stelle für die Armausschnitte und habe noch nicht einmal 2 Knäuel aufgebraucht. Das Stück bis zu den Armausschnitten finde ich auch mit 24 cm extrem kurz. Ist das nicht zuviel Wolle. Eine andere Dame hat gefragt, wieviel Knäuel sie für Größe M braucht und man hat ihr geantwortet, dass es 3 Knäuel sind. Was ist da falsch? Ich würde den Pullunder gerne länger stricken.
20.02.2026 - 22:52DROPS Design svaraði:
Liebe Doris, haben Sie denn die Maschenprobe eingehalten? Wenn Sie enger stricken, brauchen Sie weniger Garn. Aber Sie brauchen auf jeden Fall keine ganzen 4 Knäuel, aber normalerweise etwas mehr als 3. 24 cm Armausschnitt sind eigentlich nicht so sehr kurz, aber Sie können die Armausschnitte natürlich auch etwas länger stricken, das sollte bei den 4 Knäueln möglich sein. Viel Spaß beim Weiterstricken!
24.02.2026 - 09:53
Lynn skrifaði:
HI I have tried to figure out the sizes but i can not. Could you please convert them into inches... Thank you in advance.
27.01.2026 - 02:16DROPS Design svaraði:
Hi Lynn, If you use the US English version (choose the language using the drop-down box to the right of the main photo), you will have all sizes in the size chart, at the bottom of the pattern, in inches and also all measurements throughout the text. Regards, Drops Team.
27.01.2026 - 05:56
Mary Rooks skrifaði:
Please - how many balls of yarn do I need to buy for Size M
26.01.2026 - 21:52DROPS Design svaraði:
Hi Mary, Drops Brushed Alpaca Silk is sold in 25g balls. So you need 3 balls. Regards, Drops Team.
27.01.2026 - 06:16
Orit skrifaði:
Hello, thanks for all your wonderful patterns! I am just after separating for back and front, and not sure about the casting off. I cast off at the beginning of each row, on the right side and on the wrong side. So when it says every 2nd row it means on row 3 and 4? and the same with every 4th row. can you please tell (for example for L) on which rows, counting from the separation I bind off? thanks so much!
18.01.2026 - 10:54DROPS Design svaraði:
Dear Orit, you first cast off for the armhole on every other row on each side = you will cast off at the beginning of each row on each side (ex 3 sts at the beg of next 2 rows, then 2 sts at the beg on next 4 rows); then cast off 1 stitch on every 4th row , cast off 1 stitch at the beg of next 2 rows (from RS then from WS) and work 2 rows without casting off, then work these 4 rows the number of 6 times in L. Happy knitting!
19.01.2026 - 10:16
Marianne skrifaði:
Hallo, ich habe ein Problem bei der Stilllegung für die Schulterschrägung, Gr M. Verstehe ich es folgendermaßen richtig: 4 Maschen stilllegen, dann die Reihe zu Ende stricken, 4 Maschen stilllegen, links zurückstricken, noch 2x wiederholen. Mir ist nicht klar, ob zwischen des Stilllegensimmer weiter hin und her gestrickt wird. Danke im Voraus , Marianne
13.01.2026 - 22:24DROPS Design svaraði:
Liebe Marianne, ja so werden die Maschen für die Schulterschrägung stillgelegt (dann nicht 1 Mal die 7 übrigen Maschen stilllegen), gleichzeitig aber, wenn die Arbeit 54 cm misst, dann ketten Sie die Maschen für den Hals ab, und stricken beide Schulter separat bis zur Ende, so die Maschen für die Schulterschrägung weiter am Anfang einer Reihe ab Armloch stilllegen und 1 Masche am Anfang vom Halsausschnitt 1 Mal abketten. Hier können Sie mal im Video (für ein anderes Modell aber gleiche Technik) wie man solche Schulter strickt. Viel Spaß beim Stricken!
15.01.2026 - 08:48
Ma skrifaði:
Serait-il possible d’avoir les explications pour des aiguilles droites? Je n’ai pas d’aiguilles circulaires. Merci
04.01.2026 - 22:21DROPS Design svaraði:
Bonjour Ma, retrouvez ici comment adapter les explications pour des aiguilles droites. Bon tricot!
05.01.2026 - 11:11
Päivi skrifaði:
Mikä on kappaleen pituus ennen jakoa etu- ja takakapoaleeseen? Tekstissä on koossa L koko pituus 24 cm ja kuvassa taas 24 cm sileää plus 4 cm resoria. Kumpi on oikein? Minulla on lankaa juuri 125 g joten pelkään että se ei riitä jos teen 28 cm. 24 cm taas on melko lyhyt.
26.12.2025 - 06:33DROPS Design svaraði:
Hei, jaa työ kädenteitä varten, kun työn pituus luomisreunasta mitattuna on 28 cm.
29.12.2025 - 17:36
Blue Mirage Vest#bluemiragevest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp í sléttprjóni með skáhallandi öxl og hringlaga hálsmáli. Stærð XS - XXXL.
DROPS 263-30 |
|
|
------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Axlasaumar eru saumaðir saman. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum handveg og kantar í handveg eru prjónaðir í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 208-224-244-256-280-304-332 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4-4-4-4-5-5-5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið sléttprjón, jafnframt í umferð 1 er fækkað um 20-20-24-24-28-28-32 lykkjur jafnt yfir = 188-204-220-232-252-276-300 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þar til stykkið mælist 24-26-27-28-29-30-31 cm. Nú er lykkjum fækkað fyrir handveg og stykkið skiptist fyrir framstykki og bakstykki. SKIPTING VIÐ HANDVEG: Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki, byrjið 5-6-6-7-8-9-10 lykkjur innan við merki í byrjun umferðar og prjónið þannig: Fellið af 10-12-12-14-16-18-20 lykkjur fyrir handveg, prjónið 84-90-98-102-110-120-130 lykkjur, fellið af næstu 10-12-12-14-16-18-20 lykkjur fyrir handveg, prjónið 84-90-98-102-110-120-130 lykkjur. Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka. BAKSTYKKI: = 84-90-98-102-110-120-130 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni eins og áður, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1-1 sinni í hvorri hlið, fellið síðan af 2 lykkjur 1-1-2-2-3-4-5 sinnum í hvorri hlið, fellið síðan af lykkjur í 4. hverri umferð 1 lykkju 5-6-6-6-7-8-9 sinnum í hvorri hlið = 64-68-72-76-78-82-86 lykkjur eftir. Þegar stykkið mælist 48-51-53-55-57-59-61 cm, fellið af fyrir hálsmáli og skáhallandi öxl. Lestu allan næsta kafla áður en þú prjónar áfram. HÁLSMÁL OG SKÁHALLANDI ÖXL: Nú eru lykkjur settar á þráð í hvorri hlið fyrir skáhallandi öxl, til að þurfa ekki að klippa þráðinn frá sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráðinn þannig. Setjið lykkjur á þráðinn frá hlið þannig: 4-4-4-5-5-5-6 lykkjur 3 sinnum og síðan síðustu 5-5-7-5-6-7-6 lykkjur á þráð. Þegar allar lykkjur sitja á þræðinum, setjið þessar lykkjur til baka á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð sléttprjón yfir allar lykkjur (til að koma í veg fyrir göt í skiptingunni þar sem lykkjur voru settar á þráðinn, takið upp þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið snúið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni). Fellið af í næstu umferð. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 49-52-54-56-58-60-62 cm fellið af miðju 28-32-32-34-34-36-36 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 17-17-19-20-21-22-24 lykkjur. Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af mælist stykkið ca 51-54-56-58-60-62-64 cm mælt frá hæsta punkti á öxl. Endurtakið á hinni öxlinni. FRAMSTYKKI: = 84-90-98-102-110-120-130 lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni eins og áður, JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1-1 sinni í hvorri hlið, fellið síðan af 2 lykkjur 1-1-2-2-3-4-5 sinnum í hvorri hlið, fellið síðan af lykkjur í 4. hverri umferð 1 lykkju 5-6-6-6-7-8-9 sinnum í hvorri hlið = 64-68-72-76-78-82-86 lykkjur eftir. Þegar stykkið mælist 42-44-45-46-47-48-49 cm, setjið miðju 12-14-14-16-16-18-18 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. HÁLSMÁL OG SKÁHALLANDI ÖXL: = 26-27-29-30-31-32-34 lykkjur. Nú eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur 1-1-1-1-1-1-1 sinni, 2 lykkjur 2-2-2-2-2-2-2 sinnum og 1 lykkju 2-3-3-3-3-3-3 sinnum = 17-17-19-20-21-22-24 lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 48-51-53-55-57-59-61 cm setjið lykkjur á þráð í hlið fyrir skáhallandi öxl eins og á bakstykki, þ.e.a.s. setjið lykkjur á þráð frá hlið þannig: 4-4-4-5-5-5-6 lykkjur 3 sinnum og síðan síðustu 5-5-7-5-6-7-6 lykkjur á þráð. Þegar allar lykkjur sitja á þræðinum, setjið þessar lykkjur til baka á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð sléttprjón yfir allar lykkjur (til að koma í veg fyrir göt í skiptingunni þar sem lykkjur voru settar á þráðinn, takið upp þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið snúið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni). Fellið af í næstu umferð. Fellið af þegar stykkið mælist ca 51-54-56-58-60-62-64 cm mælt frá hæsta punkti á öxl. Endurtakið á hinni öxlinni. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma saman. KANTUR Á ERMUM: Notið hringprjón 3, byrjið frá réttu fyrir miðju í lykkjur sem felldar voru af fyrir handveg og prjónið upp lykkjur í kringum handveg. Prjónið upp ca 132-144-152-156-168-184-196 lykkjur – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 2-2-2-2-2-2-2 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3, byrjið frá réttu við annan axlasauminn og prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál. Prjónið upp ca 88-96-100-104-108-112-116 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði) - lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 2-2-2-2-2-2-2 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bluemiragevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 263-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.