Gabriele Bauer skrifaði:
Muss es bei RUMPFTEIL nicht heißen: weiter mit A1, A2 und A4 (gr.S) statt nur mit A2?
28.09.2024 - 14:40DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Bauer, es wird A.2 gestrickt, aber siehe FORTSETZUNG DES MUSTERS:, im Falle die Arbeit in dem großen Stern geteilt wurde, dann passt das Muster unter die Ärmel nicht, so sollen Sie anpassen (siehe Beschreibung). Viel Spaß beim Stricken!
30.09.2024 - 08:00
Carlota Viglizzo skrifaði:
Weekend
10.08.2024 - 16:42
Stimla skrifaði:
Sweet candy
10.08.2024 - 11:37
Christina Jensen skrifaði:
Navn: English tee Party
08.08.2024 - 19:29
Carla skrifaði:
This is the one
08.08.2024 - 18:25
Frozen Bloom#frozenbloomsweater |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð stór / oversize peysa í DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan fá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, norrænu mynstri með stjörnum og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 255-5 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá réttu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. AUKIÐ ÚT UM 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá röngu: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (ermi): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki í þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið lykkju með merki, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjið á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Prjónið síðan bakstykki niður á við samtímis sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til lykkjufjöldi fyrir axlarvídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er hægt að láta bakstykkið bíða á meðan framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 stykkjum. Byrjið á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Endurtakið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukningu er lokið fyrir hálsmáli. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Nú er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpuna, síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 29-33-33-37-37-37 lykkjur á hringprjón 5 með litnum hveiti í DROPS Air. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út um 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 15-17-17-19-22-22 sinnum (= 30-34-34-38-44-44 prjónaðar umferðir), á eftir síðustu útaukningu eru = 89-101-101-113-125-125 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 14-16-16-18-20-20 cm frá uppfitjunarkanti mitt að aftan. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt frá! Að aukið er sett 1 merki í miðju lykkjuna í umferð (= miðjulykkja) – látið þetta merki fylgja áfram með í stykkinu (merkið er notað síðar þegar prjóna á mynstur á fram- og bakstykki). Í næstu umferð frá réttu er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan og prjónið mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S og XL: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón með litnum hveiti, A.1, prjónið A.2 alls 3-4 sinnum, prjónið A.4 og 2 lykkjur sléttprjón með litnum hveiti. STÆRÐ M, L, XXL og XXXL: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón með litnum hveiti, prjónið A.2 alls 4-4-5-5 sinnum, A.3 og 2 lykkjur sléttprjón með litnum hveiti. ALLAR STÆRÐIR: Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka – lykkja með merki í mitt að aftan á að passa við merkingu fyrir miðjulykkju í A.2 – ATH: Í hverri umferð með einum lit eru allar lykkjur í umferð prjónaðar í sama lit. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið þar til stykkið mælist 15-15-16-17-17-18 cm mælt frá merki yst meðfram handveg – endið eftir umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykki prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Notið litinn hveiti í DROPS Air og prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð meðfram öxl innan við ystu lykkju + 1 lykkju í hvora af næstu 2 næstu umferð (haldið áfram innan við ystu lykkju) = 32-36-36-40-46-46 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 7-9-9-9-10-10 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 prjónaðar umferðir) = 36-40-40-44-50-50 lykkjur. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Notið litinn hveiti, byrjið 2 umferðum á undan síðustu útaukningu fyrir skáhallandi öxl á bakstykki, prjónið upp 1 lykkju í hvora af 2 umferðum yst við handveg (innan við ystu lykkju), prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð meðfram öxl innan við ystu lykkju = 32-36-36-40-46-46 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón og rendur fram og til baka. Þegar stykkið mælist 7-9-9-9-10-10 cm, aukið út lykkjur við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga). Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4 sinnum (= 8 prjónaðar umferðir) = 36-40-40-44-50-50 lykkjur. Setjið síðan framstykkin saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 36-40-40-44-50-50 lykkjur frá hægra framstykki eins og áður, fitjið upp 17-21-21-25-25-25 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið 36-40-40-44-50-50 lykkjur frá vinstra framstykki eins og áður = 89-101-101-113-125-125 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki í miðju lykkju í umferð (= miðjulykkja) – látið þetta merki fylgja áfram með í stykkinu (merkið er notað síðar þegar prjóna á mynstur á fram- og bakstykki). Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 12-14-14-14-16-16 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (prjónaðir hafa verið ca 1-1-1-1-2-2 cm sléttprjón eftir að lykkjur voru fitjaðar upp fyrir hálsmáli mitt að framan) og næsta umferð er prjónuð frá réttu, prjónið MYNSTUR fram og til baka mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S og XL: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón með litnum hveiti, A.1, prjónið A.2 alls 3-4 sinnum, prjónið A.4 og 2 lykkjur sléttprjón með litnum hveiti. STÆRÐ M, L, XXL og XXXL: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón með litnum hveiti, prjónið A.2 alls 4-4-5-5 sinnum, A.3 og 2 lykkjur sléttprjón með litnum hveiti. ALLAR STÆRÐIR: Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka – lykkja með merki í mitt að framan á að passa við merkingu fyrir miðjulykkju í A.2. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið þar til stykkið mælist 27-29-30-31-33-34 cm mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp – endið eftir umferð frá röngu og stillið af að endað sé í sömu umferð í mynsturteikningu eins og á bakstykki. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Stykkið er nú mælt héðan! FRAM- OG BAKSTYKKI: Haldið áfram með A.2 yfir allar 89-101-101-113-125-125 lykkjur frá framstykki (einnig yfir 2 lykkjur í hvorri hlið í litnum hveiti), fitjið upp 3-1-7-1-1-7 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið mitt undir ermi), haldið áfram með A.2 yfir allar 89-101-101-113-125-125 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 3-1-7-1-1-7 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) = 184-204-216-228-252-264 lykkjur í umferð. Klippið þráðinn. Setjið 1 merki í miðju af 3-1-7-1-1-7 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hvorri hlið undir ermum (eða í lykkju sem fitjuð var upp einungis þegar fitjuð var upp 1 lykkja). Látið merkin fylgja áfram með í stykkinu – ATH: Það er núna 1 merki í miðjulykkju í hvorri hlið á fram- og bakstykki og 1 merki í miðjulykkju mitt að framan / mitt að aftan. Byrjið umferð innan við lykkju með merki í annarri hliðinni á stykki. Lestu allan kaflann áður en prjónað er áfram. MYNSTRIÐ HELDUR ÁFRAM: Nú er mynstrið prjónað í hring yfir allar lykkjur, þ.e.a.s. haldið áfram með A.1 hringinn á fram- og bakstykki þar til A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina – ATH: Ef stykkinu hefur verið skipt upp í stóru stjörnunni þá kemur mynstrið ekki til með að ganga jafnt upp í hvorri hlið mitt undir ermum, en prjónið mynstrið eins langt og hægt er að lykkju með merki í hvorri hlið og prjónið lykkjuna með merki í litnum hveiti (á einungis við þegar mynsturbekkur með stjörnu er prjónaður). Eftir stjörnuna kemur mynstrið til með að ganga jafnt upp hringinn yfir allar lykkjur með því að endurtaka A.x hringinn á fram- og bakstykki. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.5 hringinn yfir allar lykkjur á fram- og bakstykki. Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.6 þannig: Lykkja með merki í hvorri hlið undir ermum er prjónuð með litnum hveiti, A.6 kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hvorri hlið undir ermum, en teljið út frá miðjulykkju á framstykki/bakstykki hvar mynstrið á að byrja á eftir lykkju með merki og prjónið mynstur eins langt og hægt er fram að merki í hinni hliðinni. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.7 hringinn yfir allar lykkjur á fram- og bakstykki. Þegar A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur með litnum hveiti þar til stykkið mælist 27-27-28-28-28-29 cm frá handveg (framstykkið á að mælast ca 54-56-58-59-61-63 cm frá uppfitjunarkanti). Skiptið yfir á hringprjón 3,5, prjónið stroff með litnum hveiti (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 32-36-40-40-44-48 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 216-240-256-268-296-312 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm fellið af. Framstykkið mælist 59-61-63-65-67-69 cm mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, framstykkið er ca 3 cm lengra en loka mál þar sem kantur þar sem lykkjur voru prjónaðar upp er ekki mitt ofan á öxl, heldur aðeins niður á bakstykki, peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl (ATH! Mitt ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur ca 6 til 8 cm niður á framstykki). Prjónið upp lykkjur í kringum handveg, notið hringprjón 3,5 og byrjið með að prjóna upp 1 lykkju í lykkjuna sem var fitjuð upp undir ermi / í miðjulykkju sem fitjuð var upp undir ermi – JAFNFRAMT er sett 1 merki þessa lykkju (þetta merki er notað þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi), prjónið síðan upp 68-70-78-78-80-88 lykkjur í kringum handveg – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við þessi merki = 69-71-79-79-81-91 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna til að ermin passi betur og fái betra form, umferðin byrjar mitt undir ermi þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 8-8-8-9-9-9 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 8-8-8-9-9-9 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 6-6-7-8-8-9 lykkjur frá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 6-6-7-8-8-9 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 8 (= 4 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð þá endar umferðin með því að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (mitt undir ermi). Setjið 1 merki í miðju lykkju í umferð (= miðjulykkja) – þetta merki er notað þegar mynstrið er prjónað. Nú er prjónað í hring yfir allar lykkjur í sléttprjóni og mynstur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað mitt undir ermi – lesið MYNSTUR og ÚRTAKA að neðan áður en prjónað er áfram. MYNSTUR: Þegar ermakúpan hefur verið prjónuð til loka og prjóna á ermina í hring, prjónið A.8 hringinn á ermi – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi, en teljið út frá miðjulykkju ofan á ermi hvar mynstrið á að byrja mitt undir ermi – lykkja með merki í mitt ofan á ermi á að passa við merkingu fyrir miðjulykkju í A.8. Þegar A.8 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið síðan sléttprjón með litnum hveiti. ÚRTAKA: Lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA að ofan og fækkið lykkjum þannig: Þegar ermin mælist 1 cm mælt mitt undir ermi er fækkað um 2 lykkjur 4-4-5-5-6-6 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækka um 2 lykkjur í hverjum 3-3-2½-2½-2½-1½ cm alls 6-6-8-7-6-10 sinnum = 49-51-53-55-57-59 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 43-41-42-38-35-36 cm frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 9 lykkjur jafnt yfir í öllum stærðum í umferð 1= 58-60-62-64-66-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-6-6-6 cm fellið af. Ermin mælist ca 48-46-47-44-41-42 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3,5 og litinn hveiti. Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 92-108-108-120-124-124 lykkjur innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 11-11-11-13-13-13 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5 og fellið aðeins laust af. Brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður með nokkrum sporum við hvora öxl. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #frozenbloomsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 255-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.