DELORT ROSE-NOELLE skrifaði:
Au début de l'empiècement après le rang 4: faut-il tricoter 5 fois les rangs 1 à 4 =20 rangs, ou 5 fois les rangs 2 à 4= 10 rangs
06.09.2024 - 15:24DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Delort, il faut répéter en fait les rangs 3 et 4 et non les rangs 1 à 4, merci pour votre retour. Vous devez avoir tricoté un total de 10 rangs. Bon tricot!
09.09.2024 - 09:18
Sea Feather Cardigan#seafeathercardigan |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum, tvöföldum kanti í hálsmáli og i-cord. Stærð S - XXXL.
DROPS 254-6 |
|||||||||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 9½-10-8½-8½-9-9 cm á milli hverra hnappagata. Nesta hnappagatið er staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN A.1/A.2: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR A.1/A.2: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni er notast við mismunandi lengdir á prjónum, byrjið á þeirri lengd sem passar lykkjufjölda og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantur í hálsmáli er brotinn saman tvöfaldur að röngu og saumaður niður. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 98-98-102-110-114-118 lykkjur á hringprjón 4,5 með 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Skiptið yfir á hringprjón 3 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan sléttprjón með 1 lykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – lesið útskýringu að ofan. Prjónið þar til kantur í hálsmáli mælist 3-3-3-4-4-4 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu. Í lok hvorra af næstu 2 umferðum eru fitjaðar upp 6 lykkjur fyrir kant að framan = 110-110-114-122-126-130 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu (= uppábrot), en ystu 7 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar eins og KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan. Kantur í hálsmáli mælist ca 4-4-4-5-5-5 cm (= ca hæð á kanti í hálsmáli með uppábroti). Prjónið síðan sléttprjón og kant að framan þar til kantur í hálsmáli mælist 8-8-8-10-10-10 cm frá uppfitjunarkanti jafnframt því sem aukið er út um 0-0-0-8-12-16 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 110-110-114-130-138-146 lykkjur – endið með eina umferð frá röngu. Setjið 1 merki að innanverðu í kanti að framan í annarri hlið á stykki, stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og setjið 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju og merkin eiga síðar að passa við miðjulykkju í A.1 og A.2. Teljið 17-17-18-20-22-24 lykkjur (= framstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 26-26-26-30-30-30 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 20-20-22-26-30-34 lykkjur (= bakstykki), setjið 1 merki í næstu lykkju, teljið 26-26-26-30-30-30 lykkjur (= ermi), setjið 1 merki í næstu lykkju. Það eru 17-17-18-20-22-24 lykkjur á eftir síðasta merki (= framstykki). Nú er prjónað MYNSTUR og aukið út fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 7 kantlykkjur að framan eins og áður, 5-5-6-7-9-11 lykkjur sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 16-16-16-18-18-18 lykkjur sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 10-10-12-14-18-22 lykkjur sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 16-16-16-18-18-18 lykkjur sléttprjón, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1, aukið út um 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 5-5-6-7-9-11 lykkjur sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan eins og áður – munið eftir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan (= 8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu og 24-24-24-32-32-32 lykkjur fleiri í A.1) = 142-142-146-170-178-186 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón, kant að framan og mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni (munið eftir að snúa uppslættinum eins og útskýrt er að ofan). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður, prjónið A.2 yfir lykkjur í A.1 og aukið út fyrir laskalínu þannig: Aukið út um 1 lykkju á undan og á eftir hverju A.2 (= A.8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón, kant að framan og mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni (munið eftir að snúa uppslættinum). Haldið áfram með A.2 og prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 5-6-8-12-11-9 sinnum (= 10-12-16-24-22-18 prjónaðar umferðir) = 182-190-210-266-266-258 lykkjur í umferð. Munið eftir að fylgja uppgefinni prjónfestu. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón, kant að framan og A.2 eins og áður og aukið út um 1 lykkju á eftir og á undan hverju A.2 (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón, kant að framan og mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón, kant að framan og mynstur eins og áður og aukið út um 1 lykkju á undan 1. mynstureiningu af A.2, á eftir 2. mynstureiningu af A.2, á undan 3. mynstureiningu af A.2 og á eftir 4. mynstureiningu af A.2, þ.e.a.s. einungis er aukið út á framstykkjum og bakstykki, ekki er aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón, kant að framan og mynstur eins og áður, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 10-11-11-9-11-13 sinnum (= 40-44-44-36-44-52 prjónaðar umferðir). Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, það hefur verið aukið út alls 26-29-31-31-34-36 sinnum á framstykkjum og bakstykki og 16-18-20-22-23-23 sinnum á ermum = 302-322-342-374-398-414 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 22-24-26-26-28-30 cm frá merki mitt að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 55-58-61-66-71-75 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-62-64-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi), prjónið 96-102-108-118-128-136 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 48-52-56-62-64-64 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið mitt undir ermi) og prjónið síðustu 55-58-61-66-71-75 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 226-238-254-278-302-322 lykkjur. Prjónið sléttprjón, kant að framan og A.2 eins og áður þar til stykkið mælist 48-50-51-52-53-55 cm frá merki mitt að framan. Prjónið 1 umferð frá röngu þar sem lykkjum er aukið út jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og aukið út þannig: Aukið út 7-4-5-8-7-7 lykkjur á hvoru framstykki (á milli kants að framan og A.2) og aukið út 0-0-2-0-2-0 lykkjur jafnt yfir í hvorri hlið (á milli hverra A.2 í hvorri hlið) og aukið út um 12-10-12-14-16-16 lykkjur jafnt yfir á bakstykki (á milli hverra A.2 á bakstykki) = 252-256-280-308-336-352 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá réttu: 7 kantlykkjur að framan eins og áður, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2, 2 lykkjur slétt, prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 8-8-12-12-16-16 lykkjur, 2 lykkjur slétt, prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan A.2, 2 lykkjur slétt, prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* yfir næstu 8-8-12-12-16-16 lykkjur, 2 lykkjur slétt, prjónið A.3 yfir lykkjur í A.2, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir á undan kanti að framan, 2 lykkjur slétt, 7 kantlykkjur að framan eins og áður = 256-260-284-312-340-356 lykkjur. Prjónið stroff þannig í 4-4-5-5-6-6 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist 52-54-56-57-59-61 cm frá merki mitt að framan og ca 56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 48-52-56-62-64-64 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-14-16-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi = 58-62-68-76-80-82 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 10-10-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – byrjun umferðar er við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur alls 1-1-2-4-6-6 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 2½-2½-2-1½-1-1 cm alls 4-5-6-7-6-6 sinnum = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-39-37-38-35-33 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 8-10-8-10-8-10 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-60-60-64-64-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-5-5-6-6 cm fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 44-43-42-43-41-39 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. Saumið saman op mitt framan í kanti að framan með smáu spori. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #seafeathercardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 36 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 254-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.