DROPS Super Sale · 30% AFSLÁTTUR á 5 tegundum af ullargarni
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13530.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Autumn & Winter 26/27
Velja stærð:


DROPS 243-13

#sweetnovembersweater

DROPS Design: Mynstur ai-456
Garnflokkur C + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL

GARN:
DROPS AIR frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
250-250-300-300-350-350 g litur 01, natur
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
100-100-100-125-125-125 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni og 1 þræði í hvorri tegund = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1474.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1540.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13530.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

0
0

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 lykkju á undan / á eftir lykkju með merki í hverri skiptingu á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn.

Þegar prjónað er fram og til baka er uppslátturinn prjónaður frá röngu þannig:
Á UNDAN MERKI:
Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat.
Á EFTIR MERKI:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það á ekki að myndast gat.

Þegar prjónað er í hring, prjónið uppsláttinn í næstu umferð þannig:
Á UNDAN MERKI:
Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það á ekki að myndast gat.
Á EFTIR MERKI:
Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það á ekki að myndast gat.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna.

TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 68-72-76-80-80-84 lykkjur með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Kid-Silk yfir stuttan hringprjón 4,5 og stuttan hringprjón 6 sem haldið er saman.
Dragið út hringprjón 6 og haldið lykkjunum eftir á stuttum hringprjón 4,5 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 9 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð í stroffi prjónuð eins og áður jafnframt því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli.

Nú eru sett 4 merki í stykkið eins og útskýrt er að neðan, þetta er gert án þess að prjóna umferðina. Hvert merki er sett í slétta lykkju (ekki á milli lykkja) og merkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu. Setjið eitt merki í byrjun á umferð = ca fyrir miðju að aftan.
Teljið 10-10-12-12-12-14 lykkjur (ca hálft bakstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju,
teljið 15 lykkjur (ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju,
teljið 17-19-21-23-23-25 lykkjur (framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju,
teljið 15 lykkjur (ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju,
teljið 7-9-9-11-11-11 lykkjur (ca hálft bakstykki).

HÁLSMÁL:
Nú er hálsmálið prjónað með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Skiptið yfir á hringprjón 6. Byrjið fyrir miðju að aftan:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við 2 fyrstu merkin (4 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá öðru merkinu.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og snúið við þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá síðasta merki.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll merkin, (8 lykkjur fleiri), snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og snúið við þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning.
UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 fyrstu merkin (4 lykkjur fleiri), prjónið að miðju að aftan.
Stuttu umferðirnar hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 2 sinnum fyrir laskalínu við hvert merki = 84-88-92-96-96-100 lykkjur í umferð. Prjónið 1 umferð slétt.

BERUSTYKKI:
Byrjið umferð við merki fyrir miðju að aftan og prjónið hringinn yfir allar lykkjur í sléttprjóni. JAFNFRAMT heldur útaukningin áfram fyrir laskalínu í annarri hverri umferð þar til aukið hefur verið út alls 8-10-12-14-20-22 sinnum (meðtalin útaukning í stuttu umferðunum) = 132-152-172-192-240-260 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og með útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið nú eingöngu á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 8-8-8-8-4-4 sinnum á fram- og bakstykki (4-4-4-4-2-2 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 16-18-20-22-24-26 sinnum á fram- og bakstykki og 12-14-16-18-22-24 sinnum á ermum.

Á eftir síðustu útaukningu eru 180-200-220-240-264-284 lykkjur í umferð. Stykkið mælist nú ca 20-23-25-28-30-33 cm frá miðju að aftan (á eftir stroffi), prjónið e.t.v. áfram í sléttprjóni án útaukninga að réttu máli.

Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið 29-31-35-37-41-45 lykkjur eins og áður (ca hálft bakstykki), setjið næstu 35-39-43-47-51-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-12-14-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 55-61-67-73-81-87 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 35-39-43-47-51-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 12-12-12-14-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) og prjónið síðustu 26-30-32-36-40-42 lykkjur eins og áður (ca hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 134-146-158-174-190-206 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 23-22-22-21-21-20 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 30-30-32-36-42-46 lykkjur jafnt yfir = 164-176-190-210-232-252 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) hringinn í 6 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm frá öxl og niður.

ERMI:
Setjið 35-39-43-47-51-55 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 6 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 12-12-12-14-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 47-51-55-61-65-71 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 12-12-12-14-14-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum fyrir miðju undir ermi. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 15-7-5½-3-2½-2 cm millibili alls 3-5-6-9-10-12 sinnum = 41-41-43-43-45-47 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 39-36-35-32-31-28 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-7-7-9-9-9 lykkjur jafnt yfir = 48-48-50-52-54-56 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 6 cm. Fellið af. Ermin mælist ca 45-42-41-38-37-34 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

Diagram for DROPS 243-13

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-13

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (133)

country flag Brit Laila skrifaði:

Hei 243-13 str S Når alle raglansøkninger er gjort har jeg totalt 200 m 1.Bakdel 28 Erme 43 Front 55 Erme 43 2.Bakdel 27 + Merkemasker 4 = 200 Nå deles arbeidet til bole og erme Når det deles strikk 31 m sett 39 m på tråd +12m legg opp underermet Front 61m Erme 39 m på tråd + 12 under ermet Bakdel 30 m Da blir raglansmerkene forskjøvet. Blir det rett når jeg gjør det slik?

30.10.2026 - 09:56

DROPS Design svaraði:

Hei Brit Laila. Når man har økt ferdig og deler arbeidet opp, vil noen av "erm-maskene" flyttes over til for -og bakstykket, slik at det blir en bedre passform. Så ja, blir riktig. mvh DROPS Design

02.11.2026 - 13:38

country flag Brit Laila skrifaði:

Hei angående 243-13 str S. Takk for svar nå forstår jeg vendepinnene. Et spørsmål til: Neste økninger er at det økes på bolen hver 2. omg og hver 4.omg på erme, blir det slik at når jeg øker på ermet gjøres det i samme omgang som jeg øker på bolen, Da blir det økt 8 m på den runden?

27.10.2026 - 10:09

DROPS Design svaraði:

Hej Brit, ja det stemmer, så hver 2.gang du øker, øker du 8 masker og hver 2.gang øker du 4 masker :)

27.10.2026 - 14:07

country flag Brit Laila Enoksen skrifaði:

Vendepinner str S Starter midt bak øker på hver side på merke1 og 2 er økt 4m snur 3 m etter 2 merke Pinne 2 vrang tilbake skal jeg snu ved 4 merke og øke ved 4 merke på hver side når jeg snur? Gjør jeg dette hver gang 16m økt, men da har jeg 21m på den ene armen og 17m på den andre fordi det på pinne 1 økes 2m pinne 3 2m og pinne 5 2m på erme etter 4merke blir det økt 2m når jeg snur da blir det 21 og 17 m på hver arm forklar hvor jeg snur på hvilket merke

19.10.2026 - 12:22

DROPS Design svaraði:

Hei Brit. Sett 4 merker som forklart i oppskriften. Start fra retten og på 1. pinne strikkes det 3 masker forbi 2. merke, (det er da også økt til raglan 2 steder, ved 1. og 2. merke / 4 økte masker. Snu, og fra vrangen strikk 3 masker forbi siste merke (som er 3. merke). Snu, og fra retten strikk 5 masker forbi 2. merke (det er da også økt til raglan 4 steder, ved 3 - 4. - 1. og 2. merke / 8 økte masker. Snu, og fra vrangen strikk 5 masker forbi 3. merke. Snu, og fra retten strikk til midt bak, samtidig som det økes til raglan 2 steder, ved 3. og 4. merke / 4 økte masker. Det er nå økt like mange masker ved merkene, og de forkortede pinnene er lik på hver side av midt bak. mvh DROPS Design

26.10.2026 - 13:51

country flag Laura skrifaði:

Hey! Just finished double neck, started to do short rounds.. I read instructions back and forth, I read simplier instructions in answered queations and I just dont get them. Is it possible to knit with simple raglan increases till there are 88 stiches on needles (for size S) and them I continue to do yoke part?

13.10.2026 - 13:54

DROPS Design svaraði:

Dear Laura, you work short rows back and forth over the back piece stitches to get a higher back piece. If you don't want to work a higher back piece you could work: 1 round with increases on each side of the markers, 1 normal round, 1 round with increases on each side of the markers, 1 normal round. Then you should have 88 sts for your size and you can continue with the yoke. Happy knitting!

18.10.2026 - 18:53

country flag Joan skrifaði:

Hvad er forkortede pinde

08.10.2026 - 07:54

country flag Letizia skrifaði:

Buongiorno, Mi sono accorta di un errore di traduzione in italiano nella sezione scollatura : "FERRO 4 (rovescio del lavoro): lavorare a rovescio e girare quando sono state lavorate 2 maglie rovescio dopo l’ultimo segnapunti", non è corretto perché nella versione inglese si dice di lavorare 2 maglie rovescio dopo il giro precedente " come per il FERRO 3. Se si segue l'istruzione attuale si lavorano 4 maglie in meno in quel lato per lo scollo

04.10.2026 - 10:12

DROPS Design svaraði:

Buonasera Letizia, grazie per la segnalazione: abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!

04.10.2026 - 22:48

country flag Armelle skrifaði:

Bonjour , serait il possible de connaître la Taille du pull que porte le modèle sur les photo ? Je voudrais m’en faire un peu loose . Merci

22.09.2026 - 06:35

DROPS Design svaraði:

Bonjour Armelle, nos modèles portent en général soit un S soit un M, vous trouverez ici comment trouver la taille et l'aisance idéale. Bon tricot!

23.09.2026 - 07:26

country flag Camilla skrifaði:

Sweet November stickas i garnerna Drops Air och Drops Kid-Silk. Var ser jag när de olika garnerna ska stickas. Det står bara på halskanten att man ska använda båda trådarna samtidigt men för övrigt verkar det inte stå. Hur ska det vara? Hur väljer man färg? Det måste ju vara samma färg på båda garnsorterna.

17.08.2026 - 22:54

DROPS Design svaraði:

Hej Camilla, du strikker de 2 tråde sammen igennem hele mønsteret :)

18.08.2026 - 14:44

country flag Siv skrifaði:

Hej stickar denna modell sweet november men stickade inte med förkortade varv . När jag nu stickat färdigt raglan och mäter från halskanten så fattas det ca 4 cm. Antar att det är för att jag inte gjorde förkortade varven. Ska jag sticka 4 cm utan raglanökningar eller hoppa över det och fortsätta?

02.04.2026 - 10:51

DROPS Design svaraði:

Hej Siv, om du mäter på framstycket, så spelar det ingen roll om du har stickat förkortade varv :)

08.04.2026 - 13:49

country flag Tilda skrifaði:

Hallo, ich bin gerade beim Stricken und dabei sind mir zwei kleine Fragen gekommen. Zum einen was wird mit letzter Markierer in Reihe 2 der verkürzten Reihen gemeint? Der 4. Markierer in meiner Runde (Übergang rechter Ärmel und Rückenteil)? Zudem wollte ich wissen, ob ich es auch mit der German Shortrows Technik machen kann, um die Löcher zu vermeiden? Hier nehme ich beim Wenden immer eine Masche zusätzlich auf, wie soll ich hier verfahren? Vielen Dank für eine Rückmeldung!

29.03.2026 - 22:50

DROPS Design svaraði:

Liebe Tilda, für die verkürzten Reihen können Sie gerne mit der German Shortrows Technik stricken; in diesem Video zeigen wir, wie man diese verkürtzen Reihen strickt, dh welche Markierer sind hier gemeint. Viel Spaß beim Stricken!

07.04.2026 - 13:46