Sommervind#sommervindsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Alpaca og DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, tvöföldum kanti í hálsmáli, gatamynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 248-15 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚRTAKA (á við um ermar): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu eru notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið með þá lengd sem passar og skiptið eftir þörf. Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring frá skiptingunni á milli bakstykkis og hægri ermi, ofan frá og niður. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, er lykkjum skipt fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Fram- og bakstykki skiptist fyrir klauf og síðan er prjónað fram og til baka hvort stykki fyrir sig. Ermar eru síðan prjónaðar niður á við í hring. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-88-96-100-104 lykkjur á prjóna 5,5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Skiptið yfir á prjón 4,5 (fitjað er upp á grófari prjóna þannig að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 13 cm. Síðar á að brjóta kant í hálsmáli tvöfalt og við frágang þá verður kantur í hálsmáli ca 6 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á prjón 5,5 og prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 16-16-16-20-20-20 lykkjur jafnt yfir = 68-72-72-76-80-84 lykkjur. Setjið 1 merki hér, berustykkið er mælt frá þessu merki. Setjið 4 merkiþræði í stykkið án þess að prjóna þannig: Setjið einn merkiþráð í byrjun á umferð, teljið 10 lykkjur (ermi), setjið 1 merkiþráð, teljið 24-26-26-28-30-32 lykkjur (framstykki), setjið 1 merkiþráð, teljið 10 lykkjur (ermi), setið 1 merkiþráð, það eru 24-26-26-28-30-32 lykkjur á eftir síðasta merkiþræði (bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Nú er mynstrið prjónað og aukið er út fyrir laskalínu, útaukning fyrir laskalínu er teiknuð inn í mynsturteikningu. Fyrsta umferðin er prjónuð þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt, A.1, A.2 yfir næstu 4 lykkjur, A.3, 2 lykkjur slétt (merkið situr á milli þessa 2 lykkja), A.1, A.2 yfir næstu 18-20-20-22-24-26 lykkjur, A.3, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Haldið áfram að prjóna og auka út eins og útskýrt er í mynsturteikningu í 2. hverri umferð. Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka hefur verið aukið út alls 12 sinnum fyrir laskalínu = 164-168-168-172-176-180 lykkjur. Nú er prjónað mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ S og M: Haldið áfram með gatamynstur eins og áður og aukið út þannig: Aukið út í annarri hverri umferð 2-2 sinnum til viðbótar = 180-184 lykkjur. Það hefur verið aukið út fyrir laskalínu 14-14 sinnum. Aukið svona út í 4. hverri umferð 3-4 sinnum. Það hefur verið aukið út fyrir laskalínu alls 17-18 sinnum = 204-216 lykkjur. STÆRÐ L: Haldið áfram með gatamynstur eins og áður og aukið út þannig: Aukið út í annarri hverri umferð 4 sinnum til viðbótar = 200 lykkjur. Það hefur verið aukið út 16 sinnum fyrir laskalínu. Aukið út í 4. hverri umferð 5 sinnum. Það hefur verið aukið út fyrir laskalínu alls 21 sinni = 240 lykkjur. STÆRÐ XL, XXL og XXXL: Haldið áfram með gatamynstur eins og áður og aukið út þannig: Aukið svona út í annarri hverri umferð 6-8-10 sinnum til viðbótar = 220-240-260 lykkjur. Það hefur verið aukið út 18-20-22 sinnum fyrir laskalínu. Aukið svona út í 4. hverri umferð 3-1-0 sinnum = 244-248-260 lykkjur. Nú er útaukningu lokið á ermum. Aukið út í 4. hverri umferð á framstykki og bakstykki 2-4-4 sinnum til viðbótar (4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Það hefur verið aukið út alls 23-25-26 sinnum fyrir laskalínu fyrir framstykki og bakstykki og alls 21-21-22 sinnum fyrir ermar = 252-264-276 lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: =204-216-240-252-264-276 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-22-24-26-28-30 cm frá merki – passið uppá að næsta umferð sem á að prjóna sé ekki umferð með gataumferð. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 44-46-52-52-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 58-62-68-74-80-84 lykkjur (framstykki), setjið næstu 44-46-52-52-52-54 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-6-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 58-62-68-74-80-84 lykkjur (bakstykki). Prjónið síðan fram- og bakstykki og ermar hvert fyrir sig og stykkið er mælt héðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 128-136-148-160-180-188 lykkjur. Setjið einn merkiþráð mitt í 6-6-6-6-10-10 nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum í hvorri hlið (3-3-3-3-5-5 nýjar lykkjur hvoru megin við merkiþráðinn). Færið byrjun á umferð þannig að hún byrjar 1 lykkju á eftir merkiþræði í annarri hliðinni (þ.e.a.s. á milli 4-4-4-4-6-6 og 5-5-5-5-7-7 lykkju sem fitjaðar voru upp í hliðinni, þetta verður til þess að mynstrið á fram- og bakstykki passar yfir mynstrið á berustykki). Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu, þeir eru notaðir þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf. Haldið áfram hringinn með mynstri A.2 – passið uppá að mynstrið haldi áfram eins og á berustykki. Prjónið þar til stykkið mælist ca 17 cm frá skiptingunni í öllum stærðum. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd (nú eru eftir ca 15 cm með klauf í hvorri hlið að loka máli). Nú eru prjónaðar 10 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, í hvorri hlið (þ.e.a.s. 5 lykkjur hvoru megin við hvorn merkiþráð). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir garðaprjón yfir 10 lykkjur í hvorri hlið, skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki við merkiþræðina og stykkið er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 64-68-74-80-90-94 lykkjur. Prjónið fram og til baka með 5 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið og mynstur eins og áður. Þegar framstykkið mælist 22 cm – stillið af að það séu minnst 2 umferðir sléttprjón á eftir síðustu gataumferð, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, slétt yfir næstu 54-58-64-70-80-84 lykkjur og aukið jafnframt út 44-44-50-56-62-66 lykkjur jafnt yfir og prjónið 5 lykkjur garðaprjón = 108-112-124-136-152-160 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðið með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Nú er prjónað stroff eins og áður (fyrsta umferð er frá réttu): Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 10 cm. Fellið af – notið prjón 5,5 fyrir affellingu. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. BAKSTYKKI: Prjónið bakstykki á sama hátt og framstykki. ERMAR: Setjið 44-46-52-52-52-54 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á hringprjón / sokkaprjóna 5,5. Prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-6-10-10 nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 50-52-58-58-62-64 lykkjur. Setjið 1 merki þráð mitt í nýjar lykkjur. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með, hann er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferð hér og prjónið mynstur hringinn þannig: 1 lykkja slétt, A.2 heldur áfram eins og áður yfir næstu 48-50-56-56-60-62 lykkjur og endið með 1 lykkju slétt. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í ca hverjum 5-4-3-3-2½-2 cm alls 6-6-8-8-9-10 sinnum = 38-40-42-42-44-44 lykkjur. Lykkjur sem ekki ganga upp í mynstri eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 35-33-32-31-29-27 cm frá skiptingu – stillið af að það séu minnst 2 umferðir sléttprjón á eftir síðustu gataumferð. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-20-22-22-24-24 lykkjur jafnt yfir = 56-60-64-64-68-68 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) þar til stroffið mælist 10 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 45-43-42-41-39-37 cm frá skiptingu. FRÁGANGUR: Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sommervindsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 248-15
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.