Barbara I Huss skrifaði:
I can't seem to find the directions for making the pattern on this sweater. the pattern # is241-31
19.04.2024 - 18:59
Renata skrifaði:
Czy ten wzór da się robić na okrągło?
26.03.2024 - 13:01DROPS Design svaraði:
Witaj Renato, oczywiście. Tak jest np. we wzorze 249-21. Wszystkie okrążenia będziesz przerabiała na prawej stronie robótki zgodnie ze schematem. W kolejnym okrążeniu po narzutach, narzuty będą przerabiane albo na prawo albo przekręcone na prawo (patrz legenda do schematu). Powodzenia!
26.03.2024 - 16:30
Karen skrifaði:
Una pregunta: ¿Qué significa una lazada entre dos puntos? Agradezco la pronta respuesta
11.07.2023 - 02:03DROPS Design svaraði:
Hola Karen, para hacer una lazada o hebra entre 2 puntos, trabaja 1 punto, coger una hebra/ el hilo con la aguja derecha y trabaja el siguiente punto. Este puede formar un agujero o convertirse en un punto aumentado, dependiendo de cómo se trabaje la hebra en la siguiente vuelta.
17.07.2023 - 10:46
Janne skrifaði:
Kevad koos sirelitega
19.01.2023 - 22:01
Gabriele skrifaði:
Das Muster ist sehr schön.
17.01.2023 - 20:13
Dubois Diane skrifaði:
Joli modèle printanier, motif et couleur superbes !
17.01.2023 - 20:09
Ewelina skrifaði:
Lavender wave
17.01.2023 - 14:13
Hope Bay Cardigan#hopebaycardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og öldumynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-31 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN: Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þig langar ekki til að hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið 16-17-18-19-20-21 lykkjur fram hjá prjónamerki, Snúið, herðið á þræði og prjónið 33-35-37-39-41-43 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 49-52-55-58-61-64 lykkjur. Snúið, herðið á þræði og prjónið 65-69-73-77-81-85 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 81-86-91-96-101-106 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 97-103-109-115-121-127 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 4 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt svo það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-5-6-6-6 næstu hnappagötum með ca 8½-9-9½-8-8½-9 cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, ofan frá og niður. Ef maður vill þá er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 111-115-119-123-129-133 lykkjur með DROPS Muskat yfir hringprjón 3 og hringprjón 4 sem haldið er saman. Dragið út hringprjón 4 og haldið lykkjunum eftir á hringprjóni 3 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegri). Fyrsta umferðin er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýriningu að ofan, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff fram og til baka. Þegar kanturinn í hálsmáli mælist 4 cm, fitjið upp 6 nýjar lykkjur í lok 2 næstu umferða fyrir kant að framan = 123-127-131-135-141-145 lykkjur. Prjónið stroff eins og áður (sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur), en nú eru ystu 7 lykkjurnar í hvorri hlið prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 8 cm og næsta umferð er prjónuð frá röngu, brjótið stroffið niður að innanverðu á stykki þannig að kanturinn verði tvöfaldur – prjónið síðan næstu umferð í stroffprjóni eins og áður JAFNFRAMT því sem önnur hver lykkja í stroffi er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð og aukið jafnframt út um 32-32-34-34-36-38 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – sjá ÚTAUKNING, endið með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 155-159-165-169-177-183 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki innan við kant í byrjun á umferð mitt að framan – prjónamerkið á að nota til að mæla frá. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, haltu áfram eins og útskýrt er að neðan. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 3-4-5-5-5-6 cm frá prjónamerki, aukið út um 22-27-30-35-36-39 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 177-186-195-204-213-222 lykkjur. Þegar stykkið mælist 4-5-6-6-6-7 cm frá prjónamerki, prjónið næstu umferð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið A.1 alls 18-19-20-21-22-23 sinnum, prjónið fyrstu lykkju í A.1 þannig að mynstrið byrji og endi alveg eins, endið með 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur fram og til baka og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 15-16-17-19-19-20 cm frá prjónamerki (mælt að þar sem boginn í öldumynstri vísar upp) og það eru 321-338-355-414-433-452 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu eru auknar út 5-16-23-0-5-14 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 326-354-378-414-438-466 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-19-21-22-24-26 cm frá prjónamerki að framan, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 54-59-62-67-72-78 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 62-66-72-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 94-104-110-120-130-142 lykkjur sléttprjón (bakstykki), setjið næstu 62-66-72-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 54-59-62-67-72-78 lykkjur í sléttprjóni (framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 214-234-250-270-294-322 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 7 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan þar til stykkið mælist 25-26-26-27-27-27 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem aukið er út um 21-21-23-25-29-29 lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir kanta að framan) = 235-255-273-295-323-351 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff frá röngu þannig: 7 kantlykkjur að framan í garðaprjóni * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, 7 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið 62-66-72-80-82-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2-2-2-2-1-1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2-1-1-1 cm millibili alls 4-4-6-8-8-8 sinnum = 60-64-68-72-76-80 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 15-14-13-12-11-9 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir = 62-66-70-74-78-82 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 19-18-17-16-15-13 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #hopebaycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-31
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.