DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mint to Be Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Air. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með gatamynstri, , perluprjóni, skáhallandi öxl, sjalkraga og ísaumuðum ermum. Stærð S - XXXL.

DROPS 249-17
DROPS Design: Mynstur ai-473
Garnflokkur C eða A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
350-400-400-450-500-550 g litur 42, pistasíuís

DROPS TALA NR 522: 3-3-3-4-4-4 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 24 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9548.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman, sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 9, 19 og 29 cm.
M: 10, 20 og 30 cm.
L: 11, 21 og 31 cm.
XL: 9, 18, 27 og 36 cm.
XXL: 10, 19, 28 og 37 cm.
XXXL: 11, 20, 29 og 38 cm.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING (á við um ermar):
Byrjið 1 lykkju á undan merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf.
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að framan, neðan frá og upp að handvegi. Síðan skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki og hvort stykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig.
Ermar eru prjónaðar neðan frá og upp og prjónað er í hring fram að handvegi, síðan er ermin prjónuð til loka fram og til baka. Stykkin eru saumuð saman.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 236-260-278-296-320-350 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Air.
Prjónið stroff frá réttu þannig:
7 kantlykkjur að framan í PERLUPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, A.1, A.2, prjónið A.3 þar til 19 lykkjur eru eftir, A.2, A.1 og 7 kantlykkjur að framan í perluprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina (stroffið á nú að vera ca 6 cm).
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið síðan mynstur þannig:
7 kantlykkjur í perluprjóni, A.1, A.2, prjónið A.4 yfir næstu 198-222-240-258-282-312 lykkjur jafnframt því sem í fyrstu umferð er fækkað um 38-46-48-50-58-64 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (það eru eftir 19 lykkjur í umferð), A.2, A.1 og 7 kantlykkjur að framan í perluprjóni = 198-214-230-246-262-286 lykkjur.
Haldið svona áfram með mynstur, fækkið lykkjum fyrir HNAPPAGAT – lesið útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist ca 33-34-35-36-37-38 cm skiptist stykkið fyrir handveg eins og útskýrt er að neðan.

SKIPTING FYRIR HANDVEG:
Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir framstykki og bakstykki þannig:
Prjónið 7 kantlykkjur að framan í perluprjóni, A.1, A.2, A.4 yfir næstu 32-32-36-36-40-44 lykkjum og prjónið 1 lykkju sléttprjón (hægra framstykki), fellið af næstu 2-10-10-18-18-22 lykkjur fyrir handveg, prjónið 1 lykkju sléttprjón, A.4 yfir næstu 88-88-96-96-104-112 lykkjur og prjónið 1 lykkju sléttprjón (bakstykki), fellið af næstu 2-10-10-18-18-22 lykkjur fyrir handveg, prjónið 1 lykkju sléttprjón, A.4 yfir næstu 32-32-36-36-40-44 lykkjur, A.2, A.1 og prjónið 7 kantlykkjur að framan í perluprjóni (vinstra framstykki). Hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 52-52-56-56-60-64 lykkjur.
Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 lykkju í sléttprjóni við handveg. Þegar A.4 hefur verið prjónað alls 4 sinnum á hæðina er prjónað sléttprjón yfir lykkjur í A.4 að loka máli, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá skiptingu, fellið af fyrir skáhallandi öxl. Fellið af 8-8-9-9-10-11 lykkjur í hverri umferð frá handvegi alls 3 sinnum og 11-11-11-11-10-11 lykkjur 1 sinni, á eftir síðustu affellingu eru 17-17-18-18-20-20 lykkjur á prjóni við hálsmál. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm mælt frá innst við hálsmál og niður. Prjónið kant að framan og mynstur A.1 og A.2 eins og áður yfir þessar lykkjur, jafnframt því sem prjónaðar eru stuttar umferðir þannig:

UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið yfir fyrstu 7 lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið yfir 7 lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur.
Prjónið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 9-9-10-10-11-11 cm þar sem stykkið er styst. Prjónið 2 umferðir GARÐAPRJÓN yfir allar lykkjur – lesið útskýringu að ofan. Fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 52-52-56-56-60-64 lykkjur. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu, haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 lykkju sléttprjón við handveg. Þegar A.4 hefur verið prjónað alls 4 sinnum á hæðina, prjónið sléttprjón yfir lykkjur í A.4 að loka máli, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá skiptingunni, fellið af fyrir skáhallandi öxl. Fellið af 8-8-9-9-10-11 lykkjur í hverri umferð frá handvegi alls 3 sinnum og 11-11-11-11-10-11 lykkjur 1 sinni, eftir síðustu affellingu eru 17-17-18-18-20-20 lykkjur á prjóni við hálsmál. Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm mælt innst við hálsmál og niður.
Prjónið kant að framan og mynstur A.1 og A.2 eins og áður yfir þessar lykkjur, jafnframt því sem prjónaðar eru stuttar umferðir þannig:

UMFERÐ 1 (ranga): Prjónið yfir allar lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 2 (rétta): Prjónið yfir fyrstu 7 lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 3 (ranga): Prjónið yfir 7 lykkjur, snúið og herðið á þræði.
UMFERÐ 4 (rétta): Prjónið yfir allar lykkjur.
Prjónið umferð 1 til 4 þar til sjalkraginn mælist ca 9-9-10-10-11-11 cm þar sem stykkið er styst. Prjónið 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af.

BAKSTYKKI:
= 90-90-98-98-106-114 lykkjur.
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu. Prjónið mynstur eins og áður með 1 lykkju sléttprjón í hvorri hlið.
Lestu allan kaflann áður en prjónað er áfram!
Þegar A.4 hefur verið prjónað alls 4 sinnum á hæðina, prjónið sléttprjón yfir allar lykkjur í A.4 að loka máli, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-18-19-20-21-22 cm frá skiptingu, fellið af miðju 18-18-20-20-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli (36-36-39-39-41-45 lykkjur á hvorri öxl) og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig.
Fellið af 1 lykkju fyrir hálsmáli í næstu umferð frá hálsmáli = 35-35-38-38-40-44 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm frá skiptingunni, fellið af fyrir skáhallandi öxl í hvorri hlið þannig: Fellið af 8-8-9-9-10-11 lykkjur í hvorri hlið alls 3 sinnum og fellið síðan af allar lykkjur.
Stykkið mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm mælt frá innst við hálsmál og niður. Endurtakið á hinni öxlinni.

ERMAR:
Fitjið 66-66-72-78-78 lykkjur á hringprjón 3,5. Prjónið A.3 hringinn. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, endurtakið mynstur þar til stykkið mælist ca 8-8-9-9-10-10 cm (endið eftir 1 umferð sléttprjón í mynstri). Setjið einn merkiþráð í byrjun umferðar og látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, merkiþráðurinn er notaður þegar auka á út mitt undir ermi. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5. Prjónið síðan í sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 18-16-20-18-22-20 lykkjur jafnt yfir = 48-50-52-54-56-58 lykkjur. Þegar stykkið mælist 12 cm, aukið út 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverjum 4½-4-3-2½-2½-2 cm alls 8-9-10-11-12-12 sinnum = 64-68-72-76-80-82 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 46-45-44-43-42-39 cm. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka frá merkiþræði mitt undir ermi, þar til ermin mælist 47-48-47-48-47-46 cm, þ.e.a.s. það er klauf 1-3-3-5-5-7 cm efst á erminni. Fellið af.

FÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið sjalkraga mitt að aftan og saumið við hálsmál aftan í hnakka. Saumið ermar við fram- og bakstykki efst, klauf efst á ermi er saumuð við neðsta hluta í handvegi – sjá teikningu. Saumið saman kanta að framan meðfram affellingarkanti og saumið síðan hlið á kanti að framan við hálsmál.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 11.03.2024
Uppskriftin hefur verið uppfærð. Leiðrétting á ermi í stærð M.
Yfirfarið á vefsvæði: 05.04.2024
Uppskriftin hefur verið yfirfarin og uppfærð. Leiðrétting á hægri og vinstri öxl.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður í sléttprjóni (það á að myndast gat)
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 249-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (5)

country flag Robazza Martine wrote:

Bonjour, Je fais une taille 50-52. Quelle taille dois je choisir xl, xxl ou xxxl ? Bien cordialement

27.03.2024 - 11:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Robazza, pour trouver votre taille, mesurez un vêtement similaire que vous avez et dont vous aimez la forme et comparez ces mesures à celles du schéma; retrouvez plus d'infos ici. Bon tricot!

02.04.2024 - 11:33

country flag Ingeborg wrote:

Goedemorgen Drops, Een klant van ons heeft twee foutjes ontdekt in dit patroon, zou dit aangepast kunnen worden? Alvast bedankt! Het gaat om de volgende dingen: bij het opzetten van steken voor de mouwen, is er een maat vergeten. Daarnaast komt de berekening niet uit bij het afkanten voor de schouders, waar je (voor maat XL) uit moet komen op 17 steken, kom je uit op 29 steken.

22.03.2024 - 11:32

DROPS Design answered:

Dag Ingeborg,

Het aantal steken voor het opzetten is inmiddels aangepast; het andere zal ik even door geven aan de ontwerpafdeling, want dat lijkt inderdaad niet te kloppen.

24.03.2024 - 19:40

country flag Yan wrote:

I have the same question as below. For the front piece, how come it has 17 stitches left after casting off 8 stitches for 3 times (52-8*3 =28 but 17?) Thanks!

14.03.2024 - 05:08

DROPS Design answered:

Dear Yan, there seems to be a mistake in the pattern. We will send the correction to the design department. After casting off 24 stitches for the diagonal shoulders, cast off the 11 remaining stitches in the next row from the armhole, all in the same row. Now you should have 17 stitches for the neck. Happy knitting!

17.03.2024 - 21:16

country flag Kjersti wrote:

Skal gjøre ferdig venstre forstykke. Skjønner ikke hvordan 52 minus 24 (8*3) blir 17

10.03.2024 - 13:07

DROPS Design answered:

Hei Kjersti. Oppskriften er oversendt Design avd. slik at de kan ta en dobbeltsjekk evnt. komme med en rettelse. mvh DROPS Design

19.03.2024 - 09:31

country flag Maryam wrote:

I like the details along side the band. Beautiful design.

26.02.2024 - 19:52