DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18260.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cinnamon Swirls

Prjónuð peysa úr DROPS Puna og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, köðlum, tvöföldum kanti í hálsmáli og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 245-20
DROPS Design: Mynstur pu-069
Garnflokkur B + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS PUNA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-600-650-700-750-850 g litur 17, nougat
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
150-150-175-175-200-225 g litur 42, mandla

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 2 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puna
DROPS Puna
100% Alpakka
frá 968.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 18260.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU:
Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI / 3 LYKKJUR:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI / 3 LYKKJUR:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU:
Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan snýr til vinstri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Nýja lykkjan snýr til hægri.
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan lykkju með prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt eða brugðið saman (eftir því hvað passar með mynstri, prjónið 1 klukkuprjónslykkju eins og áður (lykkja með prjónamerki í ), 2 lykkjur snúnar slétt eða snúnar brugðið saman.
Lykkjum er fækkað undir ermi, prjónið lykkjur síðan slétt eða brugðið eins og passar við A.1 – ef ekki eru nægilega margar lykkjur fyrir kaðal, þá eru þessar lykkjur prjónaðar slétt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Efsti hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niðurhandvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi.
Framstykki og bakstykki er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna niður að stroffi. Síðan skiptist stykkið fyrir klauf og framstykkið / bakstykkið er prjónað til loka fram og til baka hvort fyrir sig. Lykkjur eru prjónaðar í kringum hvorn handveginn. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.
Að lokum er prjónaður tvöfaldur kantur í hálsmáli í hring.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 28-28-32-32-36-36 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði í hvorri tegund (2 þræðir).
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjur í hverri umferð.
Lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU og prjónið þannig – frá réttu: Prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út til vinstri, 2 lykkjur slétt, A.1, prjónið 5-5-7-7-9-9 fyrstu lykkjur í A.2, 2 lykkjur slétt, aukið út til hægri, 3 lykkjur sléttprjón.
Lesið ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU og prjónið þannig – frá röngu: Prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út til vinstri, 3 lykkjur brugðið, A.1, prjónið 5-5-7-7-9-9 fyrstu lykkjur í A.1, 3 lykkjur brugðið, aukið út til hægri, 3 lykkjur brugðið.
Haldið svona áfram og aukið út á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu alls 34-34-39-39-44-44 sinnum. Alltaf er aukið út innan við 3 lykkjur í hvorri hlið. A.2 sýnir byrjun á útaukningu – nema 3 lykkjur sem auknar eru út að innan, haldið áfram að prjóna inn lykkjur í mynstri á sama hátt. A.2 sýnir stærð S og M, í stærri stærðum eru fleiri brugðnar lykkjur á milli kaðla, en útaukning er gerð á sama hátt.

Á eftir síðustu útaukningu eru 96-96-110-110-124-124 lykkjur í umferð. Síðan er mynstur prjónað þannig – frá réttu:
3 lykkjur slétt, 2-2-3-3-4-4 lykkjur brugðið, prjónið A.3 yfir næstu 86-86-98-98-110-110 lykkjur (mynstrið byrjar og endar með kaðli í hvorri hlið og það eru 7 kaðlar á breiddina), 2-2-3-3-4-4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt. Prjónið 4 umferðir með mynstri yfir allar lykkjur. Færið prjónamerkin þannig að þau sitji yst í hvorri hlið á stykki, stykkið er núna mælt héðan.
Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er að ofan, þar til stykkið mælist 13-14-14-15-15-16 cm. ATH! Endið eftir umferð frá röngu og athugið í hvaða umferð mynstrið endar. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, klippið þráðinn og prjónið framstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI:
Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð).
Prjónið upp 37-37-42-42-47-47 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki, á milli prjónamerkja og kant í hálsmáli). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað þannig – frá réttu: 6 lykkjur slétt, A.1 er prjónað 2 sinnum, 2-2-3-3-4-4 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, byrjar útaukning við miðju að framan. Aukið út í byrjun hverrar umferðar frá réttu eins og útskýrt er að ofan, aukið er út á eftir 3 lykkjum (einungis er aukið út frá réttu). Aukið út 1 lykkju alls 3 sinnum = 40-40-45-45-50-50 lykkjur, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið 1 umferð frá röngu, klippið þráðinn og geymið stykkið. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan.

Prjónið upp 37-37-42-42-47-47 lykkjur innan við 1 kantlykkju meðfram hægri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónuð er upp 1 lykkja í hverri umferð frá kanti efst á bakstykki, á milli prjónamerkja og kant í hálsmáli).

Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað þannig – frá réttu:
3 lykkjur sléttprjón, 2-2-3-3-4-4 lykkjur brugðið, A.3 er prjónað 2 sinnum, 6 lykkjur slétt. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, byrjar útaukning við miðju að framan. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu eins og útskýrt er að ofan, aukið er út um 3 lykkjur (einungis er aukið út frá réttu). Aukið út um 1 lykkju alls 3 sinnum = 40-40-45-45-50-50 lykkjur, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið mynstur eins og áður yfir 40-40-45-45-50-50 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 16-16-20-20-24-24 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið mynstur eins og áður yfir 40-40-45-45-50-50 lykkjur frá vinstra framstykki = 96-96-110-110-124-124 lykkjur.
Síðan er prjónað mynstur þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu:
3 lykkjur brugðið, 2-2-3-3-4-4 lykkjur slétt, haldið áfram með A.3 yfir næstu 86-86-98-98-110 lykkjur (mynstrið byrjar og endar með kaðli í hvorri hlið og það eru 7 kaðlar á breiddina), 2-2-3-3-4-4 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið.

Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 25-26-28-29-31-32 cm, passið uppá að enda í sömu umferð í mynstri og á bakstykki. ATH! Handvegur á framstykki á að vera lengri en á bakstykki. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið eins og áður yfir 96-96-110-110-124-124 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í lok umferðar (í hlið), prjónið eins og áður yfir 96-96-110-110-124-124 nýjar lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 8-8-10-10-12-12 nýjar lykkjur í lok umferðar = 208-208-240-240-272-272 lykkjur.
Haldið áfram með A.3 yfir allar lykkjur, mynstrið á núna að ganga jafnt upp alla leiðina hringinn á fram- og bakstykki. Prjónið hringinn þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 2 lykkjur í hverri mynstureiningu, aukið út yfir kaðal, en ekki er aukið út yfir kaðla í hvorri hlið (mitt undir ermi) = 236-236-268-268-300-300 lykkjur. Nú skiptist framstykkið og bakstykkið þannig að það verður klauf í hliðum. Setjið 118-118-134-134-150-150 lykkjur frá bakstykki á þráð eða á hjálparprjón og prjónið áfram yfir lykkjur frá framstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4.
Prjónið 2 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur slétt, ** 2-2-3-3-4-4 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2-2-3-3-4-4 lykkjur brugðið, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* 3 sinnum, 1 lykkja slétt **, endurtakið frá **-** þar til eftir eru 9-9-11-11-13-13 lykkjur, prjónið 2-2-3-3-4-4 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, 2-2-3-3-4-4 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur garðaprjón. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki.

BAKSTYKKI:
Setjið lykkjur á hringprjón 4. Prjónið á sama hátt og á framstykki.

VINSTRI ERMI:
Leggið stykkið flatt og setjið 1 prjónamerki í handveg (mitt á öxl).
Notið hringprjón 5 og 1 þráði í hvorri tegund, prjónið upp frá réttu 80-80-92-92-104-104 lykkjur frá botni á handvegi á framstykki upp að öxl og niður að botni á handvegi á bakstykki – passið uppá að prjónaðar séu jafn margar lykkjur hvoru megin við prjónamerki meðfram handvegi. (ATH! Lykkjur eru ekki prjónaðar upp yfir 8-8-10-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram og til baka þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, byrjið í 3.-3.-4.-4.-5.-5. lykkju í A.1 og prjónið A.1 þar til 3-3-4-4-5-5 lykkjur eru eftir, prjónið 2-2-3-3-4-4 fyrstu lykkjurnar í A.1 og 1 lykkju í garðaprjóni.
Prjónið fram og til baka með A.1 og 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til ermin mælist 3-3-3-3-4-4 cm. Fellið af garðaprjónslykkjur í hvorri hlið. Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 – afgangur af ermi er prjónaður í hring = 78-78-90-90-102-102 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu lykkju í umferð (klukkuprjónslykkja, þetta er mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Haldið áfram með A.1 hringinn. Þegar ermin mælist 5-5-5-5-6-6 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 10-10-4½-4½-2½-2½ cm millibili alls 4-4-8-8-12-12 sinnum = 70-70-74-74-78-78 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 42-43-39-40-37-38 cm frá prjónamerki. Nú eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4. Aukið út um 2 lykkjur yfir hvern kaðal og prjónið stroff á sama hátt og á fram- og bakstykki, brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og slétta lykkju yfir klukkuprjónslykkju. Yfir lykkjur í kaðli er prjónað *1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* 3 sinnum, 1 lykkja slétt. Prjónið stroff svona í 10 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 52-53-49-50-47-48 cm frá prjónamerki.

HÆGRI ERMI:
Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en prjónið upp lykkjur á gagnstæðan hátt, þ.e.a.s. prjónið fyrstu upp lykkjur frá botni á handvegi á bakstykki upp að öxl og niður að botni á handvegi á framstykki. Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við aðra axlalínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 69 til 84 lykkjur á stuttan hringprjón 4. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 3. Prjónið stroffprjón hringinn (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af aðeins laust. Brjótið stroffið niður efst í hálsmáli að innanverðu á stykki. Saumið það niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragist saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = stingið hægri prjóni í gegnum lykkju frá fyrri umferð, prjónið 1 lykkju slétt og sleppið lykkjum af vinstri prjóni (= klukkuprjónslykkja)
symbols = setjið 4 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = botninn á handvegi er saumaður þannig: Saumið b við B

symbols = lykkjur fyrir vinstri öxl að framan (d) eru prjónaðar upp meðfram vinstri öxl að aftan (D), lykkjur fyrir hægri öxl að framan (e), eru prjónaðar upp meðfram hægri öxl að aftan (E)
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-20

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Florence wrote:

Bonjour, je crois qu'il y a des erreurs dans les explications en français. 1) pour les explications des augmentations sur l'envers, c'est inversé. 2) pour le dos, au début des explications sur l'envers, je pense qu'il faut plutôt faire: 3 m env Augm incl g 3 m env Les 5 premières mailles de A1 Puis A1 3 m env Augm dr 3 m env. Est ce cela? Metci pour votre aide et bonne année à vous !

05.01.2024 - 11:23

DROPS Design answered:

Bonjour Florence, les augmentations sont justes ainsi, retrouvez-les dans cette vidéo. Bon tricot!

11.01.2024 - 09:05

country flag Emanuela Monaci wrote:

Buongiorno, volevo segnalare un errore di traduzione: nella spiegazione del DAVANTI nella spalla destra, dove iniziano gli aumenti per il collo è "alla fine di ogni ferro" e non all'inizio come indicato. Buon lavoro e buona anno Emanuela

31.12.2023 - 14:30

DROPS Design answered:

Buonasera Emanuela, grazie per la segnalazione, abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!

31.12.2023 - 17:48

country flag Odile Musslin wrote:

Bonjour, il y a une erreur dans les explications du diagramme, le symbole qui correspond à la torsade a reçu l'explication de la maille double. Merci à vous de rectifier.

03.11.2023 - 14:36

DROPS Design answered:

Merci Mme Musslin, la légende a été corrigée, merci pour l'info! Bon tricot!

03.11.2023 - 15:56

country flag Alexandra wrote:

Bonjour Le 3e symbole de la légende du diagramme n'est pas traduit. D'avance merci d'effectuer rapidement la modification. Ce modèle est très élégant.

02.11.2023 - 06:17

DROPS Design answered:

Bonjour Alexandra, fait! Merci pour l'info. Bon tricot!

02.11.2023 - 18:10

country flag Emanuela Monaci wrote:

Buongiorno, ella spiegazione del DAVANTI del modello in ITALIANO c'è un errore: il secondo paragrafo è in più....Potete verificare?

18.10.2023 - 16:24

DROPS Design answered:

Buonasera Emanuela, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il modello. Buon lavoro!

18.10.2023 - 17:03

country flag Lenny wrote:

Super

06.08.2023 - 16:18

country flag Valentina Zanchin wrote:

Sweet toffee

06.08.2023 - 14:24

country flag Renske wrote:

SandyWaves

05.08.2023 - 19:34

country flag Rosemeire De Andrade Abrantes wrote:

Dreams Cables

05.08.2023 - 04:31

country flag Danielle Factor-Consolini wrote:

Sable Minx

05.08.2023 - 04:23