DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16390.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Frills of Winter

Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Alpaca og 2 þráðum DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með skáhallandi öxl / evrópskri öxl og klauf í hliðum. Stærð S - XXXL.

DROPS 243-22
DROPS Design: Mynstur z-990
Garnflokkur A + A + A
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
250-300-300-350-350-400 g litur 7323, sjávarþoka
Og notið:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-225-250-250-300-325 g litur 45, mjúk mynta

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3,5: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
16 lykkjur á breidd og 20 umferðir á hæð með sléttprjóni og 3 þráðum = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 16390.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU:
Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU:
Aukið út til vinstri á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
Aukið út til hægri á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Efri hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niðurhandvegi. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og framstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður að handvegi.
Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Stykkið skiptist upp fyrir klauf í hliðum og framstykkið og bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig.
Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveg. Ermar eru fyrst prjónaðar fram og til baka, síðan í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 28-28-28-32-34-34 lykkjur á hringprjón 5 með 1 þræði DROPS Alpaca og 2 þráðum DROPS Kid-Silk (3 þræðir). Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja innan við ystu 3 lykkjur í hverri umferð.
Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka.
JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU.
Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU.
Haldið svona áfram og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 24-26-28-30-34-38 sinnum. Eftir síðustu útaukningu eru 76-80-84-92-102-110 lykkjur í umferð.
Prjónið 2 umferðir sléttprjón án útaukningar. Setjið 1 prjónamerki í ystu lykkju í hvorri hlið, héðan er nú stykkið mælt! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið síðan sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 14-15-15-16-17-17 cm, mælt yst meðfram handvegi frá prjónamerki. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI:
Byrjið með vinstri öxl (séð þegar flíkin er mátuð).
Prjónið upp 24-26-28-30-34-38 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð frá kanti efst á bakstykki). Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í byrjun á hverri umferð frá réttu, aukið er út á eftir 3 lykkjur, lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 28-30-32-34-38-42 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. Prjónið síðan hægri öxl eins og útskýrt er að neðan.

Prjónið upp 24-26-28-30-34-38 lykkjur innan við ystu lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út í lok hverrar umferðar frá réttu, aukið er út á undan 3 lykkjur, lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út um 1 lykkju alls 4 sinnum = 28-30-32-34-38-42 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu er prjónað til baka frá röngu.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 28-30-32-34-38-42 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 20-20-20-24-26-26 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið sléttprjón eins og áður yfir 28-30-32-34-38-42 lykkjur frá vinstra framstykki = 76-80-84-92-102-110 lykkjur.
Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 24-25-26-28-29-30 cm, mælt yst meðfram handvegi.
Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið sléttprjón yfir 76-80-84-92-102-110 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 4-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið), prjónið sléttprjón yfir 76-80-84-92-102-110 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 4-6-8-8-8-10 nýjar lykkjur í lok umferðar = 160-172-184-200-220-240 lykkjur.
Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki. Nú skiptist framstykkið og bakstykkið, þannig að það myndist klauf í hliðum.
Setjið 80-86-92-100-110-120 lykkjur frá framstykki á þráð eða hjálparprjón og prjónið síðan einungis yfir lykkjur frá bakstykki.

FRAMSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 38-40-42-46-52-54 lykkjur jafnt yfir = 118-126-134-146-162-174 lykkjur. Prjónið næstu umferð frá röngu: 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 10 cm. Fellið af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá efsta punkti á öxl.

BAKSTYKKI:
Setjið lykkjur á hringprjón 3,5. Prjónið á sama hátt og á framstykki.

VINSTRI ERMI:
Notið hringprjón 5 og prjónið upp frá réttu 38-40-44-44-46-50 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram framstykki) og 22-24-24-26-28-28 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 60-64-68-70-74-78 lykkjur meðfram handvegi.

Setjið 1 prjónamerki mitt í lykkjurnar sem prjónaðar voru upp. Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka með stuttum umferðum yfir ermakúpuna, þetta er gert til að fá betra form og flíkin passi betur.

Umferð 1 (ranga): Prjónið 14 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 2 (rétta): Prjónið 14 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 3 (ranga): Prjónið 18 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 4 (rétta): Prjónið 18 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 5 (rétta): Prjónið 22 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 6 (rétta): Prjónið 22 lykkjur fram hjá prjónamerki, snúið.
Umferð 7 (ranga): Prjónið að byrjun umferðar.

Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 4-5-6-6-6-6 cm, mælt frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp (öll mál á lengdina eru gerð mitt ofan á ermakúpu) .

Nú er stykkið sett saman á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 – afgangur af ermi er prjónaður í hring. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (mitt undir ermi). Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu.
Byrjið umferð við merkiþráðinn og prjónið sléttprjón. Þegar ermin mælist 6-6-7-7-8-9 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 3½-3-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 8-9-10-10-11-13 sinnum = 44-46-48-50-52-52 lykkjur.
Prjónið áfram þar til ermin mælist 41-41-41-39-37-36 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Nú eru eftir ca 8 cm að loka máli. Mátið e.t.v. peysuna og prjónið að óskaðri lengd fyrir stroff. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 8-10-8-10-8-12 lykkjur jafnt yfir = 52-56-56-60-60-64 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm.
Fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 49-49-49-47-45-44 cm frá.

HÆGRI ERMI:
Prjónið á sama hátt og vinstri ermi, en prjónið upp lykkjur gagnstætt, þ.e.a.s. prjónið upp 22-24-24-26-28-28 lykkjur frá botni á handvegi upp að öxl (meðfram bakstykki) og 38-40-44-44-46-50 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki). Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við aðra axlarlínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 80 til 96 lykkjur í kringum hálsmál á stuttan hringprjón 3,5. lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4.
Prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og prjónið A.1 yfir allar 2 lykkjur brugðið. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, fellið af (aðeins laust).

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.09.2023
Búið er að bæta við útskýringu á ermakúpu efst á ermi.

Mynstur

symbols = brugðin lykkja
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið, það á ekki að myndast gat

symbols = lykkjur fyrir vinstri öxl að framan (d) eru prjónaðar upp meðfram vinstri öxl að aftan (D), lykkjur fyrir hægri öxl að framan (e), eru prjónaðar upp meðfram hægri öxl að aftan (E)
symbols = botninn á handvegi er saumaður þannig: Saumið b við B
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 243-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Pan wrote:

Die Vorderteil ist 13 cm Länge als Rückteil bei Größe XXXL vor Rumpteil nach dem Fertigstellung der Schulter ?\r\nHoffentlich antwortet Jemand mich, vielen Dank

25.02.2024 - 15:22

DROPS Design answered:

Liebe Pan, ja genau, bei solchen Modellen mit europäischen Schultern wird es so gestrickt, so wird as Armloch ca 24 cm sein (17+30)/2. Schauen Sie mal die Videos für solche Schulter, es sollte Ihnen helfen. Viel Spaß beim Stricken!

26.02.2024 - 10:23

country flag Flocaeymaex wrote:

Agapanthe

05.08.2023 - 16:57

country flag Sveta wrote:

Duchess

04.08.2023 - 14:58

country flag Dorota wrote:

October Breeze is perfekt

04.08.2023 - 11:48

country flag Anna wrote:

October Breeze

04.08.2023 - 09:30

country flag Veronique wrote:

Marsh Flower

03.08.2023 - 16:35

country flag Isabel wrote:

Winter Blossom

03.08.2023 - 16:18

country flag E Veiga wrote:

Misty Flower

03.08.2023 - 12:46