Brenda Arriaga skrifaði:
Es necesario el aumento antes del resorte? Lo que pasa es que el resorte se levanta y no queda apretado.
22.11.2024 - 06:22DROPS Design svaraði:
Hola Brenda, se trabaja un aumento antes del elástico porque el elástico se trabaja más tenso que el punto jersey. Para que el borde inferior quede recto y no se contraiga, es necesario aumentar unos puntos. Así, con la diferencia de tensión entre el elástico y el punto jersey, los puntos aumentados permitirán que el borde inferior tenga la misma anchura que el resto del cuerpo, en vez de estrecharse. Si se levanta y no queda apretado entonces la tensión no es correcta; necesitas usar una aguja más pequeña para el borde.
24.11.2024 - 18:59
Frances Kitching skrifaði:
Fdkd
31.10.2024 - 15:37
Joanna skrifaði:
Super rozpisany wzór.Reglan robiłam poraz pierwszy w życiu i nie miałam żadnych problemów.Jedyny kłopot to rozciągniete oczka przy wrabianiu rękawów ,pod pachą.Ale myślę,że to mój brak wprawy.Polecam.
09.04.2024 - 00:34
Isabel Trocado skrifaði:
Gostei muito do modelo e da mistura dos fios
28.03.2024 - 01:39
Strawberry Sprinkle#strawberrysprinklesweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr tveimur þráðum DROPS Flora eða tveimur þráðum DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu. Stærð 2 – 12 ára.
DROPS Children 48-5 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjum sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma, merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig: Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Lyftið uppslættinum á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið til baka yfir á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn, prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það á ekki að myndast gat. Síðan eru útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-80-88-88-96-96 lykkjur á stuttan hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorum lit í DROPS Flora eða 1 þræði í hvorum lit í DROPS Alpaca. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Stykkið er síðan mælt héðan! Prjónið berustykki eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Nú eru sett 4 merkiþræði í stykkið eins og útskýrt er að neðan. ATH: Hver merkiþráður er settur á milli 2 lykkjur slétt og merkiþræðirnir merkja laskalínurnar. Prjónið slétt yfir fyrstu 9-9-11-11-11-11 lykkjur (ca hálft bakstykki), setjið 1. merkiþráð á undan næstu lykkju, prjónið slétt yfir næstu 20-20-20-20-24-24 lykkjur (ermi), setjið 2. merkiþráð á undan næstu lykkju, prjónið slétt yfir næstu 20-20-24-24-24-24 lykkjur (framstykki), setjið 3. merkiþráð á undan næstu lykkju, prjónið slétt yfir næstu 20-20-20-20-20-24-24 lykkjur (ermi), setjið 4. merkiþráð á undan næstu lykkju, prjónið slétt yfir þær 11-11-13-13-13-13 lykkjur sem eftir eru (ca hálft bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 merkiþræðina – lesið útskýring að ofan, í annarri hverri umferð alls 4-7-2-5-1-1 sinnum = 112-136-104-128-104-104 lykkjur. Haldið áfram með útaukningu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki/bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. það er aukið út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 10-8-14-12-16-18 sinnum á framstykki/bakstykki (5-4-7-6-8-9 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 14-15-16-17-17-19 sinnum á framstykki/bakstykki og 9-11-9-11-9-10 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 172-184-188-200-200-212 lykkjur í umferð (48-50-56-58-58-62 lykkjur á milli lykkju með prjónamerki á framstykki/bakstykki og 38-42-38-42-42-44 lykkjur á milli lykkju með prjónamerki á ermum) og stykkið mælist ca 13-14-15-15-15-17 cm eftir stroff mitt að framan. Prjónið e.t.v. sléttprjón núna án útaukninga þar til stykkið mælist 13-14-15-16-16-18 cm. Berustykkið skiptist núna fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 25-27-28-30-30-32 lykkjur sléttprjón (ca hálft bakstykki), setjið næstu 34-36-36-38-38-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 52-56-58-62-62-66 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 34-36-36-38-38-40 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið sléttprjón yfir síðustu 27-29-30-32-32-34 lykkjurnar (ca hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 120-128-136-144-148-156 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 16-19-22-25-28-29 cm frá skiptingunni, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-24-24-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 140-152-160-168-176-184 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 37-41-45-49-53-56 cm frá öxl. ERMI: Setjið 34-36-36-38-38-40 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5. Prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-10-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 42-44-46-48-50-52 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – mitt í 8-8-10-10-12-12 nýju lykkjurnar. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 3-3-3-4-4-4 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3½.-4½.-5½.-5.-6.-6½. Hverjum cm alls 4-4-4-5-5-5 sinnum = 34-36-38-38-40-42 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 17-22-25-29-33-36 cm frá skiptingunni. Nú eru eftir ca 3 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 6-4-6-6-8-6 lykkjur jafnt yfir = 40-40-44-44-48-48 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 20-25-28-32-36-39 cm frá skiptingunni. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #strawberrysprinklesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 48-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.