DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Celtic Harmony Cardigan

Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með köðlum og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 241-18
DROPS Design: Mynstur me-256
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-700-750-800 g litur 15, ljós grágrænn

Eða notið:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-700-750-800 g litur 29, sægrænn

TÖLUR:
DROPS TALA NR 623: 6-7-7-7-7-7 st.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9240.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um miðju undir ermum):
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð eru uppslættirnir prjónaðir snúnir slétt, svo ekki myndist gat (= 2 lykkjur fleiri). Síðan eru nýjar lykkjur prjónaðar í sléttprjóni.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt, svo það myndist gat.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
S: 7, 15, 23, 31, 39 og 47 cm
M: 6, 13, 20, 27, 34, 41 og 48 cm
L: 6, 13, 20, 27, 34, 41 og 48 cm
XL: 7, 14, 21, 28, 35, 43 og 51 cm
XXL: 7, 14, 21, 28, 35, 43 og 51 cm
XXXL: 6, 14, 22, 30, 38, 46 og 54 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Framstykkin og bakstykkið er prjónað hvert fyrir sig fram og til baka á hringprjóna, neðan frá og upp.
Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Frágangur á peysu er útskýrður í uppskrift. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 112-120-124-136-144-160 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merion Extra Fine eða DROPS Cotton Merino.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Síðan er prjónað stroff frá réttu þannig: 1 lykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur slétt og 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka þar til stroffið mælist 6 cm. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 9-9-9-13-9-13 lykkjur jafnt yfir = 103-111-115-123-135-147 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Síðan er prjónað sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af 3-5-3-3-5-6 lykkjur fyrir handvegi í byrjun á 2 næstu umferðum = 97-101-109-117-125-135 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 51-53-55-56-58-60 cm, fellið af miðju 35-35-37-37-41-41 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka hvor fyrir sig. Prjónið áfram eins og áður og fellið af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 30-32-35-39-41-46 lykkjur eftir á öxl.
Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.
Prjónið hina öxlina á sama hátt.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 66-70-74-78-82-90 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Cotton Merino.
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig:
1 lykkja í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur þar til 5 lykkjur eru eftir og endið með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.1 * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, endið með 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stroffið mælist 6 cm, munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir jafnframt því sem fækkað er um 5-5-7-7-5-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur og endið með 1 lykkju í garðaprjóni = 61-65-67-71-77-83 lykkjur.
Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, eru 62-66-68-72-78-84 lykkjur eftir í umferð. Haldið áfram með A.3 yfir lykkjur í A.2. Endurtakið A.3.

Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af 3-5-3-3-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun næstu umferðar frá röngu = 59-61-65-69-73-78 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 48-49-50-52-53-55 cm, prjónið eins og áður yfir fyrstu 23-23-24-24-26-26 lykkjur frá réttu, síðan eru þessar lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli = 36-38-41-45-47-52 lykkjur á öxl. Síðan eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá réttu þannig:
Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 30-32-35-39-41-46 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 66-70-74-78-82-90 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Cotton Merino.
Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið brugðnar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir og endið með 1 lykkju í garðaprjóni.
Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
1 lykkja í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 25 lykkjur eru eftir, prjónið A.4 og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur þar til stroffið mælist 6 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 4. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig:
1 lykkja í garðaprjóni, prjónið sléttprjón þar til 25 lykkjur eru eftir jafnframt því sem fækkað er um 5-5-7-7-5-7 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur, prjónið A.5 og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 61-65-67-71-77-83 lykkjur.
Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 62-66-68-72-78-84 lykkjur í umferð. Haldið áfram með A.6 yfir lykkjur í A.5. Endurtakið A.6.
Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fellið af 3-5-3-3-5-6 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu umferð frá réttu = 59-61-65-69-73-78 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 48-49-50-52-53-55 cm, prjónið næstu umferð frá réttu eins og áður þar til 23-23-24-24-26-26 lykkjur eru eftir, setjið síðustu 23-23-24-24-26-26 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli = 36-38-41-45-47-52 lykkjur á öxl.
Síðan eru prjónaðar sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umferð frá röngu þannig:
Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkju 2 sinnum = 30-32-35-39-41-46 lykkjur.
Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Fellið af.

ERMI:
Fitjið upp 60-60-64-64-68-68 lykkjur á sokkaprjóna 3 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Cotton Merino.
Prjónið 1 umferð slétt, síðan er prjónað stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 6 cm, skiptið yfir á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 4. Prjónið 1 umferð slétt og fækkið um 8-6-8-6-8-4 lykkjur jafnt yfir = 52-54-56-58-60-64 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð = mitt undir ermi. Prjónið sléttprjón hringinn.
Þegar ermin mælist 8-10-9-7-11-10 cm, aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá ÚTAUKNING. Aukið svona út með 2½-2-2-2-1½-1½ cm millibili alls 16-17-18-19-20-20 sinnum = 84-88-92-96-100-104 lykkjur. Þegar ermin mælist 49-48-48-47-45-43 cm, prjónið ermakúpu fram og til baka (frá miðju undir ermi) á hringprjón að loknu máli. Prjónið áfram þar til ermin mælist ca 50-50-49-48-47-46 cm þ.e.a.s. það er klauf ca 1-2-1-1-2-3 cm efst á ermi. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma. Saumið ermakúpu við handveg. Saumið síðan klauf efst á ermi við botninn á handvegi – sjá teikningu.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp kant í kringum hálsmál frá réttu á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Cotton Merino þannig:
Setjið 23-23-24-24-26-26 lykkjur frá þræði á hægra framstykki á hringprjón og prjónið þær slétt, prjónið upp ca 54-64 lykkjur innan við 1 kantlykkju að lykkjum á þræði á vinstra framstykki og setjið 23-23-24-24-26-26 lykkjur af þræði á hringprjón og prjónið þær slétt = ca 100-116 lykkjur. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4.
Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig:
5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af.

Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju, farðu beint áfram í næsta tákn í mynsturteikningu

symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt í næstu lykkju, steypið lyftu lykkjunni yfir þessar 2 lykkjur
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem voru prjónaðar
symbols = ermakúpan er saumuð við handveg þannig: Saumið a við A og b við B
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 241-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Martine RIBAULT wrote:

Je ne suis pas parvenue à imprimer l'ensemble des pages des réponses apportées aux questions posées par les différentes personnes, ayant eu besoin d'aide pour réaliser ce modèle. Serait-il S.V.P. possible de recevoir en P.J. par mail l'ensemble de ces pages avec traduction française quand c'est nécessaire ? Cela me serait bien utile pour réaliser ce modèle. Merci pour votre réponse.

03.01.2024 - 19:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ribault, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir proposer une traduction des questions/réponses dans toutes les langues, vous pouvez vous aider d'un traducteur en ligne ou bien tout simplement utiliser cet espace pour poser vos propres questions. Bon tricot!

04.01.2024 - 08:13

country flag RIBAULT Martine wrote:

Si l'inclinaison des torsades est différente pour les 2 devants, soit à droite pour l'un et l'inverse pour l'autre, alors à quel diagramme correspondent-ils ?Est-ce que 21/A6 et A3 par exemple correspondent à la torsade du motif de la plus grosse torsade ? A quel partie du motif torsadé 20/A5 & A2 correspondent, la petite torsade près de la bordure, ainsi que 20/A4 & A1 ? Merci pour votre réponse.

31.12.2023 - 20:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ribault, on tricote d'abord les 20 mailles de A.1/A.4, puis on va tricoter A.2/ A.5 (motif ajouré + torsade sur 2 mailles au 1er rang puis 1 jeté = 1 augmentation au 2ème rang), on a ainsi 21 mailles dans A.2/A.5 pour tricoter A.3/A.6 au-dessus des mailles de A.2/A.5. Bon tricot!

02.01.2024 - 11:40

country flag RIBAULT Martine wrote:

J'ai du fil KARISMA que j'avais acheté pour le modèle 96-7. L'échantillon que j'ai réalisé pour Celtic Harmony Cardigan fonctionne avec ce fil,mais avec une aiguille 4,5, alors qu'il est recommandé aiguille 3 & 4 pour ce modèle. Est-ce que les torsades des devants ont une inclinaison différente? Je pense inclinaison à droite pour l'un & l'inverse pour l'autre. Alors est-ce que je peux utiliser KARISMA pour ce modèle ? Merci pour votre réponse.

31.12.2023 - 20:10

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Ribault, Karisma étant du même groupe que Merino Extra Fine ou Cotton Merino, vous pouvez l'utiliser ici, utilisez le convertisseur pour connaître la quantité exacte pour la taille concernée. L'important est l'échantillon au-delà de la taille des aiguilles, autrement dit, pour avoir les bonnes mesures finales, vous devez avoir 21 mailles x 28 rangs ici. Les torsades des devants sont effectivement inversées, cf diagrammes A.3 et A.6. Bon tricot!

02.01.2024 - 11:39

country flag A5 Error wrote:

Hello the stitch count for a5 should be 21 am I correct? The patterns states to start A5 when there are 25 stitches left on the needle but in order to *slip1 knit 2 pass the slipped stitch over the knit2* there must be 26 stitches left on the needle in order to do the 5 garter stitches

01.10.2023 - 09:32

DROPS Design answered:

Hi :) there are only 20 sts in A.2 and in A.5 - note that the black square is not a stitch but this stitch will then be increased with the yarn over on 2nd row in A.2/A.5 and then there are 21 sts when A.2/A.5 are done. Happy knitting!

02.10.2023 - 10:28

country flag Suzanne wrote:

Bonjour, je fais le chandail grandeur medium. Je fais le devant droit et je suis rendue à la grille A.2. Après le premier rang j’ai 66 mailles au lieu de 65. Après le deuxième rang de la grille , j’ai 66 mailles comme c’est demandé. J’ai recommencé deux fois et ça me donne la même chose. Est-ce que je fais une erreur où il y a une erreur dans le patron ? Merci

28.09.2023 - 19:33

DROPS Design answered:

Bonjour Suzanne, au 1er rang de A.2, vous diminuez 5 mailles dans les mailles jersey, vous avez donc 65 mailles, puis au 2ème rang de A.2, vous augmentez 1 maille = vous avez ainsi 66 mailles. Bon tricot!

02.10.2023 - 08:21

country flag Lesia wrote:

Wish your instructions were also for straight needles only!

05.08.2023 - 10:02

country flag MURIEL COUSIN wrote:

Bonjour pour les devants Il est marqué mettre les mailles en attente et tricoter les mailles endroit sur endroit et envers sur envers... Mais il est pas précisé quand on doit reprendre les mailles en attente on lles tricote quand? Cordialement

24.06.2023 - 09:01

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Cousin, les mailles de l'encolure mises en attente pour les devants seront reprises quand on va tricoter le col (cf COL), pas avant. Bon tricot!

26.06.2023 - 09:05

country flag Katarzyna wrote:

Why there is not photo of the back?

05.03.2023 - 19:32

DROPS Design answered:

Dear Katarzyna, the back piece is simply knitted with rib and stocking stitch. The only photos we have available are for the front of the garment. Happy knitting!

05.03.2023 - 20:05

country flag Carol J Zettlemoyer wrote:

I like everything about this pattern except the baggy sleeves.

22.01.2023 - 17:37

country flag Ruth wrote:

Mint

18.01.2023 - 13:45