Ginger Tea Top |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Flora og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, sléttprjóni og stuttum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 244-15 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA-1: Aukið út um 1 lykkju á undan/eftir 2 lykkjur sléttprjón í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður þannig: Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Lyftið uppslættinum á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið til baka yfir á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn, prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það á ekki að myndast gat. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það á ekki að myndast gat. Síðan eru útauknar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni. LASKALÍNA-2: Aukið út um 1 lykkju aukalega á undan/eftir merkiþræði á framstykki/bakstykki (ekki á ermum). Laskalína-1 er prjónuð sem viðbót við Laskalína-1. Þetta er gert þannig: Á UNDAN MERKIÞRÆÐI: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann, svo ekki myndist gat. Á EFTIR MERKIÞRÆÐI: Prjónið 3 lykkjur á eftir merkiþræði (hugsanlega uppsláttur frá útaukningu í sömu umferð er ekki talinn sem lykkja hér), notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja í umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð í aftari lykkjubogann, svo ekki myndist gat. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), 2 lykkjur slétt saman (2 lykkjur færri). GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Kantur í hálsmáli er prjónaður í hring á hringprjóna. Prjónuð er upphækkun fram og til baka á hringprjóna, síðan er berustykkið prjónað í hring á hringprjóna. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna niður að klauf, afgangur af fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 96-104-104-112-112-120 lykkjur á stuttan hringprjón 4,5 með 1 þræði DROPS Flora og 1 þræði DROPS Kid-Silk. Skiptið yfir á stuttan hringprjón 3,5 og prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð. BERUSTYKKI: Setjið 4 merkiþræði í stykkið án þess að prjóna (merkiþræðirnir eru settir á milli 2 lykkja) þannig: Teljið 13-13-13-17-17-17 lykkjur og setjið 1. merkiþráð á undan næstu lykkju (ca hálft bakstykki), teljið 24 lykkjur og setjið 2. merkiþráð á undan næstu lykkju (ermi), teljið 24-28-28-32-32-36 lykkjur og setjið 3. merkiþráð á undan næstu lykkju (framstykki), teljið 24 lykkjur og setjið 4. merkiþráð á undan næstu lykkju (ermi), það eru eftir 11-15-15-15-15-19 lykkjur fram að byrjun á umferð (afgangur af bakstykki). Nú á að prjóna upphækkun aftan í hnakka. Klippið þræðina, nú er prjónað áfram á undan 3. merkiþræði. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Byrjið frá réttu – 3 lykkjur á undan 3. merkiþræði. Nú er prjónað fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 3. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 4. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 2. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 lykkjur slétt. Það hafa verið auknar út 8 lykkjur = 104-112-112-120-120-128 lykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (ranga): * Prjónið brugðnar lykkjur fram að uppslætti (á undan merkiþræði), prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann, prjónið 2 lykkjur brugðið (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), lyftið næsta uppslætti af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Prjónið brugðnar lykkjur fram að næsta merkiþræði *, prjónið frá *-* 2 sinnum til viðbótar. Prjónið brugðnar lykkjur fram að uppslætti (á undan 3. merkiþræði), prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann, prjónið 2 lykkjur brugðið (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), lyftið næsta uppslætti af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, en í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Prjónið brugðnar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem fyrri umferð byrjaði. Snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 3. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 4. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 2. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem fyrri umferð byrjaði. Það hafa verið auknar út 8 lykkjur = 112-120-120-128-128-136 lykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið á sama hátt og í umferð 2. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 3. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 4. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 1. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan 2. merkiþræði, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráður situr á milli þessa lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið sléttar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fram hjá þar sem fyrri umferð byrjaði. Það hafa verið auknar út 8 lykkjur = 120-128-128-136-136-144 lykkjur. Snúið stykkinu. UMFERÐ 6 (ranga): Prjónið á sama hátt og í umferð 2. Upphækkun er lokið, klippið þræðina. LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM. Prjónið hringinn í sléttprjóni, byrjið umferð við prjónamerki í byrjun umferðar og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! ATH: Það á að auka út auka lykkjum á framstykki / bakstykki, aukið er út sem viðbót við laskalína-1 til laskalína-2 á framstykki / bakstykki með jöfnu millibili. Lestu LASKALÍNA-1 og LASKALÍNA-2 í útskýringu að ofan og byrjið báðar útaukningar í næstu umferð. Aukið út fyrir laskalína-1 hvoru megin við 4 merkiþræðina í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út 3-4-7-14-14-12 sinnum til viðbótar (aukið hefur verið út alls 6-7-10-17-17-15 sinnum með útaukningu í upphækkun). JAFNFRAMT er aukið út fyrir LASKALÍNA-2 á framstykki og bakstykki – lesið útskýringu að ofan (laskalína-2 er prjónuð sem viðbót við laskalína-1). Aukið út fyrir laskalína-2 í 6.-8.-8.-6.-4.-4. hverri umferð alls 6-5-6-8-10-11 sinnum. Haldið nú áfram með útaukningu fyrir laskalína-1 í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið nú einungis á framstykki/ bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 14-16-14-8-10-14 sinnum á framstykki/bakstykki (7-8-7-4-5-7 sinnum á ermum) – munið eftir laskalína-2. Eftir alla útaukningu fyrir laskalína-1 og laskalína-2 eru 252-276-292-328-348-368 lykkjur í umferð. Það hefur verið aukið út alls 13-15-17-21-22-22 sinnum á ermum og alls 26-28-30-33-37-40 sinnum á framstykki/bakstykki (20-23-24-25-27-29 sinnum fyrir laskalína-1 og 6-5-6-8-10-11 sinnum fyrir laskalína-2). Það eru 50-54-58-66-68-68 lykkjur á milli merkiþráða á ermum og 76-84-88-98-106-116 lykkjur á milli merkiþráða á framstykki/bakstykki). Prjónið án útaukningar þar til stykkið mælist ca 20-22-23-24-26-28 cm, mælt eftir stroffi mitt að aftan. Nú skiptis stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig (frá miðju að aftan), prjónið sléttar lykkjur að 1. merkiþræði (tilheyrir bakstykki) = 39-41-43-50-54-57 lykkjur, setjið næstu 50-54-58-66-68-68 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær (ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið sléttar lykkjur að 3. merkiþræði (framstykki) = 76-84-88-98-106-116 lykkjur, setjið næstu 50-54-58-66-68-68 lykkjur á þráð án þess að prjóna þær (ermi), fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið sléttar lykkjur að byrjun á umferð (afgangur á bakstykki). Nú er fram- og bakstykkið og ermar prjónað áfram hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 172-188-200-220-240-264 lykkjur. Setjið einn merkiþráð mitt í nýjar lykkjur í hvorri hlið og látið merkiþræðina fylgja með áfram niður stykkið (þeir eru notaðir til að merkja klauf). Byrjið umferð við annan merkiþráðinn og prjónið í hring í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 21-21-22-23-23-23 cm frá skiptingu á að gera klauf í hliðum. Setjið síðustu 86-94-100-110-120-132 lykkjur á þráð og prjónið yfir fyrstu 86-94-100-110-120-132 lykkjur þannig: Prjónið 4 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 12-12-14-12-18-14 lykkjur jafnt yfir næstu 78-86-92-102-112-124 lykkjur (aukið út með uppslætti sem prjónaður er snúinn í næstu umferð) og endið með 4 lykkjur í garðaprjóni = 98-106-114-122-138-146 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið og 4 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram fram og til baka með garðaprjóni yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 3 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Setjið til baka lykkjur sem settar voru á þráð á hringprjón 4,5 og prjónið á sama hátt. Stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 50-54-58-66-68-68 lykkjur af þræði í annarri hlið á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4,5. Prjónið upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi = 60-64-70-78-82-84 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í nýjar lykkjur og látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu (hann er notaður þegar fækka á lykkjum). Prjónið hringinn í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá skiptingu er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn – lesið ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2-2-2½-1½-1½-1 cm millibili alls 4-4-3-4-3-3 sinnum = 52-56-64-70-76-78 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 14-12-12-11-10-8 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 4-4-4-6-8-10 lykkjur jafnt yfir = 56-60-68-76-84-88 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – passið uppá að affellingin dragi ekki stykkið saman. Ermin mælist 17-15-15-14-13-11 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Festið þræðina og saumið nokkur spor efst í klauf þannig að hún haldist aðeins saman efst í skiptingunni. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (39)
Lotte wrote:
Helaas geen maat XS
03.10.2023 - 08:51Raisa wrote:
Hi! When will this pattern be published in Finnish?
15.09.2023 - 06:18DROPS Design answered:
Dear Raisa, this is a pattern from the new collection so there may be a slight delay when posting the patterns in some languages. It should be released soon. Happy knitting!
17.09.2023 - 20:53Anita LE GOFF BLANCO wrote:
Bonjour Pour la réhausse du col, on tricote en aller retour pendant 6 rangs et ensuite on reprend en circulaire le reste du pull Questions 1- on commence les diminutions des raglan pendant ces 6 premiers rangs? 2- si on a fait des aller retour et on reprend en circulaire ca va faire un trou sur une hauteur de 6 rangs? merci des mailles non cousues ensuite?
12.09.2023 - 12:03DROPS Design answered:
Bonjour Mme Legoff Blanco, tricotez les 6 rangs comme expliqué sous chaque rang dans le paragraphe ENCOLURE - cf aussi cette vidéo; vous pouvez utiliser la technique des rangs raccourcis pour éviter des trous aux transitions, sur l'endroit et sur l'envers. Je ne suis pas certaine de comprendre vos "mailles non cousues", pouvez-vous nous en dire plus? Merci!
12.09.2023 - 17:06Melanie wrote:
Hallo, ich liebe eure Anleitung und habe auch schon einige umgesetzt. Ich bin Anfängerin im Stricken und mir fällt es schwer zu beurteilen, welche Anleitungen einfacher oder schwieriger sind. Es wäre ein Traum, wenn ihr einen Hinweis ergänzen könntet. Wäre dieses Modell für einen Anfänger geeignet? Beste Grüße
11.09.2023 - 20:25Cande wrote:
Bonjour petite erreur il ml e semble: vous parlez de Flora dans les fournitures et quand vous donnez les explications pour l'empiécement vous parler de la laine Nord....
03.09.2023 - 23:00DROPS Design answered:
Bonjour Mme Cande et merci pour votre retour, la correction a été faite. Bon tricot!
04.09.2023 - 09:09Danielle Llorens wrote:
Douceur d'automne
06.08.2023 - 16:21Vinksvinks wrote:
Työpäivän pelastus
05.08.2023 - 05:47Conni Foged wrote:
Sweet tee
04.08.2023 - 16:03Véronique wrote:
J'aime aussi les modèles manches mi-longues en automne-hiver . Merci d'avoir proposé ce beau modèle .
04.08.2023 - 13:10Jeannine wrote:
High tee
04.08.2023 - 09:05