Moon Dust Cardigan#moondustcardigan |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Belle eða DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 259-21 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 4-4-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 10½-11-9-9½-10-10 cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 123 lykkjur), mínus kanta að framan og kaðla (t.d. 14 lykkjur) og deilið þeim lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 17) = 6,4. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn til skiptis á eftir ca 6. og 7. hverja lykkju (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 123-127-131-137-143-149 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Belle eða DROPS Sky. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist í 3-3-3-4-4-4 cm. Setjið 1 merki að innanverðu í kant að framan í aðra hliðina á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið 109-113-117-123-129-135 lykkjur sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 17-25-29-23-25-31 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið kant að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan = 140-152-160-160-168-180 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón og kanta að framan eins og áður. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 2-3-3-3½-3½-3½ cm frá merki, aukið út lykkjur með því að prjóna MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: A.1: Prjónið kant að framan eins og áður, 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.1 alls 30-33-35-35-37-40 sinnum meðfram berustykki, prjónið 3 lykkjur sléttprjón og kant að framan eins og áður = 170-185-195-230-242-260 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.2: Prjónið kant að framan eins og áður, 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.2 alls 30-33-35-35-37-40 sinnum meðfram berustykki, prjónið 3 lykkjur sléttprjón og kant að framan eins og áður = 200-218-230-265-279-300 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.3: Prjónið kant að framan eins og áður, 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.3 alls 30-33-35-35-37-40 sinnum meðfram berustykki, prjónið 3 lykkjur sléttprjón og kant að framan eins og áður = 230-251-265-300-316-340 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.4: Prjónið kant að framan eins og áður, 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.4 alls 30-33-35-35-37-40 sinnum meðfram berustykki, prjónið 3 lykkjur sléttprjón og kant að framan eins og áður = 260-284-300-335-353-380 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.5: Prjónið kant að framan eins og áður, 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.5 alls 30-33-35-35-37-40 sinnum meðfram berustykki, prjónið 3 lykkjur sléttprjón og kant að framan eins og áður = 290-317-335-370-390-420 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: A.6: Prjónið kant að framan eins og áður, 3 lykkjur sléttprjón, prjónið fyrstu umferð í A.6 alls 30-33-35-35-37-40 sinnum meðfram berustykki, prjónið 3 lykkjur sléttprjón og kant að framan eins og áður = 320-350-370-405-427-460 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón og kanta að framan þar til stykkið mælist 21-23-23-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 2-0-4-5-11-14 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 322-350-374-410-438-474 lykkjur. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 55-60-63-68-73-80 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 58-62-68-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 96-106-112-122-132-146 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 58-62-68-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 55-60-63-68-73-80 lykkjur sléttprjón (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 222-242-258-278-302-330 lykkjur Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 43-45-46-47-49-51 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 45-45-49-55-61-63 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 267-287-307-333-363-393 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Peysan mælist 47-49-50-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 58-62-68-76-80-84 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-70-78-86-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur alls 2-2-1-1-0-0 sinnum í annarri hverri umferð = 62-66-76-84-92-96 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 12-10-12-10-8-7 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 12-14-16-18-18-20 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 74-80-92-102-110-116 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm fellið af. Ermin mælist ca 15-13-15-14-12-11 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #moondustcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-21
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.