Katleen skrifaði:
Kan Drops Melody of twee draden brushed alpaca Silk ook gebruikt worden voor deze trui ? Met 4 draden brei ik niet graag.
25.02.2025 - 00:39DROPS Design svaraði:
Dag Katleen,
Je kunt een garen uit garengroep D kiezen, dus DROPS Melody is daar inderdaad geschikt voor. Brushed Alpaca Silk valt in garen garencategorie C en is iets de dun hiervoor.
02.03.2025 - 10:45
Laila Møller skrifaði:
Glem mit spørgsmål har læst opskriften igen og det er mig der ikke læste rigtigt. Nu er jeg med. Men tak for svar
21.02.2025 - 15:31
Christin skrifaði:
Finde die Anleitung sehr gut und mit dem Diagramm gelingt der Pullover.
15.02.2025 - 11:10
Laila Møller skrifaði:
Hvorfor er der forskel på hvor langt man skal strikke efter maske udtagning ved armegæbet?
15.02.2025 - 01:04DROPS Design svaraði:
Hej Laila, hvor er du i opskriften og hvilken størrelse strikker du?
18.02.2025 - 11:04
Easy Going#easygoingsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð oversize / stór peysa úr 4 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, stuttum ermum og rúllukanti. Stærð XS - XXL.
DROPS 258-12 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónað sléttprjón jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmáli. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukning fyrir hálsmáli hefur verið gerð til loka. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Prjónaðar eru upp lykkjur fyrir ermi í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru prjónaðar upp lykkjur í kringum hálsmáli og prjónaður er kantur í hálsmáli. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 22-22-24-24-26-26 lykkjur á hringprjón 8 með 4 þráðum DROPS Kid-Silk (2 þræðir í litnum vanilla, 1 þráður í litnum natur og 1 þráður í litnum marsipan. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur brugðið. EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 þar til það eru = 56-60-62-66-68-72 lykkjur í umferð, prjónaðar hafa verið 17-19-19-21-21-23 umferðir og síðasta umferð var prjónuð frá réttu. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan í sléttprjóni - munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu – þar til stykkið mælist 13-14-13-11-12-12 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-4-5-5-6 sinnum = 60-64-70-75-78-84 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 16-17-18-18-19-20 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur inn að öxl þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 18-20-20-22-22-24 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 7-8-9-10-11-12 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3 sinnum (= 6 umferðir prjónaðar) = 21-23-23-25-25-27 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 18-20-20-22-22-24 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 7-8-9-10-11-12 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3 sinnum (= 6 umferðir prjónaðar) = 21-23-23-25-25-27 lykkjur (næsta umferð er prjónuð frá réttu). Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 21-23-23-25-25-27 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 14-14-16-16-18-18 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 21-23-23-25-25-27 lykkjur frá vinstra framstykki = 56-60-62-66-68-72 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 19-20-19-19-20-20 cm. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-4-5-5-6 sinnum (= 4-4-8-10-10-12 umferðir prjónaðar) = 60-64-70-76-78-84 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 22-23-24-26-27-28 cm, endið með umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 60-64-70-76-78-84 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 2-2-4-4-8-8 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 60-64-70-76-78-84 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 2-2-4-4-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) = 124-132-148-160-172-184 lykkjur í umferð. Nú er umferðin prjónuð í hring. Prjónið þar til stykkið mælist ca 33-35-36-37-38-39 cm frá handvegi. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 3 umferðir sléttprjón. Notið prjón 8 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum þannig að kanturinn rúllist upp. Peysan mælist ca 55-58-60-62-64-66 cm, mælt frá innst að hálsmáli. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = fyrir miðju ofan á öxl (ATH! Miðja ofan á öxl er ekki sami staður og þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki heldur ca 6 til 8 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 5,5 og byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 44-46-50-54-60-64 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 8. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin fái betra form og passi betur, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 5-5-6-6-7-8 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 5-5-6-6-7-8 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 4-4-3-3-3-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 4-4-3-3-3-3 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 8-8-12-12-14-16 sinnum (= 4-4-6-6-7-8 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferð er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð endar umferðin með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (miðja undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1-1-1-1-1-1 cm mælt fyrir miðju undir ermi er fækkað um 2 lykkjur 0-0-1-1-2-2 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 8-8-6-6-4-4 cm alls 3-3-3-3-3-3 sinnum = 38-40-42-46-50-54 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 27 cm frá miðju ofan á öxl í öllum stærðum. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 3 umferðir sléttprjón. Notið prjón 8 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum svo kanturinn rúllist upp. Ermin mælist ca 30 cm frá miðju ofan á öxl í öllum stærðum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 5,5 og 4 þræði DROPS Kid-Silk. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp 74-76-80-82-88-90 lykkjur innan við 1 lykkju, prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjufjöldinn getur verið jafnaður til – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið sléttprjón hringinn þar til hálsmálið mælist 3-3-3-4-4-4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Prjónið 3 umferðir sléttprjón. Notið prjón 8 og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum svo kanturinn rúllist upp. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #easygoingsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 258-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.