Monique skrifaði:
Brei dit Patroon nu, samen met de Winter Pearl Trui. Leuk Patroon, erg simpel. Brei het met Marine Blauw Drops Alpaca en Kid Silk, wat prima lukt! Bedankt Drops Design voor dit leuke breipatroon en de niet zo dure Drops wol. Ziet er nu al leuk uit, ben pas halverwege.
24.10.2024 - 05:34
Nogueira Beatrice skrifaði:
Bonjour comment adapter ce modèle avec des aiguilles droites ? Merci.
22.10.2024 - 19:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Nogueira, cette leçon pourra vous aider à adapter les explications sur aiguilles droites. Bon tricot!
23.10.2024 - 08:09
Stormy Ocean#stormyoceansweater |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð stór / oversize peysa úr DROPS Soft Tweed og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum, ísaumuðum ermum, skáhallandi öxl og rúllukanti. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-18 |
||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (jafnt yfir) : Til þess að reikna út hvernig fækka eigi lykkjum jafnt í umferð, teljið fjölda lykkja í umferð sem á að fækka í / heildartölu lykkjufjölda í umferð (t.d. 22 lykkjur), deilið þessum lykkjufjölda með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 5) = 4,4. Í þessu dæmi þá er lykkjum fækkað jafnt yfir með því að prjóna 3. og 4. hverja lykkju slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur fyrir miðju á þessum 4 lykkjum), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki komi gat. Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig, fram og til baka. Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring. Stykkin eru saumuð saman. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 244-244-268-284-324-332 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Soft Tweed og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið stroff og MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir fyrstu 8-8-12-20-20-24 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 16-16-20-20-20-20 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1, A.2, A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 16-16-20-20-20-20 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 8-8-12-20-20-24 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 16-16-20-20-20-20 lykkjur, 2 lykkjur slétt, prjónið A.1, A.2, A.1, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) yfir næstu 16-16-20-20-20-20 lykkjur, 2 lykkjur slétt, A.1. Prjónið svona þar til stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm. Prjónið síðan MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 5, prjónið 10-10-14-22-22-26 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 2-0-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (= 8-10-12-20-22-26 lykkjur sléttprjón í hliðum á fram- og bakstykki), prjónið A.3 yfir A.1, prjónið 18-18-22-22-22-22 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 3-1-3-2-5-2 lykkjur jafnt yfir (= 15-17-19-20-17-20 lykkjur sléttprjón), prjónið A.3 yfir A.1, prjónið A.4 yfir næstu 36-36-36-36-48-48 lykkjur (= yfir A.2), prjónið A.5 yfir A.1, prjónið 18-18-22-22-22-22 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 3-1-3-2-5-2 lykkjur jafnt yfir (= 15-17-19-20-17-20 lykkjur sléttprjón), prjónið A.5 yfir A.1, prjónið 10-10-14-22-22-26 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 2-0-2-2-0-0 lykkjur jafnt yfir (= 8-10-12-20-22-26 lykkjur sléttprjón í hlið á fram- og bakstykki), prjónið A.3 yfir A.1, prjónið 18-18-22-22-22-22 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 3-1-3-2-5-2 lykkjur jafnt yfir (= 15-17-19-20-17-20 lykkjur sléttprjón), prjónið A.3 yfir A.1, prjónið A.4 yfir næstu 36-36-36-36-48-48 lykkjur (= yfir A.2), prjónið A.5 yfir A.1, prjónið 18-18-22-22-22-22 lykkjur sléttprjón og fækkið jafnframt um 3-1-3-2-5-2 lykkjur jafnt yfir (= 15-17-19-20-17-20 lykkjur sléttprjón), prjónið A.5 yfir A.1 = 228-240-252-272-304-324 lykkjur. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm – endið eftir umferð á sléttri tölu í mynsturteikningu (þetta er gert til að koma í veg fyrir að snúningur í kaðli sé frá röngu þegar stykkið er prjónað fram og til baka). Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. SKIPTING Á STYKKI FYRIR HANDVEG: Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og umferðin er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 8-10-12-20-22-26 lykkjur í umferð fyrir handveg, prjónið 106-110-114-116-130-136 lykkjur eins og áður (= framstykki), fellið af næstu 8-10-12-20-22-26 lykkjur fyrir handveg, prjónið 106-110-114-116-130-136 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Nú er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka, hvort fyrir sig. BAKSTYKKI: = 106-110-114-116-130-136 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka, en ysta lykkjan í hvorri hlið er prjónuð í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, setjið lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl og fellið af fyrir hálsmáli eins og útskýrt er að neðan. SKÁHALLANDI ÖXL: Setjið ystu 3-3-3-4-4-4 lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl (til að sleppa við að þurfa að klippa þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráð). Setjið 3-3-3-4-4-4 lykkjur á þráð alls 4 sinnum í hvorri hlið (= 12-12-12-16-16-16 lykkjur á þráð í hvorri hlið). HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar eftir er 1 umferð áður en stykkið mælist 57-59-61-63-65-67 cm, fækkið um 6-6-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.4. Í næstu umferð eru felldar af miðju 26-26-26-26-30-30 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Haldið áfram að setja lykkjur á þráð fyrir skáhallandi öxl og fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli. Þegar allar lykkjur hafa verið settar á þráð fyrir skáhallandi öxl og fellt hefur verið af fyrir hálsmáli eru 23-25-27-24-28-31 lykkjur eftir í umferð fyrir öxl og stykkið mælist ca 59-61-63-65-67-69 cm mælt frá hæsta punkti inn að hálsmáli. Setjið til baka 12-12-12-16-16-16 lykkjur af þræði á prjóninn saman við 23-25-27-24-28-31 lykkjur í umferð = 35-37-39-40-44-47 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-3-3-4-4 lykkjur jafnt yfir hvern kaðal (= 6-6-6-6-8-8 lykkjur færri) = 29-31-33-34-36-39 lykkjur – ATH: Til að koma í veg fyrir að það myndist gat í skiptingunni þar sem lykkjur voru settar á þráð, takið upp þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið snúið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm mælt frá hæsta punkti inn að hálsmáli. Prjónið hina öxlina á sama hátt (klippið þráðinn og byrjið frá réttu þegar allar axlalykkjurnar hafa verið settar til baka á prjóninn). FRAMSTYKKI: = 106-110-114-116-130-136 lykkjur. Haldið áfram með mynstur fram og til baka eins og áður, en ysta lykkjan í hvorri hlið er prjónuð í garðaprjón. Þegar eftir er 1 umferð áður en stykkið mælist 54-56-57-58-59-60 cm, fækkið um 6-6-6-6-8-8 lykkjur jafnt yfir lykkjur í A.4 = 100-104-108-110-122-128 lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 18-18-18-16-16-16 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Síðan eru lykkjur felldar af fyrir hálsmáli og lykkjur settar á þráð fyrir skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. HÁLSMÁL: Fellið af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 2 lykkjur 2-2-2-2-3-3 sinnum og 1 lykkja 2-2-2-3-3-3 sinnum. SKÁHALLANDI ÖXL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm, setjið ystu 3-3-3-4-4-4 lykkjur við handveg á þráð fyrir skáhallandi öxl (til að koma í veg fyrir að þurfa að klippa þráðinn sem prjónað er með, prjónið lykkjurnar áður en þær eru settar á þráð). Setjið 3-3-3-4-4-4 lykkjur á þráð alls 4 sinnum í hvorri hlið (= 12-12-12-16-16-16 lykkjur á þræði í hvorri hlið). Þegar allar lykkjur hafa verið felldar af fyrir hálsmáli og settar á þráð fyrir skáhallandi öxl eru 23-25-27-24-28-31 lykkjur eftir í umferð fyrir öxl og stykkið mælist ca 59-61-63-65-67-69 cm mælt frá hæsta punkti inn að hálsmáli. Setjið til baka 12-12-12-16-16-16 lykkjur af axla-þræði á prjóninn saman með 23-25-27-24-28-31 lykkjum af prjóni = 35-37-39-40-44-47 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 3-3-3-3-4-4 lykkjur jafnt yfir hvern kaðal (= 6-6-6-6-8-8 lykkjur færri) = 29-31-33-34-36-39 lykkjur – ATH: Til að koma í veg fyrir að það myndist gat í skiptingunni þar sem lykkjur voru settar á þráð, takið upp þráðinn á milli 2 lykkja og prjónið snúið saman með fyrstu lykkju á vinstri prjóni. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu og fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Stykkið mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm mælt frá hæsta punkti inn að hálsmáli. Prjónið hina öxlina á sama hátt (klippið þráðinn og byrjið frá réttu þegar allar axlalykkjurnar hafa verið settar til baka á prjóninn). ERMAR: Ermin er prjónuð í hring, síðan er ermakúpan prjónuð fram og til baka. Fitjið upp 56-56-60-60-64-64 lykkjur á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 6-6-6-7-7-7 cm. Í næstu umferð er skipt yfir á sokkaprjóna 5 og prjónuð 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 10-8-10-8-12-10 lykkjur jafnt yfir í umferð – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 46-48-50-52-52-54 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (= miðja undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, merkiþráðurinn er notaður þegar auka á út fyrir miðju undir ermi. Prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 8-8-8-9-9-11 cm frá uppfitjunarkanti, aukið út lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út þannig: Aukið út 2 lykkjur í hverjum 3½-3-3-2½-2-1½ cm alls 11-12-12-13-15-16 sinnum = 68-72-74-78-82-86 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón þar til ermin mælist 46-45-44-42-40-38 cm. Nú er ermakúpan prjónuð með því að prjóna sléttprjón fram og til baka frá miðju undir ermi, þannig að það myndist smá klauf mitt undir ermi. Prjónið þar til klaufin mælist 2-3-4-6-7-8 cm og ermin mælist alls 48-48-48-48-47-46 cm. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar við handveg innan við 1 lykkju í garðaprjóni – ATH – það er klauf undir ermum sem á að sauma við botninn á handvegi – sjá teikningu. KANTUR HÁLSMÁL: Notið hringprjón 3,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir) og prjónið upp lykkjur í kringum hálsmál frá réttu þannig: Byrjið við annan axlasauminn og prjónið upp ca 84-84-88-88-100-100 lykkjur (ásamt lykkjum frá þræði að framan) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) hringinn í 6-6-7-7-8-8 cm. Prjónið 3 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Skiptið yfir á hringprjón 5 og fellið af aðeins laust með garðaprjóni. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #stormyoceansweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.