Lissi skrifaði:
Ingen
28.01.2025 - 11:06
Suzy Lunders skrifaði:
Hallo, Hoe kan ik de rugpand iets hoger maken aan de halskant? Mvg Suzy
09.01.2025 - 21:09DROPS Design svaraði:
Dag Suzy,
Dit zou je kunnen doen door een paar verkorte toeren te maken aan de achterkant.
11.01.2025 - 11:53
Suzy Lunders skrifaði:
Hallo, Graag had ik geweten hoe ik de hals aan de rugzijde wat hoger kan maken. Ik heb er al 1 gemaakt topdown en de hals aan de achterzijde is veel te laag! Alvast bedankt! Mvg Suzy
09.01.2025 - 08:52DROPS Design svaraði:
Dag Suzy,
Helaas is niet bij elk patroon een verhoogde hals gemaakt, dus dan is inderdaad de hals aan de voor- en achterkant gelijk qua hoogte. Een verhoogde hals kun je met verkorte toeren maken, alleen zit je dan in dit patroon met de kabeltjes in de raglanlijn, die dat doorkruisen.
11.01.2025 - 14:03
Marit R skrifaði:
Skal stolpen strikkes med I-CORD bare i halskanten eller hele veien ned?
04.11.2024 - 18:09DROPS Design svaraði:
Hej Marit, du strikker hele vejen ned. Se forklaring STOLPE MED I-CORD :)
05.11.2024 - 08:19
Nansy Hanssen skrifaði:
Skal ikke knapphullet strikkes fra vrangen først ?
20.10.2024 - 13:03DROPS Design svaraði:
Hei Nansy, Knapphullene skal felles fra retten (se Knapphull forklaring på toppen av oppskriften). God fornøyelse!
21.10.2024 - 07:23
Mariette skrifaði:
Ik trek de vraag in
11.10.2024 - 23:11
Mariette skrifaði:
In het patroon staat : het knoopsgat op het rechter voorpand aan de goede kant. Dan begin je toch met het knoopsgat en niet aan het einde van de naald?
11.10.2024 - 23:08
Evy Beha skrifaði:
Kan jeg erstatte garnet med Drops Safran jeansblå
10.10.2024 - 09:34DROPS Design svaraði:
Hei Evy, Det kan du. Drops Safran hører til garngruppe A så kan brukes til samme oppskriften som Drops Alpaca og Drops Kid Silk (du må fremdeles bruke 2 tråder). God fornøyelse!
10.10.2024 - 10:11
Cinnamon Crush Cardigan#cinnamoncrushcardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum, i-cord og rúllukanti Stærð S - XXXL.
DROPS 255-8 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8-8-7-7½-8-8 cm á milli hverra hnappagata. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við og fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 109-109-118-118-130-130 lykkjur á hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið þannig: Frá réttu: Prjónið 7 KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN með I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið slétt þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 7 kantlykkjur að framan með I-CORD. Frá röngu: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið brugðið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, 7 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið þessar 2 umferðir 1 sinni til viðbótar = 4 umferðir prjónaðar. Prjónið síðan þannig: Frá réttu: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt, 7 kantlykkjur að framan. Frá röngu: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt, 7 kantlykkjur að framan. Prjónið þessar 2 umferðir 1 sinni til viðbótar = 4 umferðir prjónaðar. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, 11-11-14-14-17-17 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 17 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 23-23-26-26-32-32 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 17 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 11-11-14-14-17-17 lykkjur slétt, endið með 7 kantlykkjur að framan. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Setjið eitt merki innan við kant að framan í aðra hliðina á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. Prjónið alls 4 umferðir með þessum hætti (= lykkjur sem prjónaðar eru slétt frá réttu, eru prjónaðar brugðið frá röngu og lykkjur sem prjónaðar eru brugðið frá réttu eru prjónaðar slétt frá röngu). Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu! Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, 6-6-9-9-12-12 lykkjur slétt, A.1, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 7 lykkjur slétt, A.1, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 13-13-16-16-22-22 lykkjur slétt, A.1, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 7 lykkjur slétt, A.1, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 6-6-9-9-12-12 lykkjur slétt, endið með 7 kantlykkjur að framan. Þegar þessi umferð hefur verið prjónuð hafa verið auknar út 3 lykkjur í hverjum kaðli (alls 24 lykkjur fleiri í umferð) = 133-133-142-142-154-154 lykkjur. Prjónið 5 umferðir með kant að framan eins og áður án þess að gera snúning í köðlum (= lykkjur sem eru prjónaðar slétt frá réttu, eru prjónaðar brugðið frá röngu, lykkjur sem prjónaðar eru brugðið frá réttu eru prjónaðar slétt frá röngu, uppsláttur í A.1 og A.2 er prjónaður snúinn brugðið). Næsta umferð er prjónuð þannig: Frá réttu: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, 9-9-12-12-15-15 lykkjur slétt, A.1, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 13 lykkjur slétt, A.1, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 19-19-22-22-28-28 lykkjur slétt, A.1, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 13 lykkjur slétt, A.1, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 9-9-12-12-15-15 lykkjur slétt, endið með 7 kantlykkjur að framan. Þegar þessi umferð hefur verið prjónuð hafa verið auknar út 3 lykkjur í hverjum kaðli (alls 24 lykkjur fleiri í umferð) = 157-157-166-166-178-178 lykkjur. Fellið af fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan. Prjónið 5 umferðir með kant að framan eins og áður án þess að gera snúning í köðlum (= lykkjur sem eru prjónaðar slétt frá réttu, eru prjónaðar brugðið frá röngu, lykkjur sem prjónaðar eru brugðið frá réttu eru prjónaðar slétt frá röngu). Haldið áfram með mynstur og útaukningu með þessum hætti þar til snúningur í köðlum hefur verið gerður alls 6-6-7-8-8-8 sinnum, það eru 253-253-286-310-322-322 lykkjur í umferð. Síðan er haldið áfram með kaðla og útaukningu á framstykkjum og bakstykki, en útaukning á ermum er nú lokið, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur (1 lykkja brugðið + 2 lykkjur slétt + 1 lykkja brugðið í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma heldur áfram eins og áður). Haldið áfram með útaukningu þar til snúningur í köðlum hefur verið gerður alls 10-11-11-13-13-14 sinnum á fram- og bakstykki (og 6-6-7-8-8-8 sinnum á ermum), nú eru 301-313-334-370-382-394 lykkjur í umferð. Prjónið 3 umferðir með mynstur eins og áður (án þess að gera snúning í köðlum, kantar að framan halda áfram eins og áður). Stykkið mælist ca 25-28-28-33-33-35 cm, mælt frá merki eftir kant í hálsmáli. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 50-53-56-62-65-68 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 57-57-63-69-69-69 lykkjur á þráð fyrir ermar, fitjið upp 4-6-8-8-10-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 87-93-96-108-114-120 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 57-57-63-69-69-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-8-10-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 50-53-56-62-65-68 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt frá! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 195-211-224-248-264-288 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm frá merki mitt að framan, í síðustu umferð frá röngu er aukið út um 1-0-2-2-1-1 lykkjur jafnt yfir. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið síðan þannig: Frá réttu: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt, 7 kantlykkjur að framan. Frá röngu: Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt, 7 kantlykkjur að framan. Prjónið þessar 2 umferðir 1 sinni til viðbótar = 4 umferðir prjónaðar. Prjónið 4 umferðir sléttprjón með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið. Fellið af. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 57-57-63-69-69-69 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-8-8-10-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 61-63-71-77-79-85 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 4-6-8-8-10-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 5-5-3½-2 ½-2½-2 cm alls 7-7-10-12-12-14 sinnum = 47-49-51-53-55-57 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-38-38-34-33-32 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið 4 umferðir í stroffprjóni (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju í umferð = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Síðan eru prjónaðar 4 umferðir slétt. Fellið af. Ermin mælist alls 42-40-40-36-35-34 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cinnamoncrushcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.