Bright Strawberry Cardigan#brightstrawberrycardigan |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og áferðamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 250-20 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kant að framan þannig: Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan og fellt er af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir í umferð og þessar lykkjur eru prjónaðar þannig: UMFERÐ 1 (= rétta) : Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroffið í hálsmáli hefur verið prjónað til loka. Fellið síðan af fyrir 4-5-5-5-5-5 næstu hnappagötum með ca 10-8½-9-9-9½-10 cm millibili. Neðsta hnappagatið á að vera ca í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið 2 lykkjur í umferð með því að fækka lykkjum hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, prjónað er ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptast lykkjurnar fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Eftir fram- og bakstykki eru ermar prjónaðar niður á við í hring á hringprjóna / sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 103-107-111-115-119-123 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Air. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Nú er prjónað stroff þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 7 lykkjur KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt / 1 lykkja brugðið) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin slétt og prjónið 7 lykkjur KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 7 lykkjur KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroff (1 lykkja snúin brugðið / 1 lykkja slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og prjónið 7 lykkjur KANTUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD. Endurtakið umferð 1 og 2 þar til kantur í hálsmáli mælist 4-4-4-5-5-5 cm, endið með eina umferð frá röngu. Setjið 1 merki mitt að aftan, berustykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður, jafnframt því sem í fyrstu umferð er aukið út um 12-16-16-16-16-16 lykkjur jafnt yfir = 115-123-127-131-135-139 lykkjur. Þegar stykkið mælist 2-2-3-3-3-3 cm frá merki er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið umferð 1 í A.1 alls 25-27-28-29-30-31 sinnum þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan (= 50-54-56-58-60-62 lykkjur fleiri) = 165-177-183-189-195-201 lykkjur. Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið umferð 2 í A.1 og fækkið jafnframt um 4-2-1-0-1-2 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan – fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman) og endið með 7 kantlykkjur að framan = 161-175-182-189-194-199 lykkjur. Prjónið sléttprjón (með kanti að framan eins og áður) þar til stykkið mælist 7-7-8-8-9-9 cm frá merki. Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið umferð 1 i A.2 (alls 21-23-24-29-36-37 sinnum) þar til eftir eru 7-7-7-8-7-7 lykkjur í umferð, prjónið 0-0-0-1-0-0 lykkjur sléttprjón og 7 kantlykkjur að framan (= 42-46-48-58-72-74 lykkjur fleiri) = 203-221-230-247-266-273 lykkjur. Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið umferð 3 í A.2 og fækkið um 0-0-0-4-0-0 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan – fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman) og endið með 7 kantlykkjur að framan = 203-221-230-243-266-273 lykkjur. Prjónið sléttprjón (með kanti að framan eins og áður) þar til stykkið mælist 13-14-14-16-16-17 cm frá merki. Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið umferð 1 í A.3 (alls 21-23-24-38-36-43 sinnum) þar til eftir eru 7-7-7-8-7-8 lykkjur, prjónið 0-0-0-1-0-1 lykkju í sléttprjóni og 7 kantlykkjur að framan (= 42-46-48-76-72-86 lykkjur fleiri) = 245-267-278-319-338-359 lykkjur. Prjónið 7 kantlykkjur að framan, prjónið umferð 3 í A.3 og jafnið lykkjufjöldann út þannig að það eru = 246-270-286-320-336-356 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón (með kanti að framan eins og áður) þar til stykkið mælist 20-22-23-24-26-28 cm frá merki. Nú skiptist stykkið eins og útskýrt er að neðan. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Prjónið fyrstu 41-45-47-51-55-59 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi), prjónið 68-76-80-90-98-106 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 48-52-56-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (= í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 41-45-47-51-55-59 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-178-190-208-228-248 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón (með kanti að framan eins og áður) þar til stykkið mælist 21-21-22-21-21-21 cm frá skiptingunni. Prjónið 1 umferð frá réttu, aukið út 19-19-21-23-25-27 lykkjur jafnt yfir (lykkjum er ekki aukið út yfir kanta að framan) = 181-197-211-231-253-275 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff þannig: UMFERÐ 1 (ranga): 7 kantlykkjur að framan, prjónið stroff (= 1 lykkja snúin brugðið, 1 lykkja slétt), prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju snúin brugðið og 7 kantlykkjur að framan. UMFERÐ 3 (rétta): 7 kantlykkjur að framan, * 1 lykkja snúin slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, 1 lykkja snúin slétt og 7 kantlykkjur að framan. Prjónið eins og umferð 1 og 2 þar til stroffið mælist 6-6-6-7-7-7 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 48-52-56-64-64-66 lykkjur frá þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna / hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 54-58-64-72-74-78 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur undir ermi (mitt undir ermi). Merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn mitt undir ermi, prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT þegar ermin mælist 3 cm frá skiptingunni, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 2½-2½-2-1-1-1 cm alls 5-5-6-10-10-11 sinnum = 44-48-52-52-54-56 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til ermin mælist 32-31-30-30-28-26 cm frá skiptingunni, nú eru eftir ca 9-9-9-10-10-10 cm að loka máli. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4, prjónið stroff (= 1 lykkja snúin slétt / 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 6-6-6-8-8-8 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 50-54-58-60-62-64 lykkjur. Þegar stroffið mælist 9-9-9-10-10-10 cm, fellið af. Ermin mælist ca 41-40-40-40-38-36 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #brightstrawberrycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 250-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.