DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Alpaca yarn
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 1078.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 22484.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425

Winter Sunrise

Prjónuð stór / oversize peysa í DROPS Alpaca og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan fá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, röndum í litatónum, norrænu mynstri og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð XS - XXL.

Velja stærð:
DROPS 255-16

#wintersunrisesweater

DROPS Design: Mynstur z-1041
Garnflokkur A + A eða C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

GARN:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-150-150-150-150 gr litur 9020, ljós perlugrár
100-100-100-150-150-150 gr litur 100, natur
100-100-100-100-100-150 gr litur 2020, ljós nougat
50-50-50-100-100-100 gr litur 4010, ljós lavender
50-50-50-50-100-100 gr litur 9035, lavender frost
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50-50-75-75 gr litur 40, perlubleikur
50-50-50-50-50-50 gr litur 01, natur
25-50-50-50-50-50 gr litur 42, mandla
25-25-25-25-25-25 gr litur 12, beige
25-25-25-25-25-25 gr litur 41, púður
25-25-25-25-25-25 gr litur 54, ljós sandur

Ef óskað er eftir að prjóna peysuna einungis með einum lit með einum grunnlit þá þarf:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
300-300-350-350-400-450 gr í grunnlit
100-100-100-150-150-150 gr í mynsturlit
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
125-125-125-150-150-175 gr í grunnlit
50-50-50-50-50-50 gr í mynsturlit

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni, norrænu mynstri og 1 þræði í hvorri tegund með prjóna nr 5 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 1078.00 kr /50g
Product image DROPS Kid-Silk yarn
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 22484.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 (jafnt yfir):
Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 178 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 30) = 5,9.
Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir ca 6. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI:
Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) í þessari röð: 15-17-19-20-22-24 cm (= bakstykki) / 14-15-17-18-19-21 cm (= framstykki) með 1 þræði Alpaca í litnum ljós perlugrár og 1 þræði Kid-Silk í litnum perlubleikur.
6-6-6-6-6-6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós lavender og 1 þræði Kid-Silk í litnum perlubleikur.
6-6-6-6-6-6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós lavender og 1 þræði Kid-Silk í litnum púður.
6-6-6-6-6-6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum lavender frost og 1 þræði Kid-Silk í litnum púður.
6-6-6-6-6-6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum lavender frost og 1 þræði Kid-Silk í litnum ljós sandur.
6-6-6-6-6-6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós nougat og 1 þræði Kid-Silk í litnum ljós sandur.
6-6-6-6-6-6 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós nougat og 1 þræði Kid-Silk í litnum beige.
10-11-10-11-11-11 cm (eða að loka máli) + stroff með 1 þræði Alpaca í litnum ljós nougat og 1 þræði Kid-Silk í litnum mandla.

RENDUR ERMAR:
Rendurnar eru prjónaðar í sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) í þessari röð:
4-4-4-4-5-5 cm (= upphækkun) með 1 þræði Alpaca í litnum ljós perlugrár og 1 þræði Kid-Silk í litnum perlubleikur.
5-5-5-5-4-4 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós lavender og 1 þræði Kid-Silk í litnum perlubleikur.
5-5-5-5-4-4 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós lavender og 1 þræði Kid-Silk í litnum púður.
5-5-5-5-4-4 cm með 1 þræði Alpaca í litnum lavender frost og 1 þræði Kid-Silk í litnum púður.
5-5-5-5-4-4 cm með 1 þræði Alpaca í litnum lavender frost og 1 þræði Kid-Silk í litnum ljós sandur.
5-5-5-5-4-4 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós nougat og 1 þræði Kid-Silk í litnum ljós sandur.
5-5-5-5-4-4 cm með 1 þræði Alpaca í litnum ljós nougat og 1 þræði Kid-Silk í litnum beige.
8-8-6-5-8-7 cm (eða að loka máli) + stroff með 1 þræði Alpaca í litnum ljós nougat og 1 þræði Kid-Silk í litnum mandla.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6.
Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.5). Finndu þína stærð í mynsturteikningu (á við um A.1 til A.3/A.4).

LEIÐBEININGAR PRJÓN-1:
Merking í mynsturteikningu sýnir í hvaða umferð bakstykkið endaði – þetta auðveldar þegar prjóna á framstykki og handvegur er stilltur af.

LEIÐBEININGAR PRJÓN-2:
Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig:
Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum).
Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman með grunnlit, prjónið 2 lykkjur slétt með grunnlit (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), prjónið 2 lykkjur snúið slétt saman með grunnlit (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf.
Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Prjónið síðan bakstykki niður á við samtímis sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlarvídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er hægt að láta bakstykkið bíða á meðan framstykkið er prjónað.
Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni.
Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu er lokið fyrir hálsmáli. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpuna, síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring.
Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 31-33-33-33-37-37 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Alpaca í litnum ljós perlugrár og 1 þræði DROPS Kid-Silk í litnum perlubleikur (= 2 þræðir).
Prjónið RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI – lesið útskýringu að ofan JAFNFRAMT er prjónað eins og útskýrt er að neðan. ATH: Þær 2 ystu lykkjur í hvorri hlið + útaukning er prjónað með grunnlit / lit í rönd sem er prjónuð, þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka.

UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, 2 lykkjur brugðið.
Á EFTIR UMFERÐ 3:
Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 14-15-17-18-19-21 sinnum (= 28-30-34-36-38-42 prjónaðar umferðir), á eftir síðustu útaukningu eru = 87-93-101-105-113-121 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 13-14-16-16-17-19 cm frá uppfitjunarkanti mitt að aftan.
Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá!
Í næstu umferð frá réttu er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig:
2 lykkjur sléttprjón í grunnlit, byrjið við ör fyrir valda stærð og prjónið 9-12-32-2-6-10 lykkjur sem eftir eru í A.1, prjónið allt A.1 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, prjónið síðan fyrstu 10-13-1-3-7-11 lykkjur í A.1 þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið, endið með 2 lykkjur sléttprjón í grunnlit. Haldið svona áfram fram og til baka – munið eftir að skipta um lit í röndum og munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 á sama hátt, þ.e.a.s. prjónið 2 lykkjur sléttprjón í grunnlit, byrjið við rétta ör og prjónið 9-12-32-2-6-10 lykkjur sem eftir eru í A.2, prjónið allt A.2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, prjónið síðan fyrstu 10-13-1-3-7-11 lykkjur í A.2, endið með 2 lykkjur sléttprjón í grunnlit. A.2 er síðan endurtekið á hæðina.
Prjónið þar til stykkið mælist 14-15-15-16-17-17 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi – endið eftir umferð frá röngu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN-1.
Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykki prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl.
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig:
Notið 1 þráð DROPS Alpaca í litnum ljós perlugrár og 1 þráð DROPS Kid-Silk í litnum perlubleikur (= 2 þræðir) og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð meðfram öxl innan við ystu lykkju, prjónið síðan upp 1 lykkju í hvora af næstu 2 umferðum yst við handveg (prjónið upp innan við ystu lykkju) = 30-32-36-38-40-44 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Prjónið sléttprjón og rendur fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 7-7-9-9-9-10 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 prjónaðar umferðir) = 34-36-40-42-44-48 lykkjur.
Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig:
Notið sama lit og á vinstra framstykki, byrjið 2 umferðum á undan síðustu útaukningu fyrir skáhallandi öxl á bakstykki, prjónið upp 1 lykkju í hvora af 2 umferðum yst við handveg (innan við ystu lykkju), prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð meðfram öxl innan við ystu lykkju = 30-32-36-38-40-44 lykkjur.
Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp.
Prjónið sléttprjón og rendur fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 7-7-9-9-9-10 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1.
UMFERÐ 2 (= ranga). Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 prjónaðar umferðir) = 34-36-40-42-44-48 lykkjur. Setjið síðan framstykkin saman eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman):
Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
Prjónið 34-36-40-42-44-48 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 19-21-21-21-25-25 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 34-36-40-42-44-48 lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður = 87-93-101-105-113-121 lykkjur í umferð.
Prjónið sléttprjón og rendur fram og til baka.
Þegar stykkið 12-12-14-14-14-16 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (prjónaði hafa verið ca 1-1-1-1-1-2 cm sléttprjón eftir að lykkjur voru fitjaðar upp fyrir hálsmáli mitt að framan) og næsta umferð er prjónuð frá réttu, prjónið MYNSTUR fram og til baka þannig:
2 lykkjur sléttprjón í grunnlit, byrjið við ör fyrir valda stærð og prjónið 9-12-32-2-6-10 lykkjur sem eftir eru í A.1, prjónið allt A.1 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, prjónið síðan fyrstu 10-13-1-3-7-11 lykkjur í A.1, þannig að mynstrið byrjar og endar á sama hátt í hvorri hlið, endið með 2 lykkjur í sléttprjóni í grunnlit. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka – munið eftir að skipta um lit í röndum.
Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.2 á sama hátt, þ.e.a.s. prjónið 2 lykkjur sléttprjón í grunnlit, byrjið við rétta ör og prjónið 9-12-32-2-6-10 lykkjur sem eftir eru í A.2, prjónið alls A.2 alls 2-2-2-3-3-3 sinnum, prjónið fyrstu 10-13-1-3-7-11 lykkjur í A.2, endið með 2 lykkjur sléttprjón í grunnlit. A.2 er síðan endurtekið á hæðina.
Prjónið þar til stykkið mælist 26-27-29-30-31-33 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp – endið eftir umferð frá röngu og stillið af að endað sé í sömu umferð í mynsturteikningu eins og á bakstykki. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.
Stykkið er nú mælt héðan!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið mynstur eins og áður yfir 87-93-101-105-113-121 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 2-2-2-8-8-8 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi), prjónið mynstur eins og áður yfir 87-93-101-105-113-121 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 2-2-2-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) = 178-190-206-226-242-258 lykkjur í umferð.
Nú er prjónað mynstur í hring yfir allar lykkjur – A.2 heldur áfram á framstykki og bakstykki og A.5 er prjónað í hvorri hlið á fram- og bakstykki – prjónið þannig: Prjónið fyrstu 2 lykkjur í umferð eins og síðustu 2 lykkjur í A.5, haldið áfram með A.2 yfir næstu 83-89-97-101-109-117 lykkjur (= framstykki), prjónið A.5 yfir næstu 6-6-6-12-12-12 lykkjur (= þær 2-2-2-8-8-8 lykkjur sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi + 2 lykkjur hvoru megin við þær), haldið áfram með A.2 yfir næstu 83-89-97-101-109-117 lykkjur (= bakstykki), prjónið 4-4-4-10-10-10 síðustu lykkjur sem 4-4-4-10-10-10 fyrstu lykkjur í A.5.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 32-33-32-33-33-33 cm frá handvegi (framstykkið á að mælast ca 58-60-61-63-64-66 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp) – endið eftir umferð merktri með stjörnu-1 eða stjörnu-2 í A.2.
Ef mynstrið endar eftir umferð með stjörnu-1, prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2 (byrjið við rétta ör og prjónið á sama hátt og áður – A.5 heldur áfram í hvorri hlið eins og áður).
Ef mynstrið endar eftir umferð með stjörnu-2, prjónið A.4 yfir lykkjur í A.2 (byrjið við rétta ör og prjónið á sama hátt og áður – A.5 heldur áfram í hvorri hlið eins og áður).
Þegar A.3 / A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið 2 umferðir sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur í grunnlit.
Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff í grunnlit / lit í síðustu rönd (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 30-34-38-38-42-46 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 = 208-224-244-264-284-304 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 5-5-6-6-7-7 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Framstykkið mælist ca 65-67-69-71-73-75 cm mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, framstykkið er ca 3 cm lengra en loka mál þar sem kantur þar sem lykkjur voru prjónaðar upp er ekki mitt ofan á öxl, heldur aðeins niður á bakstykki, peysan mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm.

ERMAR:
Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við.
Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Mitt ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 6 til 8 cm niður á framstykki).
Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 3,5 og 1 þráð í DROPS Alpaca í litnum ljós perlugrár og 1 þráð í DROPS Kid-Silk í litnum perlubleikur (= 2 þræðir) og byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 65-67-73-83-85-91 lykkjur - stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. Skiptið yfir á hringprjón 5.
Setjið 1 merki í miðjulykkju í umferð (= miðjulykkja ofan á ermi – þetta merki verður að hafa annan lit en hin merkin til að aðgreina þau).
Nú eru prjónaðar RENDUR ERMAR – lesið útskýringu að ofan, fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpu til að ermin passi betur og fái betra form, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig:

UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 8-8-8-9-9-9 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl (fyrsta merkið sem var sett), snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN-2.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 8-8-8-9-9-9 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 7-7-7-7-7-7 lykkjur frá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 7-7-7-7-7-7 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu.
Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4.
Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 8-8-8-8-10-10 sinnum (= 4-4-4-4-5-5 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu).

Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ:
Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferðin með því að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (mitt undir ermi).
Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þessi merkiþráður er notaður þegar lykkjum er fækkað undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu.
Nú eru prjónaðar rendur í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað mitt undir ermi og prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og lesið ÚRTAKA og MYNSTUR að neðan áður en ermin er prjónuð (munið eftir að skipta um lit í röndum):

ÚRTAKA:
Þegar ermin mælist 1 cm mælt mitt undir ermi er fækkað um 2 lykkjur 2-2-2-8-8-8 sinnum í annarri hverri umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan, fækkið síðan um 2 lykkjur í hverjum 1½ cm alls 6-7-7-6-7-7 sinnum = 49-49-55-55-55-61 lykkjur í umferð.

MYNSTUR:
Munið eftir úrtöku að ofan áður en prjónað er áfram. Þegar stykkið mælist 7-7-7-6-6-6 cm frá merki á öxl, prjónið MYNSTUR, þ.e.a.s. prjónið A.6 hringinn á ermi – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermum, en teljið út frá miðjulykkju á ermi hvar mynstrið á að byrja mitt undir ermi – merkið mitt ofan á ermi á að passa við merkingu fyrir miðjulykkju í A.6. A.6 er endurtekið alls 5-5-5-5-4-4 sinnum á hæðina, síðan eru fyrstu 3 umferðir prjónaðar í A.6. Prjónið síðan rendur að loka máli.

Prjónið þar til ermin mælist ca 42-42-40-39-37-36 cm frá merki á öxl.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff í grunnlit / lit í síðustu rönd (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 7-7-9-9-9-11 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-56-64-64-64-72 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-6-6-7-7 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum fyrir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Ermin mælist ca 47-47-46-45-44-43 cm frá merki mitt ofan á öxl.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið hringprjón 3,5 og 1 þráð DROPS Alpaca í litnum ljós perlugrár og 1 þráð DROPS Kid-Silk í litnum perlubleikur (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 108-112-118-118-132-134 lykkjur innan við 1 lykkju (ef prjónaðar eru upp færri lykkjur er hægt að jafna lykkjufjöldann út í fyrstu umferð) – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2 og stillið lykkjufjöldann af þannig að stroffið passi við 1 lykkju slétt yfir hvora axlalínu. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 11-11-11-13-13-13 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5 og fellið af aðeins laust.
Brjótið niður stroffið að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður með nokkrum sporum við hvora öxl.

Mynstur

slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk í grunnlit / lit í rönd sem er prjónuð = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk í grunnlit / lit í rönd sem er prjónuð
slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk í litnum natur = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu með 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk í litnum natur
miðjulykkja ermi = miðjulykkja ermi
endið mynstrið neðst niðri á fram- og bakstykki eftir þessa umferð = endið mynstrið neðst niðri á fram- og bakstykki eftir þessa umferð
byrjið mynstrið við ör í valinni stærð = byrjið mynstrið við ör í valinni stærð
Diagram for DROPS 255-16
Diagram for DROPS 255-16
Diagram for DROPS 255-16
Diagram for DROPS 255-16

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #wintersunrisesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Franziska skrifaði:

Polar Morn

10.08.2024 - 19:43

country flag Delahaye skrifaði:

Automn sunset

10.08.2024 - 09:53

country flag Krümel skrifaði:

Snowdream

09.08.2024 - 21:03

country flag Heike skrifaði:

Mein absoluter Favorit. Kann es kaum erwarten.

09.08.2024 - 20:34

country flag Nikole skrifaði:

Stormy winter

09.08.2024 - 10:27

country flag Monika skrifaði:

Hazy dream :)

09.08.2024 - 08:15

country flag Brenda Bradshaw skrifaði:

Sun and Sand

08.08.2024 - 20:55

country flag Mufasa11 skrifaði:

Snowflake

08.08.2024 - 19:39

country flag Frida Björk skrifaði:

Nordic twilight

08.08.2024 - 19:12

country flag Erika skrifaði:

Fantastisk spännande och vackert mönster. Denna vill jag absolut göra.

08.08.2024 - 18:29