Anna skrifaði:
Vilka raglan-maskor räknas som ärmar, dvs de som ska ökas vid varannan ökning på vart fjärde varv? Tack på förhand! Med vänlig hälsning, Anna
17.01.2025 - 23:04DROPS Design svaraði:
Hei Anna. Du har satt 4 merker i arbeidet. Masken etter 1. merke og masken før 2. merke tilhører det ene ermet, mens masken etter 3. merke og masken før 4. merke tilhører det andre ermet. mvh DROPS Design
20.01.2025 - 11:00
Nette skrifaði:
Hej, jag har lagt upp halskantens 80 maskor (storlek M) och stickat resåret. Hur skall jag nu minskar 24 maskor jämt fördelat? Med vänliga hälsningar Nette
11.01.2025 - 19:19DROPS Design svaraði:
Hej, du strikker 2. og 3. maske sammen 24 gange :)
14.01.2025 - 14:04
Sara skrifaði:
Hej, Vad är garnåtgången för detta mönster? Hur många nystan/gram behövs för vardera storlek? Med vänlig hälsning, Sara
08.01.2024 - 09:59DROPS Design svaraði:
Hei Sara. Øverst i oppskriften, ved bildet vil du finne denne informasjonen. mvh DROPS Design
08.01.2024 - 13:20
Autumn Amber Sweater#autumnambersweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og hálum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 244-25 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 lykkju á undan / eftir 4 lykkjum með prjónamerki í. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður frá röngu á undan og á eftir lykkju með prjónamerki þannig: Á UNDAN lykkju með prjónamerki: Prjónið uppsláttinn snúinn brugðið, svo ekki myndist gat. Á EFTIR lykkju með prjónamerki: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, stingið inn vinstri prjónið í lykkjuna og setjið til baka yfir á vinstri prjón (uppslátturinn er snúinn), prjónið uppsláttinn brugðið. Það á ekki að myndast gat. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um mitt undir ermum): Á UNDAN merkiþræði: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, merkiþráður (1 lykkja færri). Á EFTIR merkiþræði: 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er prjónaður kantur í hálsmáli í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Síðan er prjónað hálsmál með stuttum umferðum fram og til baka á hringprjóna. Þegar hálsmálið hefur verið prjónað til loka, er afgangur af berustykki prjónað í hring á hringprjóna. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 80-80-84-88-92-92 lykkjur á stuttan hringprjón 6 með DROPS Snow. Prjónið stroffprjón þannig: 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, 1 lykkju slétt. Haldið svona áfram með stroff í 10-10-11-11-12-12 cm. Prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 24-24-24-28-28-28 lykkjur jafnt yfir = 56-56-60-60-64-64 lykkjur. Setjið 4 prjónamerki í stykkið eins og útskýrt er að neðan (þetta er gert án þess að prjóna umferðina). Prjónamerkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Teljið 7-7-8-8-9-9 lykkjur (hálft bakstykki), setjið 1. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (ermi), setjið 2. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 14-14-16-16-18-18 lykkjur (framstykki), setjið 3. prjónamerki í næstu lykkju, teljið 12 lykkjur (ermi), setjið 4. prjónamerki í næstu lykkju. Það eru 7-7-8-8-9-9 lykkjur eftir í umferð (hálft bakstykki). Klippið þráðinn. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjón 9. Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! UMFERÐ 1 (rétta): Byrjið 2 lykkjum á undan lykkju með 3. prjónamerki (þ.e.a.s. í vinstri hlið á hálsmáli að framan séð þegar flíkin er mátuð). Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4. prjónamerkin – lesið útskýringu að ofan, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá lykkju með 2. prjónamerki (hægri hlið í hálsmáli = 8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu). Snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina), þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem stuttar umferðir byrjuðu við 3. prjónamerki. Snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við 2. prjónamerki (= 8 lykkjur fleiri). Snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í síðasta skipti við 3. prjónamerki. Snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin, þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í síðasta skipti við 2. prjónamerki. Snúið stykkinu og herðið á þræði. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í síðasta skipti við 3. prjónamerki. Klippið þráðinn. Stuttar umferðir hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 3 sinnum fyrir laskalínu hvoru megin við 4 prjónamerkin. Síðan er berustykkið prjónað eins og útskýrt er að neðan. BERUSTYKKI: = 80-80-84-84-88-88 lykkjur. Byrjið mitt að aftan og prjónið sléttprjón hringinn. JAFNFRAMT heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu, mismunandi eftir stærðum eins og útskýrt er að neðan: STÆRÐ S, M, L og XXXL: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipt sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki / bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptis um 4 og 8 lykkjur). Aukið svona út 10-12-14-18 sinnum á framstykki / bakstykki og 5-6-7-9 sinnum á ermum = 140-152-168-196 lykkjur. Útaukning fyrir ermar er nú lokið. Haldið áfram með útaukningu á framstykki / bakstykki 2-2-0-1 sinnum til viðbótar = 148-160-168-200 lykkjur. Útaukningu fyrir framstykki / bakstykki er nú lokið. STÆRÐ XL og XXL: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 4 lykkjur með prjónamerki í annarri hverri umferð 2-1 sinnum = 100-96 lykkjur. Síðan heldur útaukningin áfram á sama hátt, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki / bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. Hverri umferð (aukið er út til skiptis um 4 og 8 lykkjur). Aukið svona út 14-16 sinnum á framstykki / bakstykki og 7-8 sinnum á ermum = 184-192 lykkjur. Útaukningu fyrir framstykki / bakstykki og ermar er nú lokið. ALLAR STÆRÐIR: = 148-160-168-184-192-200 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 21-24-24-27-29-31 cm, mælt á eftir stroffi mitt að aftan. Ef stykkið mælist minna en þetta, prjónið áfram án útaukninga að réttu máli. Berustykkið skiptist nú fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 23-25-26-28-30-32 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 28-30-32-36-36-36 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 46-50-52-56-60-64 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 28-30-32-36-36-36 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 23-25-26-28-30-32 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 104-112-120-128-140-152 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 22-21-23-22-22-22 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 32-32-36-40-44-44 lykkjur jafnt yfir – lesið ÚTAUKNING = 136-144-156-168-184-196 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl. ERMI: Setjið 28-30-32-36-36-36 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 9. Prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 34-36-40-44-46-48 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi – mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4-4-4-2-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju á undan merkiþræði – lesið ÚRTAKA. Þegar stykkið mælist 9-9-7½-4½-5-5 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju á eftir merkiþræði – munið eftir ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona til skiptis á undan og á eftir merkiþræði með 5-5-3½-2½-2-2 cm millibili alls 6-6-8-12-12-12 sinnum (3-3-4-6-6-6 sinnum á undan merkiþræði og 3-3-4-6-6-6 sinnum á eftir merkiþræði) = 28-30-32-32-34-36 lykkjur. Þegar ermin mælist 35-33-33-31-29-28 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 16-18-20-20-18-20 lykkjur jafnt yfir = 44-48-52-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 45-43-43-41-39-38 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnambersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 244-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.