Forest Mystery |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Lima. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl / skáhallandi öxl, gatamynstri og klauf í hliðum. Stærð S-XXXL
DROPS 243-11 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU: Aukið út til vinstri á EFTIR A.1 / 3 lykkjur í hálsmáli: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann. Aukið út til hægri á EFTIR A.2 / 3 lykkjur í hálsmáli: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann. ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU: Aukið út til vinstri á EFTIR A.2: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann. Aukið út til hægri á UNDAN A.1: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Efsti hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi. Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað fram í hring á hringprjón niður að klauf. Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveginn. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring. BAKSTYKKI: Fitjið upp 39-39-43-43-47-47 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Lima. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Nú er prjónað þannig – frá réttu: A.1, 15-15-19-19-23-23 lykkjur sléttprjón, A.2. JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR A.1 (séð frá réttu) og á UNDAN A.2 – lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Í næstu umferð (ranga) er aukið út á eftir A.2 og A.1 - lesið ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU. Haldið svona áfram og aukið alveg eins út bæði frá réttu og frá röngu alls 34-38-40-44-46-50 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu eru 107-115-123-131-139-147 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka, haldið áfram með A.1 og A.2 í hvorri hlið. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umferðir svona, setjið 1 prjónamerki í hvora hlið. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 15-16-16-17-18-19 cm mælt frá prjónamerki. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykki samkvæmt útskýringu að neðan. FRAMSTYKKI: Byrjið við vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð) – sjá teikningu. Prjónið upp 34-38-40-44-46-50 lykkjur á hringprjón 4 innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp lykkjur jafnt yfir á milli hálsmáls og prjónamerki í hlið). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað þannig – frá réttu: Prjónið sléttprjón þar til 12 lykkjur eru eftir, endið með A.2. Þegar stykkið mælist 7 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu eins og útskýrt var að ofan, aukið síðan út 3 lykkjur (einungis er aukið út frá réttu). Aukið út 1 lykkju alls 4 sinnum = 38-42-44-48-50-54 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá réttu, klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið hægri öxl samkvæmt útskýringu að neðan. Prjónið upp 34-38-40-44-46-50 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp lykkjur jafnt yfir frá prjónamerki í hlið og inn að hálsmáli). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, síðan er prjónað þannig – frá réttu: Prjónið A.1, prjónið síðan sléttprjón út umferðina. Þegar stykkið mælist 7 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu samkvæmt útskýringu að ofan, aukið út innan við 3 lykkjur (einungis er aukið út frá réttu). Aukið út um eina lykkju alls 4 sinnum = 38-42-44-48-50-54 lykkjur. Á eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón og mynstur yfir 38-42-44-48-50-54 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 31-31-35-35-39-39 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan sléttprjón eins og áður yfir 38-42-44-48-50-54 lykkjur frá vinstra framstykki = 107-115-123-131-139-147 lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón og mynstur fram og til baka. Haldið áfram þar til stykkið mælist 25-26-28-29-30-31 cm, endið eftir umferð frá röngu. Nú er fram- og bakstykkið sett saman samkvæmt útskýringu að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið eins og áður yfir 107-115-123-131-139-147 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 6-6-10-10-14-18 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið eins og áður yfir 107-115-123-131-139-147 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 6-6-10-10-14-18 nýjar lykkjur í lok umferðar = 226-242-266-282-306-330 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og haldið áfram með A.1 og A.2 eins og áður á bakstykki og framstykki. Prjónið í hring þar til stykkið mælist ca 44-46-48-50-52-54 cm, mælt frá efsta punkti á öxl (endið eftir heila mynstureiningu af A.1 / A.2 á hæðina). Setjið síðustu 113-121-133-141-153-165 lykkjur frá bakstykki á þráð og prjónið áfram yfir lykkjur frá framstykki samkvæmt útskýringu að neðan: Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið 2 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan 0-0-2-2-0-2 lykkjur slétt, 2-2-2-2-2-2 lykkjur brugðið, 2-2-2-2-2-2 lykkjur slétt, 0-0-0-0-2-2 lykkjur brugðið, 0-0-0-0-2-2 lykkjur slétt, A.3, sléttprjón yfir næstu 87-95-103-111-119-127 lykkjur og aukið út 47-51-55-59-63-71 lykkjur jafnt yfir (= 134-146-158-170-182-198 lykkjur á eftir útaukningu), prjónið A.3 0-0-0-0-2-2 lykkjur slétt, 0-0-0-0-2-2 lykkjur brugðið, 2-2-2-2-2-2 lykkjur slétt, 2-2-2-2-2-2 lykkjur brugðið, 0-0-2-2-0-2 lykkjur slétt, 2 lykkjur garðaprjón = 160-172-188-200-216-236 lykkjur. Haldið áfram að prjóna þannig – fyrsta umferð frá röngu: 2 lykkjur garðaprjón, 0-0-2-2-0-2 lykkjur brugðið, 2-2-2-2-2-2 lykkjur slétt, 2-2-2-2-2-2 lykkjur brugðið, 0-0-0-0-2-2 lykkjur slétt, 0-0-0-0-2-2 lykkjur brugðið, A.3, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 15-15-17-17-19-21 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið, A.3, 0-0-0-0-2-2 lykkjur brugðið, 0-0-0-0-2-2 lykkjur slétt, 2-2-2-2-2-2 lykkjur brugðið, 2-2-2-2-2-2 lykkjur slétt, 0-0-2-2-0-2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram með stroff og A.3/ A.4 í hvorri hlið í 16 cm. Fellið af. Prjónið á sama hátt yfir lykkjur frá bakstykki. VINSTRI ERMI: Notið hringprjón 3 og prjónið upp frá réttu 53-55-59-61-63-65 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 32-34-34-36-38-40 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 89-93-97-101-105 lykkjur meðfram handvegi. Setjið 1 prjónamerki mitt í lykkjurnar sem prjónaðar voru upp. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna, þetta er gert til að fá betra form og flíkin passi betur. Umferð 1 (ranga): Prjónið 18 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 2 (rétta): Prjónið 18 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 3 (ranga): Prjónið 22 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 4 (rétta): Prjónið 22 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 5 (rétta): Prjónið 26 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 6 (rétta): Prjónið 26 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið. Umferð 7 (ranga): Prjónið að byrjun umferðar. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 4-4-5-5-6-7 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina eru gerð mitt ofan á ermakúpu) . Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 merkiþráð í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist alls 6-6-7-7-8-9 cm, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 2½-2-1½-1½-1½-1 cm millibili alls 12-13-14-15-16-17 sinnum = 61-63-65-67-69-71 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 37-36-34-34-32-30 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir ermi. Það eru eftir ca 10 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-18-16-23-21-19 lykkjur jafnt yfir = 81-81-81-90-90-90 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið A.4 hringinn í 10 cm. Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 48-47-46-46-45-44 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. HÆGRI ERMI: Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, nema prjónið upp lykkjur gagnstætt, þ.e.a.s. prjónið upp 32-34-34-36-38-40 frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 53-55-59-61-63-65 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn við handveg – sjá teikningu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið við aðra öxlina og prjónið upp frá réttu innan við kantlykkju ca 104 til 120 lykkjur á stuttan hringprjón 3. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 9 cm. Fellið af. Ef óskað er eftir að hafa kant í hálsmáli tvöfaldan er stroffið brotið niður að innanverðu á stykki. Saumið nokkur spor við hvora öxl þannig að kantur í hálsmáli fellur fallega að flíkinni. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (32)
Anke wrote:
Plaited lines
04.08.2023 - 21:20Debora wrote:
È intrigante ma mi piacerebbe vederlo davanti, ha uno scollo tondo o a V? Oppure è un cardigan? Grazie
04.08.2023 - 20:54Sveta wrote:
Leaves
04.08.2023 - 14:55Véronique wrote:
Quel dommage de ne pas avoir une photo de FACE du pull . Il est joli vu de dos, mais comment est l'encolure devant ?
04.08.2023 - 13:18Barbara Ilczyszyn wrote:
Nigdy nie dziergałam takiej lini ramienia. Bardzo interesujące. Chciałabym taki sweter zrobić na jesień.
04.08.2023 - 10:17Petra wrote:
Camouflage
03.08.2023 - 22:52Kathi S wrote:
Love the details
03.08.2023 - 19:07Małgorzata Podkońska wrote:
Interesująca jest konstrukcja tego swetra, tzn. linia ramienia, w moim guście jest również oversizowa forma, chętnie wydziergałabym go na najbliższy sezon jesienno-zimowy
03.08.2023 - 19:07Terry H wrote:
Simplicity
03.08.2023 - 19:05Autumn Grass wrote:
Beautiful
03.08.2023 - 17:37