Rosanne De Bruin skrifaði:
Dank, maar klopt het dan wel? De tip voor meerderen 2 zegt voor avrecht links hellend meerderen: neem de draad op vanaf de voorkant en brei in de voorste lus. (Dus 2x voor). Dit klopt toch niet? Dan breit men de steek niet gedraaid en ontstaat een gat. Dit moet toch tegengesteld zijn? ( als men vanaf voor opneemt, in de achterste lus breien?) En voor de rechtsleunende steek daar weer tegengesteld aan? ( nu staat daar eveneens vanaf voren opnemen, dus gelijk aan linksleunend). Wat is correct?
23.05.2025 - 22:49
Aysha Adam skrifaði:
I reread the instructions. Sorry it was my mistake. The increases are at each end for every row.
21.05.2025 - 01:35
Aysha skrifaði:
There seems to be a mistake somewhere. For the back small is cast on 34 stitches. After increasing 10 on each side and 20 rows is 54 stitches not 74. Then increase 14 at armholes is 88. It does not make sense. Can you help?
20.05.2025 - 17:32DROPS Design svaraði:
Dear Aysha, you increase for shoulder on every row, ie both from right side and from wrong side, so that you will increase a total of 20 times 2 sts (2 sts on each of the 20 rows), then you get 34+40=74 sts, and then increase 2 sts 7 times for armholes = 74+14=88 sts. Hope this can help. Happy knitting!
21.05.2025 - 08:07
Roos skrifaði:
Ik denk dat de uitleg bij de tip meerderen 2 niet klopt. Voor een links leunende avrechte meerdering moet men volgens mij de draad opnemen tussen de steken vanaf de voorkant en vervolgens breit men een steek averecht in de achterste lus insteken. Anders komt de steek niet links leunend uit. En voor een rechtsleunende averechte meerdering neemt men de draad tussen de steken op vanaf de achterkant in en breit men averecht in de voorste lus van de steek. Kunt u dit checken?
17.05.2025 - 17:06DROPS Design svaraði:
Dag Roos,
Het werk wordt van boven naar beneden gebreid, vandaar dat dit meerderen ook andersom is.
18.05.2025 - 08:27
Isi skrifaði:
Hallo, Ich glaube, dass mit den Maßen der langen was nicht stimmt. Ich habe die Maße ab Armausschnitt bis zum gewünschten Maß bis zum Start Bündchen 21 cm (für Größe S, aber M genommen weil ich etwas größer bin) gestrickt und mir kommt das Strickstück gerade knapp bis zum Bauchnabel. Ich muss alles noch gute 10 cm dazu stricken, damit es ungefähr bis zum Hosenbund kommt. Es soll ja grundsätzlich auch etwas kürzer sein, das Modell. Mir kam es komisch vor. Grüße
15.05.2025 - 08:53
Lella skrifaði:
La spiegazione dell'aumento di una maglia verso sinistra dal rovescio del lavoro è corretta?
08.05.2025 - 10:43DROPS Design svaraði:
Buongiorno Lella, al momento non sono riportate correzione per il modello. Buon lavoro!
01.06.2025 - 15:53
Sandra skrifaði:
Non ho mai lavorato con i ferri circolari, come posso fare questa canottiera utilizzando i ferri lineari. Mi spiego meglio quante maglie devo avere per il davanti e per il dietro. Grazie
23.04.2025 - 13:35DROPS Design svaraði:
Buonasera Sandra, questa canottiera viene lavorata in piano all'inizio e poi in tondo. Buon lavoro!
25.04.2025 - 18:29
Wisteria Glow Top#wisteriaglowtop |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur úr DROPS Belle. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, i-cord og rúllukanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-13 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja á frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. I-CORD: FYRSTU 3 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið. SÍÐUSTU 3 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 hlutum. Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, mynstrið er prjónað samtímis sem aukið er út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukning fyrir hálsmál hefur verið gerð til loka. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Síðan er framstykki og bakstykki sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Í lokin eru lykkjur prjónaðar í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 34-36-38-38-42-42 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Belle. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til eftir eru 3 lykkjur, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur brugðið. EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 10-10-10-11-11-12 sinnum (= 20-20-20-22-22-24 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru 74-76-78-82-86-90 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 8-9 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Setjið 1 merki yst í hvora hlið. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan í sléttprjóni og 3 lykkjur I-CORD í hvorri hlið – lesið leiðbeiningar að ofan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið þar til stykkið mælist 11-9-9-10-11-11 cm frá merki yst meðfram handveg. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur i-cord eins og áður, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt og 3 lykkjur i-cord eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur i-cord, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur i-cord eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 7-11-12-9-9-6 sinnum (= 14-22-24-18-18-12 umferðir prjónaðar) = 88-98-102-100-104-102 lykkjur í umferð. Útaukningu stærð S, M og L er nú lokið. Síðan er prjónað og aukið út í stærð XL, XXL og XXXL: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur i-cord, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt og 3 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur i-cord, 1 lykkja brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju brugðið og 3 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 0-0-0-3-4-8 sinnum (= 0-0-0-6-8-16 umferðir prjónaðar) = 88-98-102-112-120-134 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni og 3 lykkjur i-cord í hvorri hlið þar til stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar af þræðinum / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út við öxl þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju fram að merki í hlið við handveg = 20-20-20-22-22-24 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 3 lykkjur i-cord yst við handveg – munið eftir útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-8-8 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur i-cord, prjónið brugðið út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-6-6-7-7 sinnum (= 10-10-12-12-14-14 umferðir prjónaðar) = 25-25-26-28-29-31 lykkjur. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykki prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við merki á öxl og prjónið upp lykkjur inn við hálsmál þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 20-20-20-22-22-24 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 3 lykkjur i-cord yst við handveg. Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-8-8 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur i-cord, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir við hálsmál, aukið út til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-6-6-7-7 sinnum (= 10-10-12-12-14-14 umferðir prjónaðar) = 25-25-26-28-29-31 lykkjur. Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 25-25-26-28-29-31 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 24-26-26-26-28-28 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 25-25-26-28-29-31 lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður = 74-76-78-82-86-90 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni og 3 lykkjur i-cord í hvorri hlið þar til stykkið mælist 15-13-13-14-15-15 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur i-cord eins og áður, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt og 3 lykkjur i-cord eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur i-cord, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur i-cord eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 7-11-12-9-9-6 sinnum (= 14-22-24-18-18-12 umferðir prjónaðar) = 88-98-102-100-104-102 lykkjur í umferð. Útaukningu er nú lokið í stærð S, M og L. Síðan er prjónað og aukið út í stærð XL, XXL og XXXL þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 lykkjur i-cord, 1 lykkja slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt og 3 lykkjur i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 lykkjur i-cord, 1 lykkja brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju brugðið og 3 lykkjur i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 0-0-0-3-4-8 sinnum (= 0-0-0-6-8-16 umferðir prjónaðar) = 88-98-102-112-120-134 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni og 3 lykkjur i-cord í hvorri hlið þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá uppfitjunarkanti, endið með umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 88-98-102-112-120-134 lykkjur frá framstykki eins og áður, notið auka þráð og fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar með tvöföldum þræði (= í hlið fyrir miðju undir handveg – fitjað er upp með tvöföldum þræði til að kanturinn verði aðeins grófari), klippið auka þráðinn, prjónið 88-98-102-112-120-134 lykkjur frá bakstykki eins og áður, notið auka þráð og fitjið upp 8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur í umferð með tvöföldum þræði (= í hlið fyrir miðju undir handveg), klippið auka þráðinn = 192-212-228-248-272-300 lykkjur í umferð. Nú er prjónað í hring (með 1 þræði eins og áður). Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist ca 20-21-22-23-23-24 cm frá handvegi. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-18-20-24-26-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 210-230-248-272-298-328 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5 cm er fellt af. Toppurinn mælist ca 42-44-46-48-50-52 cm, mælt frá innst við hálsmál. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 94 til 118 lykkjur í kringum hálsmálið innan við 1 lykkju. Prjónið 3 umferðir sléttprjón. Skiptið yfir á hringprjón 4 og fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum (= rúllukantur). |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wisteriaglowtop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.