Anna skrifaði:
Jag ska sticka fram- och bakstycket och läser att jag ska sticka rätstickning runt. Då blir resultatet slätstickning och ser inte alls ut som på bilden. Står det fel i mönstret?
22.03.2025 - 19:21DROPS Design svaraði:
Hei Anna. Øverst i oppskriften står det: RETSTRIK (når der strikkes rundt): Strik skiftevis 1 omgang ret og 1 omgang vrang. Altså, 1. omgang strikkes vrang og 2. omgang strikkes ret, så gjentas 1. og 2. omgang, du får da resultatet du ser på bildet. mvh DROPS Design
24.03.2025 - 13:35
Claudia skrifaði:
Hello again. Can I use a different increase instead of YO? Also, are there any amendments/corrections to the English Pattern ? thanks!
09.03.2025 - 20:43DROPS Design svaraði:
Dear Claudia, all corrections to the pattern will be indicated with red at the bottom of the pattern; there are no corrections to the pattern as of now. The online version will always be the newest, more correct one. If you don't want to work yarn overs you can increase by making one (M1). Happy knitting!
09.03.2025 - 21:00
Claudia skrifaði:
Help! I worked the neck rib, but then the patter says \\\"The round begins on the right back shoulder. Insert 1 marker after the first 44-44-46-48-48-50 stitches (approx. mid-front); the piece is now measured from here\\\". Am I meant to work (size M) 44 stiches in rib, put a marker in, and then start the the yoke in garter stitch? It asks to put a marker in at the beginning of the round, but isn\\\'t the marker already there (the one that I put after the 44 stitches)?
09.03.2025 - 20:40DROPS Design svaraði:
Dear Claudia, the marker after the first 44 stitches is inserted before working the stitches; this marks the mid-front and it is used only for measuring the piece. After this, you will insert 4 markers for the yoke, before starting to work (you can use different color threads or markers to separate between the yoke and the measuring markers). After inserting the measuring marker and the yoke markers you will start working in garter stitch. The beginning of the round isn't displaced; it's the same as before and it corresponds to the transition between the back piece and right sleeve. Happy knitting!
09.03.2025 - 21:06
Anna Ekman skrifaði:
Jag förstår inte hur det kan bli 376 maskor i storlek M, när alla ökningar till raglan är färdiga. Efter 136 maskor ska jag öka med 8 maskor, därefter 4 maskor =148. Sedan ska jag upprepa varv 2-4 20 gånger = 60 varv, inte 80 som det står . Ökningen blir då 4 maskor x20=80. 148 maskor+80 blir totalt 228 maskor, inte 376.
03.03.2025 - 16:33DROPS Design svaraði:
Hej Anna. Det var dessvärre ett fel i den svenska översättningen, detta är nu rättat. Det är varv 1-4 som ska upprepas. Mvh DROPS Design
05.03.2025 - 15:10
Hanne Petterson skrifaði:
Forstår ikke opskriften fra antal masker 192 i str. L. Hele afsnittet med videre strikkes der og tages ud således. Antallet af udtagninger kan jeg ikke få til at passe med beskrivelsen. Hvordan får jeg 18 udtagninger på ærmerne nå der står jeg ikke skal tage ud på ærmerne. Mvh Hanne
22.02.2025 - 18:20DROPS Design svaraði:
Hei Hanne. Det er kun forklaringen under på 3. OMGANG du ikke skal øke til ermene, men du øker til ermene når du strikker etter 1. OMGANG. Når du har 192 masker på pinnen strikkes det 4 omganger der det på 1. omgang økes 8 steder (som før), på 2. omgang strikkes det kun rett, på 3. omgang økes det kun på for -og bakstykket (4 steder, det økes ikke på ermene) og på 4. omgang strikkes det kun rett. Disse 4 omgangene strikkes 18 ganger = 72 omganger Da vil du øke alle steder 36 ganger, men kun 18 ganger på ermene. mvh DROPS Design
03.03.2025 - 09:49
Lotte skrifaði:
Er staat alpaca parelgrijs maar die kleur zie ik niet terug. Bedoelen ze lichtgrijs?
07.02.2025 - 16:35
Misty Lake#mistylakesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Nord eða DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-24 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. LASKALÍNA: Einungis er aukið út í umferðum sem prjónaðar eru frá röngu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (= umferð sem er prjónuð slétt) er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í garðaprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í garðaprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar lykkjur eru prjónaðar upp mitt undir ermi, getur myndast smá gat í skiptingunni á milli lykkja frá fram- og bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja – þessi þráður er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkju á milli fram- og bakstykkis og ermi, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð í umferð sem prjónuð er slétt! Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-120-128-136-136-144 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Nord eða DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju brugðið. Prjónið stroff hringinn í 2 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 44-44-46-48-48-50 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 3,5. Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja brugðið og þessar 2 lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í garðaprjóni. Setjið 1. merkiþráð við byrjun umferðar, teljið 28 lykkjur (= ermi), Setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 32-32-36-40-40-44 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 28 lykkjur (= ermi), Setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, það eru eftir 32-32-36-40-40-44 lykkjur á eftir síðasta merkiþræði (= bakstykki). Prjónið GARÐAPRJÓN og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan – þannig: UMFERÐ 1: Prjónið brugðið og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). (ATH! Byrjun umferðar situr mitt á milli 2 laskalykkja, þess vegna er fyrsta lykkjan aukin út á eftir 1 lykkju og síðasta lykkjan þegar eftir er 1 lykkja). UMFERÐ 2: Prjónið slétt – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-8-10-6-4 sinnum (= 4-4-16-20-12-8 prjónaðar umferðir) = 136-136-192-216-184-176 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið brugðið og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hvern merkiþráð (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Prjónið brugðið og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merkiþræði og á undan 3. og 1. merkiþræði – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið slétt. Prjónið UMFERÐ 2 til 4 alls 19-20-18-18-21-23 sinnum (= 76-80-72-72-84-92 prjónaðar umferðir = 19-20-18-18-21-23 sinnum útaukning á ermum og 38-40-36-36-42-46 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 364-376-408-432-436-452 lykkjur í umferð. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu er lokið, hefur verið aukið út 40-42-44-46-48-50 sinnum á framstykki/bakstykki og 21-22-26-28-27-27 sinnum á ermum. Prjónið síðan garðaprjón án þess að auka út, þar til stykkið mælist ca 17-18-20-21-23-25 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 70-72-80-84-82-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-10-12-16-26-30 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 112-116-124-132-136-144 lykkjur í garðaprjóni (= framstykki), setjið næstu 70-72-80-84-82-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-10-12-16-26-30 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 112-116-124-132-136-144 lykkjur í garðaprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 236-252-272-296-324-348 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 6-10-12-16-26-30 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 64-76-80-84-96-100 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 300-328-352-380-420-448 lykkjur. Þegar stroffið mælist 1 cm er fellt af aðeins laust. Peysan mælist 46-48-50-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 70-72-80-84-82-82 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-10-12-16-26-30 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 76-82-92-100-108-112 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-10-12-16-26-30 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið garðaprjón umferðina hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 6-4½-3-2½-2-2 cm alls 8-10-14-16-19-20 sinnum = 60-62-64-68-70-72 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 47-47-45-45-44-42 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 16-18-20-20-22-20 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 76-80-84-88-92-92 lykkjur. Þegar stroffið mælist 1 cm er fellt af aðeins laust. Ermin mælist ca 48-48-46-46-45-43 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistylakesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.