DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Alpaca yarn
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 1078.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11550.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Cinnamon Crush

Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og rúllukanti Stærð S - XXXL.

Velja stærð:
DROPS 255-7

#cinnamoncrushsweater

DROPS Design: Mynstur z-1032
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-250-300-300-350-400 gr litur 9031, mandla
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-125-125-150-150 gr litur 42, mandla

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund með prjóna nr 4,5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 1078.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11550.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður.
Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 96-96-102-102-114-114 lykkjur á hringprjón 3,5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan.
Prjónið 4 umferðir sléttprjón (= rúllukantur), síðan er stroff prjónað þannig:
1 lykkja slétt, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju slétt.
Prjónið 4 umferðir í stroffprjóni eins og útskýrt er að ofan.

BERUSTYKKI:
Setjið 1 merki eftir fyrstu 35-35-36-36-39-39 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki.

Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið þannig:
Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið, 17 lykkjur slétt (= ermi), 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 23-23-26-26-32-32 lykkjur slétt (= framstykki), 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 17 lykkjur slétt (= ermi), 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 23-23-26-26-32-32 lykkjur slétt (= bakstykki), 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt.

Prjónið svona alls 4 umferðir.

Prjónið síðan þannig:
Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 7 lykkjur slétt, A.1, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 13-13-16-16-22-22 lykkjur slétt, A.1, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 7 lykkjur slétt, A.1, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 13-13-16-16-22-22 lykkjur slétt, A.1, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt.

Þegar þessi umferð hefur verið prjónuð hafa verið auknar út 3 lykkjur í hverjum kaðli (alls 24 lykkjur fleiri í umferð) = 120-120-126-126-138-138 lykkjur.

Prjónið 5 umferðir með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, uppslátturinn í A.1 og A.2 er prjónaður snúinn slétt. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.

Prjónið síðan þannig:
Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 13 lykkjur slétt, A.1, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 19-19-22-22-28-28 lykkjur slétt, A.1, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 13 lykkjur slétt, A.1, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, A.2, 19-19-22-22-28-28 lykkjur slétt, A.1, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt.

Þegar þessi umferð hefur verið prjónuð hafa verið auknar út 3 lykkjur í hverjum kaðli (alls 24 lykkjur fleiri í umferð) = 144-144-150-150-162-162 lykkjur.

Prjónið 5 umferðir með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, uppslátturinn í A.1 og A.2 er prjónaður snúinn slétt.

Haldið áfram með mynstur og útaukningu svona þar til snúningur í köðlum hefur verið gerður alls 6-6-7-8-8-8 sinnum, það eru 240-240-270-294-306-306 lykkjur í umferð.
Haldið síðan áfram með kaðla og útaukningu á framstykki og bakstykki, en útaukning á ermum er nú lokið, prjónið sléttprjón yfir þessar lykkjur (1 lykkja brugðið + 2 lykkjur slétt + 1 lykkja brugðið í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermar heldur áfram eins og áður).

Haldið áfram með útaukningu þar til snúningur í köðlum hefur verið gerður alls 10-11-11-13-13-14 sinnum á fram- og bakstykki (og 6-6-7-8-8-8 sinnum á ermum), nú eru 288-300-318- 354-366-378 lykkjur í umferð. Prjónið 3 umferðir með mynstur eins og áður, án þess að gera snúning í köðlum. Stykkið mælist ca 25-28-28-33-33-35 cm, mælt frá merki eftir kant í hálsmáli.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Setjið fyrstu 57-57-63-69-69-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-8-10-16 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 87-93-96-108-114-120 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 57-57-63-69-69-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-8-8-10-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 87-93-96-108-114-120 lykkjur sléttprjón (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig og byrjun umferðar er í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og ermi.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 182-198-208-232-248-272 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm frá merki mitt að framan.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT í fyrstu umferð er aukið út um 1-0-2-2-1-1 lykkjur jafnt yfir = 183-198-210-234-249-273 lykkjur. Prjónið 4 umferðir í stroffprjóni, síðan eru prjónaðar 4 umferðir slétt (= rúllukantur). Fellið af með hringprjón 4,5.
Peysan mælist 48-50-52-54-56-58 cm frá merki mitt að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl.

ERMAR:
Setjið 57-57-63-69-69-69 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-8-8-10-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 61-63-71-77-79-85 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð mitt í 4-6-8-8-10-16 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn.
Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 5-5-3½-2 ½-2½-2 cm alls 7-7-10-12-12-14 sinnum = 47-49-51-53-55-57 lykkjur.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-38-38-34-33-32 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5.
Prjónið 4 umferðir í stroffprjóni (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið), í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju í umferð = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Síðan eru prjónaðar 4 umferðir slétt. Fellið af. Ermin mælist alls 42-40-40-36-35-34 cm frá skiptingunni.

Mynstur

setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
Diagram for DROPS 255-7

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (26)

country flag Giovanna skrifaði:

Hola no encuentro en el patrón donde se explique la parte del canesú haciendo las trenzas y no me cuadran los puntos.

11.03.2025 - 02:09

DROPS Design svaraði:

Hola Giovanna, las trenzas se trabajan según los diagramas A.1 y A.2. En el canesú, después de cambiar a una aguja de 4.5mm y trabajar 4 vueltas, comenzarás a trabajar las trenzas. Trabajarás las trenzas con aumentos según los diagramas. Después trabajarás 5 vueltas con derecho sobre derecho y revés sobre revés, donde las hebras se trabajan de derecho retorcido para que no queden agujeros (no trabajar el diagrama en estas 5 vueltas). Ahora trabajar las trenzas con los diagramas de nuevo. Vas alternando entre 5 vueltas rectas y 1 vuelta con las trenzas en las que se aumentan 24 puntos hasta trabajar la vuelta con trenzas 6-6-7-8-8-8 veces en total.

16.03.2025 - 23:31

country flag Wiebke skrifaði:

Hey, bei dem Modell cinnomon crush hänge ich fest: Diese Zunahme habe ich gestrickt: 1Mre,1 Mli, A2, 13 Maschen, A1 etc. Laut Anleitung soll das so weitergehen, aber durch die Zunahmen kann die Maschenanzahl zwischen den Muster A1 und A2 nicht stimmen/ gleichbleiben, bzw das wiederkehrende Muster 1M li, 2Mre , 1M li trifft sich nicht wieder. Bitte um Antwort, danke und Gruß, Wiebke

12.02.2025 - 17:20

DROPS Design svaraði:

Liebe Wiebke, die nächsten Zöpfen werden wie zuvor gestrickt, dh : 1 re, 1 li, *A.2, rechts bis 5 M vor der nächsten linken Maschen übrig sind, A.1, 1 li, 1 re, 1 li*, von * bis* wiederholen, es sind so immer mehr Maschen zwischen den Zöpfe und A.1/A.2 sind beidseitig von (1 li, 1 re, 1 li) gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!

13.02.2025 - 09:30

country flag Monique Lestang skrifaði:

Je ne comprends pas a quel endroit on dois commencer pour faire la deuxieme torsade du début du nouveau rang et les suivantes. Merci pour vos explications

08.02.2025 - 20:41

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Lestang, les torsades doivent être tricotées de part et d'autre des 3 mailles des raglans, autrement dit, avant et/ou après (1 m end, 1 m env, 1 m end). Bon tricot!

10.02.2025 - 12:18

country flag Lia skrifaði:

Knit 1, purl 1, A.2, knit 7, A.1, purl 1, knit 2, purl 1, A.2, knit 13-13-16-16-22-22, A.1, purl 1, knit 2, purl 1, A.2, knit 7, A.1, purl 1, knit 2, purl 1, A.2, knit 13-13-16-16-22-22, A.1, 1 purl, knit 1. One round Work 5 rounds with knit over knit and purl over purl, knit yarn overs in A.1 and A.2 twisted. Five rounds Do we work 5 rounds of k/p/yo twisted after working 1 round of top pattern above then move to next step or work 5 rounds of the top pattern above?

06.02.2025 - 23:06

country flag Lola Hidalgo Diaz skrifaði:

Holaa! Al principio del canesú después de las primeras 4 vueltas, empieza asi: un revés 2 derechos, así hasta el final de la vuelta, mi duda es se deben hacer también 4 vueltas así o se empieza a hacer el canesu haciendo la división de las mangas???? Graciasss 💖

01.02.2025 - 17:50

country flag Annett skrifaði:

Hallo liebes Drops-Team, ist es möglich den Pullover aus Bomull-LIN zu Stricken? Liebe Grüße Annett

29.01.2025 - 06:45

DROPS Design svaraði:

Liebe Annett, ja genau, hier können Sie die neue Garnmenge kalkulieren - beachten Sie nur, wie immer, daß Ihre Maschenprobe stimmt. Viel Spaß beim Stricken!

29.01.2025 - 09:24

country flag Laugenie Florence skrifaði:

Bonjour, est ce que vous commencez avec la technique du magic loop ? Je n'arrive pas à commencer avec cette technique Existe t il les explications traditionnelles de bas en haut Merci de votre réponse

26.01.2025 - 18:09

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Laugenie, vous pouvez si vous le souhaitez, mais pour le col, vous pouvez aussi simplement commencer sur une aiguille circulaire de 40 cm; la technique du magic loop pourra être utilisée plus tard pour les manches. Bon tricot!

27.01.2025 - 09:42

country flag Kathy skrifaði:

Hello, I love the upper part of the pattern, but it looks as if the bottom is very full. I am wondering if you have guidance for modifying the bottom of the sweater to be less wide. Thank you.

25.01.2025 - 18:03

DROPS Design svaraði:

Dear Kathy, we don't make custom patterns. You can check our lessons to calculate the pattern if you want to make any modifications to this pattern. You can also look at other sweater patterns in our page, choose the one with the bottom shaping that you want and change the upper part of that sweater to the texture in this pattern. Maybe this one is more of your liking: https://www.garnstudio.com/pattern.php?id=8897&cid=19. Happy knitting!

25.01.2025 - 22:22

country flag Lindy skrifaði:

General Question. Is it possible for me to download a pattern from your library as a PDF to use in Knit Companion please? Thank you!

20.01.2025 - 18:22

DROPS Design svaraði:

DearLindy, you can download the pattern in PDF format, if you click at the printer icon right next to the title/name of the pattern. Happy Knitting!

20.01.2025 - 21:15

country flag Svictor skrifaði:

Sur la photo, l'augmentation et le nombre de double torsades sont de 5 alors qu'on nous dit de faire 6 torsades au total pour l'empiècement, je pense qu'il y'a une erreur

13.01.2025 - 22:52

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Svicotr, pour le devant et le dos, on doit faire les torsades 10 fois au total en taille S et 11 fois au total en taille M - cf dernier paragraphe avant la division de l'empiècement. Bon tricot!

14.01.2025 - 10:41