Hanne Petterson skrifaði:
Forstår ikke opskriften fra antal masker 192 i str. L. Hele afsnittet med videre strikkes der og tages ud således. Antallet af udtagninger kan jeg ikke få til at passe med beskrivelsen. Hvordan får jeg 18 udtagninger på ærmerne nå der står jeg ikke skal tage ud på ærmerne. Mvh Hanne
22.02.2025 - 18:20DROPS Design svaraði:
Hei Hanne. Det er kun forklaringen under på 3. OMGANG du ikke skal øke til ermene, men du øker til ermene når du strikker etter 1. OMGANG. Når du har 192 masker på pinnen strikkes det 4 omganger der det på 1. omgang økes 8 steder (som før), på 2. omgang strikkes det kun rett, på 3. omgang økes det kun på for -og bakstykket (4 steder, det økes ikke på ermene) og på 4. omgang strikkes det kun rett. Disse 4 omgangene strikkes 18 ganger = 72 omganger Da vil du øke alle steder 36 ganger, men kun 18 ganger på ermene. mvh DROPS Design
03.03.2025 - 09:49
Lotte skrifaði:
Er staat alpaca parelgrijs maar die kleur zie ik niet terug. Bedoelen ze lichtgrijs?
07.02.2025 - 16:35
Misty Lake#mistylakesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Nord eða DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 257-24 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. LASKALÍNA: Einungis er aukið út í umferðum sem prjónaðar eru frá röngu! Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð (= umferð sem er prjónuð slétt) er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í garðaprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í garðaprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð í umferð sem prjónuð er slétt! Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 1 lykkju slétt (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 120-120-128-136-136-144 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Nord eða DROPS Alpaca. Prjónið 1 umferð brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju brugðið. Prjónið stroff hringinn í 2 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 44-44-46-48-48-50 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 3,5. Nú eru settir 4 merkiþræðir í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja brugðið og þessar 2 lykkjur eru nú kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í garðaprjóni. Setjið 1. merkiþráð við byrjun umferðar, teljið 28 lykkjur (= ermi), Setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 32-32-36-40-40-44 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 28 lykkjur (= ermi), Setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, það eru eftir 32-32-36-40-40-44 lykkjur á eftir síðasta merkiþræði (= bakstykki). Prjónið GARÐAPRJÓN og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan – þannig: UMFERÐ 1: Prjónið brugðið og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). (ATH! Byrjun umferðar situr mitt á milli 2 laskalykkja, þess vegna er fyrsta lykkjan aukin út á eftir 1 lykkju og síðasta lykkjan þegar eftir er 1 lykkja). UMFERÐ 2: Prjónið slétt – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2-2-8-10-6-4 sinnum (= 4-4-16-20-12-8 prjónaðar umferðir) = 136-136-192-216-184-176 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið brugðið og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við hvern merkiþráð (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið slétt. UMFERÐ 3: Prjónið brugðið og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merkiþræði og á undan 3. og 1. merkiþræði – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið slétt. Prjónið UMFERÐ 2 til 4 alls 19-20-18-18-21-23 sinnum (= 76-80-72-72-84-92 prjónaðar umferðir = 19-20-18-18-21-23 sinnum útaukning á ermum og 38-40-36-36-42-46 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 364-376-408-432-436-452 lykkjur í umferð. Þegar öll útaukning fyrir laskalínu er lokið, hefur verið aukið út 40-42-44-46-48-50 sinnum á framstykki/bakstykki og 21-22-26-28-27-27 sinnum á ermum. Prjónið síðan garðaprjón án þess að auka út, þar til stykkið mælist ca 17-18-20-21-23-25 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 70-72-80-84-82-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-10-12-16-26-30 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 112-116-124-132-136-144 lykkjur í garðaprjóni (= framstykki), setjið næstu 70-72-80-84-82-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-10-12-16-26-30 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 112-116-124-132-136-144 lykkjur í garðaprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 236-252-272-296-324-348 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= fyrir miðju í 6-10-12-16-26-30 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 64-76-80-84-96-100 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 300-328-352-380-420-448 lykkjur. Þegar stroffið mælist 1 cm er fellt af aðeins laust. Peysan mælist 46-48-50-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 70-72-80-84-82-82 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-10-12-16-26-30 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 76-82-92-100-108-112 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-10-12-16-26-30 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið garðaprjón umferðina hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 6-4½-3-2½-2-2 cm alls 8-10-14-16-19-20 sinnum = 60-62-64-68-70-72 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 47-47-45-45-44-42 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 16-18-20-20-22-20 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 76-80-84-88-92-92 lykkjur. Þegar stroffið mælist 1 cm er fellt af aðeins laust. Ermin mælist ca 48-48-46-46-45-43 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistylakesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 257-24
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.