Snow Ring#snowringsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki, röndum og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-36 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. RENDUR: Rendurnar eru prjónaðar með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk þannig: Prjónið 2-2-2-2-2-2 cm í litnum natur. Prjónið 6-6-6-7-7-7 cm í litnum perlugrár. Endurtakið rendurnar með þessum hætti fram að stroffi, síðan er stykkið prjónað til loka með 1 þræði Air í litnum perlugrár og 1 þræði Brushed Alpaca Silk í litnum perlugrár að loka máli. LEIÐBEININGAR RENDUR (á við þegar prjónað er í hring): Til að ná fram fallegri litaskiptingu í byrjun og lok umferðar þegar rendur er prjónaðar, er hægt að prjóna þannig: Skiptið yfir í nýjan lit og prjónið 1 umferð. Fyrsta lykkja í 2. umferð er prjónuð þannig: Lyftið fyrstu lykkju frá fyrri umferð upp á prjóninn, prjónið þessa lykkju slétt saman með fyrstu lykkju. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. I-CORD: FYRSTU 2 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. SÍÐUSTU 2 LYKKJUR: Prjónið í hverri umferð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 4 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við, í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Fram- og bakstykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið og síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka hvort fyrir sig fram og til baka. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 66-70-72-76-78-82 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði DROPS Air í litnum perlugrár og 1 þræði í DROPS Brushed Alpaca silk í litnum perlugrár (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 5 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 11 cm. Síðar á að brjóta uppá kantinn inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 5 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 22-23-24-25-26-27 lykkjur í umferð (= ca fyrir miðju að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 8 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem fækkað er um 0-1-0-1-0-1 lykkjur = 66-69-72-75-78-81 lykkjur. Prjónið síðan í sléttprjóni. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Þegar berustykkið mælist 2-2-2-2-2-2 cm frá merki, er aukið út með því að prjóna MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan. Prjónið A.1 alls 22-23-24-25-26-27 sinnum berustykkið hringinn = 88-92-96-100-104-108 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni þar til berustykkið mælist 6-6-6-7-7-7 cm frá merki. Prjónið síðan í RENDUR, lesið útskýringu að ofan, jafnframt er prjónað A.2 alls 22-23-24-25-26-27 sinnum berustykkið hringinn = 110-115-120-125-130-135 lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR RENDUR í útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni og prjónið rendur þar til berustykkið mælist 10-10-10-11-12-12 cm frá merki. Prjónið A.3 alls 22-23-24-25-26-27 sinnum berustykkið hringinn = 132-138-144-150-156-162 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjónið og prjónið rendur þar til berustykkið mælist 14-14-15-16-17-18 cm frá merki. Prjónið A.4 alls 22-23-24-25-26-27 sinnum berustykkið hringinn = 154-161-168-175-182-189 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og prjónið rendur þar til berustykkið mælist 18-18-20-21-23-24 cm frá merki. Prjónið A.5 alls 22-23-24-25-26-27 sinnum berustykkið hringinn = 176-184-192-200-208-216 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og prjónið rendur, þegar berustykkið mælist 20-21-23-24-26-28 cm frá merki fyrir miðju að framan skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 34-36-38-38-38-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 54-56-58-62-66-70 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 34-36-38-38-38-38 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 54-56-58-62-66-70 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 116-124-132-144-156-168 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki, mitt í 4-6-8-10-12-14 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi og látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, merkiþræðirnir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið fram að fyrsta merkiþræðinum, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og prjónið rendur þar til stykkið mælist 42-44-46-47-49-51 cm frá merki fyrir miðju að framan – síðasta umferðin er prjónuð þannig: Byrjið 2 lykkjum á undan byrjun umferðar (= í hlið á fram- og bakstykki), setjið næstu 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið næstu 2 lykkjur, setjið merkiþráðinn á prjóninn, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni, prjónið fram að 2 lykkjum á undan seinni merkiþræði, setjið næstu 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið næstu 2 lykkjur, setjið merkiþráðinn á prjóninn, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni, prjónið út umferðina eins og áður. Nú skiptist stykkið fyrir klauf í hvorri hlið á fram- og bakstykki, skiptið stykkinu við merkiþræðina með því að bíða með lykkjur frá bakstykki og prjónið lykkjur af framstykki fram og til baka eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI: = 58-62-66-72-78-84. Í næstu umferð (= rétta) byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 35-35-39-41-45-49 lykkjur jafnt yfir í umferð = 93-97-105-113-123-133 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 2 lykkjur I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukning) þar til 5 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 lykkjur í i-cord. Þegar stroffið mælist 7-7-7-8-8-8 cm fellið af aðeins laust. Peysan mælist 49-51-53-55-57-59 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. BAKSTYKKI: Prjónið á sama hátt og framstykki. ERMAR: Setjið 34-36-38-38-38-38 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 8 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-8-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 38-42-44-48-51-52 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 4-6-8-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn og haldið áfram með rendur eins og áður umferðina hringinn - JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3-3-3-2-4-3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkað er um 2 lykkjur í hverjum 10-6-4-4-3-3 cm alls 4-6-8-8-9-9 sinnum = 30-30-30-32-32-34 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 37-36-35-33-32-30 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið stroff (= 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 18-18-18-18-18-20 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 48-48-48-50-50-54 lykkjur. Þegar stroffið mælist 7-7-7-8-8-8 fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-43-42-41-40-38 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowringsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 35 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-36
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.