Marta skrifaði:
"Continue the pattern until the yoke measures 9-10-11-12 (13-14) cm from the marker-thread on the neck." How is the yoke supposed to measure only 9 cm for size 0-1 M if there are 36 rows where increases on the yoke are made, totalling almost 13 cm according to the tension swatch?
30.10.2026 - 21:41DROPS Design svaraði:
Dear Marta, if you check the gauge, it's 28 rows when you work in stocking stitch but 42 rows when you work in garter stitch. The 36 rows in the front and back pieces are worked in garter stitch, so the rows are much shorter in height than in stocking stitch and, since 42 rows = 10 cm, 36 rows should be less than 10 cm, closer to 9cm. Happy knitting!
01.11.2026 - 19:24
Mettraux Corinne skrifaði:
Bonjour, Combien de pelotes pour le modèle 1 à 3 mois (56/62) ? Merci d’avance
07.09.2026 - 11:55DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Mettraux, retrouvez les quantités nécessaire ainsi que le nombre de boutons, les aiguilles et l'échantillon sous l'onglet "Explications" en haut de page; il vous faudra ainsi 150 g DROPS Merino Extra Fine / 50 g la pelote = 3 pelotes en taille 1/3 mois. Bon tricot!
08.09.2026 - 08:40
Wil Heerma skrifaði:
Ik wil graag een babybreiboek bestellen. Kan dat en hoe moet ik dat doen. Samen met mijn kleindochter kan er dan gekozen worden wat ik ga breien
28.07.2026 - 22:03DROPS Design svaraði:
Dag Wil,
We publiceren helaas geen boeken meer die je kunt bestellen. Al onze patronen staan online op de website en kunnen afgedrukt worden via de het print pictogram bovenaan de pagina van een patroon.
29.07.2026 - 20:44
Hélène Gervais skrifaði:
Après les 10 augmentations du dos-devant, nous avons dans mon cas 16 cm, ensuite j’augmente de 10 mailles. On change de broches pour des 3 mm et on tricote en côtes 3 cm dans mon cas. Ensuite on rabat. Il est écrit que le chandail devrait avoir dans mon cas 33 cm. Mais 16 +3 cm font 19 cm. Où sont les 17 cm manquants? Merci d’avance
26.06.2026 - 21:04DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Gervais, la partie que vous décrivez, sauf erreur de ma part, correspond au bas du gilet, après la division de l'empiècement, autrement dit vous avez auparavant tricoté l'empiècement - autrement dit, en ajoutant l'empiècement et les épaules, vous aurez 33 cm de hauteur totale (en 12/18 mois); Bon tricot!
29.06.2026 - 07:27
Maria skrifaði:
No entiendo cómo se hace el punto que queda del derecho en medio del punto de musgo
14.03.2026 - 14:37DROPS Design svaraði:
Hola Maria, si te refieres a la cenefa, la cenefa está compuesta por 5 puntos en punto musgo y 1 punto en punto jersey. También se trabaja 1 punto en punto jersey en las líneas del raglán, para formar un ligero relieve. Así que el punto resaltado es porque se trabaja en punto jersey, a diferencia del resto de la labor.
26.04.2026 - 20:10
Hazel skrifaði:
How do you knit 5 band stitches in garter stitch?
07.03.2026 - 01:52DROPS Design svaraði:
Dear Hazel, knit the first and the last 5 sts every row, note that you should work 1 stitch in stocking stitch after these 5 sts at the beg of the row and before the last 5 sts at the end of the row. Happy knitting!
09.03.2026 - 07:52
Emma skrifaði:
Ich stricke dieses Jäckchen zum erstenmal und bin noch etwas ungeübt. Das Jäckchen kann sowohl in Deutsch oder Italienisch sein
04.03.2026 - 12:21DROPS Design svaraði:
Liebe Emma, klicken Sie auf dem Dropdown Menu um die Sprache - enteweder Italienisch oder Deutsch wählen. Viel Spaß beim Stricken!
05.03.2026 - 10:07
PASCALE skrifaði:
Bonjour, peut on avoir les explications pour le tricoter en aiguille à pointes svp
13.11.2025 - 15:51DROPS Design svaraði:
Bonjour Pascale, on tricote le gilet de haut en bas d'abord en allers et retours sur aiguille circulaire, vous pourrez donc tout simplement le tricoter sur aiguilles droites de la même façon, pour les manches, vous trouverez ici comment adapter les explications pour ne pas les tricoter en rond. Bon tricot!
14.11.2025 - 16:30
Yves skrifaði:
Which type of increase do you recommend for the bottom hem before switching to the rib so it won’t be too visible in garter stitch?
23.09.2025 - 20:16DROPS Design svaraði:
Hi Yves, I recommend to make yarn overs and knit/purl them twisted next row. Happy knitting!
04.11.2025 - 08:25
Jackie skrifaði:
Not knitted for a while. Understand the purl row but not with 5 band stitches in Garter Stich?
20.06.2025 - 06:36DROPS Design svaraði:
Dear Jackie, after stitches are cast on, work the first row from the right side as follows: knit 5, purl until 5 sts remain, knit 5. Turn and work now rib, from RS: knit 5 (garter stitch), then repeat (K1,P1) until 6 sts remain, K1 (last stitch rib) and knit 5 (garter stitch) - from WS work; knit 5 (garter stitch), (P1, K1) until 6 sts remain, purl 1 and knit 5. Happy knitting!
20.06.2025 - 08:15
Dream Plan Cardigan#dreamplancardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa fyrir börn úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, garðaprjóni og sléttprjóni. Stærð 0 – 4 ára.
DROPS Baby 45-1 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 3 lykkjur eru eftir á prjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 næstu lykkjur slétt saman og prjónið síðustu lykkju slétt. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður slétt svo að það myndist gat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stroff í hálsi mælist ca 1½-2 cm. Fellið síðan af fyrir 4-5-5-5 (5-5) næstu hnappagötum með ca 4-4-4½-5 (5½-6½) cm millibili. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki heldur áfram fram og til baka. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 65-73-73-79 (83-85) lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu með 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið. Prjónið stroff með byrjun frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, 1 lykkja slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Prjónið þar til stroffið mælist 2 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Setjið 1 prjónamerki á eftir kant að framan í byrjun á umferð mitt að framan, berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki! BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni og 1 lykkju í sléttprjóni (kantur að framan), 7-9-9-11 (11-11) lykkjur í garðaprjóni (framstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón og setjið eitt prjónamerki í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 9-9-9-9 (11-11) lykkjur sléttprjón (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón og setjið eitt prjónamerki í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 17-21-21-23 (23-25) lykkjur í garðaprjóni (bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón og setjið eitt prjónamerki í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 9-9-9-9 (11-11) lykkjur sléttprjón (ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja sléttprjón og setjið eitt prjónamerki í þessa lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7-9-9-11 (11-11) lykkjur í garðaprjóni (framstykki) og prjónið 1 lykkju sléttprjón og 5 lykkjur í garðaprjóni (kantur að framan). Nú hafa verið sett 4 prjónamerki í stykkið og aukið hefur verið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki fyrir laskalínu (alls 8 lykkjur fleiri). Prjónið áfram í þessu mynstri sem búið er að setja niður, uppslátturinn er prjónaður í garðaprjóni á framstykkjum og bakstykki og í sléttprjóni á ermum – uppslátturinn á ekki að prjónast snúinn, það eiga að myndast göt. Haldið áfram með útaukningu hvoru megin við lykkjur með prjónamerki í annarri hverri umferð (hverri umferð frá réttu) alls 4-6-6-6 (8-9) sinnum, síðan er aukið út í 4. hverri umferð (annarri hverri umferð frá réttu) 7-7-8-9 (9-9) sinnum. Nú hafa verið auknar út alls 11-13-14-15 (17-18) sinnum og það eru 153-177-185-199 (219-229) lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓFNESTUNA! Prjónið mynstur eins og áður þar til stykkið mælist 9-10-11-12 (13-14) cm frá prjónamerki í hálsmáli, nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni og 1 lykkju í sléttprjóni (kantur að framan), 19-23-24-27 (29-30) lykkjur í garðaprjóni, setjið næstu 31-35-37-39 (45-47) lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 6-6-8-8 (6-6) lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 41-49-51-55 (59-63) lykkjur í garðaprjóni, setjið næstu 31-35-37-39 (45-47) lykkjur á þráð fyrir ermi án þess að prjóna þær, fitjið upp 6-6-8-8 (6-6) nýjar lykkjur í hlið undir ermi, prjónið 19-23-24-27 (29-30) lykkjur í garðaprjóni, 1 lykkja sléttprjón og 5 lykkjur í garðaprjóni (kantur að framan). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 103-119-127-137 (141-147) lykkjur. Haldið áfram fram og til baka með mynstur sem búið er að setja niður (lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermum eru prjónaðar í garðaprjóni). Þegar stykkið mælist 11-13-14-16 (18-21) cm frá skiptingu, aukið út um 8-6-12-10 (16-20) lykkjur jafnt yfir í næstu umferð frá réttu (ekki er aukið yfir ystu 6 lykkjurnar í hvorri hlið) = 111-125-139-147 (157-167) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff með byrjun frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 2-3-3-3 (3-3) cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 24-28-30-33 (36-40) cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 31-35-37-39 (45-47) lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna 4 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja og eina af þeim 6-6-8-8 (6-6) lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 37-41-45-47 (51-53) lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja og byrjið umferð við prjónamerki (mitt undir ermi). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingu, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA! Fækkið lykkjum svona með 3-3-2-2½ (3-4) cm millibili alls 2-3-5-5 (5-5) sinnum = 33-35-35-37 (41-43) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 9-11-12-14 (18-22) cm frá skiptingu, aukið út um 5-5-5-5 (3-5) lykkjur jafnt yfir = 38-40-40-42 (44-48) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 2-2-3-3 (3-3) cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 11-13-15-17 (21-25) cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dreamplancardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 45-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.