Daniela skrifaði:
Ich verzweifel an der Anleitung/Umsetzung. Ich stricke genau nach Anleitung. Ich komme jedoch ins strudeln, wenn ich an den Raglanlinien Maschen zunehme bzw. dann die nächsten Runden stricke Wenn ich nach Anleitung weiter stricke, komme ich nicht mehr ins muster rein ohne Maschen anders zu stricken. Dann stricke icj jedoch nicht mehr nach Anleitung. Was kann ich tun, damit es klappt. Ich habe es bereits das 6. Mal aufgeribbelt.....
23.05.2026 - 14:46DROPS Design svaraði:
Liebe Daniela, die Raglanzunahmen werden beidseitig von den 5 Raglan-Maschen bearbeitet: Am Anfang der Runde stricken Sie 3 Maschen (Raglan), dann in die nâchste Masche (eine rechte Masche vom Patentmuster) nehmen Sie 2 Maschen (= diese Masche 3 Mal stricken (siehe Video), *dann stricken Sie bis 2 M vor der mit der Markierung, nehmen Sie in die nächste Masche wie zuvor, stricken Sie die 5 Raglan-Maschen, nehmen Sie in die nächste Masche wie zuvor*, von *bis* wiederholen und am Ende der Runde nehmen Sie in die rechte Masche vor den 2 letzten Maschen der Runde. Kann das helfen? Viel Spaß beim Stricken!
26.05.2026 - 09:46
Helena skrifaði:
Hur stickar jag mina ökade maskor på varvet efter ökningarna?
16.05.2026 - 21:10DROPS Design svaraði:
Hei Helena. De nye / økte maskene strikkes i helpatent, men vær oppmerksom på at de økte maskene mangler kast første gang de skal strikkes. Les under HELPATENT hvordan helpatent strikkes. mvh DROPS Design
18.05.2026 - 10:58
Daniela skrifaði:
Gurdn Morgen. Wie stricke ich die Maschen nach der 1. Runde in der Passe wenn die Markierer positioniert werden. So wie sie erscheinen? Liebe Grüße Daniela
14.05.2026 - 11:18DROPS Design svaraði:
Liebe Daniela, ja jetzt stricken Sie das Patentmuster weiter wie zuvor, bei der 1. Runde stricken Sie die Maschen ohne die Umschläge (da es noch keine sind). Viel Spaß beim Stricken!
15.05.2026 - 08:56
Linda Björg skrifaði:
I don’t get the increases and how they make 16 extra stitches if you have 5 raglan stitches. 5x2 =10. I saw Debbie’s question and was no closer with the answer she was given.
10.05.2026 - 23:23DROPS Design svaraði:
Dear Linda, we have 4 raglan lines, of 5 sts each ( the last line is between the end and beginning of the round, but it's a single line). So we have the initial 3 raglan stitches, then we increase 2 stitches. Now we work the sleeve and increase 2 sts before the raglan sts. Work the raglan sts and increase 2 sts afterwards. Now work the front piece and increase 2 sts before the raglan sts. Work the raglan sts and increase 2 sts afterwards. Work the second sleeve and increase 2 sts before the raglan sts. Work the raglan sts and increase 2 sts. Now work the back piece and increase 2 sts before the last 2 sts (from the divided raglan line). So you increase 2 sts before and after each cluster of raglan sts (= 2 x4 x2 = 16 sts increased). Happy knitting!
11.05.2026 - 01:07
Nella skrifaði:
Tjena! Jag fattar ingenting. Jag har gjort kragen och sedan stickades jag fram till att a ok skulle delas ,typ, men såg då att ökningar och raglarna var fel. Repade upp, gjorde om. Förstår inte ändå efter många upprepningar. Sett alla videos på drops samt andra. Kollat kommentarer osv. Hur ska jag räkna indelningen efter ett helpatent varv? Vad är vanlig maska och ragalnmaskan. Varför har jag 5 markeringar på ena sidan(en förstår jag är start på varv) och tre på andra?
14.03.2026 - 01:04
Mar skrifaði:
Hvordan unngår man at man hopper 1 maske til høyre for hver runde?
08.02.2026 - 21:29DROPS Design svaraði:
Hei Mar. Har man riktig maskeantall og følger oppskriften, skal man ikke "hoppe" 1 maske til høyre for hver runde. Det er satt en merketråd ved omgangens begynnelse, pass på at man har strikket over riktig antall masker før man starter på neste omgang. Se gjerne hjelpevideoene ang. Helpatent som er lagt til denne oppskriften (klikk på Videoer til høyre/under bildet). mvh DROPS Design
09.02.2026 - 09:09
Mar skrifaði:
Skal man øke 2 m i ved raglanmasken og i de 2 ermemaskene og der man markerte for og bakstykke. Slik st det til sammen er 8 områder med 5 m mellom man øker i? Strikker i strl s.
08.02.2026 - 21:27DROPS Design svaraði:
Hei Mar. Det er 8 områder ( = 1 område = 5 masker = 1 raglanlinje) og det økes på hver side av disse områdene. Du har 4 raglanslinjer som består av 5 masker, og det skal økes på hver side av disse raglanlinjenen = det økes 16 steder pr øke omgang. mvh DROPS Design
09.02.2026 - 09:03
Maiju skrifaði:
Minulla on sama ongelma kuin Marialla ja Manuelalla. Kun kierroksen alkamiskohta on keskellä raglania, kierros alkaa oikealla silmukalla ja M-koossa ensimmäiset 51 silmukkaa poimitaan hihoiksi, tällöin ensimmäinen ja viimeinen silmukka ovat nurjia. Väliin luodaan 5 silmukkaa, joista myös ensimmäisen ja viimeisen on oltava nurjia, jotta patenttineulekuvio säilyy. Hihoja tehdessä vierekkäin tulee siis kaksi nurjaa silmukkaa. Onko väliin luotava ylimääräiset oikeat silmukat?
02.02.2026 - 12:32
Ilona skrifaði:
Bonjour, Je ne comprend pas lors de la première augmentation pour le raglan il est noté 16 mailles en plus. Mais il y a seulement 4 repères raglan. Ca fait seulement 8 mailles en plus puisqu'il faut faire 2 augmentation par repères de raglan.
30.01.2026 - 15:57DROPS Design svaraði:
Bonjour Ilona, vous augmentez 2 m avant et 2 mailles après les raglans = 4 m par raglan x 4 raglans = 16 mailles par tour d'augmentations. (vous augmenterez ensuite 8 mailles: 2 m au début + 2 m à la fin du dos et du devant seulement (2 grandes tailles seulement). Bon tricot!
30.01.2026 - 16:43
Yvonne Kluitman skrifaði:
Goedemorgen, Er staat dat er gemeerderd moet worden voor de raglan bij de 5 markeerders , maar moeten dat geen 4 markeerders zijn. Er zijn toch 4 raglannaaden?
24.01.2026 - 13:05DROPS Design svaraði:
Dag Yvonne,
De raglanlijnen zitten inderdaad op 4 plekken, steeds tussen een mouw en een pand, maar de raglanlijnen lopen over een breedte van 5 steken. Je meerdert steeds voor en na deze 5 steken.
25.01.2026 - 10:14
Ocean Lines#oceanlinessweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tveggja lita klukkuprjón og tvöföldum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-20 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar lykkjur eru taldar er uppslátturinn ekki talinn sem ein lykkja. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð í umferð sem er prjónuð í litnum blár (2. umferð í klukkuprjóni). Aukið út um 2 lykkjur í slétta lykkju og uppslátt með því að prjóna 3 lykkjur í lykkju og uppslátt þannig: Prjónið lykkju og uppslátt slétt saman, en bíðið með að lyfta lykkjunni og uppslættinum af vinstri prjóni, sláið 1 sinni uppá hægri prjón og prjónið sömu lykkju og uppsláttinn slétt saman einu sinni til viðbótar (= 2 lykkjur fleiri). Prjónið síðan nýjar lykkjur í klukkuprjóni, en passið uppá að útauknar lykkjur hafa ekki uppslátt í fyrsta skipti sem þær eru prjónaðar. KLUKKUPRJÓN: UMFERÐ 1: Prjónið í litnum blár þannig: * Prjónið 1 lykkju brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 2: Prjónið í litnum blár þannig: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina. UMFERÐ 3: Prjónið í litnum hveiti þannig: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna brugðið saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. EFTIR UMFERÐ 3: Endurtakið umferð 2 og 3, þannig að önnur hver umferð er í litnum blár og í litnum hveiti. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um ermar): Öll úrtaka er gerð í umferð sem prjónuð er í litnum blár (þar sem uppslátturinn og slétta lykkjan er prjónað slétt saman). Fækkið um 2 lykkjur hvoru megin við lykkju með merki í þannig: FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í BYRJUN UMFERÐAR ÞANNIG: Byrjið við fyrstu sléttu klukkuprjónslykkjuna á eftir lykkju með merki í: Lyftið fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman (þ.e.a.s. 1 lykkja brugðið + slétt lykkja og uppsláttur), steypið síðan lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar saman (= 2 lykkjur færri). FÆKKIÐ UM 2 LYKKJUR Í LOK UMFERÐAR: Prjónið að næst síðustu sléttu klukkuprjónslykkju á undan lykkju með merki í: Lyftið fyrstu sléttu lykkjunni og uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni og uppslættinum yfir brugðnu lykkjuna, lyftið til baka lykkjunni yfir á vinstri prjón, steypið lykkjunni og uppslættinum næst brugðnu lykkjunni með merki yfir lykkjuna sem var sett til baka á vinstri prjón, steypið að lokum yfir þá lykkju sem eftir eru yfir á hægri prjón (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn tvöfaldur að röngu og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-84-88-92-96-100 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Air í litnum blár. Skiptið yfir á hringprjón 4 (fitjað er upp á grófari prjóna til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt / 1 lykkja brugðið) í 9-9-9-11-11-11 cm. Síðar er kantur í hálsmálin brotinn inn að röngu og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 4-4-4-5-5-5 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð með KLUKKUPRJÓN, lesið útskýringu að ofan. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan, byrjun umferðar er mitt í 5 laskalykkjum, setjið 1 merkiþráð til að merkja byrjun á umferð. Setjið 1 merki í stykkið eftir fyrstu 26-27-28-28-29-30 lykkjur í umferð (= ca mitt að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. Lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og setjið 8 merkiþræði í umferð á milli 2 lykkja þannig: Byrjið við byrjun á umferð, teljið 3 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 5 lykkjur ( = ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 5 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 25-27-29-31-33-35 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 5 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 5 lykkjur (= ermi), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju teljið 5 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju, teljið 25-27-29-31-33-35 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merkiþráð á undan næstu lykkju. Það eru 2 lykkjur eftir í umferð á eftir síðasta merkiþræði (= laskalykkjur). Haldið áfram að prjóna í hring frá 2. umferð með klukkuprjóni, jafnframt er aukið út fyrir LASKALÍNA eins og útskýringu að ofan. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. LASKALÍNA: Þegar prjónaðar hafa verið alls 5 umferðir í hring með klukkuprjóni (= næsta umferð er prjónuð með litnum blár eins og í 2. umferð í klukkuprjóni), aukið út um 2 lykkjur í slétta lykkju og uppsláttinn hvoru megin við 5 laskalykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 16 lykkjur fleiri). Aukið svona út í 8. hverri umferð (þ.e.a.s. í 4. hverri umferð með litnum blár) alls 9-10-11-11-11-11 sinnum á hæðina = 224-244-264-268-272-276 lykkjur. Útaukning fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í 8. hverri umferð 0-0-0-0-1-2 sinnum til viðbótar = 224-244-264-268-280-292 lykkjur í umferð. Prjónið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 21-23-24-25-27-29 cm frá merki eftir kanti í hálsmáli – stillið af að síðasta umferð sem sé prjónuð jafngildir 3. umferð í klukkuprjóni í litnum hveiti. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 47-51-55-55-55-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-9-13-13 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 65-71-77-79-85-91 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 47-51-55-55-55-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-5-9-13-13 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 65-71-77-79-85-91 lykkjur (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 140-152-164-176-196-208 lykkjur. Prjónið síðan með sama þræði, umferðin byrjar í skiptingunni á milli fram- og bakstykkis og erma eins og áður og haldið áfram í klukkuprjóni hringinn þar til stykkið mælist 46-48-50-51-53-55 cm frá merki mitt að framan – stillið af að síðasta umferð sem er prjónuð jafngildir 3. umferð í klukkuprjóni í litnum hveiti. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið síðan í litnum blár þannig: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið brugðna lykkju brugðið, prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman *, prjónið frá *-* út umferðina. Prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið / 1 lykkja slétt) í litnum blár þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur JAFNFRAMT þar sem allir uppslættir eru prjónaðir brugðið = 210-228-246-264-294-312 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 50-52-54-56-58-60 cm frá merki mitt að framan og ca 54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 47-51-55-55-55-55 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5. Notið litinn blár og byrjið á að prjóna upp 1 lykkju í miðju á 5-5-5-9-13-13 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi, prjónið upp 1 lykkju í hverja af næstu 2-2-2-4-6-6 lykkjur, prjónið klukkuprjón eins og áður yfir lykkjur frá berustykki, endið með að prjóna upp síðustu 2-2-2-4-6-6 lykkjur fram að miðju undir ermi = 52-56-60-64-68-68 lykkjur. Setjið 1 merki í miðju af 5-5-5-9-13-13 nýjum lykkjum undir ermi (merkið situr í sléttri lykkju) – umferðin byrjar á þessari lykkju. Látið merkið fylgja áfram með í stykkinu, það á að nota það aðeins síðar þegar fækka á lykkjum mitt undir ermi. Prjónið síðan í hring í klukkuprjóni eins og áður, næsta umferð er prjónuð í litnum hveiti. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 4 lykkjur í 5. hverjum cm alls 2-3-3-4-4-4 sinnum = 44-44-48-48-52-52 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-37-37-35-34-32 cm frá skiptingunni – stillið af að síðasta umferðin sem er prjónuð jafngildi 3. umferð í klukkuprjóni í litnum hveiti. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og litinn blár, prjónið 1 umferð þannig: * Prjónið uppsláttinn og sléttu lykkjuna slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* út umferðina. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt / 2 lykkjur brugðið) í litnum blár þannig: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur JAFNFRAMT sem allur uppsláttur er prjónaður brugðið = 66-66-72-72-78-78 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-41-41-40-39-37 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #oceanlinessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.