Rock Ridges#rockridgessweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Big Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, klukkuprjóni og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 252-12 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KLUKKUPRJÓN prjónað fram og til baka (á við um framstykki og bakstykki): UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju slétt *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, * prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Endurtakið umferð 2 og 3. KLUKKUPRJÓN prjónað í hring (á við um fram- og bakstykki og ermar): UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umerðina. Endurtakið umferð 1 og 2. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Prjónið 3 lykkjur í 1 lykkju slétt þannig: Prjónið uppsláttinn og lykkjuna slétt saman, en bíðið með að sleppa lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af prjóninum, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið lykkjuna og uppsláttinn slétt saman 1 sinni til viðbótar, sleppið síðan sléttu lykkjunni og uppslættinum sem prjónað var í af vinstri prjóni = 3 lykkjur. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið lykkjum undir ermum í lykkjum sem liggja næst brugðinni lykkju með merki í mitt undir ermi. Öll úrtaka er gerð í umferð þar sem prjóna á uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman! FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL VINSTRI ÞANNIG (byrjið strax eftir brugðnu lykkjunni með merki í): Lyftið fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman (1 lykkja brugðið + slétt lykkja og uppsláttur), steypið síðan lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman (= 2 lykkjur færri). FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR TIL HÆGRI ÞANNIG (þ.e.a.s. byrjið 3 lykkjum + 2 uppsláttum á undan brugðnu lykkjunni með merki í): Lyftið fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir brugðnu lykkjuna, lyftið til baka lykkjunni yfir á vinstri prjón, steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjuna sem sett var til baka yfir á vinstri prjón, steypið í lokin yfir lykkjuna sem eftir er á hægri prjóni (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 hlutum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, prjónið mynstur samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukning fyrir hálsmál hefur verið gerð til loka. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Fram- og bakstykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermarnar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. Peysan er prjónuð í klukkuprjóni. BAKSTYKKI: Fitjið upp 27-27-27-27-29-31 lykkjur á hringprjón 5,5 með DROPS Big Merino. Prjónið 1 umferð KLUKKUPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, þessi umferð er prjónuð frá röngu. Nú er prjónað þannig – frá réttu: Prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið 4 lykkjur klukkuprjón, AUKIÐ ÚT 2 lykkjur í næstu lykkju (þetta er slétt lykkja sem prjónuð er saman með uppslættinum) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið klukkuprjón þar til 6 lykkjur eru eftir, AUKIÐ ÚT 2 lykkjur í næstu lykkju (þetta er slétt lykkja sem prjónuð er saman með uppslættinum), prjónið 4 lykkjur klukkuprjón og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með klukkuprjón og aukið út á sama hátt í annarri hverri umferð frá réttu (þ.e.a.s. í 4. hverri umferð, prjónið 3 umferðir án útaukninga á milli hverra útaukningsumferða), alls 10-11-13-14-15-16 sinnum (aukið er út um 4 lykkjur í hvert skipti sem aukið er út). Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í klukkuprjón. Á eftir síðustu útaukningu eru 67-71-79-83-89-95 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan klukkuprjón fram og til baka. Haldið áfram þar til stykkið mælist 14-15-15-16-17-17 cm frá merki. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjurnar af þræði / hjálparprjón snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að öxl þannig: Prjónið upp 1 lykkju innan við hverja rönd í garðaprjóni = 21-23-27-29-31-33 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið klukkuprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – munið eftir útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 7 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur að hálsmáli. Aukið út í byrjun á 6. hverri umferð, aukið er út á eftir 5 lykkjum (1 kantlykkja í garðaprjóni og 4 lykkjur í klukkuprjóni) – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið út 2 lykkjur í 6. hverri umferð alls 3 sinnum = 27-29-33-35-37-39 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu á eftir síðustu útaukningu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju innan við hverja rönd í garðaprjóni = 21-23-27-29-31-33 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið klukkuprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 7 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur að hálsmáli. Aukið út í lokin á 6. hverri umferð, aukið er út á undan 5 lykkjum – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið út 2 lykkjur í alls 3 sinnum = 27-29-33-35-37-39 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið klukkuprjón eins og áður yfir 27-29-33-35-37-39 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 13-13-13-13-15-17 lykkjur fyrir hálsmál í lok þessarar umferðar, prjónið síðan klukkuprjón eins og áður yfir 27-29-33-35-37-39 lykkjur frá vinstra framstykki = 67-71-79-83-89-95 lykkjur. Prjónið síðan klukkuprjón fram og til baka með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið áfram þar til stykkið mælist 24-25-27-28-29-31 cm. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið eins og áður yfir 67-71-79-83-89-95 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 3-3-3-7-7-11 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið), prjónið eins og áður yfir 67-71-79-83-89-95 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 3-3-3-7-7-11 nýjar lykkjur í lok umferðar = 140-148-164-180-192-212 lykkjur. Klippið þráðinn og byrjið umferð í miðju á nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hliðinni – lesið útskýringu að ofan. Haldið áfram með KLUKKUPRJÓN hringinn yfir allar lykkjur, ATH! Nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi eru prjónaðar án klukkuprjóns uppsláttar í fyrstu umferð. Haldið áfram þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, mælt frá efsta punkti á öxl. Prjónið næstu umferð þannig, stillið af að þetta sé umferð þar sem uppslátturinn er prjónaður saman með sléttri lykkju: Fellið af miðju af 3-3-3-7-7-11 nýjum lykkjum í hlið (fyrsta lykkjan í umferð), prjónið 2 lykkjur garðaprjón, yfir næstu 65-69-77-85-91-101 klukkuprjónslykkjur er prjónað þannig: Prjónið uppsláttinn saman með sléttri lykkju eins og áður, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn og prjónið næstu lykkju brugðið (2 klukkuprjónslykkjur verða að 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið), prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, fellið af næstu lykkju (miðjulykkja af 3-3-3-7-7-11 nýjum lykkjum í hliðinni), prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni, yfir næstu 65-69-77-85-91-101 klukkuprjónslykkjur er prjónað þannig: Prjónið uppsláttinn saman með sléttri lykkju eins og áður, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn og prjónið næstu lykkju brugðið (2 klukkuprjónslykkjur verða 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið), 2 lykkjur í garðaprjóni = 101-107-119-131-140-155 lykkjur. Snúið og prjónið síðan yfir lykkjur frá bakstykki þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig (ATH! Uppslátturinn er prjónaður snúinn svo ekki myndist gat): 2 lykkjur í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* og endið með 1 lykkju brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni, JAFNFRAMT í umferð 1 er aukið út um 1 lykkju í annað hvert skipti sem prjónaðar eru 2 lykkjur slétt. Þessar lykkjur eru síðan prjónaðar brugðið frá réttu, þ.e.a.s. prjónuð er 1 lykkja slétt og til skiptist 2 / 3 lykkjur brugðið (séð frá réttu). Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið af. FRAMSTYKKI: Setjið lykkjur frá framstykki á hringprjón 4. Byrjið frá röngu og prjónið 2 lykkjur garðaprjón, * 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* og endið með 1 lykkju brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni, JAFNFRAMT í umferð 1 er aukið út um 1 lykkju í annarri hverri brugðinni einingu. Þessar lykkjur eru síðan prjónaðar eins og brugðið, þ.e.a.s. prjónuð er 1 lykkja slétt og til skiptis 2 / 3 lykkjur brugðið (séð frá réttu). Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm, mælt frá efsta punkti á öxl. ERMAR: Notið hringprjón 5,5, prjónið upp frá réttu 55-57-59-63-65-69 lykkjur meðfram handveg. Prjónið klukkuprjón fram og til baka með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til ermin mælist 1-1-1-3-3-4 cm. Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 – afgangur af erminni er prjónaður í hring. Þegar stykkið er sett saman, prjónið lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið saman í 1 lykkju, þessi lykkja heldur síðan áfram eins og brugðin lykkja í klukkuprjóni. Setjið 1 merkiþráð í þessa lykkju (mitt undir ermi)= 54-56-58-62-64-68 lykkjur. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Stykkið er nú mælt héðan. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið klukkuprjón hringinn. Þegar ermin mælist 6-6-6-7-8-8 cm, fækkið um 4 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA = 50-52-54-58-60-64 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-40-38-38-36-35 cm. Það eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd á fyrir stroff, stillið af að næsta umferð sé umferð þar sem uppslátturinn er prjónaður saman með sléttri lykkju. Prjónið 1 umferð þannig: Prjónið uppsláttinn saman með sléttri lykkju eins og áður, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn og prjónið næstu lykkju brugðið (2 klukkuprjónslykkjur verða að 1 lykkju slétt, 2 lykkjur brugðið) = 75-78-81-87-90-96 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Prjónið stroff 1 lykkja slétt / 2 lykkjur brugðið í 10 cm. ATH! Uppslátturinn er prjónaður snúinn í fyrstu umferð svo ekki myndist gat. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 50-50-48-48-46-45 cm frá merki. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 84 til 92 lykkjur á stuttan hringprjón 4. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. ATH! Passið uppá að prjónuð sé upp 1 lykkja í hverja slétta lykkju og 1 lykkja í hverja brugðna lykkju. Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið, passið uppá að stroffið passi við klukkuprjónslykkjurnar. Prjónið stroff hringinn í 11 cm. Fellið af. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það verði tvöfaldur kantur í hálsmáli. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rockridgessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 252-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.