Isabelle Malgrey skrifaði:
Bonjour Je trouve les explications difficile à comprendre. Est ce bien traduit en français ?. Dans les explications difficile de comprendre la façon qu on progresser dans l ouvrage Merci Cldt
05.06.2025 - 14:16DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Maigrey, les explications sont peut être écrites de façon différente de celle dont vous avez l'habitude, mais si vous suivez bien les indications pas à pas, vous arriverez à les suivre. Lisez attentivement l'intégralité des explications, retrouvez sous les onglets Vidéos / Leçons (en haut de page) des astuces qui pourront éventuellement vous aider, et, si vous avez besoin de précision, n'hésitez pas à poser votre question dans cet espace, nous essaierons de vous aider. Bon tricot!
05.06.2025 - 15:28
Kayley skrifaði:
In der Anleitung zu den Beinen steht bei der Größe 1/3 steht dass man weiter stricken soll bis das Bein 15cm misst und dann zunehmen soll. Müsste es hier nicht mindestens 16 cm statt 15 cm heißen? Wenn man bei 2 cm beginnt und alle 2 cm insgesamt 7-mal abnimmt (2 + 2×7 = 16), ergibt das doch schon 16 cm?
29.05.2025 - 02:20DROPS Design svaraði:
Liebe Kayley, in die 2. Grösse wird man 2 Mal zunehmen, so stricken Sie die Zunahmen: die 1. nach 2 cm, die 2. nach 9 cm (2 cm+ 7 = 9 cm), dann weiterstricken bis der Bein 15 cm misst. Viel Spaß beim Stricken!
30.05.2025 - 08:40
Olivia Racionzer skrifaði:
The sleeve cap is confusing me, it doesnt match the diagram. I made the sleeve 17cm , then split the stitches in half (29 and 29) and then went back and forth until it reached 20cm. The sleeve now has a step in it and doesnt match the armhole. Is there a way i can upload a photo, or whether someone has a photo of what it looks like before sewing together? Thanks!
06.05.2025 - 21:34DROPS Design svaraði:
Hi Olivia, The stitches are divided mid-under the sleeve (at the marker-thread) into one row (not 2) which is worked back and forth to finished length. So at the end of the last round, instead of continuing in the same direction, you turn at the marker-thread and work back from the wrong side to the marker-thread, then turn again and work from the right side. This gives you a split mid-under the sleeve. Regards, Drops Team.
07.05.2025 - 06:43
Truus skrifaði:
Tip over de knoopsgaten. Met 76 st kom je precies goed uit. De knoopsgaten komen dan op de st 4-5, 20-21, 36-37, 52-53 en 68-69.
10.03.2025 - 16:17
Sirpa skrifaði:
Etukappaleeseen luodut silmukat..,luodaanko ne jokatoisella kerroksella,esim 1silmukka joka 2. kerros,ja 2silmukkaa x3 joka 2.kerros
24.02.2025 - 11:14DROPS Design svaraði:
Kyllä, silmukat luodaan joka toisella kerroksella, eli ne luodaan jokaisen oikean puolen kerroksen loppuun.
24.02.2025 - 18:51
Vicki L Pollock skrifaði:
What is meant by "divide the stitches at the stitch marker and finish off the sleeve cap"? I don't see anything in the pattern for making the sleeve cap.
19.01.2025 - 04:05DROPS Design svaraði:
Dear Vicky, when you kmit the sleeves and reach 13-17-19-22 (26-30) cm, you divide the stitches on the sleeve at the marker and continue to knit back and forth until the sleeve is 16-20-21-24 (28-32) cm. This part, that you've knitted back and forth will be acting as a "sleeve cap" the part that you will sew into the armhole. I hope this helps. Happy Crafting!
19.01.2025 - 14:00
Natalie Edgley skrifaði:
I can’t seem to find the diagram A.1 can someone please explain what the pattern is in the missing diagram
29.12.2024 - 01:36DROPS Design svaraði:
Hi, the diagram is quite small, just above the drawing. Repeat is 4 sts and 4 rows. You work 1st row: 2 sts purl from right side, knit from wrong side, 2 sts knit from right side, purl from wrong side. 2nd row is the same. 3rd row you change patterns, so knit 2 sts knit from right side, purl from wrong side, 2 sts purl from right side, knit from wrong side. 4th row is smae as 3rd row. Happy knitting!
29.12.2024 - 11:12
Sophie skrifaði:
Bei Größe 56/62: Nach der ersten Abnahme am Bein beidseitig des Markierers habe ich bis zur nächsten Abnahme (nach 7 cm) 50 Maschen - das bringt aber das Muster durcheinander. Wie soll ich bis zur nächsten Abnahme weiterstricken?
01.12.2024 - 20:51DROPS Design svaraði:
Liebe Sophie, Muster stricken Sie in der Höhe genauso wie zuvor, nun wird das Muster nicht bei der inneren Mitte (bei der Markierung) passen; aber über die restlichen Maschen sollen Sie genauso wie zuvor stricken. Viel Spaß beim Stricken!
02.12.2024 - 10:13
Johanna skrifaði:
Aber noch mal: ich habe 120 Maschen und stricke in Runden. 2R, 2L, also sind Maschen Nr 119+120 linke Maschen. Nach 2 Runden wechselt mein Muster auf 2L, 2R, also sind Maschen Nr 1+ 2 linke Maschen. Also stricke ich im Übergang von Runde 2 auf Runde 3 vier linke Maschen am Stück, oder? Und im Übergang von Runde 4 auf 5 vier rechte Maschen am Stück…?
06.11.2024 - 22:40DROPS Design svaraði:
Liebe Johanna, meinen Sie das nur beim Übergang zwischen Runden? Dann ja genau, um das etwas unsichtbar zu machen, können Sie versuchen, die Maschen/der Faden etwas zu ziehen damit die Maschen mehr nebeneinander sind. Viel Spaß beim Stricken!
07.11.2024 - 09:15
Johanna skrifaði:
Hallo, Noch mal zu meiner vorherigen Frage: aber wann mache ich dann denn den Wechsel? Wenn ich in Runden immer 2R2L über 120M stricke, bekomme ich doch ein Rippen-Muster. Irgendwo muss ich doch den Versatz machen von 2R2L zu 2L2R, oder nicht?
06.11.2024 - 11:41DROPS Design svaraði:
Liebe Johanna, das Muster sollen Sie wie zuvor weitersticken, dh abewchslungsweise 2 Reihen/Runden mit 2 L, 2 R und 2 R, 2 l genauso wie in A.1 gezeigt, damit kein Rippenmuster entsteht. Viel Spaß beim Stricken!
06.11.2024 - 12:20
Lili Rose#liliroseoverall |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónaður galli fyrir börn úr DROPS BabyMerino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í perluprjóni. Stærð 0 – 4 ára.
DROPS Baby 45-5 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um innanverðu á skálm): Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur saman, (prjónamerki), prjónið 2 lykkjur snúnar saman. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um mitt undir ermum): Prjónið þar til 1 lykkja er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið og framstykkin er prjónað hvert fyrir sig, ofan frá og niður áður en þau eru sett saman og síðan er prjónað fram – og til baka á hringprjóna. Lykkjum er fækkað í klofbót og hvor skálm er prjónuð í hring hvor fyrir sig. Ermar eru prjónaðar í hring og saumaðar í. Að lokum er prjónaður kantur að framan og kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Hvor öxl er prjónuð fyrir sig, lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli, áður en stykkið er sett saman og síðustu lykkjur fyrir hálsmáli eru fitjaðar upp á milli stykkja. HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 10-14-18-18 (22-22) lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Baby Merino. Fyrsta umferðin er frá réttu og er prjónuð þannig: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið mynstur A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 2 cm, fitjið upp 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar frá röngu = 11-15-19-19 (23-23) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Geymið stykkið. VINSTRI ÖXL: Fitjið upp og prjónið eins og hægri öxl, en fitjið upp 1 lykkju fyrir hálsmáli í lok umferðar frá réttu. Prjónið 1 umferð frá röngu, þannig að prjónað er frá réttu þegar stykkin eru sett saman við bakstykki eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Prjónið vinstri öxl og hægri öxl saman frá réttu þannig: Prjónið yfir 11-15-19-19 (23-23) lykkjur frá vinstri öxl eins og áður, fitjið upp 20-20-20-24 (24-28) lykkjur fyrir hálsmáli og prjónið yfir 11-15-19-19 (23-23) lykkjur frá hægri öxl eins og áður = 42-50-58-62 (70-74) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka í mynstri eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 11-12-13-14 (15-16) cm og síðasta umferð er prjónuð frá röngu. Geymið stykkið. FRAMSTYKKI: Hvort framstykki er prjónað hvort fyrir sig og fitjaðar eru upp lykkjur fyrir hálsmáli. Stykkin eru sett saman og gallinn er síðan prjónaður í hring. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 10-14-18-18 (22-22) lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Baby Merino. Fyrsta umferðin er frá réttu og prjónað er þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið mynstur A.1 þar til 1 lykkja er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 3-3-4-4 (5-5) cm, fitjið upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli með því að fitja upp lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu þannig: 1 lykkja alls 2 sinnum og síðan 2 lykkjur alls 3-3-3-4-4-5 sinnum = 18-22-26-28 (32-34) lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 11-12-13-14 (15-16) cm og síðasta umferð er prjónuð frá röngu (stillið mynstrið af eftir bakstykki). Geymið stykkið og prjónið vinstra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema það eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok hverrar umferðar frá röngu. GALLI: Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman og prjónað er fram og til baka á hringprjóna 3,5 þannig: Prjónið eins og áður yfir lykkjur frá vinstra framstykki, fitjið upp 14-10-10-10 (10-10) nýjar lykkjur fyrir handvegi, prjónið eins og áður yfir lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 14-10-10-10 (10-10) nýjar lykkjur fyrir handveg og prjónið eins og áður yfir lykkjur frá hægra framstykki = 106-114-130-138 (154-162) lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 12-18-24-29 (30-29) cm frá þar sem stykkið var sett saman undir ermum. Nú eru kantlykkjur felldar af í 2 næstu umferðum (byrjið frá réttu) = 104-112-128-136 (152-160) lykkjur. Fitjið síðan upp lykkjur fyrir klofbót þannig: Prjónið yfir allar lykkjur eins og áður og fitjið upp 8 nýjar lykkjur í lok umferðar frá réttu = 112-120-136-144 (160-168) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki – látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið mynstur hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 17-23-29-34-35-34 cm frá þar sem stykkið var sett saman undir ermum. Nú er stykkinu skipt og hvor skálm er prjónuð áfram hvor fyrir sig á sokkaprjóna þannig: Byrjið 6-8-10-10 (14-14) lykkjur á undan prjónamerki, fellið af næstu 4-8-12-12 (20-20) lykkjur, prjónið yfir fyrstu 52-52-56-60 (60-64) lykkjur eins og áður og setjið þessar lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, fellið af 4-8-12-12 (20-20) lykkjur, prjónið yfir næstu 52-52-56-60 (60-64) lykkjur eins og áður. Nú er hægri skálm prjónuð í hring eins og útskýrt er að neðan. SKÁLM: = 52-52-56-60 (60-64) lykkjur. Notið sokkaprjón 3,5. Setjið 1 prjónamerki í innanverðu á stykki og haldið áfram með mynstur A.1 hringinn. Þegar skálmin mælist 2 cm, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 3-7-7-5 (10-15) cm millibili alls 4-2-2-4 (2-2) sinnum = 44-48-52-52 (56-60) lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 14-15-17-20 (24-34) cm. Prjónið 1 umferð slétt og aukið út um 4-4-4-4 (8-12) lykkjur jafnt yfir = 48-52-56-56 (64-72) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-4-5 (5-5) cm. Fellið af með sléttum lykkjum. Skálmin mælist alls 17-18-21-25 (29-39) cm. Prjónið hina skálmina á sama hátt. ERMI: Fitjið upp 44-44-48-56 (56-60) lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Baby Merino. Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 3-3-4-5 (5-5) cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = mitt undir ermi. Prjónið síðan A.1, jafnframt þegar stykkið mælist 5-6-7-9 (9-10) cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2-1½-1½-1½ (2-2½) cm millibili alls 4-7-7-6 (8-8) sinnum = 52-58-62-68 (72-76) lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist alls 13-17-19-22 (26-30) cm. Nú skiptist stykkið við prjónamerkið og ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Fellið af þegar ermin mælist alls 16-20-21-24 (28-32) cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu neðst þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir klofbót. Notið hringprjón 3 og prjónið upp ca 48 til 96 lykkjur (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4) innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni meðfram hægra framstykki upp að hálsmáli. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff þannig (frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til kantur að framan mælist ca 1 cm. Nú er fellt af fyrir 5-5-5-6 (6-6) hnappagötum jafnt yfir. 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur yfir lykkjur sem felldar voru af – ATH: Fallegast er ef fellt er af fyrir hnappagötum í einingu með brugðnum lykkjum (séð frá réttu). Neðsta hnappagatið er staðsett ca 3 cm frá neðri kanti og efsta hnappagatið ca 1 cm frá kanti efst. Staðsetjið þau hnappagöt sem eftir eru jafnt yfir á milli þessa tveggja. Prjónið áfram þar til kanturinn mælist 3 cm. Fellið af. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu efst við hálsmál. Notið hringprjón 3 og prjónið upp lykkjur á sama hátt og á hægra framstykki niður þar sem lykkjur voru fitjaðar upp. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið stroff á sama hátt og á hægri kanti að framan – ekki er fellt af fyrir hnappagötum í vinstri kanti að framan. Prjónið þar til kantur að framan mælist 3 cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Byrjið mitt að framan og frá réttu og prjónið upp ca 68 til 88 lykkjur (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4) í kringum hálsmál og á hringprjón 3 með DROPS Baby Merino. Prjónið stroff þannig – fyrsta umferð er prjónuð frá röngu: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2-2-3-3 (3-3) cm. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermakúpu við handveg. Síðan eru efstu 3-3-2-2 (2-2) cm á ermi saumað við botn á handveg – sjá teikningu. Saumið opið saman á milli skálma. Leggið hægri kant að framan yfir vinstri kanti að framan og saumið niður við gallann þar sem lykkjur voru fitjaðar upp í klofbót. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Brjótið e.t.v. uppá stroffið á skálmum og á ermum. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #liliroseoverall eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 45-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.