Camilla skrifaði:
Jeg får ikke tallene til å stemme når jeg skal dele inn i merker for forstykke erme og bakstykke. Jeg sitter igjen med 18 masker ink stolpe masker jeg skulle hatt 20. Strikker 5-6 år
19.11.2025 - 19:31DROPS Design svaraði:
Hei Camilla, Du har 97 masker før du setter in merkene. Tell 20 masker, merke i neste masken, tell 13 masker, merke i neste masken, tell 27 masker, merke i neste maske, tell 13 masker, merke i neste merke: 20 + 1 + 13 + 1 + 27 + 1 + 13 + 1 = 77. Da har du 20 masker igjen etter siste merket. Hilsen Drops Team
20.11.2025 - 06:35
Gentle Day Cardigan#gentledaycardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað í sléttprjóni ofan frá og niður með laskalínu og i-cord. Stærð 2 – 14 ára.
DROPS Children 49-14 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 5½-6-6½-7½-6½-7-7½ cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 143 lykkjur), mínus kantlykkjur að framan (t.d. 12 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 4,4. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 4. og 5. hverja lykkju, ekki er aukið út yfir kantlykkjur að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 85-91-97-99-99-105-107 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið fyrstu umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 6 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 6 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Setjið 1 merki innan við kant að framan í annarri hlið á stykki (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í slétta lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og það á að auka út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur. Teljið 16-18-20-20-20-22-22 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 13 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 23-25-27-29-29-31-33 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. Merki í næstu lykkju, teljið 13 lykkjur (= ermi), setjið 4. Merki í næstu lykkju. Það eru 16-18-20-20-20-22-22 lykkjur eftir í umferð fyrir hægra framstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjur – lesið leiðbeiningar að ofan. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð alls 17-18-19-20-21-22-23 sinnum = 221-235-249-259-267-281-291 lykkjur. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Haldið áfram í sléttprjóni með kanta að framan eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 13-14-15-16-17-18-19 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 35-38-41-42-44-47-48 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 45-47-49-51-51-53-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 61-65-69-73-77-81-85 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 45-47-49-51-51-53-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 35-38-41-42-44-47-48 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 143-153-163-169-181-191-197 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 27-30-34-38-41-43-45 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 30-30-30-34-34-34-38 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (ekki er aukið út yfir kanta að framan) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 173-183-193-203-215-225-235 lykkjur og prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 30-33-37-41-45-47-49 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 33-36-40-44-48-50-52 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 45-47-49-51-51-53-55 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 51-53-55-57-59-61-63 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón í hring – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 3-4-5-6-6½-7-8 cm alls 6 sinnum = 39-41-43-45-47-49-51 lykkjur. Prjónið síðan þar ermin mælist 20-24-28-33-37-40-44 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 7 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 46-48-50-52-54-56-58 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 24-27-31-36-41-44-48 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #gentledaycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 34 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 49-14
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.