Florence skrifaði:
Bonjour, Pourrait-on ajouter des rangs raccourcis à l'Allemande pour creuser le dos de ce pull et comment ? Merci.
04.04.2025 - 15:47DROPS Design svaraði:
Bonjour Florence, tout à fait, il vous suffit juste de les ajouter entre le col et le point fantaisie - inspirez-vous si besoin d'un modèle similaire avec empiècement arrondi (et même tension ). Bon tricot!
04.04.2025 - 16:03
Kis Linnet skrifaði:
Nå, jeg fandt ud af at de 10 ekstra masker skal høre til maskerne på ryg og forstykke 😊
02.04.2025 - 09:29DROPS Design svaraði:
Så bra :) mvh DROPS Design
07.04.2025 - 10:39
Kis Linnet skrifaði:
Er det ikke en fejl i opskriften, når der for str XL står, at der er 264 masker, når man har samlet maskerne til ryg og forstykke? Jeg får det kun til 244 masker, da der står ovenfor at der er 122 masker for hhv forstykke og ryg.
02.04.2025 - 09:20DROPS Design svaraði:
Hei Kis. Så bra du fant ut av det. mvh DROPS Design
07.04.2025 - 10:39
Moon Dust |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Belle eða DROPS Sky. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 259-22 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 114 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 18) = 6,3. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn - svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokast. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 110-114-118-124-128-134 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Belle eða DROPS Sky. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3-3-3-4-4-4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 36-38-39-41-43-45 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 10-18-22-20-24-30 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 120-132-140-144-152-164 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 2-3-3-3½-3½-3½ cm frá merki, aukið út lykkjur með því að prjóna MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: A.1: Prjónið fyrstu umferð í A.1 alls 30-33-35-36-38-41 sinnum berustykkið hringinn = 150-165-175-216-228-246 lykkjur. Prjónið sléttprjón í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.2: Prjónið fyrstu umferð í A.2 alls 30-33-35-36-38-41 sinnum berustykkið hringinn = 180-198-210-252-266-287 lykkjur. Prjónið sléttprjón í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.3: Prjónið fyrstu umferð í A.3 alls 30-33-35-36-38-41 sinnum berustykkið hringinn = 210-231-245-288-304-328 lykkjur. Prjónið sléttprjón í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.4: Prjónið fyrstu umferð í A.4 alls 30-33-35-36-38-41 sinnum berustykkið hringinn = 240-264-280-324-342-369 lykkjur. Prjónið sléttprjón í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.5: Prjónið fyrstu umferð í A.5 alls 30-33-35-36-38-41 sinnum berustykkið hringinn = 270-297-315-360-380-410 lykkjur. Prjónið sléttprjón í 3-3-3-3-3½-3½ cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.6: Prjónið fyrstu umferð í A.6 alls 30-33-35-36-38-41 sinnum berustykkið hringinn = 300-330-350-396-418-451 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 8-6-10-0-6-9 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 308-336-360-396-424-460 lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-23-23-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 58-62-68-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 96-106-112-122-132-146 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 58-62-68-76-80-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 96-106-112-122-132-146 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 208-228-244-264-288-316 lykkjur Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 43-45-46-47-49-51 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 44-44-50-54-62-64 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 252-272-294-318-350-380 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af. Peysan mælist 47-49-50-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 58-62-68-76-80-84 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-70-78-86-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur alls 2-2-1-1-0-0 sinnum í annarri hverri umferð = 62-66-76-84-92-96 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 12-10-12-10-9-7 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 12-14-16-18-18-20 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 74-80-92-102-110-116 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm fellið af. Ermin mælist ca 15-13-15-14-13-11 cm frá skiptingunni. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. Ertu búin að klára þetta mynstur? |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 259-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.