Clara skrifaði:
Hallo, ich mache Größe S und habe eine Frage zu den Abnahmen bei den Armausschnitten. Ich habe beidseitig 3 Maschen abgenommen, der nächste Schritt ist 2 Maschen je 0x beidseitig. Muss ich jetzt 2 Reihen ohne Abnahmen stricken oder diesen Schritt überspringen und direkt 1 Masche je 2x abnehmen (also in 4 Reihen jeweils die 1. Masche abketten)?
13.09.2024 - 23:17DROPS Design svaraði:
Liebe Clara, in S sollen. Sie einfach nur 1 Masche 2 Mal beidseitig abnehmen, so sind es 83-(2x1)x2 = 79 Maschen übrig. Viel Spaß beim Stricken!
16.09.2024 - 08:04
Eileen Reuben skrifaði:
For this pattern in a small it does not say how many skins you would need of drops Paris
26.03.2024 - 23:13DROPS Design svaraði:
Dear Ellen, DROPS Paris comes in 50 grams skeins, so since the pattern says for size small you need 550 gramms of off-white and 150 gramms of petrol, you will need 11 skeins of off white and 3 skeins of petrol. I hope this helps. Happy Knitting!
27.03.2024 - 10:01
Susanne skrifaði:
Ich weiß nicht, was ich falsch gemacht habe, aber der Pullover fällt VIEL zu groß aus. Ich habe die Größe xl ( 62cm in der Breite, Rück-Vorderteil, Anschlag 155 Maschen) gewählt, da ich Größe 44/46 trage. Ausserdem habe ich eine dickere Nadel gewählt, wie vorgeschlagen, da meine Maschenprobe statt 17 Maschen 20 Maschen ergab. Nachdem ich das Rückenteil gemessen habe ( im A1 Bereich, nach Abnahme von 50 M.) , waren es 72 cm in der Breite. Also viel zu groß.
10.01.2024 - 17:18DROPS Design svaraði:
Liebe Susanne, die 155 Maschen werden mit Bündchen gestrickt, danach nehmen Sie ab, so daß 105 M übrig sind, dann mit 17 M = 10 cm sind diese 105 Maschen ca 62 cm. Viel Spaß beim stricken!
11.01.2024 - 08:52
Helle skrifaði:
Hej Jeg kan ikke få striberne så fine som på billede, det bliver meget markant når vrang masken strikkes, hvordan undgår i det
27.08.2023 - 11:11DROPS Design svaraði:
Hei Helle. Når man strikker striper og skal strikke vrang, blir vrangmaskene litt markant, men sånn er det også på genseren på bildet. mvh DROPS Design
11.09.2023 - 07:24
Juliana skrifaði:
Guten Tag, ich wollte nachfragen, in welchem Muster sollte die Ärmel (Teil mit Streifen) wirklich gestrickt werden. Direkt im Anleitung für Ärmel ist A.1 angegeben, jedoch vorne in Hinweisen zur Anleitung - Streifen Ärmel ist A.2 geschrieben. Für eine Rückmeldung bedanken ich mich voraus.
24.06.2023 - 22:20DROPS Design svaraði:
Liebe Juliana, Es scheint ein Tippfehler im Muster zu sein. Wir werden uns bei der Designabteilung erkundigen. Grundsätzlich sollte man der Struktur wie am Körper folgen (A.1 für die Streifen und dann A.2 mit natur). Viele Spass zum stricken!
26.07.2023 - 16:41
Janine Grela skrifaði:
Bonjour, concernant le modèle Know the Ropes, je souhaiterais savoir pourquoi le diagramme est différent pour les manches et les dos devant ? Exemple : devant les rayures sont tricotées dans le même sens que les 4 rangs d'en-dessous et pour les manches les 4 mailles sont intercaleées. Merci pour votre réponse.
23.05.2023 - 08:35
Maria skrifaði:
Dzień dobry, czy ściągacz rękawa, prawa strona, ma się kończyć oczkiem prawym, trzema oczkami lewymi i oczkiem brzegowym, czy też jest błąd i zamiast 66 oczek należy nabrać 65( rozmiar S)?
26.04.2023 - 11:37DROPS Design svaraði:
Witaj Mario, zgadza się, w pozostałych rozmiarach też jest błąd. W twoim rozmiarze powinno być 65 oczek. To oczywiście wpłynie na pozostałe liczby w części RĘKAWY. Korekta już została zgłoszona. Pozdrawiamy!
27.04.2023 - 08:18
MURIEL skrifaði:
Rebonjour merci de m avoir répondue Je suis désolée je ne comprends pas pourquoi il faut tricoter les trois mailles du rang envers et reprendre a la quatrième mailles. Je pensais que dans tous les diagrammes en aller retour on tricoter tout le rang endroit de gauche a droite et l envers de droite a gauche Cordialement
17.04.2023 - 20:28DROPS Design svaraði:
Bonjour Muriel, vous terminez le rang sur l'endroit par les 3 premières mailles du diagramme, donc, sur l'envers, vous devez tricotez d'abord ces 3 mailles, soit vu sur l'envers la 4ème, la 5ème et la 6èm maille de A.1 (= vu sur l'endroit, la 1ère, la 2ème et la 3ème maille de A.1). Bon tricot!
18.04.2023 - 10:04
Muriel skrifaði:
Bonjour Je suis en train de tricoter le modèle know the ropes et j ai une question Comme il se tricote en aller retour on tricote les rangs pairs de droite à gauche et les rangs impairs de gauche à droite. Seulement pour obtenir le dessin correspondant au tricot il faut tricoter tous les rangs de droite à gauche comment ça se fait svp? Merci
16.04.2023 - 14:27DROPS Design svaraði:
Bonjour Muriel, quand on lit les diagrammes en allers et retours, on lit les rangs sur l'endroit de droite à gauche et les rangs sur l'envers de gauche à droite. Vous allez tricoter 14-15-16-17-19-21 fois les 6 mailles de A.1 + les 3 premières mailles (le motif est ainsi symétrique), autrement dit, sur l'envers, vous commencez à lire par la 4ème maille à partir de la gauche (pour tricoter les 3 dernières mailles, vu sur l'envers), puis répétez A.1 en lisant les 6 m de gauche à droite. Bon tricot!
17.04.2023 - 09:40
Know the Ropes#knowtheropessweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað neðan frá og upp með röndum, áferðamynstri, ísaumuðum ermum og hringlaga hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-40 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. RENDUR FRAM- OG BAKSTYKKI: Það eru prjónaðar rendur og mynstur þannig: Prjónið fyrstu 8 umferðir í A.1 í litnum natur, prjónið síðustu 4 umferðir í A.1 í litnum bensín. Prjónið svona þar til prjónaða hafa verið alls 6 rendur í litnum bensín. Nú er fram- og bakstykkið prjónað til loka í litnum natur og mynsturteikningu A.2. RENDUR ERMAR: Það er prjónað mynstur A.2 með röndum þannig: * 4 umferðir með litnum natur, 4 umferðir með litnum bensín *, prjónið frá *-* 3 sinnum, síðan er prjónað * 8 umferðir með litnum natur, 4 umferðir með litnum bensín *, prjónið frá *-* 3 sinnum. Nú eru ermar prjónaðar til loka í litnum natur og mynsturteikning A.2. ÚTAUKNING (á við um ermar): Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt – nýjar lykkjur eru prjónaðar inn í mynstur A.1/A.2. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Bakstykkið, framstykkið og ermar er prjónað fram og til baka á hringprjóna hvert fyrir sig. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir kant í hálsmáli sem prjónaður er í hring á hringprjóna. Hægt er að brjóta uppá kant í hálsmáli / kraga fyrir miðju og sauma niður ef maður vill. BAKSTYKKI: Fitjið upp 125-134-143-155-170-185 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Paris í litnum bensín. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist 16 cm frá uppiftjunarkanti og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 38-41-44-50-53-56 lykkjur jafnt yfir = 87-93-99-105-117-129 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu þar sem fitjuð er upp 1 kantlykkja í hvorri hlið = 89-95-101-107-119-131 lykkjur. Nú er prjónað eftir mynstrið A.1 með 1 kantlykkju í sléttprjóni í hvorri hlið – sjá RENDUR. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið með litnum natur og mynstur A.2 að loknu máli. Jafnframt þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm frá uppfitjunarkanti eru felldar af 3 lykkjur fyrir handveg í byrjun á næstu 2 umferðum = 83-89-95-101-113-125 lykkjur. Haldið áfram með affellingu fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 0-1-1-1-3-4 sinnum, 1 lykkja 2-2-3-4-5-7 sinnum = 79-81-85-89-91-95 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm. Nú eru felldar af miðju 29-29-31-31-33-33 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umferð frá hálsi er felld af 1 lykkja. Nú eru 24-25-26-28-28-30 lykkjur á prjóni. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. Prjónið hina öxlina á sama hátt. FRAMSTYKKI: Fitjið upp jafnmargar lykkjur og á bakstykki og prjónið alveg eins og bakstykki þar til stykkið mælist 51-53-54-56-57-59 cm = 79-81-85-89-91-95 lykkjur. Nú eru miðju 19 lykkjur settar á þráð fyrir hálsmáli og axlir eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig. VINSTRI ÖXL: = 30-31-33-35-36-38 lykkjur. Prjónið fram og til baka eins og áður, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir hálsmáli: Prjónið mynstur eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir að hálsi, prjónið 2 lykkjur slétt saman (1 lykkja færri), prjónið 2 lykkjur sléttprjón. Frá röngu er prjónað áfram með 3 lykkjur sléttprjón að hálsmáli að loka mál. Endurtakið úrtöku fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hlið alls 6-6-7-7-8-8 sinnum = 24-25-26-28-28-30 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. HÆGRI ÖXL: = 30-31-33-35-36-38 lykkjur. Prjónið fram og til baka eins og áður, JAFNFRAMT í fyrstu umferð frá réttu byrjar úrtaka fyrir hálsmáli: Prjónið 2 lykkjur sléttprjón, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (1 lykkja færri), prjónið mynstur eins og áður út umferðina. Frá röngu er prjónað áfram með 3 lykkjur sléttprjón að hálsmáli að loka máli. Endurtakið úrtöku fyrir hálsmáli í hverri umferð frá hálsmáli alls 6-6-7-7-8-8 sinnum = 24-25-26-28-28-30 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm. ERMI: Fitjið upp 65-68-71-74-77-77 lykkjur á hringprjón 4 í litnum bensín. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni. Skiptið yfir í litinn natur og prjónið garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stroffið mælist ca 16 cm frá uppfitjunarkanti og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu þar sem fækkað er um 19-22-19-22-19-19 lykkjur jafnt yfir = 47-47-53-53-59-59 lykkjur. Prjónið 1 umferð frá röngu með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Prjónið mynstur A.2 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið – lesið RENDUR ERMAR. Lestu allan kaflann áður en þú prjónar áfram! Þegar stykkið mælist 20 cm, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – sjá ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með ca 4½-3-3½-2½-3½-2 cm millibili alls 6-8-7-9-6-8 sinnum í hvorri hlið = 59-63-67-71-71-75 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist ca 47-46-46-45-42-40 cm (nú eru eftir ca 4-5-5-6-9-11 cm að loka máli). Fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: Fellið af 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 0-2-2-3-6-8 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni og 3 lykkjur 1 sinni. Síðan eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru. Ermin mælist ca 51 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í og saumið saum undir ermum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í sléttprjóni, skiljið eftir 16 cm klauf neðst. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4 og litinn natur, byrjið frá réttu við öxl. Prjónið upp ca 84-99 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur sem settar voru á þráð á framstykki) – prjónið upp innan við 1 lykkju slétt meðfram hliðum á hálsmáli fram þannig að það verða 2 sýnilegar sléttar lykkjur meðfram kanti í hálsmáli. Prjónið hringinn í stroffprjóni (1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Prjónið 1 umferð brugðið. Haldið áfram með stroff eins og áður þar til kantur í hálsmáli mælist alls 9 cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ef maður vill er hægt að brjóta kantinn í hálsmáli inn að miðju og sauma niður með nokkrum sporum að innanverðu á stykkinu. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #knowtheropessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-40
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.