Agnieszka skrifaði:
Schemat A2 to schemat rękawów, jest on niezgodny z opisem ponieważ przedstawia sposób narzutów co 2 rzędy bez wyjątku a opis jest jak dziergać karczek: "Dalej dodawać oczka na reglan co 2 okrążenia, ale co 2 powtórzenia dodawać tylko oczka na tył i przód, inaczej mówiąc będziemy dodawać co 2 okrążenia na przód i tył i co 4 okrążenia na rękawy (dodajemy na przemian 4 i 8 oczek). " Nie ma schematu wzoru plastra miodu dla dobierania oczek w sposób zgodny z opisem.
06.06.2025 - 17:14DROPS Design svaraði:
Witaj Agnieszko, oczywiście że na rękawach nie dodajemy już oczek. W opisie jest napisane, aby na rękawach przerabiać schemat A.3, wg mnie chodzi tutaj o A.3B. Zgłosiłam to już do korekty. Pozdrawiamy!
09.06.2025 - 08:33
Eimantė skrifaði:
Hello, please explain the part with raglan increases with front and back increases every 2nd row and every 4th row inc for sleeves. If I knit according to the diagrams it means that I increase for sleeves every 2nd row, just as front and back. If I skip an increase, I don't go together with the stitch count. How should it be?
16.05.2025 - 06:37DROPS Design svaraði:
Dear Eimanté, when you increase on every 4th round for sleeves and still every 2nd round for body you will increase for body with 1 yarn over as before at the beg + 1 yarn over at the end of front back piece just as before, but you won't increase on the sleeves on this round. Then on next increase round you will increase as before 1 st at the beg + 1st at the end of each front, back pieces and sleeves. Happy knitting!
16.05.2025 - 08:26
Margrete skrifaði:
Hvilke endringer er gjort i diagram A3A og A3B i denne oppskriften
14.11.2024 - 21:01DROPS Design svaraði:
Hei Margrete, Det er kun navnene på diagrammene som er endret, ikke innhold. God fornøyelse!
15.11.2024 - 06:48
Bodil skrifaði:
Jeg har 124 masker og skal til bærestykket, men jeg har prøvet så mange gange, men kan slet ikke få det til at gå op med maskeantallet. Jeg er opmærksom på at A.3B skal strikkes 4 gange i str. xl . Kan du hjælpe med første række i bærestykket som går op i de 124 masker. Jeg har stirret mig blind
25.10.2024 - 17:01DROPS Design svaraði:
Hei Bodil. Jo, i str. XL har du 124 masker. Øk med 1 maske til raglan, så strikker du A.2 (erme/12 masker), øk 1 maske til raglan, A.1 (7 masker), øk 1 maske til raglan, A.3A (6 masker), strikk A.3B totalt 4 ganger (6 x4=24 masker), A.3C (forstykke/6 masker), øk 1 maske til raglan, A.1(7 masker), øk 1 maske til raglan, A.2 (erme/12 masker), øk 1 maske til raglan, A.1 (7 masker), øk 1 maske til raglan, A.3A (6 masker), strikk A.3B totalt 4 ganger (6 x4=24 masker), A.3C (bakstykke/6 masker), øk 1 maske til raglan, A.1 (7masker). Bare med tall = 12+7+6+24+6+7+12+7+6+24+6+7 = 124 masker + raglansøkningen (8 økte masker). mvh DROPS Design
28.10.2024 - 11:28
Karin Verwoerd skrifaði:
Ik ben er al uit
06.10.2024 - 17:06
Karin Verwoerd skrifaði:
Hoe zet ik 12 steken op in de zijkant onder de mouw
05.10.2024 - 14:54DROPS Design svaraði:
Dag Karin,
In een van de video's die bij het patroon staat, wordt uitgelegd hoe je dit doet. Deze video heet "Hoe zet u nieuwe steken op aan de zijkant".
06.10.2024 - 09:31
Martina skrifaði:
Ich finde keine Angaben, wieviel Wollknäuel für die einzelnen Größen empfohlen werden. Ich möchte das Model gerne in XL stricken, Danke für die Info.
28.09.2024 - 17:37DROPS Design svaraði:
Liebe Martina, oben im Kopf der Anleitung finden Sie unter MATERIAL die benötigten Garnmengen in Gramm angegeben. Die Mengenangaben sind so aufgeteilt wie die Größen, die über dem Material stehen, d.h. die Menge für die kleinste Größe wird zuerst genannt, die Menge für die größte Größe steht am Schluss. Für XL sind es 1050 g DROPS Nepal. Jedes Knäuel Nepal wiegt 50 g, also brauchen Sie 21 Knäuel Nepal. Viel Spaß beim Stricken!
28.09.2024 - 19:43
Mariel Zaiser skrifaði:
Excelente sitio. Modelos exquisitos, explicaciones claras, garantía de éxito en cada proyecto.
01.08.2024 - 16:37
Sabine Schmitt skrifaði:
Welche Größe trägt das Modell auf dem Foto?
07.05.2024 - 12:22DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Schmitt, meistens tragen unsere Modelle entweder eine Größe S oder eine Größe M, aber um die beste passende Größe zu finden, messen Sie am besten einen ähnlichen Pullover den Sie gerne haben und vergleichen Sie mit der Maßskizze. Hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim Stricken!
07.05.2024 - 13:37
Elodie skrifaði:
Bonjour, une fois les 30 rangs des diagrammes tricotés, comment procéder pour continuer le motif? Merci !
28.01.2024 - 06:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Élodie, vous continuez à augmenter comme avant et tricotez les augmentations d'abord en jersey jusqu'à ce qu'il y ait suffisamment de mailles pour tricoter une torsade. Bon tricot!
29.01.2024 - 12:07
Mermaid Bay#mermaidbaysweater |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, býkúpumynstri og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.
DROPS 245-1 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð (á við um A.2). Eftir því sem lykkjum er aukið út fyrir laskalínu, prjónið nýjar lykkjur inn í mynstur eins og útskýrt er í mynsturteikningu, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga jafnt upp með 3 eða 6 lykkjum í mynstri. Lykkjur sem ganga ekki jafnt upp í mynstri, eru prjónaðar í sléttprjóni. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju á eftir / undan A.1 í hverri skiptingu á milli framstykkis / bakstykkis og erma. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður í næstu umferð þannig: Á EFTIR A.1: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það á ekki að myndast gat. Á UNDAN A.1: Lyftið uppslættinum yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi slétt, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón, þ.e.a.s. uppslátturinn er snúinn, prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það á ekki að myndast gat. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður frá hægri öxl að aftan. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna, niður að klauf, síðan er framstykkið og bakstykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna hvort fyrir sig að loka máli. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 84-88-88-96-96-100 lykkjur með DROPS Nepal yfir stuttan hringprjón 4 og stuttan hringprjón 5 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 4 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Prjónið stroffprjón þannig: * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff í 11 cm. Nú er stroffið brotið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð í stroffprjóni eins og áður jafnframt því sem 4. hver lykkja er prjónuð saman með 4. hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Setjið 1 prjónamerki í umferð – prjónamerkið er notað til að mæla frá síðar. Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING og prjónið næstu umferð þannig: Prjónið 5-5-5-7-7-7 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 1-1-1-5-5-5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= ermi), A.1 (lykkjur í A.1 eiga að passa yfir lykkjur frá stroffi), prjónið 23-25-25-27-27-29 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 7-11-11-9-9-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= framstykki), A.1, prjónið 5-5-5-7-7-7 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út 1-1-1-5-5-5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (= ermi), A.1, prjónið 23-25-25-27-27-29 lykkjur sléttprjón og aukið jafnframt út um 7-11-11-9-9-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur (bakstykki), A.1 = 100-112-112-124-124-124 lykkjur. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er að neðan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið fyrstu umferð þannig: Aukið út um 1 lykkju fyrir LASKALÍNA – lesið útskýringu að ofan, A.2 (ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.1, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.3A, prjónið A.3B alls 3-4-4-4-4-4 sinnum, A.3C (framstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.1, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.2 (ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.1, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.3, prjónið A.3B alls 3-4-4-4-4-4 sinnum, A.3C (bakstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, A.1 (= 8 lykkjur fleiri). Haldið svona áfram með mynstur og aukið út fyrir laskalínu á eftir / undan A.1 í hverri skiptingu á milli erma og framstykkis / bakstykkis í annarri hverri umferð alls 18-21-21-15-18-24 sinnum (meðtalin útaukning í fyrstu umferð) = 244-280-280-244-268-316 lykkjur – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í MYNSTUR eins og útskýrt er að ofan. Haldið áfram með útaukningu fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, en í annað hvert skipti sem aukið er út, er einungis aukið út á framstykki / bakstykki. Þ.e.a.s. aukið er út á framstykki / bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð (aukið er út til skiptis um 4 og 8 lykkjur). Aukið svona út 12-12-12-24-24-24 sinnum á framstykki / bakstykki og 6-6-6-12-12-12 sinnum á ermum. Nú hefur verið aukið út alls 30-33-33-39-42-48 sinnum á framstykki / bakstykki og 24-27-27-27-30-36 sinnum á ermum. Það eru 316-352-352-388-412-460 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 22-24-24-29-31-36 cm frá prjónamerki sem var sett eftir kant í hálsmáli. Ef stykkið mælist minna en þetta er hægt að prjóna áfram að réttu máli án þess að auka út lykkjum. Í næstu umferð, prjónið mynstur eins og áður án þess að auka út jafnframt því sem fækkað er um 1 lykkju í hverri mynstureiningu A.1 með því að prjóna 3. og 4. lykkju í A.1 slétt saman (4 lykkjur færri) = 312-348-348-384-408-456 lykkjur í umferð. Í næstu umferð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan. Skiptingin er gerð mitt í hverri mynstureiningu A.1, þ.e.a.s. 3 lykkjur tilheyra ermum og 3 lykkjur tilheyra framstykki / bakstykki. Byrjið 3 lykkjum á undan byrjun á umferð, þ.e.a.s. mitt í síðustu mynstureiningu með A.1 í umferð, setjið fyrstu 60-66-66-72-78-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-12-12-18-18 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 96-108-108-120-126-138 lykkjur mynstur eins og áður (framstykki – ATH: Lykkjur í A.1 eru núna inni í A.3), setjið næstu 60-66-66-72-78-90 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-12-12-18-18 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 96-108-108-120-126-138 lykkjur í mynstri eins og áður (bakstykkið – lykkjur í A.1 eru núna prjónaðar inn í A.3). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 204-228-240-264-288-312 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki – mitt í 6-6-12-12-18-18 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Látið merkiþræðina fylgja með í stykkinu – það á að nota þá síðar þegar fram- og bakstykkið skiptist fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið A.3B hringinn yfir allar lykkjur – haldið áfram í réttri umferð í mynsturteikningu miðað við lykkjur frá berustykki. Þegar stykkið mælist 25-25-27-23-23-20 cm frá skiptingu, setjið fyrstu 102-114-120-132-144-156 lykkjur á hringprjón 4 (framstykki) og síðustu 102-114-120-132-144-156 lykkjur (bakstykki) hvíla nú á hringprjóni 5. FRAMSTYKKI: = 102-114-120-132-144-156 lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 3 lykkjur jafnt yfir í umferð = 105-117-123-135-147-159 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka í 8 cm. Fellið af – notið e.t.v. ítalska affellingu. Peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm frá öxl. BAKSTYKKI: Setjið 102-114-120-132-144-156 lykkjur frá bakstykki á hringprjóna 4 og prjónið á sama hátt og framstykki. ERMI: Setjið 60-66-66-72-78-90 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 5 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-12-12-18-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-72-78-84-96-108 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-12-12-18-18 lykkjur. Prjónið A.3B hringinn yfir allar lykkjur – haldið áfram í réttri umferð í mynsturteikningu miðað við lykkjur frá berustykki. Þegar stykkið mælist 4-4-4-3-3-3 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (lykkjur sem ekki ganga jafnt upp í mynstri þegar lykkjum er fækkað, eru prjónaðar í sléttprjóni). Fækkið lykkjum svona með 10-5-5-3-2-1 cm millibili alls 3-6-6-9-12-18 sinnum = 60-60-66-66-72-72 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 34-33-34-30-29-24 cm frá skiptingu. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Skiptið yfir á sokkaprjón 4. Prjónið stroffprjón (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 8 cm. Fellið af á sama hátt og á framstykki / bakstykki. Ermin mælist ca 42-41-42-38-37-32 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mermaidbaysweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 245-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.