Marita Åsenfors wrote:
Ska det ökas maskor bara i kanten på diagram A1. På vissa rader är det omslag som gör att det blir fler maskor?? Är det 4 omslag på varv 3?? Modell r-809.
05.03.2024 - 07:06DROPS Design answered:
Hej Marita. Du gör omslag där det är inritat i diagrammet. På varv 3 är det 4 omslag och de yttersta ska stickas vridet så att det inte blir hål. På de varv där omlagen gör att det blir fler maskor är det för att det ska ökas maskor på de varven. Mvh DROPS Design
05.03.2024 - 07:22Inger Jensen wrote:
Can I buy this as a Kit? And choose colour?
06.02.2024 - 19:18DROPS Design answered:
Dear Mrs Jensen, please feel free to contact your DROPS store, see list for Canada here. Happy knitting!
07.02.2024 - 08:18Oretta wrote:
È possibile disfare una parte della maglia partendo dall\'inizio? Senza dover disfare tutto il lavoro?
11.07.2023 - 01:25DROPS Design answered:
Buongiorno Oretta, per un aiuto così personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
16.07.2023 - 13:32Monica Kruissen wrote:
Ik heb de oplossing zelf gevonden. dus een antwoord is niet meer nodig
04.06.2023 - 09:28Monica Kruissen wrote:
Ik moet aan het begin en eind 5x in patroon gedeelte A1 een steek meerderen, dus ik eindig het gedeelte met een meerderen, maar ik begin het patroon gedeelte ook met een meerdering. hoe maak ik twee meerderingen na elkaar?
31.05.2023 - 13:12Monica Kruissen wrote:
Ik moet volgens patroon A1 aan het begin en eind van het patroongedeelte 1 steek meerderen, maar hoe meerder ik twee steken achterelkaar?
31.05.2023 - 12:56DROPS Design answered:
Dag Monica,
Ik zie niet in het patroon waar je 1 steek moet meerderen aan het eind van A.1 Je kunt gewoon patroon A.1 volgen en dan komen er automatisch meer steken bij. Deze zijn, namelijk al verwerkt in het telpatroon. Als je om een of andere reden toch 2 steken naast elkaar moet meerderen, dan kun je 2 omslagen achter elkaar maken.
04.06.2023 - 10:10Neem Kaur wrote:
Hello, The pattern chart shows 5 repeats, but the top in the photo shows 4. Am I reading the chart correctly?
09.05.2023 - 23:41DROPS Design answered:
Hello, yes, you read the pattern chart correctly. But it depends on the size - 4 repeats for smaller sizes (S-M-L), 5 repeats for larger sizes (XL-XXL-XXXL). Happy knitting!
10.05.2023 - 06:18Maria Collinge wrote:
The sky is the Limit
22.01.2023 - 23:22Věra Roškaninová wrote:
Spring violets
19.01.2023 - 07:28
Hope Bay Top |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Muskat. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með tvöföldum kanti í hálsmáli, hringlaga berustykki og öldumynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 241-32 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. UPPHÆKKUN: Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppaðu yfir þennan kafla ef þig langar ekki til að hafa upphækkun. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið 16-17-18-19-20-21 lykkjur fram hjá prjónamerki. Snúið, herðið á þræði og prjónið 32-34-36-38-40-42 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 48-51-54-57-60-63 lykkjur. Snúið, herðið á þræði og prjónið 64-68-72-76-80-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 80-85-90-95-100-105 lykkjur slétt. Snúið, herðið á þræði og prjónið 96-102-108-114-120-126 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið sléttar lykkjur til baka að miðju að aftan. Prjónið síðan BERUSTYKKI eins og útskýrt er í uppskrift. ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Ef maður vill þá er hægt að prjóna upphækkun aftan í hnakka. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 110-114-118-122-126-130 lykkjur með DROPS Muskat yfir stuttan hringprjón 3 og stuttan hringprjón 4 sem haldið er saman. Dragið út stutta hringprjón 4 og haldið lykkjunum eftir á stuttum hringprjóni 3 (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegri). Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 9 cm. Nú er stroffið brotið þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er stroffið prjónað eins og áður JAFNFRAMT því sem önnur hver lykkja er prjónuð saman með annarri hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið 1 umferð þar sem aukið er út um 32-32-34-34-36-38 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 142-146-152-156-162-168 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð (mitt að framan) – prjónamerkið er notað til að mæla frá. Nú er hægt að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, haltu áfram eins og útskýrt er að neðan. Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar stykkið mælist 3-4-5-5-5-6 cm frá prjónamerki að framan, aukið út um 20-25-28-33-36-39 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 162-171-180-189-198-207 lykkjur. Þegar stykkið mælist 4-5-6-6-6-7 cm frá prjónamerki að framan, prjónið A.1 alls 18-19-20-21-22-23 sinnum hringinn á berustykki. Haldið svona áfram með mynstur og aukið út eins og útskýrt er í mynsturteikningu. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, mælist stykkið ca 15-16-17-19-19-20 cm frá prjónamerki að framan (mælt að þar sem boginn í öldumynstri snýr upp) og það eru 306-323-340-399-418-437 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón og aukið jafnframt út um 6-17-24-1-6-15 lykkjur jafnt yfir í fyrstu umferð = 312-340-364-400-424-452 lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-19-21-22-24-26 cm frá prjónamerki að framan, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 47-52-55-60-65-71 lykkjur sléttprjón (hálft bakstykki), setjið næstu 62-66-72-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 94-104-110-120-130-142 lykkjur sléttprjón (framstykki), setjið næstu 62-66-72-80-82-84 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 47-52-55-60-65-71 lykkjur í sléttprjóni (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt! FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-220-236-256-280-308 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 25-26-26-27-27-27 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-20-22-24-28-28 lykkjur jafnt yfir = 220-240-258-280-308-336 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl. ERMI: Setjið 62-66-72-80-82-84 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4, prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af 6-6-8-8-10-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi, þ.e.a.s. mitt í 6-6-8-8-10-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi. Byrjið umferð við prjónamerki og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2-2-2-2-1-1 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með 4-3½-2-1-1-1 cm millibili alls 4-4-6-8-8-8 sinnum = 60-64-68-72-76-80 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 15-14-13-12-11-9 cm frá skiptingu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir = 62-66-70-74-78-82 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 19-18-17-16-15-13 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Britt Winther wrote:
STR.M.Strikk rundt bærestukket totalt 19 ganger A1.Fortsett med ønster og øk som vist i diagrammet.Sljønner ikke det med 19 ganger.
21.07.2023 - 12:10