Ana Margarita Fernández Arango skrifaði:
Hola, no entiendo las medidas bien. En las explicaciones pone que el elástico del cuello mide 2 cm. En cambio en el dibujo pone 6cm. Yo el elástico del cuello le he puesto 2cm como decía las explicaciones y entonces solo 17 cm de sisa (yo he elegido la talla S) me parece muy poco. De paso les doy mi enhorabuena por la página, es fantástica y he copiado muchos patrones.
07.03.2025 - 15:26DROPS Design svaraði:
Hola Ana Margarita, son 2 cm de elástico; los 6cm son la altura desde la parte superior del hombro hasta la punta del cuello en el delantero. 17 cm son normales para la sisa; se trata de una sisa bastante ajustada. Puedes trabajar el canesú con los aumentos y, si después de terminar los aumentos, te parece que la sisa es estrecha, puedes trabajar recto hasta alcanzar la medida deseada.
09.03.2025 - 19:10
Fatma Kisrane skrifaði:
Bonjour j\'ai acheté de la laine merino superfine 160 de chez lang yarns de couleur gris anthracite j\'ai pas assez de laine pour faire un pull homme taille xl. Avec quelle laine pourrai je la compléter. J\'ai pensé à la laine merino extra fine
14.02.2025 - 12:52DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Kisrane, nous ne connaissons pas cette laine, mais vous pouvez comparer les infos avec celles de DROPS Merino Extra Fine - votre magasin saura également vous conseiller, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
14.02.2025 - 16:14
Lena skrifaði:
Hej, Stämmer masktätheten med 24 m rätstickning?Jag stickar rätt så hårt och trots att jag använt stickor 3 mm så får jag 11 cm på bredden. Eller ska masktätheten vara i slätstickning?
10.02.2025 - 21:11DROPS Design svaraði:
Hej Lena, hvis du strikker hårdt, skal du gå op i størrelse på pinden. Ja strikkefastheden er i rätstickning :)
12.02.2025 - 15:04
Misty Lake Cardigan#mistylakecardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Nord eða DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, garðaprjóni og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. LASKALÍNA: Einungis er aukið út frá röngu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (= rétta) er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í garðaprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í garðaprjóni. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 6-6-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 7½-7½-8-8½-7½-7½ cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli garðaprjóns og stroffs. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð í umferð sem prjónuð er slétt! Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Byrjið við byrjun umferðar, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Hálsmál og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 128-132-144-144-148-160 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Nord eða DROPS Alpaca. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt), þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 2 cm – endið með einni umferð frá réttu. Ef þú ert ekki viss um hvor hliðin sé rétta, þá eiga að vera frá réttu 2 lykkjur slétt við kant að framan við miðju að framan. Setjið 1 merki að innanverðu við kant að framan í annarri hliðinni á stykki (og notið gjarna merki til að muna hvor hliðin sé rétta), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja brugðið (séð frá réttu) og þessar 2 lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í garðaprjóni. Teljið 22-22-26-26-26-30 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 28 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 28-32-36-36-40-44 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 28 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju. Það eru 22-22-26-26-26-30 lykkjur eftir á prjóni á eftir síðasta merkiþræði (= hægra framstykki). Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Nú er prjónað fram og til baka í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan og kant að framan með i-cord í hvorri hlið jafnframt því sem aukið er út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan. Munið eftir HNAPPAGAT og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið garðaprjón og kant að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir laskalínu (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið garðaprjón og kant að framan eins og áður, uppslátturinn er prjónaður snúinn og nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-8-8-6-4 sinnum (= 4-4-16-16-12-8 umferðir prjónaðar) = 144-148-208-208-196-192 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið garðaprjón og kant að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á undan og á eftir laskalykkjum (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið garðaprjón og kant að framan eins og áður, uppslátturinn er prjónaður snúinn og nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið garðaprjón og kant að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á undan 1. og 3. merkiþræði og á eftir 2. og 4. merkiþræði, þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykkjum og bakstykki, lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur). UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið garðaprjón og kanta að framan eins og áður, uppslátturinn er prjónaður snúinn og nýjar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 19-20-17-19-21-23 sinnum (= 76-80-68-76-84-92 umferðir prjónaðar) = 19-20-17-19-21-23 sinnum útaukning á ermum og 38-40-34-38-42-46 lykkjur fleiri á framstykkjum/bakstykki) = 372-388-412-436-448-468 lykkjur í umferð. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu er lokið, hefur verið aukið út 40-42-42-46-48-50 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 21-22-25-27-27-27 sinnum á ermum. Prjónið síðan garðaprjón og kanta að framan eins og áður, án þess að auka út, þar til stykkið mælist ca 17-18-20-21-23-25 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 62-64-68-72-74-80 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 70-72-78-82-82-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-10-14-18-26-30 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 108-116-120-128-136-144 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 70-72-78-82-82-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-10-14-18-26-30 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 62-64-68-72-74-80 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 244-264-284-308-336-364 lykkjur. Prjónið garðaprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT er aukið út um 68-72-76-80-92-100 lykkjur jafnt yfir í umferð (lykkjur eru ekki auknar út yfir kanta að framan) = 312-336-360-388-428-464 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kanta að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 1 cm er fellt af aðeins laust. Peysan mælist 46-48-50-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 70-72-78-82-82-82 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-10-14-18-26-30 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 76-82-92-100-108-112 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-10-14-18-26-30 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið GARÐAPRJÓN umferðina hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 6-4½-3-2½-2-2 cm alls 8-10-14-16-19-20 sinnum = 60-62-64-68-70-72 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 48-47-45-45-44-42 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 16-18-20-20-22-20 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 76-80-84-88-92-92 lykkjur. Þegar stroffið mælist 1 cm er fellt af aðeins laust. Ermin mælist ca 49-48-46-46-45-43 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistylakecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.