Renate skrifaði:
Hallo liebes Drops Team, ich bin grade an der Halsblende und frage mich, ob das wirklich richtig ist, daß die Raglanzunahmen wirklich in jeder Reihe sein sollen? Also z.B. Auf der Rückreihe den Umschlag aus der Vorreihe stricken, dann einen Umschlag, markierte Masche, Umschlag, den Umschlag aus der vorigen Reihe stricken. Das scheint mir zu viel zu sein. Ist das so richtig oder immer eine Reihe ohne Zunahmen dazwischen? Vielen Dank für die Hilfe
16.10.2026 - 08:10DROPS Design svaraði:
Liebe Renate, ja, es ist richtig, dass Sie beim Stricken der verkürzten Reihen sowohl in Hin-Reihen als auch in Rück-Reihen zunehmen. Sie stricken zuerst den Umschlag der Vor-Reihe wie beschrieben ab und dann stricken Sie den nächsten neuen Umschlag, wie Sie es selbst auch beschrieben haben. Später nehmen Sie dann nur noch in jeder 2. Runde zu. Viel Spaß beim Stricken!
16.10.2026 - 10:34
HN skrifaði:
Neulon kokoa S. Ensimmäisten raglanlisäysten jälkeen minulla oli 140 s, minkä jälkeen neuloin ilman lisäyksiä, kunnes kaarroke oli 13 cm keskeltä takaa. Aloitin sitten raidat ja uudet raglanlisäykset. Nyt minulla on 180 s ja kaarroke 18 cm keskeltä edestä, mutta lisäyksiä on vielä jäljellä useita kerroksia. Ohjeessa lopullinen pituus on 21 cm. Olenko tehnyt/ymmärtänyt jotain väärin, sillä jatkamalla työ ei ole 21cm lisäysten jälkeen.
02.09.2026 - 22:14DROPS Design svaraði:
Hei, kun olet tehnyt ensimmäiset 2 lisäyskerrosta, jatka heti lisäyksiä siten, että teet etu-/takakappaleen lisäykset joka 2.kerros ja hihojen lisäykset joka 4.kerros. Kun työn pituus on 13 cm, aloitat raidoituksen.
03.09.2026 - 18:49
Brigitte skrifaði:
Iich habe schon bei der Maschenprobe ein Problem: die 17M in der Breiteergeben 10 cm, aber in der Höhe 24 R statt 22. Ich fürchte, das macht beim Raglan und den Ärmeln einen großen Unterschied. Dünnere Nadeln würde ich nicht gerne nehmen, es ist mit 5er Nadeln schon recht fest. Danke für die Hilfe! Brigitte
30.06.2026 - 18:48DROPS Design svaraði:
Liebe Brigitte, die Maschenanzahl in der Breite ist wichtig damit die Arbeit nicht zu groß und auch nicht zu eng wird; die Reihenanzahl können Sie einfach anpassen; nach allen Raglanzunahmen fertig sind stricken Sie einfach bis die gewünschte Länge; es kann nur sein, daß Sie etwas mehr Garn brauchen (da Ihre Maschenprobe etwas zu eng ist). Viel Spaß beim Stricken!
01.07.2026 - 07:32
Lene skrifaði:
Forstår ikke raglanudtagningerne med vendemasker. Under raglan står der enten før eller efter en raglanmaske hvilket så giver 4 udtagninger. men under halsudskærimg står der at der skal tages 8 masker ud på en hel omgang.
07.05.2026 - 10:39DROPS Design svaraði:
Hej Lene jo du starter midt bagpå, strikker fra retsiden og tager ud til raglan på begge sider af de 2 første mærketråde (4 udtagninger), når du har strikket 3 masker forbi nr 2 mærketråd på højre forstykke, vender du arbejdet, strikker tilbage fra vrangen, tager 2 masker ud ved alle 4 mærketråde, strikker til du er 3 masker forbi sidste mærketråd, nu er du på venstre forstykke, vender arbejdet og fortsætter med 3.pind ifølge opskriften. Se selve teknikken her (hvordan du vender uden af få hul): Hvordan strikkes German Short Rows - med dobbeltmaske på pinden og den her teknik: Raglan og forkortede pinde
07.05.2026 - 11:28
Anette skrifaði:
Hej Jeg strikker en mandemodel. Under indtagning i ærme, står der at der tages ind ca på hver 7.-4.-3.-21/2.-2.2. cm totalt 13 gange.. men skal jeg finde xl størewlsen som jeg strikker, det er hver 3. Cm. Eller er det hver 7. 4.3.21/2.2 .2 cm eller er det hver kun hver 3. Cm.??
12.04.2026 - 13:09DROPS Design svaraði:
Hei Anette. Herre modellen er DROPS nr 233-22 og i str. XL tar man inn på ca hver 2,5. cm totalt 13 ganger = 47 masker. mvh DROPS Design
13.04.2026 - 14:30
Anna skrifaði:
Heutzutage ist das leichteste, ein Text zu übersetzen, warum haben Sie so wenig Sprachen zur Auswahl? Man muss alles kopieren, übersetzen, was die ältere Menschen auf dem Handy wahrscheinlich nicht schaffen. Sie haben eine riesige russischsprachige Community von drops-fans, keine Sprache zur Auswahl aber. Schade...
26.01.2026 - 14:58
Fabienne skrifaði:
Bonjour, pour l’encolure du pull Meet the captain, taille M, j’ai fait les 5 rangs raccourcis juste après le col, mais il me manque 15 mailles et les rangs racourcis se trouvent au niveau d’une manche, pas au dos. J’ai Recommencé 2 fois! Avez vous un Tuto pour ces 5 rangs ? Merci
24.01.2026 - 11:06DROPS Design svaraði:
Bonjour Fabienne, dans cette vidéo, nous montrons comment tricoter ce type de rangs raccourcis, attention toutefois à bien augmenter comme dans les explications, autrement dit, sur l'envers également, dans la vidéo, on augmente uniquement sur l'endroit. Bon tricot!
26.01.2026 - 08:07
Paula skrifaði:
On Neckline I have done row 1 with yarn overs on markers 1 and 2. Now I turn to purl and need to increase at these same markers . I have a yarnover on each side of marker which needs to be made into a proper stitch. How do I therefore make another increase. I don't think I make an increase in the yarn over ?
20.12.2025 - 11:04DROPS Design svaraði:
Hi Paula, You always increase just before and after the marker-stitch. When working back on row 2, you work the yarn over before the marker stitch (from the previous row) as described under Raglan, then make 1 new yarn over, work the marker-stitch, make 1 yarn over and work the yarn over from the previous row as described under Raglan. Hope this helps. Merry Christmas! Regards, Drops Team.
22.12.2025 - 07:42
Ute skrifaði:
In the sketch the short rows (after 4 cm neckband) are 6 cm long. So the neckline can't consist of 5 rows, but of 10. Is that correct? It would make more sense, because otherwise after turning you would have to knit the 2 yarn overs from the previous row and 2 new yarn overs at each marker which seems chaotic to me. As Laia wrote, there are more contradictions: Raglan-description = sleeve-increases only on right side. Neckline-descr. = every row which must be right to get 128 stitches size M
22.04.2025 - 11:52DROPS Design svaraði:
Dear Ute, the 6 cm in the chart are for shoulders, not for the short rows. There are only 5 rows for the short rows/neck elevation on back piece. On first row you increase only on first half = back piece + sleeve + beg of front piece, on last row you will increase only at the end of front piece + on left sleeve + beg of back piece so that you have increased the same number of stitches when all short rows are done = 96+4+8+8+8+4=128. Happy knitting!
22.04.2025 - 17:20
Ute skrifaði:
Hi Patrycja, you wrote: "Increase for the sleeves after markers 1 and 3 and before markers 2 and 4 (always worked from the right side on the sleeves). " "ROW 2 (wrong side): Purl and increase to raglan on each side of all markers (8 stitches increased), turn when you have purled 3 stitches past the last marker." It should be added increases only for front and back, so 4 stiches increases. " But then you won't get the full number of stitches mentioned. There must be something wrong.
22.04.2025 - 00:32
Meet the Captain#meetthecaptainsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með röndum, tvöföldum kanti í hálsmáli og laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 239-38 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð á undan / eftir 1 lykkju í sléttprjóni (lykkja með merki í). Aukið út fyrir fram- og bakstykki á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki þegar prjónað er frá réttu / á eftir 1. og 3. merki og á undan 2. og 4. merki þegar prjónað er frá röngu. Aukið út fyrir ermar á eftir 1. og 3. merki og á undan 2. og 4. merki þegar aukið er út frá réttu / á eftir 2. og 4. merki og á undan 1. og 3. merki frá röngu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður frá röngu þannig: Á UNDAN MERKI: Prjónið uppsláttinn brugðið í aftari lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR MERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn brugðið í fremri lykkjubogann. Það eiga ekki að myndast göt. Uppslátturinn er prjónaður frá réttu þannig: Á UNDAN MERKI: Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni og setjið til baka yfir á vinstri prjón, nema í gagnstæða átt (stingið inn vinstri prjóni aftan frá þegar uppslátturinn er settur til baka á prjóninn). Prjónið uppsláttinn slétt í fremri lykkjubogann (uppslátturinn snýr til hægri). Það eiga ekki að myndast göt. Á EFTIR MERKI: Prjónið uppsláttinn slétt í aftari lykkjubogann (uppslátturinn snýr til vinstri). Það eiga ekki að myndast göt. RENDUR: Byrjið við 1. merki (þannig að litaskiptin í röndum verði ekki sýnileg mitt aftan á peysu) og prjónið rendur þannig: * Prjónið 5 umferðir með litnum natur (ca 2 cm), prjónið 8 umferðir með litnum gráblár (ca 3,5 cm) *, prjónið frá *-*. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn er staðsettur fyrir miðju á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Tvöfaldur kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón. TVÖFALDUR KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 88-92-96-100-104-108 lykkjur með DROPS Alaska með litnum gráblár yfir stuttan hringprjón 5 og stuttan hringprjón 4 sem haldið er saman (uppfitjunin er gerð svona til að uppfitjunarkanturinn verði teygjanlegur). Dragið út stutta hringprjón 5 og haldið lykkjum eftir á hringprjóni 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 8 cm. Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, brjótið stroffið inn þannig að kanturinn verði tvöfaldur – síðan er næsta umferð prjónuð slétt JAFNFRAMT því sem fjórða hver lykkja er prjónuð saman með fjórðu hverri lykkju frá uppfitjunarkanti. Nú hefur myndast tvöfaldur kantur í hálsmáli. Héðan er nú stykkið mælt. Nú eru sett 4 merki í stykkið, þetta er gert samtímis sem aukið er út um 4 lykkjur í hverri umferð eins og útskýrt er að neðan – merkin eru notuð þegar auka á út fyrir laskalínu: Prjónið 10-12-12-14-14-16 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 1 lykkju (hálft bakstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, prjónið 21 lykkjur (ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, prjónið 21-23-25-27-29-31 lykkjur slétt og aukið jafnframt út um 2 lykkjur jafnt yfir (framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, prjónið 21 lykkjur slétt (ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, prjónið sléttar lykkjur yfir síðustu 11-11-13-13-15-15 lykkjur og aukið jafnframt út um 1 lykkju (hálft bakstykki) = 92-96-100-104-108-112 lykkjur. HÁLSMÁL: Nú er prjónað hálsmál með stuttum umferðum eins og útskýrt er að neðan. Skiptið yfir á hringprjón 5. Byrjið fyrir miðju að aftan. UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan, hvoru megin við 2 fyrstu merkin (4 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá lykkju með 2. merki. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll merkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 3 lykkjur fram hjá síðasta merki. UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll merkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við öll merkin (8 lykkjur fleiri), snúið þegar prjónaðar hafa verið 2 lykkjur fleiri en við fyrri snúning. UMFERÐ 5 (rétta): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við 2 fyrstu merkin (4 lykkjur fleiri), prjónið að miðju að aftan. Stuttu umferðirnar hafa nú verið prjónaðar til loka og aukið hefur verið út 4 sinnum fyrir laskalínu við hvert merki = 124-128-132-136-140-144 lykkjur í umferð. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! BERUSTYKKI: Síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur eins og útskýrt er að neðan. STÆRÐ S, M, L og XL: Byrjið fyrir miðju að aftan, prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á fram- og bakstykki og ermum (þ.e.a.s. hvoru megin við 4 lykkjur með merki í) í annarri hverri umferð alls 2-8-10-11 sinnum = 140-192-212-224 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13 cm frá kanti í hálsmáli eru prjónaðar rendur – lesið RENDUR í útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni, rendur og útaukningar fyrir laskalínu, en í annað hvert skipti sem aukið er út, aukið einungis út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-15-14-16 sinnum á fram- og bakstykki (9-7-7-8 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 24-27-28-31 sinnum á fram- og bakstykki og 15-19-21-23 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu eru 248-280-296-320 lykkjur í umferð. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR. STÆRÐ XXL og XXXL: Byrjið mitt að aftan, prjónið sléttprjón og haldið áfram með útaukningar fyrir laskalínu í hverri umferð á fram- og bakstykki 2-6 sinnum og í annarri hverri umferð á ermum 1-3 sinnum = 152-180 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13 cm frá kanti í hálsmáli eru prjónaðar rendur – lesið RENDUR í útskýringu að ofan. Síðan er aukið út á fram- og bakstykki og ermum (þ.e.a.s. hvoru megin við 4 lykkjur með merki í) í annarri hverri umferð alls 10-7 sinnum = 232-236 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni, með röndum og útaukningu fyrir laskalínu, en í annað hver skipt sem aukið er út er nú einungis aukið út á fram- og bakstykki (4 lykkjur fleiri). Þ.e.a.s. aukið er út á fram- og bakstykki í annarri hverri umferð og á ermum í 4. hverri umferð. Aukið svona út 18-22 sinnum á fram- og bakstykki (9-11 sinnum á ermum). Nú hefur verið aukið út alls 34-39 sinnum á fram- og bakstykki og 24-25 sinnum á ermum. Eftir síðustu útaukningu eru 340-368 lykkjur í umferð. Farðu áfram í ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: = 248-280-296-320-340-368 lykkjur. Prjónið sléttprjón og rendur án útaukninga þar til stykkið mælist 21-23-25-27-29-32 cm Mælt mitt að framan eftir stroffi í hálsmáli. Í næstu umferð skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 37-42-43-48-51-58 lykkjur (hálft bakstykki), setjið næstu 49-57-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið næstu 75-83-87-95-103-115 lykkjur (framstykki), setjið næstu 49-57-61-65-67-69 lykkjur á þráð fyrir ermi og fitjið upp 6-6-8-8-10-10 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið þær 38-41-44-47-52-57 lykkjur sem eftir eru (hálft bakstykki). FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-178-190-206-226-250 lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og röndum þar til stykkið mælist 28-28-28-28-28-27 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé með nokkrum umferðum í litnum gráblár fyrir stroff (nú eru eftir ca 5 cm að loka máli) og afgangur af stykki er prjónað í litnum gráblár. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 18-22-22-26-26-34 lykkjur jafnt yfir = 180-200-212-232-252-284 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 5 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 60-62-64-66-68-70 cm frá öxl og niður. ERMI: Setjið 49-57-61-65-67-69 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á stuttan hringprjón eða sokkaprjóna 5 og prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 55-63-69-73-77-79 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í nýjar lykkjur. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu, það á að nota hann síðar þegar fækka á lykkjum fyrir miðju undir ermi. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni og röndum. Þegar ermin mælist 4 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona með ca 8-4½-3-2½-2-2 cm millibili alls 5-8-10-11-12-12 sinnum = 45-47-49-51-53-55 lykkjur. Prjónið áfram þar til ermin mælist 38-36-35-33-31-29 cm frá skiptingu – stillið af að endað sé með nokkrum umferðum í litnum gráblár fyrir stroff (nú eru eftir ca 6 cm að loka máli) og afgangur af stykki er prjónaður í litnum gráblár. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 7-5-7-5-7-5 lykkjur jafnt yfir = 52-52-56-56-60-60 lykkjur. Prjónið stroff (2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 6 cm. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-42-41-39-37-35 cm frá skiptingu. Prjónið hina ermina á sama hátt. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #meetthecaptainsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-38
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.