DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13310.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sailor Stripes

Prjónuð peysa úr DROPS Soft Tweed eða DROPS Daisy. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með skáhallandi öxl / evrópskri öxl, röndum og háum kanti í hálsmáli. Stærð S - XXXL.

DROPS 239-39
DROPS Design: Mynstur st-036
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS SOFT TWEED frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 01, natur
150-200-200-200-250-250 g litur 10, gallabuxnablár

Eða notið:
DROPS DAISY frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
500-550-600-650-750-800 g litur 01, natur
200-250-250-250-300-300 g litur 10, ljós blár

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Soft Tweed
DROPS Soft Tweed
50% Ull, 25% Alpakka, 25% Viscose
frá 1210.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13310.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

RENDUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

LEIÐBEININGAR RENDUR (á við um rendur þegar prjónað er í hring):
Til að fá fallega litaskiptingu í byrjun og í lok umferðar þegar rendur eru prjónaðar, er hægt að prjóna þannig:
Skiptið yfir í nýjan lit og prjónið 1 umferð. Fyrsta lykkjan í næstu umferð er prjónuð þannig: Lyftið upp lykkjunni undir fyrstu lykkju á vinstri prjón (lykkjan er lyft upp í aftari lykkjubogann) og setjið þessa lykkju yfir á vinstri prjón. Síðan er þessi lykkja prjónuð slétt saman með næstu lykkju á vinstri prjóni. Með þessu þá sést skipting á milli lita minna.

ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU:
Aukið út til vinstri Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í aftari lykkjubogann.
Aukið út til hægri Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í fremri lykkjubogann.

ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU:
Aukið út til vinstri Á EFTIR PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í fremri lykkjubogann.
Aukið út til hægri Á UNDAN PRJÓNAMERKI:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í aftari lykkjubogann.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Efri hlutinn á bakstykki er prjónaður fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp meðfram hvorri öxl, aukið er út fyrir hálsmáli og fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður þar til handvegur hefur verið prjónaður til loka.
Framstykkið og bakstykkið er sett saman. Fram- og bakstykkið er prjónað í hring á hringprjóna.
Lykkjur eru prjónaðar upp í kringum hvorn handveg. Ermakúpan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna, síðan er afgangur af ermi prjónaður í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. Að lokum er prjónaður kantur í hálsmáli í hring.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 39-39-43-43-47-47 lykkjur á hringprjón 4 í litnum natur í DROPS Soft Tweed eða DROPS Daisy.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Setjið 1 prjónamerki innan við ystu 3 lykkjur í hvorri hlið. Prjónamerkin eiga að sitja í ystu 3 lykkjum í hverri umferð í framhaldinu.
Nú er prjónað sléttprjón fram og til baka. JAFNFRAMT er aukið út á EFTIR prjónamerki í byrjun á umferð (séð frá réttu) og á UNDAN prjónamerki í lok umferðar – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU.
Í næstu umferð (ranga) er aukið út alveg eins – sjá ÚTAUKNING FRÁ RÖNGU.
Haldið áfram í sléttprjóni og aukið út alveg eins bæði frá réttu og frá röngu alls 34-38-40-44-46-50 sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Á eftir síðustu útaukningu eru 107-115-123-131-139-147 lykkjur í umferð og stykkið mælist ca 12-14-14-16-16-18 cm frá uppfitjunarkanti.
Prjónið með litnum natur þar til stykkið mælist ca 4-5-5-6-7-8 cm (mælt yst meðfram handvegi). Nú er prjónað A.1 fram og til baka yfir allar lykkjur og er endurtekið á hæðina – lesið RENDUR. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 15-16-16-17-18-19 cm (mælt yst meðfram handvegi) og A.1 hefur verið prjónað 3 sinnum á hæðina. Klippið þráðinn. Setjið lykkjur á þráð og geymið stykkið. Prjónið framstykkið eins og útskýrt er að neðan.

FRAMSTYKKI:
Byrjið með hægri öxl (séð þegar flíkin er mátuð).
Prjónið upp frá réttu 34-38-40-44-46-50 lykkjur innan við 1 lykkju meðfram hægri öxl á bakstykki (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja umferð meðfram kanti efst á bakstykki) með litnum natur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka. Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur í lok hverrar umferðar frá réttu, lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út fyrir hálsmáli svona alls 6-6-7-7-8-8 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 40-44-47-51-54-58 lykkjur í umferð.
Klippið þráðinn og setjið lykkjur á þráð þegar síðasta útaukning frá réttu hefur verið gerð. Nú er vinstri öxl prjónuð eins og útskýrt er að neðan.

Prjónið upp frá réttu 34-38-40-44-46-50 lykkjur innan við 1 lykkju meðfram vinstri öxl á bakstykki með litnum natur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu (þ.e.a.s. frá hálsi): Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka. Þegar stykkið mælist 6 cm frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út lykkjur við hálsmál. Aukið út um 1 lykkju fyrir hálsmáli innan við 3 lykkjur í byrjun á hverri umferð frá réttu, lesið ÚTAUKNING FRÁ RÉTTU. Aukið út fyrir hálsmáli svona alls 6-6-7-7-8-8 sinnum. Á eftir síðustu útaukningu eru 40-44-47-51-54-58 lykkjur í umferð.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið sléttprjón yfir 40-44-47-51-54-58 lykkjur frá vinstra framstykki, fitjið upp 27-27-29-29-31-31 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið sléttprjón yfir 40-44-47-51-54-58 lykkjur frá hægra framstykki = 107-115-123-131-139-147 lykkjur.
Síðan er prjónað sléttprjón fram og til baka. Þegar stykkið mælist 14-15-17-18-19-20 cm (mælt yst meðfram handvegi) prjónið A.1 – munið eftir útskýringu að ofan. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 25-26-28-29-30-31 cm og það eru alls 3 rendur alveg eins og á bakstykki. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Prjónið rendur eins og áður yfir 107-115-123-131-139-147 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 6-6-10-10-14-18 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (í hlið undir ermi), prjónið eins og áður yfir 107-115-123-131-139-147 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 6-6-10-10-14-18 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi) = 226-242-266-282-306-330 lykkjur. Haldið áfram með A.1 hringinn á fram- og bakstykki þar til stykkið mælist ca 50-52-54-56-58-60 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki- endið eftir nokkrar umferðir með litnum natur.
Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-26-26-26-30-30 lykkjur jafnt yfir = 248-268-292-308-336-360 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm með litnum natur. Fellið aðeins laust af. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm, mælt frá efsta punkti á öxl á framstykki.

HÆGRI ERMI:
Notið hringprjón 4 og litinn natur, prjónið upp frá réttu 32-34-34-36-38-40 frá botni á handvegi og upp að öxl (meðfram bakstykki) og 53-55-59-61-63-65 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi í hinni hliðinni (meðfram framstykki) = 85-89-93-97-101-105 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – prjónamerkið á að nota til að mæla frá. Byrjið frá röngu og prjónið sléttprjón fram og til baka þar til ermin mælist 1-1-2-2-3-4 cm.
Nú er stykkið sett saman og afgangur af ermi er prjónaður í hring á stuttan hringprjón / sokkaprjóna. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umferð (mitt undir ermi). Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist ca 3-3-3-4-4-4 cm. Prjónið síðan A.1 – munið eftir LEIÐBEININGAR RENDUR. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 4-4-5-5-6-7 cm frá þar sem prjónamerki var sett, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 3-3-2½-2½-2-1½ cm millibili alls 12-12-14-14-16-16 sinnum = 61-65-65-69-69-73 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 42-41-40-40-39-38 cm. Nú eru eftir ca 6 cm að loka máli. Endið eftir nokkrar umferðir með litnum natur. Prjónið 1 umferð slétt þar sem lykkjum er aukið út jafnt yfir = 68-72-72-76-76-80 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 48-47-46-46-45-44 cm.
Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu.

VINSTRI ERMI:
Notið hringprjón 4 og litinn natur, prjónið upp frá réttu 53-55-59-61-63-65 lykkjur frá botni á handvegi og upp að öxl (meðfram framstykki) og 32-34-34-36-38-40 lykkjur frá öxl og niður að botni á handvegi á hinni hliðinni (meðfram bakstykki) = 85-89-93-97-101-105 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð – prjónamerkið er notað til að mæla frá. Afgangur af ermi er prjónaður á sama hátt og hægri ermi.
Saumið botninn á handvegi – sjá teikningu.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Byrjið við aðra axlarlínuna og prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju ca 120-140 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með litnum natur. Lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4.
Prjónið stroff hringinn (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 10 cm. Fellið af.
Ef maður vill hafa tvöfaldan kant í hálsmáli er stroffið brotið niður að innanverðu á stykki. Saumið nokkur spor við hvora öxl þannig að hálsmálið leggist fallega.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 22.03.2023
Leiðrétting á lykkjufjölda á ermum + kanti í hálsmáli + ný mynsturteikning A.1

Mynstur

symbols = litur gallabuxnablár
symbols = litur natur
symbols = lykkjur fyrir vinstri öxl að framan (d) prjónið upp meðfram vinstri öxl að aftan (D), lykkjur fyrir hægri öxl að framan (e), prjónið upp meðfram hægri öxl að aftan (E)
symbols = botninn á handvegi er saumaður þannig: Saumið b við B
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (9)

country flag SandraM wrote:

Hello, what does the pattern mean by 'Insert 1 marker inside the first 3 stitches on each side. ' Do I knit or purl 3 then place the marker or K or purl 2 and place the marker, I don't under stand what inside the first three stitches means, I am used to Knit 3 place a marker, for example. Thank you SandraM

09.04.2024 - 23:55

DROPS Design answered:

Dear Sandra, it means, you start knitting your row, after the 3d stitch you place a marker, then continue with th erow, until the last three stitch, place the second marker and finish your row. Happy Knitting!

10.04.2024 - 06:05

country flag Babett Krüger wrote:

Können Sie mir bitte erklären was Sie mit auffassen meinen? Meinen Sie eine Masche aufnehmen? (Dazu nehmen) Vielen Dank

05.11.2023 - 19:15

DROPS Design answered:

Liebe Frau Krüger, also ja, bei beiden ZUNAHMETIPP wird es wie in diesem Video aufgefassen/zugenommen; die Maschen von den beiden Schulter, Vorderteil, werden wie in diesem Video aufgefassen. Viel Spaß beim stricken!

06.11.2023 - 08:51

country flag Emma wrote:

Jeg er i gang med at strikke forstykket. Hvor skal jeg måle fra? Der står der skal måles yderst langs ærmegabet, men er i tvivl om jeg skal måle fra hvor jeg har lavet udtagninger til skulderen, eller om blot for- og bagstykke skal strikkes lige langt. Skal siges jeg ikke strikker striber, men blot én farve. Er kommet til det sidste stykke i opskriften inden jeg skal strikke ærmer.

18.10.2023 - 23:28

DROPS Design answered:

Hej Emma, ja for og bagstykke skal være lige langt, dvs at den nederste skrå del på skulderen ligger bagpå og du måler fra øverste punkt på skulderen :)

24.10.2023 - 08:12

country flag Louisa Schwegler wrote:

Liebes Drops-Team, Nach der Aufnahme (dann 107 M) muss noch ein Stück gestrickt werden, bevor mit A1 begonnen wird. Muss dieses Stück 4 cm lang sein oder worauf bezieht sich die Angabe von 4 cm? LG Louisa

14.10.2023 - 18:09

DROPS Design answered:

Liebe Frau Schwegler, diese 4 cm werden am Armauschnitt dh an der Seite = nach den letzten Zunahmen gemessen. Viel Spaß beim stricken!

16.10.2023 - 09:24

country flag Mascha wrote:

Hallo! Gibt es vielleicht ein Video oder eine Zeichnung zu dem Streifentipp? Ich verstehe nicht richtig, wie ich die untere Masche auf die Nadel nehmen soll. Vielen Dank im Voraus!

05.09.2023 - 20:18

DROPS Design answered:

Liebe Mascha, ja genau, in diesem Video zeigen wir, wie man Streifen in Runden ohne Stufe im Übergang strickt. Viel Spaß beim stricken!

06.09.2023 - 09:07

country flag Joey wrote:

Right Sleeve: My question is about where to measure from, based on the section I've included below. Insert 1 marker in the middle of the row – USED TO MEASURE FROM. AT THE SAME TIME when the sleeve measures 4-4-5-5-6-7 cm FROM THE MARKER-THREAD, decrease 2 stitches under the sleeve... So it changes what you're measuring from? Or is it supposed to still be from the first marker? Thank you

06.08.2023 - 18:47

DROPS Design answered:

Dear Joey, yes, once you insert the marker thread you will measure from there, unless stated otherwise (for example, if it says from the cast-on edge). The marker thread inserted later on in the right sleeve at the beginning of the round will follow the work upwards, so it can't be used for measuring. So it's 4-4-5-5-6-7 cm from the marker "used to measure from". Happy knitting!

06.08.2023 - 22:18

country flag Martine wrote:

Ik zie dat A1 gecorrigeerd is, maar ik was al bezig het achterpand te breien. Moet ik dit nu uithalen? Komt het ook uit als ik doorga? Alleen de streep begint dan iets lager?

23.03.2023 - 22:58

DROPS Design answered:

Dag Martine,

Om eerlijk te zijn weet ik niet hoe A.1 eruit zag voordat het gewijzigd is. Als het aantal naalden waarover de strepen gebreid worden gewijzigd is, wat me het meest logisch lijkt, kan je inderdaad gewoon door breien en de hoogte afmetingen aan houden.

24.03.2023 - 19:19

country flag Jenny wrote:

Hej! Skulle vilja sticka denna tröja i annat garn men i konverteraren när jag skall se vilket garn jag kan använda istället för soft Tweed så finns ej 8 trådar som alternativ. Soft tweed är ju 8 trådar om jag ej förstått fel?

14.03.2023 - 20:01

DROPS Design answered:

Hej Jenny, du vælger DROPS Soft Tweed, skriver antal gram i din størrelse, og vælger 1 tråd som denne er strikket i, så får du masser af alternativer op fra garngruppe B :)

15.03.2023 - 10:30

country flag Mascha wrote:

Ahoi! Ich möchte diesen Pulli gern ohne Streifen stricken. Wieviel Garn benötige ich dann für Größe XL, 550 g + 200 g = 750 g? Oder etwas weniger? Vielen Dank im Voraus für die Hilfe.

12.03.2023 - 21:56

DROPS Design answered:

Liebe Mascha, da wir dieses Modell nur mit Streifen gestrickt haben, haben wir leider keine Erfahrung für die Garnmenge mit nur einer Farbe, aber ja, am besten kalkulieren Sie so, es kann sein, daß wir etwas weniger brauchen. Viel Spaß beim stricken!

13.03.2023 - 10:28